Frækorn - 31.01.1911, Síða 3
F R Æ K O R N
11
ar væri. Ekki er því að neita, að
ýmsir meðal gáfuðustu manna heims-
ins hafa hneykslast á kristinni trú;og
hefir vantrúin heldur ekki sparað
að hrósa sér af þeim. Hún hefir
talið sig eiga alla skynsemi, allar
gáfur, en ánafnað kristninni >alt
merglaust og andlega visið.« En
þessum slego-judómi vantrúarinnar
er líkt farið og hrakspám hennar.
Reyndin er öll önnur. Þeir, sem
afdráttarlaust játa kristna trú, eru að
öllum jafnaði eingu síðri að and-
legu atgjörvi en hinir, sem á móti
eru, og afburðamenn að gáfum eru
að minsta kosti ekki færri í flokki
kristinna manna en utan kristninnar.
Ef kristin trú væri eins heimsku-
leg og óvinir hennar lata i veðri
vaka, þá hefði allir skynberandi og
hugsandi menn hlotið að forðast
hana, hæðast að henni, annaðhvort
opinberlega eða í hjörtum sínum.
Þá hefði hún hlotið að vera útdauð,
hlegin út úr heiminum, fyrir löngu.
Því hvað getur staðist til lengdar,
sem kemur algjörlega í bága við
alla mannlega skynsemi? Hér er
það einmitt, sem mótstöðumönnum
vorum skjátlast; kristin trú er ekki
í ævarandi, óyfirstíganlegri mótsögn
við alla mannlega skynsemi. Skyn
eða skilningur mannsins er aðeins
verkfæri, aðeins augagler eða sjón-
auki, er hann lítur gegnum á það,
sem fyrir hann ber. Trú hans er
augað; jafnvel hjá vantrúarmönnum;
því allir menn hafa einhverskonar
trú, þótt ekki sé nema á mátt siun
og megin. »Ef því auga þitt er
heilt, þá mnn allur líkami þinn vera
í birtu; en sé auga þitt sjúkt, þá
mun allur líkami þinn vera í myrkri;
ef því Ijósið, sem í þér er, er myrkur,
hve mikið verður þá myrkrið!«
(Matt. 6, 22. 23). Þegar maður lít-
ur svo á kristin trúarbrögð og heil-
aga ritning ineð sjúka auganu, liinni
stórgölluðu, afvegaleiddu, trúarsann-
færing sinni, gegnum gler skynsmei
sinnar, þá sér hann þar tómar of-
sjónir; honum finst þar ekkert vera
nema öfgar einar og mótsagnir.
En trúaður maður horfii á þesa
sömu hluti með augum kristinnar
trúar í gegnum gler sinnar skyn-
semi, og sér þar samræmi eitt og
guðlega speki. Skynsemin er því
ekki aflið, sem mestu ræður í sál-
um manna, heldur trú þeirra, ein-
hverskonar trú, jafnvel hjá vantrú-
armönnum. Kristiu trúarbrögð finn-
ast þeim tóm heimska, af því þeim
finst augaglerið, skynsemin, hafa
leitt í ljós ofsjónir þær, sem í raun
réttri komu tram í myrkri eigin sálna
þeirra.
Því er það og, að margir, fjölda-
margir, meðal mikilmenna heimsins
hafa verið trúaðir, kristnir menn, og
hafa alls ekki dæmt kristin trúarbrögð
útlæg í nafni skynsemi s;nnar, heldur
þvert á móti lagt þeim lið með eigin
vitnisburði sínum.
G. G. i Sam.
MARÍA MAGDALENA.
Ritornella.
Þegar holdsins ríki rénar,
ryður iðranin sér braut;
breysk var María Magdalena,
mikil var og hennar þraut;
Á fœtur Jesú feldi’ hún tárin,
fæðði þá með gullnu hári.
Á fætur Jesú felldi, hún tárin,
föl var hún og hugarsjúk;
með líknar-grösum græddi' ’annsárin,
góðs er læknis höndin mjúk;
smyrslin Jesú sárt ei svíða,
særð ei þurfa hjörtu að kvíða.
Smyrslin Jesú sárt ei svíða,
svíar verkur, undin grær,
langt er eigi bata’ að bíða,
ben af táradöggin þvær;
rótt varð Maríu Magdalenu
miskunnar í blíða hlénu.
Rótt varð Maríu Magdalenu, —
minnug þetta geymdi hnoss;
fylgdi Kristi að feigðartrénu,
til fóta sat hún hans við kross;
iðraninnar ímynd fögur,
enga fegri geyma sögur.
VALD SANNLEIKANS.
Eftir Edvard Wavrinsky.
Annaðhvort heyrði eg eða las —
fyrir löngu þó — um blóðþyrstan
harðstjóra, Austurlanda-höfðingja, er
þræll hvatti til göfuglegs verks.
Konungurinn hafði unnið sigur
í miklu stríði, og liinir herteknu
óvinir hans voru færðir bundnir
fram fyrir hásæti drotnarans, til þess
liann gæti notið þeirrar »ánægju«
að sjá óttann á ásjónum þeirra, er
þeir hugsuðu um hinn ægilega
dauða, sem beið þeirra.
Einn hinna herteknu manna krýp-.
ur á hné móti násætinu og biður
uni náð og vægð. Hann nötraði
allur af ótta.
Sigurvegarinn naut þessarar sjón-
ar með dýrslegri unaðssentd.
»Hvers þorir þú að biðja?« hróp-
aði liann.
»Náð! Vægð! Eg hefi ætíð talað
vel um yður hjá höfðingja vorum,
þá er hann hafði valdið og ofsótti
yður. Eg hefi oft lagt líf mitt í
hættu fyrir yður og beðið um vægð
til handa yður, þegar þér og menn
yðar þurftu þess með.«
»Ha! ha! Aumingi, þú óttast
dauðann, og þú vilt frelsa líf þitt
með fyrirlitlegri lygi.«
»Nei, það er sannleikur, sem eg
segi yður. Náð! Vægð!«