Frækorn - 12.05.1911, Page 1
HEIMÍUSBLAÐ.
MEOMYNÐUM
' J RITSTJÓRl: DAVID ÖSTLUND
2Apr Árg.ostair hér á landi 1 kr. 50 au. í
• Vesturheim 60 cents. Gjaldd. 1 okt.
REYKJAVÍK, 12. MAÍ 1911
Auglýsingar 1 kr. 25 au. þumj.unginn.
Afgr. Austurstr.17. - Prsm. D. Östlunds
6. TBL.
£)
*§# mV tMrEg KENNING OG LlF 0
VITNISBURUIR MIKILLA MANNA
UM KRIST 0G BIBLÍUNA.
Margir halda, að allir miklir
gáfu- og vísindamenn séu and-
stæðirtrúarbrögðum kristindóms-
ins og biblíunni sem guðs orði.
Hér eru nokkrir vitnisburðir slíkra
manna, og fjöldamargir aðrir eru
til.
Benjamín Franklín, eitthvert
mesta mikilmenni, er Bandarfkja-
sagan getur um, segir:
»Ungi rnaður! Ráð mitt til
þín er, að þú kynnir þér vel heil-
aga ritningu og trúir henni vel.
Petta mun sérstaklega verða þér
til góðs.
Eg álít, að siðfræðis- og trú-
kerfi Krists, sem hann eftirlét
oss, sé hið bezta, er heimurinn
nokkurn tíma hefir átt eða geti
átt von um að eignast.*
Thomas Jefferson, 3. forseti
Bandaríkja, sagði:
»Eg hefi sagt og eg mun ætíð
segja, að gaumgæfilega rannsókn
hinnar helgu bókar mun skapa
betri borgara, betri feður og betri
eiginmenn.*
Daníel Webster, mikill stjórn-
málamaður Bandaríkja, sagði:
»Ef vér höldum fast við þær
meginreglur, sem kendar eru í
biblíunni, mun land vort eiga æ
meiri ogmeiri framförum að fagna,
en ef vér og eftirkomendur vor-
ir vanrækja lærdóma hennar og
afneita giidi hennar, þá getur
enginn maður sagt fyric, hve
fljótt ógæfan geti komið yfiross
og grafið alla dýrð vora í algjöra
gleymsku. Biblían er bók handa
lögfræðingum alveg eins og handa
guðfræðingum, og eg vorkenni
þeim manni, sem ekki getur fund-
ið í henni auðuga uppsprettu
hugsana og reglna fyrir lífi sínu.
Eg trúi því, að Jesús sé sonur
guðs.«
Ralph Waldo Emerson, hinn
mikli heimspekingur Ameríku-
manna, sagði:
»Jesús er hinn fullkomnasti
allra manna, sem enn hafabirst.«
Goethe, Pýzkalands mesta
skáld, sagði:
»Það er trúin á biblíuna, sem
hefir verið mér leiðtogi í minni
siðfræði og ímínu bókmentalega
lífi. Engin gagnrýninger fær um
að taka frá oss þá trú, sem vér
höfum öðlastá þá ritningu ervakti
oss upp og lífgaði vorn andlega
kraft fyrir kraft sjálfrar sín. Eftir
því, sem tímarnir leiða til meiri
mentunar, mun biblían verða
meira notuð.«
Thomas Carlyle, frægur ensk-
ur sagnaritari, segir:
»Jesús er hin guðdómlegasta
eftirmynd vor. Hærra hefir mann-
leg hugsun enn ekki náð. Hann
er ímynd varanlegs, fullkomins
mannlífs? Pýðing þess mun ætíð
heimta af oss nýja rannsókn og
nýja opinberun*.
Charles Dickens, enskt skáld
heimsfrægt, sagði í erfðaskrá sinni:
»Eg fel sál mína miskunn guðs,
fyrir drottin vorn og frelsara
Jesúm Krist og hvet mín kæru
börn til þess auðmjúkiega að
leitast við að fylgja kenningum
hins nýja testamentis«.
Skakespeare, annaðfrægt enskt
skáld, sagði í erfðaskrá sinni:
»Eg fel sálmínaí hendurguðs,
skapara rníns, ívon og vissri trú
að eg einungis fyrir verðskuldun
frelsara míns Jesú Krist muni
verða hluttakari eilífs lífs«.
Diderot, frakkneskur rithöfund-
ur og heimspekingur: