Frækorn - 01.04.1913, Blaðsíða 1
i 4. árg.
Arg. kostar hér á Iandi 75 au. í
Vesturheimi 40 cents. Ojaldd. 1 okt.
REYKJAVÍK, APR,- MAÍ 1913.
Auglýsingar 1 kr. 25 aa. þumlunginn. „ .
Afgr. Austurstr.17. -Prsm.D. Ostlunds tDI.
Einelega.
»Þá sagði Jesús við þá: farið
með mjer einir saman á afvikinn
stað, og hvílist þar um stund, því
svo margir voru komandi og far-
andi, að þeir hötðu ekki matfrið«.
Mark. 6, 31.
í hinu óðfluga, ónæðissama lífi
er oss torvelt að fá að vera svo
kyrlátir, að vjer heyrurn guðsraust og
könnumst við hina leiðandi föður-
hönd. Heill sje því hverjum þeim,
sem einnig í dag gefur gætur að
orðum drottins: »Farið með mjer
einir saman á afvikinn stað«! Vissu-
lega fer hann með sínum út í bar-
áttuna, þar sein stríðið er harðast
og óvinirnir úr öllum áttum flykkj-
ast að. Enn eru fáir þjónar hans,
sem syngja: »Þú tilreiðir mjer mat-
borð fyrir minna óvina augsýn«.
En svo safnar hann þeim, aðskild-
um frá heiminum, að þeir svo sem
heilagur lýður endurnærist í trúnni
hver með öðrum, af fyrirheitum
drottins og sameiginlega njóta dýrð-
legrar sælu guðsbarna. Hve sönn
reynast hjer ekki orð Jesú: »Farið
á afvikinn stað með mjerU
— Ef vjer, Krists játendur, elsk-
um drottin umfram alt annað, þá
er eðlilega afleiðingin, sú að vjer
kappkostum að þóknást honum í
öllu jafnt í smáu sem stóru. Þetta
er það sem vjer erum hvattir til í
ritningunni, því það stendur: »Hvað
helst þjer aðhafist í orði eður verki,
þá gjörið alt í nafni drottíns Jesú,
þakkandi guði og föður fyrir hann.«
Kól. 3, 17.
Sa'lu minni er sælt að vita, að
hið versta sem óvinurinn getur gjörtf
er, að slíta sundur fjötrana, sem
binda guðs börn. Þegar Kristur
er með oss, skulu sárustu raunir að
eins leysa jarðnesku böndin og hjálpa
oss að keppa hærra upp.
D. L. Moody.
Sá er göfugur, sem gleðst yfir
framförum meðbræðra sinna hjer
í lífi, þó haun sjálfur ekki njóti
þeirra.
— Ný föt eru stundum aðal-
hvötin til kirkjuferða.
— Það er miklu betra að lifa
heilögu lífi en tala um það.
— Ef mennirnir alment leituðust
við að vera í sannleika, það sem
þeir vilja sýnast vera, þá mundi
lífið verða alt öðruvísi en það er.
Dramb.
Engin synd er eins vandþekt, lævís,
tælandi, ísmeygileg, svo áheyrileg,
eins og andlegt dramb. Það glæð-
ir Ieynilega ánægju yfir gáfum vor-
um, reynslu, blessun og trú á það
að maður sje guðs elskulega barn,
eigi frelsi öðrum fremur, geti gjört
ýmislegt betur en aðrir, yfir því að
standa dálítið hærra en aðrir menn.
Það er ekki hættulaust að tala
hátt og einarðlega á guðræknis-sam-
komum, því ef til vill kemur and-
legt stærilæti þar fram. Ekki hættu-
laust að vera ákaflega hrifinn af
aðdáunarverðum hlutum og fágætri
trúarreynslu, því ef til vill felst and-
legt dramb í því. Það er ekki
hættulaust að keppast eftir miklum
hlutum, miklum framgangi, því nærri
því án undantekningar læðast þar
inn sjálfssvik, og sjálfsþótti og sú
hætta að göfga og dýrka skepnuna
í stað skaparans.
O. D. Watson.
— Ekki það, sem þjer hefur
áskotnast handa sjálfum þjer, held-
ur það, sem þú hefur gjört fyrir
aðra, mun veita þjer ánægju í
einverustundum þínum.