Gjallarhorn - 03.02.1911, Qupperneq 3
OJALLARHORN.
11
>«»«»»» « » »»»»»»••• •••••••••>« • • • • • •••••• • • • • »««»»«»♦
/K Skoðun á síld.
Otto Tulinfus kaupmaður og konsúll
lagði fram tillögu er hljóðar svo:
Með því að reynslan hefir svo ljós-
lega sýnt, hve illa síld vor hefir selzt
undanfarin ár, á útlendum markaði,
sem stafar af því, að mikill hluti henn-
ar er farinn að skemmast þegar hún
er söltuð, þá skorar fundurinn á al-
þingi að samþykkja lög um skyldumat
á nýrri síld, með svipuðu fyrirkomu-
lagi og farið var fram á í frumvarpi
því er lagt var fyrir síðasta þing, og
æskir þess að lög þessi geti komið
til framkvæmda fyrir I. júlí næstkom-
andi. Og jafnframt skorar fundurinn
á þingmann kjördæmisins að framfylgja
því af alefli.
Breytingartillaga kom frá E. Laxdal
um að í staðinn fyrir orðið »nýrri síid<
komi »útfluttri síld«, var feld en að-
altillagan samþykt með meginþorra
atkvæða gegn 2.
V. Styrkur úr fiskiveiðasjóði.
Frá verzlunarstjóra Pétri Péturssyni
kom þessi tillaga:
Fundurinn skorar á alþingi að breyta
lögum frá 31. júlí 1907, þannig, að
skýrt verði tekið fram, að fé það, er
samkvæmt þeim skuli verja til efling-
ar síldarútvegi innlendra manna, verði
aðeins úthlutað til útgerða skipa þeirra
sem veiða síldina, og útgerðarmaður-
inn hafi innborinna manna rétt á ís-
landi, enda sé skipið að öllu leyti eign
íslendinga og reki veiði sína einungis
hér við land.
Tillagan samþykt með öllum atkvæð-
um gegn 1.
VI. Síldarnœtur.
Tillaga kom fram frá kaupmanni og
konsúl Otto Tuliníus:
Fundurinn bendir á að lögum um
síldarnætur 25. sept. 1902 hafi ekki
verið framfylgt, og skorar á stjórn-
ina að framfylgja þeim.
Samþykt í einu hljóði.
VII. Útgerðarmannafélag.
Frá Ásgeiri Péturssyni kom fram
svohljóðandi tillaga:
Fundurinn er hlyntur því, að stofn-
að verði útgerðarmannafélag fyrir alt
land, og telur sjálfsagt, að það þá fái
styrk úr landssjóði.
Feld með 70 atkvæðum gegn 62
atkvæðum.
VIII. Oufubátsferðir fyrir Norðurland.
Svohljóðandi tillaga kom fram:
Fundurinn Htur svo á, að styrkur
til gufubáts fyrir Norðurlandi megi
ekki vera lægri en hann er nú.
Samþykt í einu hljóði.
IX. Brúargerð á Eyjafjarðará.
Þingmaður Sigurður Hjörleifsson hóf
íyrstur máls og lagði fram eftirfarandi
tillögu:
Fundurinn vill enn af nýju brýna
fyrir alþingi nauðsynina á brú á Eyja-
fjarðará, því vatnsfallinu, sem nú mun
vera fjölfarnast yfir af öllum þeim ám
landsins, sem enn eru óbrúaðar. Tel-
ur hann sjálfsagt að sú brú verði gerð
á »Hólmavöðum«.
Fundurinn telur brú þessa lang-
þörfustu vegabótina í sýslunni og
óskar því fastlega eftir að fé verði
veitt til hennar á þessu þingi.
En sjái þingið sér það ekki fært,
fjárhagsins vegna, eða vegna þess að
undirbúningur þyki ekki nægilegur,
skorar fundurinn á þing og stjórn að
láta þann undirbúning fara fram svo
snemma, að hægt sé að veita fé til
brúarsmíðisins í fjáraukalögum á þing-
inu 1913.
Samþykt í einu hljóði.
X. Skoðun og stimplun á kjöti.
Frummælandi Sigurður Einarsson
dýralæknir kom fram með svohljóð-
andi tillögu:
Fundurinn telur það með öllu ótíl-
tækilegt, að fela öðrum mönnum en
lærðum dýralæknum skoðun og stimpl-
un á kjöti því, er seljast á til út-
landa, en telur hinsvegar skoðun og
stimplun á slfku kjöti hið mesta nauð-
synjamál. Af þessum og fleiri ástæð-
um telur fundurinn óhjákvæmilegt að
þing og stjórn stuðli til þess að fjölga
dýralæknum f landinu, en til þess að
bjarga við kjötskoðuninni þangað til
væntanlegir íslenzkir dýralæknar fást,
virðist eina ráðið að fá hingað í slát-
urtíðinni hæfilega marga dýralækna
frá Noregi eða Danmörku, og væri
rétt að veita til þess opinbert fé að
einhverju leyti.
Jafnframt telur fupdurinn nauðsyn-
egt að það sé trygt með lögum, að
óleyfilegt sé að merkja kjöt með
stimplum, er séu of líkir þeim dýra-
læknisstimplum, sem hér eru notaðir.
Samþykt með meginþorra atkvæða
gegn 3-
XI. Skilyrði fyrir styrk til búnaðarfélaga.
Sigurður Hjörleifsson alþingismaður
agði fram svohljóðandi tillögu.
Fundurinn telur fjölgun áburðarhúsa
eitt af þýðingarmsetu skilyrðunum fyr-
ir ræktun landsins, og skorar á bún-
aðarþingið að taka það mál til íhug-
unar og koma fram með tillögur um
á hvern hátt beri að styðja að þess-
ari nauðsynlegu umbót á búnaði lands-
manna.
Samþykt í einu hljóði.
XII. Skifting sýslumanns- og bœjarfó-
getaembœttisms.
Þá kom fram tillaga frá frummæl-
anda málsins, kaupm. og konsúl Otto
Tulinius, er hljóðar svo:
Fun^iurinn lítur svo á, að bæjarfó-
getaembættið á Akureyri og sýslu-
mannsembættið í Eyjafjarðarsýslu sé
orðið svo umfangsmikið, að það sé
ofætlun einum manni að þjóna því,
og það því fremur sem embættis-
störfin fara sívaxandi. — Jafnframt
telur hann fjárhagslega hættu af því
yrir landssjóðinn, að ekki sé á Siglu-
firði maður með fullu embættisvaldi,
alt að því helming ársins, og brýna
nauðsyn að valdsmaður hafi þar lengri
dvöl, meðan þar er mest skipkoma.
Fyrir því skorar hann á þing og
stjórn að taka malið til rækilegrar
meðferðar, þegar á þessu þingi.
Samþykt í einu hljóði.
XIII. Kosningar til bœjarstjórna.
Eggert Laxdal frummælandi máls-
ins lagði fram þessa tillögu:
Fundurinn vill að lögum um kosn-
ingar til bæjarstjórna verði breytt í
þá átt, að kjósendum gefist kostur á
að kjósa um alla þá menn, sem á
lista eru settir.
Feld með þorra atkvæða.
XIV. Opinber endurskoðun.
Alþingismaður Sigurður Hjörleifsson
kom fram mcg tillögu sVohljóðandi:
Fundurinn tjáir sig meðmæltar því,
að sett verði í lögum ákvæði um op-
inbera endurskoðun á reikningum þeirra
félaga, er hafa sér til tryggingar sam-
ábyrgð margra manna.
Samþykt í einu hljóði.
Fleiri mál voru eigi á dagskrá. —
Fundi slitið.
Guðl. Guðmundsson,
(fundarstjóri).
Hallgr. Kristinsson,
J. Karlsson,
(skrifarar).
Til Ástu.
Reynið Boxkalf-svertuna
T |\| og notið ekki aðra skósvertu.
OvJJN Fæst hjá kaupmönnum alstað-
ar á íslandi.
Buchs Farefabrik Köbenhavn.
Skíðaefni
fæst í verzlun
SN. JÓNSSONAR.
Hér situr þú döpur og syrgir,
nú sólfagra vormorgun tíð,
því vetur er kominn með kuldann
— það kveður við grenjandi hríð.
Og hætt er nú heiðlóa’ að kvaka
og hreiðrin því tómleg að sjá,
og blómin í brekkunni fríðu
nú blikna og falla í dá.
Og mér virðist eins og þú Ásta,
sért einnig að falla í dá,
því farið er fjör þitt og gleði
og fölvari’ er orðin þín brá.
Eg horfi samt enn á þig hrifinn,
því hjarta mitt tyrir þig slær!
Eg sé tyrir kulda þú kvíðir,
en — komdu mér svolítið nær.
Halla þér rótt mér að hjarta,
því hitinn þar logandi er,
og vetrarís kælir hann varla,
því vor er í sálinni’ í mér!
Eg kvíði ei komandi tímum,
því kærleikur von mína ber,
í kuldanum lamandi leiða,
það Iifa hans vorblóm í mér.
Og þú, sem átt æsku og yndi,
er ástin ei lífsmagn í þér?
Eg veit að hún vermir þig alla
ef viltu’ aðeins hallast að mér!
Pálmi.
Verzlunin EDINBORG
Sölubúðin verður opnuð á morgun.
Með s/s Mjölnir kom mikið af allskonar ódýrrt
vefnaðarvöru
sem verið er nú að taka upp.
Frestið ekki til morguns að líftryggja ykkur.
í ágústmánuði s. 1. voru keyptar lífsábyrgðir í „Andels-Anstalten" fyrir
kr. 1,114,280. F>að er ódýrasta og bezta lífsábyrgðarfélagið.
„Andels-Anstalten" heimtar engin auka-iðgjöld af sjómönnum.
„Andels-Anstalten" tekur menn í Iífsábyrgð með og án læknisskoðunar.
„Andels-Anstalten" tekur börn í lifsábyrgð með mjög góðum skilyrðum.
wAndels-Anstalten" veitir gjaldfrest á iðgjöldum ef veikindi eða önnur
óhöpp bera að höndum, sé beðið um það í tíma.
„Andels-Anstalten" starfar á grundvelli samvinnu-félagsskaparins og ber
hag hvers einstaklings fyrir brjósti.
Ltfiryggið ykkur í „Andels-Anstalienu.
Umboðsmenn:
■ Snorri Jóhannsson, verksmiðjubókari, Reykjavík.
Páll Zóphoniasson, kennari, Hvanneyri.
Ólafur Sigurðsson, skipherra, Stykkishólmi.
Bjarni Loftsson, kaupfélagsstjóri, Bíldudal.
Ingólfur Kristjánsson, sýsluritari, Patreksfirði.
Jóhannes Proppé, bókhaldari, Þingeyri.
Hannes Jónsson, búfræðiskandidat, ísafirði.
Björn Magnússon, ritsímastjóri, Borðeyri.
Quðjón Guðlaugsson, kaupfélagsstjóri, Hólmavík
Jóhannes Stefánsson, verzlunarstjóri, Hvammstanga,
Jón Jónsson, héraðslæknir, Blönduósi.
Jón Pálmasoti, verzlunarstjóri, Sauðárkrók.
Anton Proppé, verzlunarstjóri, Hofsós.
Sigurður J. Fanndal, verzlunarstjóri, Haganesvík.
Halldór Jónasson, kaupmaður, Siglufirði.
Hallgrímur Kristinsson, kaupfélagsstjóri, Akureyri-
Páll Sigurðsson, símastöðvarstjóri, Húsavík.
Sigurður Jónsson, dbrm., Yzta-Felli.
Halldór Skaftason, ritsímastjóri, Seyðisfirði.
Aðalumboðsmaður á íslandi:
Jón Stefánsson, Akureyri.
Umboðsmenn óskast á þeim stöðum, sem þeir eru ekki áður. Umsókn-
ir um það sendist til aðalumboðsmanns félagsins.