Gjallarhorn - 28.03.1911, Blaðsíða 1
Gjallarhorn.
Ritstjóri: Jón Stefánsson.
• • • •♦••••♦•••• •••
V, 14. *
• • ♦• ♦♦♦-••♦♦-♦• ♦♦•♦•♦• •-♦-•■♦-
Akureyri 28. marz.
••••••••••••♦♦••••••>•
1911.
W
Stór útsala!
Frá fimtudegi 30. marz til mánudags 3. apríl að báðum dögurn meðtöldum selur
Brauns verzlun Hamburg
allar hinar margbreyttu, vönduðu og útgengilegu vörubirgðir sínar með frá
10 fil yfir 25°|o afslæffi.
Notið tækifærið meðan pað gefst. Það er ekki nema einu sinni á ári.
(|®r Brauns verzlun Hamburg hefir engar gamlar vörur. pær eru allar nýjar og
vandaðar.
Virðingarfylst.
Balduin Ryel.
Gæzlustjóraþrætan.
Eins og getið var um í síðasta blaði,
að í ráði væri, var Eiríkur Briem sett-
ur aftur inn í gæzlustjóraembættið á
föstudaginn var. Við atkvæðagreiðsl-
una f neðri deild, um það, greiddu
14 atkv. með því, Skúli Thoroddsen
greiddi ekki alkv., en kunnugt er, að
bæði hann og Hannes Þorsteinsson
forseti neðri deildar töldu afsetning-
una óhæfilega lögleysu. Móti greiddu
atkv. 10 »Björnungar«. Þeir fjórtán
voru:
Bjarni Jónsson frá Vogi,
Einar Jónsson Geldingalæk,
séra Eggert Pálsson,
Hannes Hafstein,
Jóh. Jóhannesson bæjarfógeti,
Jón Jónsson Múla,
Jón Jónsson Hvanná,
Jón Magnússon bæjarfógeti,
Jón (Ölafsson,
Jón Sigurðsson Haukagili,
Ólafur Briem,
Pétur á Gautlöndum,
Stefán Stefánsson Fagraskógi,
Sig. Sigurðsson ráðunautur..
Báðir gæzlustjórarnir, sem Björn
Jónsson rak frá embættum sínum í
nóvb. 1909, eins og kunnugt er, hafa
því verið settir inn í þau aftur af
réttum dómara í málinu, og það glap-
ræði B. J. því dæmt ómerkt á alla
vegu.
Það glappaskotið loks leiðrétt.
En eftir er þó enn margt og mikið
ógert, til þess að lagfæra það, er
hlotist hefir af gerræði B. J. gagnvart
Landsbankanum.
Margt af því er auðvitað óbætan-
legt, svo sem áhrif þau, er »banka-
málið« hafði á öll viðskifti manna í
landinu, bæði lamandi og deyfandi. .
Eða óhugurinn, sem það vakti út
um heim í garð íslendinga. Hver get-
ur talið tölum það tjón, er þjóðin
hefir af honum haft í augum nágranna-
þjóðanna t)g hver gæti bættþaðtjón?
Eða öll úlfúðin og óvildin, sem það
tiltæki B .J. varð orsök til manna á með-
al í landinu sjálfu. Hver getur jafnað
öll þau illindi og deilur, svo jafnheilt
sé um sem áður?
Tíminn einn. Mennirnir, sem urðu
fyrir rangindunum og þetV sem studdu
þeirra málstað, verða að reyna að
fyrirgefa hinum, er voru valdir að upp-
hafi lögbrotanna. Það verður þjóðinni
í heild sinni affarasælast* og það á
einnig að vera ljúft þeim, er hafa náð
rétti sínum og fengið hann viðurkendan.
Það er gamalt mál, að reynslan er
oft dýrkeypt. Og svo hefir það nú
orðið íslendingum með veru Björns
Jónssonar í ráðherrasætinu. Hún sýnir
það, dvölin hans þar, að ekki er sama,
hvaða persónu er slett niður í þann
sess. Og í fáum stöðum eru misindis-
menn þjóð vorri hættulegri en þar.
Það þarf þjóðin að muna.
Guðm. S. Th. Guðmundssoi)
pósfafgreiðslumaður.
Sigluf. 25/3.
I dag andaðist hér í kauptúninu
Guðmundur S. Th. Guðmundsson póst-
afgreiðslumaður eftir langa og þunga
sjúkdómslegu. Banamein hans var
krabbamein í maganum.
Guðm. sál. dvaldi hér mestan ald-
ur sinn. Hann var fyrst lengi bókhald-
ari við Gránufélagsverzlun, en síðan
rak hann um nokkur ár verzlun fyrir
eigin reikning. Þegar póstafgreiðsla
var sett hér, tók hann við því starfi
og sömuleiðis forstöðu símastöðvar-
innar, þegar hún tók til starfa. Hann
var vinsæll maður, lipurmenni og góð-
ur drengur.
Hann var kvæntur Sigurlaugu Bjarna-
dóttur, er lifir hann ásamt fjórum
börnum.
200 ára afmæli
Skúla fógeta.
Telja má nú áreiðanlegt, að þess
muni verða minst eftir því sem föng
verða til, og vonandi sem bezt og
myndarlegast, í flestum kauptúnum
landsins að minsta kosti.
í ráði er að efna til samskota í
sjóð, er beri nafn Skúla fógeta. Ekki
neitt ákveðið samt enn þá, til hvers
honum verði varið eða vöxtunum af
honum; en helzt í þá átt einhverja,
er menn gætu hugsað sér að bezt
hefði hugnað Skúla gamla.
Ekki hugsað neitt til minnisvarða
eða líkneskis af Skúla í bráðina. Eng-
in mynd heldur til af honum, að
sögn.
Asgeir Sigurðsson konsúll í Reykja-
vík hljóp mannlega undir bagga með
að koma málinu á rekspöl og vinnur
óefað áfram að framkvæmd þess. —
Far er það í styrkum höndum.
Lífsábyrgðarfélagið
Andels-Anstalten.
Kaupmannahafnarblaðið » Politiken «
skýrir frá því, að samningar muni
vera að takast um það að lífsábyrgð-
arfélagið »Andels-Anstalten« kaupi lífs-
ábyrgðarfélagið »Tryg« og taki að sér
þær lífsábyrgðir, sem menn hafa
keypt í »Tryg«.
»Tryg« hefir um all-mörg undan-
farin ár starfað hér á íslandi og boð-
ið mönnum góð kjör, þeim er vilja
kaupa sér lífsábyrgð. Pað hefir einnig
haft duglega umboðsmenn, og eru
því líkur til, að margir íslendingar
séu í lífsábyrgð í »Tryg«.
»Andels-Anstalten« er ungt lífsá-
byrgðarfélag og hefir ekki starfað hér
á Islandi fyr en á miðju síðastliðnu
ári, en þó hafa þegar nokkrir keypt
þar lífsábyrgð. — í Danmörku hefir
það fádæma mikla útbreiðslu. Pað
starfar undir ströngu eftirliti ríkis-
stjórnarinnar dönsku, og iðgjöld þess
eru mjög lág. Sennilegt að þeir, sem
hafa keypt lífsábyrgðir í »Tryg«, muni
eftirleiðis greiða lægri iðgjöld en að
þessu, ef af því verður, að »Andels-
Anstalten« kaupi »Tryg«.
Friörik Nietzsphe.
Á hverju ári koma enn út æfisögur
ög ritdómar um þann mikla gáfu- og
ólánsmann. Um hann segir Stead rit-
stjóri: »Eg játa, að sá blessaði mað-
ur gengur fram af mér. Eg er líklega
oflítið »afarmenni« til þess að kunna
að meta hans andríki og þá speki,
sem hans »Zarapústra« segir. Þó er
það síður fyrir þá sök, að mér ofbjóði,
heldur leiðist mér hann: Alt, sem
hann segir, bendir til óskapnaðar.
Jafnvel dr. Brandes, sem hælir hon-
um á hvert reipi, segist ekki nærri
því ætíð skilja, hvað N. meini. Og
honum ritaði N. 1887 þessi orð: »Ná-
lega alt, sem eg er búinn að semja
ætti helzt að strika yfir.« Það skil eg
dável og samþykki. Fáir hugsa eg
munu endast til að lesa æfisögu hans,
sem ekki eru áður eitthvað heillaðir
af heimspeki hans — þótt kynlega
sundurlaus sé. Jafn bilaður maður, þótt
spekingur sýnist, vekur fremur með-
aumkvun en aðdáun, hin sífelda höf-
uðveiki hans færir sóttnæmi þeim sem
les. Það er og ofureðlilegt, að flestir
aumkvi þann, sem alla meðaumkvun
kvaðst hata, og sýndi í lífi sínu sjálf-
ur svo grátlega mótsetningu fyrirmynd-
ar sinnar og kenninga.
M. J.
Reikningar,
Hreppsgjaldaseðlar,
Sóknargjaldaseðlar,
Skuldabréf og kvittanir
fást í
bókaverzlun
Odds Björnssonar,