Gjallarhorn - 01.06.1911, Blaðsíða 1
UJALLARHORN.
Ritstjóri: Jón Stefánsson.
***** '•* ••••••••••••••*•••••••••• • •• •••••••••••••••••••••••••• • • • • • • • * • • • v* • • • •
V, 24. 2 Akureyri i. júní. • 19H.
D
D.
P.
A.
D. D. P. A.
Til Kaupmanna og útgerðarmanna.
Nú þegar fiskiaflinn fer að byrja, þurfa menn á steinolíu að halda til mótorbátaútgerðar-
innar, og ættu því að kaupa hana í tíma hjá kaupmönnum þeim er maður verzlar við og
muna þá að taka fram, hvaða olíu maður vill fá.
Nú þykir bezta og ódýrasta olían sem til mótora þarf
Special Standard White á 22.50 kr. fatið.
frá „hinu danska steinolíuhlutafélagi" á Akureyri.
Enn fremur eru til margar aðrar teg. með ýmsu verði eftir gæðum.
Kaupið því og semjið við undirritaðan um olíukaup áður en þið semjið við aðra.
Sylinder- og maskínuolía verður til sölu hjá undirrituðum með mjög góðu verði, frá 12
til 24 aura pundið eftir gæðum.
Akureyri 1. maí 1911.
Cail P. Schiöth
Hljómleikar.
Ungfrú Herdís Matthíasdóttir söng
nokkur lög í leikhúsinu á sunnudags-
kvöldið og frú Kristín Matthíasson lék
undir á slaghörpu. Síra Matth. Joch-
umsson las ennfremur upp nokkur
kvæði eftir Gerok í íslenzkri þýðingu
eftir sjálfan sig.
Það var auðheyrt á fyrsta laginu,
sem Herdís söng (Solveigs Sang eftir
Grieg) að hún söng af list sem áður
hefir verið óþekt hér í söng kvenfólks
eða ekki heyrst hér áður, enda fór
svo að lokum, að söngur hennar í heild
sinni vakti almenna aðdáun hjá öllu
söngelsku og söngvitru fólki er áhann
hlýddi. Jafnbezt söng hún lagið Lor-
elei eftir Liszt enda mun ungfrúin
hafa valið sér það, til þess að láta
heyra, hvers hún væri megnug á sem
flestum svæðum söngsins. Það tókst
ágætlega.
Þess verður og að geta, að allar
hreyfingar söngkonunnar á söngpall-
inum voru eðlilegar og blátt áfram,
lausar við alt hik og fálm eða.tilgerð
— og er það mikils virði.
Ef eg ætti að leggja mig í fram-
króka að finna eitthvað að söng Her-
dísar, er það helzt, að söngur hennar
hefði þolað meira fjör og léttleik, en
hún lagði í hann. Framburður hennar
var og einstöku sinnum ekki sem bezt
greinilegur, en það mun eiga sér stað
hjá flestum, þótt snillingar séu, þegar
um erlend tungumál er að ræða.
Áheyrandi.
Kraks Vejviser.
í ár hefir Dr. Krak tekið helztu
íslenzkar verzlanir og fyrirtæki sem
sérstaka deild upp á leiðarvísir sinn,
eða rauðu bókina, eins og hann er
almennt nefndur í Danmörku.
Árið 1770 gaf Holck — hinn nafn-
kunni ágætismaður Dana ■— í fyrsta
sinn út leiðarvísir fyrir Kaupmanna-
höfn, og var það fyrsta sporið til þessa
fyrirtækis, sem nú spennir greipar
alt danska ríkið.
Enginn vafi er á því, að þetta hefir
mikla þýðingu fyrir íslenzk viðskifti
við aðrar þjóðir, því þannig berast
nöfn verzlana og fyrirtækja út á með-
al fleiri rhanna en á nokkurn annan
hátt.
Fyrst og fremst er bók þessi nauð-
synleg handbók fyrir alla starfandi
menn í Danmörku, þar að auki eru
keypt mörg hundruð eintök af henni
í Þýzkalandi, Englandi, Noregi og
Svíþjóð af mönnum þeim, sem skipta
við Danmörku, og utanríkisráðaneytið
sér um, að mörg eintök eru send
dönskum ræðismönnum og sendiherra-
sveitum um allan heim. Það er því
ekki ólíklegt að þetta fyrirtæki geti
orðið aitt meðal annars til þess að
íslenzk verzlun verði greiðari, með
því að gera samböndin beinni, og að
menn þurfi ekki að eiga alt sitt undir
umboðsverzlunum í Kaupmannahöfn.
Til þess að íslenzku upplýsingarnar
verði sem áreiðanlegastar og þannig
gagnlegastar, sendir útgefandinn ís-
lenzkan mann árlega kringum landið
til þess að safna utanáskriftum þeirra
verzlana og fyrirtækja, sem að stærð
og almenningsáliti geta komið til
greina. Og það álítum vér einn af
aðalkostum þessa leiðarvísis, að rit-
stjórnin ákveður sjálf hvaða nöfn taka
skuli, svo að upplýsingarnar verða
þannig trygging fyrir því við hverja
sé óhætt að skipta.
Lög
umbreyting á tolllögumfyrir ísland
(nr. 37, 8. nóvember 1901).
I. gr. tolllaganna orðist svo:
Þegar fluttar eru til íslands vörur
þær, er nú skal greina, skal af þeim
gjöld greiða til landssjóðs þannig:
1. Af allskonar öli, límonaði og
öðrum samskonar óáfengum drykk-
jum, sem ætlaðir eru óblandaðir til
drykkjar 1,00 kr. af hverjum lítra.'
2. Af allskonar Brenriivíni, rommi,
kognaki, whisky, arraki og samskonar
drykkjarföngum með 8° styrkleika eða
mjnna af hverjum lítra kr.
I .OO
yfir 8° og alt að 120 styrkleika 1.50
yfir 12° og alt að 160 styrkleika 2.00
Af 160 vínanda, sem aðfluttur er
til eldneytis eða iðnaðar, og gerð-
ur er óhæfur til drykkjar undir
umsjón yfirvalds. skal ekkert
gjald greiða.
3. Af rauðvíni og samskonar
borðvínum (eigi freyðandi), af
messuvíni svo og af óáfengum
ávaxtavínum, ávaxtasafa og öðr-
um óáfengum drykkjarföngum,
sem ekki eru talin í öðrum liðum 0.50
4. Af öllum öðrum vínföngum,
þar með töldum bittersamsetn-
ingum, sem ætlaðar eru óbland-
aðar til drykkjar, svo og af súr-
um berjasafa (súrsaft) 1.00
5- Af sódavatni 0.02
6. Af bitter-vökva (bitteress-
ents), elixfr og þvl.) af '/4 lítra 1.00
eða minni ílátum. Eftir sama hlutfalli
skal greiða toll, sé varan aðflutt í stærri
ílátum.
Séu vörutegundir þær, sem taldar
eru í töluliðnum 2, 3 og 4, fluttar í
ílátum, sem rúma minna en litra, skal
greiða sama gjald af hverjum 3/4 lítra
sem af lítra í stærri ílátum.
7. Af tóbaki allskonar, reyktóbaki,
munntóbaki, neftóbaki og óunnu tó-
baki af hverju kílógr. (2 pd.) kr. 2.00
8. Af tóbaksvindlum og vindlingum
(cigarettum) af hverju kílógr. kr. 5.20
Vindlingar tollast að meðtöldum
pappírnum og öskjum eða dósum, sem
þær seljast í.
9. Af óbrendu kaffi og kaffibæti
allskonar af hverju kflógr. aur.
30
10. Af allskonar brendu kaffi 40
11. Af sykri og sfrópi 15
12. Af tegrasi 100
13. Af súkkulaði 50
14. Af kakódufti 30
15. Af öllum brjóstsykurs- og
konfekt-tegundum 80
6. gr. Lög þessi öðlast gildi þann
dag, er staðfesting þeirra er birt í
B-deild Stjórnartíðindanna.
Lögin nr. 3, 30. marz 1909 um
bráðabirgðahækkun á aðflutningsgjaldi
er úr lögum numin.
Ágœt heilsufrœðisril:
1. Sundhed,Skönhed,Styrke,
verð 1 kr. 25 a.,
2. Helsebot (tímarit) 1. ár, verð 1 kr.,
útvegar
bókaverzlunOddsBjörnssonar.