Gjallarhorn - 18.08.1911, Page 1
UJALLARHORN.
Ritstjóri: Jón Stefansson.
• • • • • • • • »■«■« • • •••••• ««§«■> • • • • • • • • • • • • • • • • •••••••••• ••••••••••••••••••• •••••••••••••
V. 33. • Akureyri 18. ágúst. • 1911.
•• • • •••••• • • • • • • • • • • •-• ••♦••-♦-•-♦ • • • •••• • • • • • • • • • • • • • * •-• • • •• • • • • • • • • • •••••• ••••••••••
$> Nýkomið mikið úrval af allskonar hreinlæt- isvörum, handsápum, ilmvötnum,
ilmefnapokum, smyrsl- um ýrmskonar o fl.
Vefnaðarvöru- verzlun Gudmanns Efferfl Ennfremur: hárgreiður, • hárnœlur, hárkambar,
svampar o. fl. o. fl. KOMIÐ og SKOÐIÐ. „S/ÓN ER SÖGU RÍKARI“
Gjalddagi »Gjallarhorns«
var i. júlí síðastl.
Eyfirðingar, er það vilja, geta borgað
blaðið í verzlun Magnúsar á Grund.
Yfirleitt má borga blaðið með innskrift
f allar hinar helztu verzlanir á landinu.
Húnvetningar mega borga blaðið í verzl-
un G. Gíslason & Hay á Hvammstanga og
Carl Höepfners verzlun á Blönduósi,
Skagaströnd og Kálfshamarsvík.
Skagfirðingar í verzlun L. Popp og
Gránufélagsverzlun á Sauðárkróki.
Þingeyingar í »K. Þ.< ogörum &Wulffs
verzlanir — og
Múlsýslungar í Örum & Wulffs og Gránu-
félagsverzlanir.
J^Jorræna stefnan í Færeyjum.
„JJorrænt tímarit.“
Dönsk blöð fárast mikið yfir norræna
mótinu, sem haldið var í Færeyjum
(því sem skáldið Matth. Jochumsson
segir frá, í ferðasögu sinni, hér í blað-
inu) af Færeyingum, íslendingum og
Norðmönnum, .og virðast vera hrædd
um, að einhver meira en lítill sam-
dráttur búi undir. Kenna þau »Vest-
mannalaget« í Bergen mest um það,
og segja að það eigi hugmyndina.
— »Politiken« (14. júlí) segir að í ráði
sé að gefa út »norrænt tímarit«, sem
eigi að vera fyrir Noreg, ísland og
Færeyjar, og í ritnefnd þess eigi að
vera sinn maðurinn frá hverju landi,
þessara þriggja. Er auðheyrt að blöð-
unum er yfirleitt illa við hreyfinguna,
og þó sérstaklega tímarits-hugmyndina.
Biilow dómsmálaráðherra Dana brá
sér til Færeyja og var þar á ferðinni
um það skeið er mótið var haldið.
Kirkjubælarprestakall
á Fljótsdalshéraði er laust og verður veitt
frá fardögum 1912. Umsóknarfrestur til 1.
okóber í haust.
Hellsuhællsfélazib.
Síðari aðalfundur þess var haldinn 20.
júlí. — Þar voru lagðir fram reikningar yfir
tekjur félagsins og gjöld, yfir byggingar-
kostnað hælisins og reksturskostnað frá
september 1910 til ársloka.
Sæsími
er nú lagður milli Vestmannaeyja og
lands, en ekki kominn í samband við land-
símann enn þá.
Rifstanzavlti.
1. þ. m. var byrjað að kveykja á hinum
nýja vita á Rifstanga. Vitinn er járnturn 19
metra hár, rauðmálaður, og verður látið loga
á honum frá 1. ágúst til 15. maí eftirleiðis.
Vitavörður er skipaður Jóhann Baldvinsson
bóndi á Rifi.
Erlendur veiðiþjófur
sektaður.
Síðan Björn Lfndal var lögreglustjóri
á Siglufirði, sumarið 1907, og sektaði
útlenda veiðiþjófa og lögbrjóta hópum
saman, hafa þeir víst að mestu haft
frið fyrir lögreglunni þar, þangað til
nú í sumar.
Aðfaranótt 16. þ. m. fékk Vigfús
Einarsson lögreglustjóri á Siglufirði
botnvörpunginn »Marz« úr Reykjavík
til þess að fara með sig þar út fyrir,
í veiðiþjófaleit. Fóru þeir víða, bæði
austur með landi og vestur, en kom-
ust ekki í færi við neinn, fyr en þeir
komu óvörum að einum vestur á Ffaga-
nesvík, er »Thorgrim« heitir, frá Noregi.
Var hann svo nærri landi og svo aug-
ljóslega í landhelgi, að veiðum, að
enginn vafi gat verið á. Tók lögreglu-
stjóri hann þegar og hafði með sér
til Siglufjarðar og kvað þar upp dóm.
Gerði hann veiðarfæri og yeiðina (ca.
400 tn. af síld) upptækt, og auk þess
að gjalda 600 kr. sekt í landssjóð.
Nokkru síðar náði V. E. í skipshöfn
af öðru norsku eimskipi, er »Ffernö«
heitir, og grunur var á um Iandhelg-
isbrot. Játaði skipstjórinn það á sig
eftir nokkrar vöflur og bætti fyrir með
200 kr. sekt í landssjóð.
Vonandi er að V. E. haldi svo á-
fram sem hanu er byrjaður.
Qarðar Qíslason
stórkaupmaður í Reykjavík er væntanleg-
ur hingað með s/s „Vesta", og geta þá við-
skiftamenn hans hitt hann.
Björn Jakobsson
leikfimiskennari kom hingað nýlega frá
Höfn. Hann hafði verið á íþróttamótinu í
Óðinsey, svo sem alþingi veitti honurn styrk
til, og ráðgerir að skrifa bráðlega skýrslu
um ferðina, sem sjálfsagt er.
Gestir í bænum.
Pétur Jónsson alþm. á Gautlöndum, Sig-
urður Jónsson dbrm. í Yztafelli, konsúlsfrú
M. Porgrímsson frá Reykjavík, ungfrú Selma
Guðjohnsen frá Kaupmannahöfn (dóttir Þ.
G. áður verzlunarstjóra á Húsavík), Eðvald
Möller verzlunarmaður, Valdemar Sigmunds-
son skólastjóri í Norðfirði o. fl.
Opinberunarbók.
Sveinn Þórðarson (kaupin. Gunnarssonar)
í Höfða og ungfrú SigurlaugVilhjálmsdótt-
ir (óðaisbónda Þorsteinssonar) í Nesi í Höfða-
hverfi.
Jón Pálsson (hreppstj. Jónssonar) á Stóru-
völlum í Bárðardal og ungfrú Guðbjörg Sig-
urðardóttir (dbrm. Jónssonar). í Yztafelli.
Síldarafli
á hringnóta-veiðiskipin hefir verið mjög
mikill undanfarið. Fjörðurinn er fullur af
síld, inn að Hjalteyri.
VeOrátta
ágæt undanfarið. Hitar og blíðviðri.
Myndarlegt fyrirtæki.
Stærsta fjós ð landinu.
Lögr. hefir áður getið þess, að hr.
Eggert Briem frá Viðey hefði fengið
til ræktunar hjá bænum allstóra spildu
aí Vatnsmýrinni og ætlaði að gera
þar tún. Sfðan hefir hann keypt lóð
sunnan við I.aufásveginn, hér um bil
mitt á milli Lftufáss og Gróðrarstöðv-
arinnar, og hefir í vor og sumat bygt
þar fjós og hlöðu. Útbúnaður allur á
þessu er vafalaust hinn bezti og full-
komnasti, sem til er hér á landi. Fjós-
ið tekur 44 kýr. Það er úr steinsteypu
með járnþaki, sem tyrft er yfir. Glugg-
ar eru á þakinu, en vindaugu á veggj-
unum, og brattinn á þakinu ekki
mikill. Básarnir eru í 4 röðum, 11 f
hverri, fjalagólf undir í básunum, en
flórrennur aftan við úr steinsteypu.
Jöturnar eru einnig úr steinsteypu,
og má hleypa í þær vatni, þegar brynna
þarf. 11 kýr snúa hausum til veggj-
ar út að hvorri hlið hússins um sig,
en 22 snúa hausum að gangi eftir
miðju húsinu, 11 hvoru megin. Sunn-
an við fjósið er steypt og lukt. stein-
þró, gríðarstór, vatnsheld, og er þak-
ið yfir hana einnig steypt úr steini,
utan um járnbita og járnverk, eins
og loftin í bókhlöðunni og Vífilsstaða-
hælinu, og er þakið á henni jafnhátt
gólfinu í fjósinu. En niður í þessa
þró rennur þvagið úr flórrennunum
sjálfkrafa og geymist þar, en notasl
síðan til áburðar. Svo sterkt er þetta
steypuloft, að kýrnar eru látnar ganga
yfir það inn í fjósið, frá steinriði, sem
upp er gengið. Sunnan við þetta er
er öðrumegin steypt for, sem tekur
á móti mykjunni frá fjósinu, en hinu-
megin stór hlaða.
(Eftir „Lögréttu".)
Islendingasaga
Boga Th. Melsteds.
Dr. Carl Kucbler hefir nýlega skrif-
að ritdóm um annað bindið af íslend-
ingasögu Boga Th. Melsteds í hið
heimsfræga vikublað »Literarische
Zentralblatt fúr Deutschland«. Hann
skýrir nákvæmlega frá innihaldi bind-
isins og talar um, hve saga þessi sé
nákvæm, áreiðanleg, gagnorð og ljós,
lýsingar höf. bæði stuttar, glöggar og
skarpar. Hann endar ritdóm sinn á
þessa leið:
»Melsted hefir einnig í hverjum
einstökum kapítula þessa II. bindis
ágætlega sýnt hæfileika sýna til þess
að færa það saman, sem með erfiðis-
munum er tínt upp úr mörgum heim-
ildarritum, og setja meistaralega fram.
Og þar sem þessi fyrsti og bezti
sagnfræðingur ættlands síns hefir f
starfi sfnu mætt margskonar óþægind-
um frá löndum sínum, er það því
leiðinlegra sem hann fyrir ótrauða
starfsemi að góðu verki verðskuldar
hina mesFu viðurkenningu. Hann er
einn af beztu og óeigingjörnustu son-
um ættlands síns og írömuðum hag-
sældar íslands, og væri þess óskandi,
að honum mætti hepnast eins vel
áframhald hins góða ritverks síns og
honum hafa hepnast bæði fyrstu
bindin. En t'yrst og fremst er þess
að óska, að létt verði undir með
honum við verkið og yfir það bætt,
sem misgert hefir verið við hann.«
Bláber
eru keypt í prentsmiðju
Odds Björnssonar.