Gjallarhorn - 08.09.1911, Blaðsíða 1
QJALLARHORN.
Ritstjóri: Jón Stefansson.
V. 36. *
Gjalddagi »Gjallarhorns«
var i. júlí síðastl.
Eyfirðingar, er það vilja, geta borgað
blaðið í verzlun Magnúsar á Grund.
Yfirleitt má borga blaðið með innskrift
í allar hinar helztu verzlanir á landinu.
Húnvetningar mega borga blaðið í verzl-
un G. Gíslason & Hay á Hvammstanga og
Carl Höepfners verzlun á Blönduósi,
Skagaströnd 'og Kálfshamarsvík.
Skagfirðingar í verzlun L. Popp og
Gránufélagsverzlun á Sauðárkróki.
Þingeyingar í >K. Þ.« ogörum &Wulffs
verzlanir — og
Múlsýslungar í Örum & Wulffs og Gránu-
félagsverzlanir.
Nýr banki í Reykjavík.
Arðvænlegt fyrirtæki.
Þýzki konsúllinn í Rvík, hr Ditlev
Thomsen, hefir f hyggju að stofna
nýjan banka þar í haust. Það er gott
fyrirtæki og myndarlega í ráðist af
einum manpi. Er hr. Thomsen fyrsti
íslendingurinn, er færist svo mikið í
fang í þeim efnum, og er það ekki í
fyrsta sinni, sem hann reynir að ryðja
nýjar brautir þjóð sinni til gagns.
Mættu menn óska, að fyrirtækið þrif-
ist vel og ætti góða framtíð í vændum
Bankinn á að heita »Reykjavtkur-
bankinn*. — Eins og getið var í síð-
asta blaði, hefir Thomsen selt nokkuð
af húseignum sínum í Rvfk fyrir sam-
tals 132 þús. kr., og er sagt, að hann
byrji starfrækslu bankans meðal ann-
ars með nokkru af því fé, en hitt fái
hann með sölu hlutabréfa erlendis.
Verksvið bankans á fyrst og fremst
að vera þau bankastörf, »er snerta
verzlun, iðnað og fiskiveiðar, kaup og
sölu á fasteignum, verðbréfum og öðr-
um eignum, innheimtu á kröfum, end-
urskoðun viðskiftabóka, upplýsingar
um viðskifta-atvinnu og önnur banka-
störf eftir atvikum.*
Bankinn á að hafa aðsetur f hús-
eign Thomsens við Lækjartorg, rétt á
móti Stjórnarráðshúsinu, þar sem nú
eru skrifstofur »D. D. P. A.«. Hr. D.
Thomsen verður sjálfur framkvæmdar-
stjóri bankans.
„Austri"
varð tvítugur 10. ágúst s 1. og getur þess
með ofurlítilli æfiminningu. Blaðið var stofn-
að af Otto Wathne, og gaf hann það út á
sinn kostnað fyrsta árið, en eftir það tók
Skapti Jósefsson við því að öllu, en hann
hafði verið ritstjóri þess frá upphafi (10. ág.
1891J, er blaðið byrjaði að koma út, og
var það síðan til dauðadags. Síðan hefir
Þorsteinn sonur hans verið ábyr0jarmaður
i.Austra", en móðir hans og þau systkin
útgefendur blaðsins í félagi. — Það er ekkert
oflof, þó sagt sé, að „Austri" hafa haft
mikla þýðingu fyrir framfarir Austfirðinga-
fjórðungs og öll áhugamál, þessa tvo áratugi.
Akureyri 8.
Fundir í Ringeyjarsýslu.
Breiðumýri 5h.
A sunnudaginn (3. þ. m.) var hald-
inn hér fjölmennur kjósendafundur og
rætt lengi um þjóðmá). Þingmaður
kjördæmisins, Pétur á Gautlöndum,
sagði gang málanna á síðasta þingi
og lýsti ennfremur yfir framboði sínu.
Af Heimastjórnarmönnum töiuðu þar
m. a. Steingr. Jónsson sýslumaður,
Sigurjón Friðjónsson á Einársstöðum
og Guðm. Friðjónsson á Sandi. Ræða
G. F. var mjög vandlega hugsuð og
prýðisvel flutt og vakti hún mesta
eftirtekt. Hún var aðallega um það,
hverja kosti þingmannaefni þau þyrftu
að hafa, sem byðu sig fram við kosn-
ingarnar í haust, miðað við það, hvern-
ig ástandið er nú að verða í landinu.
Af »Sjálfstæðismönnum« töluðu helzt
þeir Hallgrímur f Vogum og Sigurð-
ur skáld Jónsson á Arnarvatni, og síð-
ast í fundarlokin lýsti Sigurður yfir,
að hann ætlaði að bjóða sig fram gegn
Pétri í haust. Þótti undarlegt, að hann
skyldi ekki hafa haft orð á því fyr,
og sló óhug á fundarmenn, er þeir
heyrðu fyrirætlun hans, því mönnum
er að ýmsu leyti sárt um, að hann
láti hafa sig fyrir ginningarfífl »SjáIf-
stæðismanna* í annað sinn og telja
hann of góðan til þess.
A mánudaginn var aukafundur í
sýslunefndinni og voru þar mest ýms
héraðsmál til umræðu.
Síldveiðin
heldur enrt áfram hér fyrir Norður-
landi, en nokkrir eru þó að hætta
henni. Þar á meðal er þýzkt félag,
sem hefir haft aðsetur á Hjalteyri,
og sænskt félag, er hefir haft aðset-
ur hér á Akureyri. Norðmenn flestir
á Siglufirði halda enn áfram, og
margir reka ennfremur veiðina af
kappi ennþá, sem selja síldina til
bræðslu í síldarverksmiðjurnar. í
þeim er nú búið að vinna um 1800
föt af síldarolíu.
Alls er búið að salta um 100 þús-
und tunnur af síld hér nyrðra í
sumar. Um sama leyti í fyrra voru
saltaðar um 150 þúsund tunnur.
Það er aðgætandi, að í ár dregst
frá söltuninni öll sú síld, er verk-
smiðjurnar kaupa, og er það mesta
ógrynni, en nákvæma skýrslu um,
hve mikið það er, getur „Gjh." ekki
gefið í þetta sinn.
Atvinna sú, er síldveiðin gefur
mönnum, auk þeirra sjómanna, er
stunda sjálfa veiðina - er mjög
mikils virði og þýðingarmikil, sér-
staklega fyrir Akureyri og Eyjafjarð-.
arsýslu. Fjöldi af kvenfólki t. d.,
sem annars mundi hafa haft litla
atvinnu, hefir unnið sér inn um 100
kr. hver við síldarsöltun síðan veið-
in byrjaði í sumar, sumar auðvitað
september.
meira og sumar minna. Auk þess
vinnur og fjöldi af karlmönnum og
unglingum við síldina í landi.
Nú er nótaveiði að byrja hér á
firðinum, eftir langa hvíld, og væri
vel, að þar yrði framhald á.
Verzlunarfréttir.
Símskeyti frá Khöfn 5. septbr.
Kétsalan. Allmikið af dilkakéti er
selt fyrirfram, nokkuð á 56 kr. tunn-
an (það sem fyrst kemur) og nokkuð
á 55 krónur. Két af sauðum, geldum
ám og annað sauðakét er og selt fyrir-
fram. Það sem fyrst kemur á 50 kr.
tunnan og síðari sendingar á 48 kr. tn.
Norðlenzka ull (hvít nr. 1) er hægt
að selja í dag á 78 aura pundið og
ekkert útlit fyrir, að hærra boð fáist.
— (Etazráð J. V. Havsteen símaði þeg-
ar og seldi sína ull fyrir það verð.)
— Ull af Suðurlandi í lægra verði.
Rúgut hefir hækkað upp i kr. 6,80
pr. 100 pd. Talið llklegt, að hann
hækki ennfremur bráðlega upp í kr.
7,00 pr. 100 pd. Verðhækkun enn-
fremur í vændum á sykri.
Iðnsýningin í Reykjavík.
Vel er látið af henni yfirleitt og
margir munir höfðu þar verið prýðis-
fallega gerðir. Dómnefndunum er samt
ekki hrósað öllum, og er ilt, ef mikið
er sakast um hlutdrægni, en því máli
er »Gjh.« ekki svo kunnugt, að með
það geti farið. Má og sennilega segja
um það, að »vandgert er svo öllum
lfki«, svo engum þyki sér óréttur ger.
Hér fer á eftir skýrsla um þá, er
verðlaun fengu á sýningunni og heim-
ilisfang eiga norðan lands og austan:
1. verðlaun.
Guðfinna Guðnadóttir, Grænavatni, Þing-
eyjarsýslu, fyrir tóyinnu.
Ingibjörg Þórðardóttir, Hofi, Eyjafjarð-
arsýslu, fyrir tóvinnu.
Kristin Gunnlaugsdóttii1, Belgsá, fyrir
tóvinnu.
Margrét Símonardóttir, Brimnesi, Skaga-
firði, fyrir hannyrðir.
Magnús Þórarinsson, Halldórsstöðum,
fyrir skrá.
Járnsm. Sigurður Sigurðsson, Akureyri,
fyrir plóg.
Þorbjörg Friðgeirsson, Vopnafirði, fyrir
listasaum.
Þuríður Hjörleifsson, Akureyri, fyrirhann-
yrðir.
2. verðlaun.
Jóhanna Jóhannsdóttir, Kolgröf, Skaga-
firði, fyrir tóvinnu.
Kristrun Jósefsdóttir, Brimnesi, fyrir
spjaldvefnað.
Margrét Pétursdóttir, Egilsstöðum, fyrir
tóvinnu.
Margrét Símonardóttir, Brimnesij fyrir
tóvinnu.
Magnús Þórarinsson, Halldórsstöðum,
fyrir dúnhreinsunarvél.
Ólöf Sigurðardóttir, Hlöðum, Hörgárdal,
fyrir tóvinnu.
• • • • •••♦» « » • «
T 1911.
<•••••••••••••••••••
Sigurbjörg Jónatansdóttir, Merkigili,
Skagafirði, fyrir tóvinnu.
Þorbjörg Kristmundsdóttir, Biönduósi,
fyrir tóvinnu.
Þórdís Stefánsdóttir, Akuréyri, fyrir tó-
vinnu.
Þórunn Þórarinsdóttir, Seyðisfirði, fyrir
silkivefnað.
3. verðlaun.
Anna Árnadóttir, Skógum, Axarfirði,
fyrir hannyrðir.
Hólmfríður Magnúsdóttir, Akureyri, fyr-
ir tóvinnu.
Kristín Jónsdóttir, Grænavatni, fyrir of-
inn dúk.
Kristín Jósefsdóttir, Brimnesi, fyrir hann-
yrðir.
Lovísa Sigurðardóttir, Hofsstöðum, fyr-
ir tóvinnu.
Smiður Páll Kristjánsson, Húsavík, fyrir
amboð.
Sigríður Sigurgeirsdóttir, Víðum., Reykj a-
dal, fyrir tóvinnu.
Sigríður Sigfúsdóttir, Arnheiðarstöðum,
Fljótsdal, fyrir tóvinnu.
Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir, Máskoti,
Reykjadal, fyrir tóvinnu.
Valgerður Davíðsdóttir, Fagraskógi, fyr-
ir tóvinnu.
Þóra Jónsdóttir, Auðkúlu, fyrir tóvinnu.
Þorbjörg Pálsdóttir, Gilsárstekk, fyrir
tóvinnu.
Þórunn Stefánsdóttir, Seyðisfirði, fyrir
silkivefnað.
Bruni.
Á Unaósi við Héraðsflóa rekur verzlunin
„Framtíðin" verzlun og er þar verzlunar-
stjóri Jón St. Scheving. Hinn 16. ág. um
kvöldið varð elds vart í sölubúðinni og
læsti hann sig á augabragði um alt húsið,
svo ómögulegt var að slökkva og engu varð
heldur bjargað af verzlunarvarningi eða bú-
slóð verzlunarstjórans, er bjó f húsinu,
nema örlitlu af sængurfatnaði, sem kastað
var ofan af lofti út um glugga. Ekki vita
menn um upptök eldsins eða orsök til hans.
Húsið, sem brann, var vátrygt fyrir 4500
kr. og vörubyrgðir alls fyrir 20 þús. kr.,
en nokkuð af þeim vörum voru þó geymd-
ar í geymsluskálum, er ekki brunnu.
Verzlunarstjórinn, Jón St. Scheving, varð
fyrir tilfinnanlegu eignatjóni sjálfur.
Vínsðlusektir.
Brytinn á „Courier" var sektaður á Siglu-
firði um 300 kr. fyrir óleyfilega vínsölu.
Gránufélasrið
hefir nýlega sent út ársskýrslu sína fyrir
1910, og virðist hagur félagsins samkvæmt
henni vera svipaður og að undanförnu.
Skuld þess við umboðsmann sinn, F. Holme,
var í árslok kr. 534,841,05. — Svo er sagt
nú, að ekkert muni verða úr sölu félagsins,
sem talin var fullgerð á tímabili í vetur
og vor.
Skipaferðir.
E/s „Ingolf" frá útlöndum á sunnudag-
inn. Farþ. Gunnlaugur Bjarnason prentari.
E/s „Vesfri" fór vestur um á sunnudaginn.
E/s „Ryvingen" fór beina Ieið til Hafnar
á þriðjudaginn með fullfermi af sfld frá
konsúl Tulinius.
Fjórir duglegir reglumenn
óskast sem umferðabóksalar. Góð árslaun
og »prósentur«. Menn snúi sér sem fyrst
til Odds Björnssona.r á Akureyri.