Ingólfur - 05.01.1911, Qupperneq 2
2
INGÓLFUR
Carlsberg -æ*
Lageröl — Pilsner — Porter
Carlsberg
Lys Mork Skattefri
næsta fund; á þeim fnndi voru við-
staddir þeir Þórhallur biskap og Jón
Jensson yfird. Þeir lýstu því báðir yfir
á fundinum, að þeir hefðu ekkert út á
þá menn að aetja sem Stúdentafélagið
hafði koiið, en þeim þætti aðeins að-
gerðir Stúdentafélagains óviðurkvæmi-
legar. Á hinn bóginn teldu þeir víat
að öll nefndin mundi geta gengið að
því, að forsetar alþingis gengju inn í
nefndina, eða jafnvel að þingmenn meiri
hlutans kysu aðra 4 menn úr sínum
flokki í nefndina. auk hinna fjögra.
Bftir miklar umræður var það loksins
samþykt á fundinum að félagið óskaði
þess, að meiri hluta flokkurinn á þingi
skyldi kjósa 4 menn í nefndina til við-
bótar við hina. E»að var gert, og hlutu
kosningu: Bjarni Jónsson frá Vogi,
Björn Kristjánsson bankastj., Ari Jóns-
son alþm., og Ólafur Ólafsson fríkirkju-
prestur.
Nú var þá loksins jafnvægi komið á
í nefndinni, og þau firn orðin, að flokk-
arnir höfðu komið sér saman. En
nefndin lét ekki hér staðar numið,
heldur sneri hún sér til forseta alþingis
og bað þá að taka sæti í nefndinni; og
hún sneri sér ennfremur til formanns
Kaupmannafélagsins, forseta Búnaðar-
félagsins, form. Ungmennafélaga íslands,
skipstjórafélagsins „Aldan", Iðnaðar-
mann afélagsins, verkmannafélagsins
„Dagsbrún“ og forseta Bókmenntafé-
lagsins, og eru nú állir þessir menn í
nefndinni.
En Stúdentafélagið, sem átti upptökin
að því að nefndin komst á laggirnar
og að byrjað var að hugsa uai minnis-
varðamálið nú, hefir ekki þótt þess virði
að forseti þess væri kvaddur í nefndina,
eða að kosiun yrði maður úr þess hóp
til að eiga þar sæti. Það er ekki auð-
velt að segja hver ástæða er til þess,
að nefndinni hefir þótt sæma að ganga
fram hjá einu af helstu félögum bæjar-
ins, sérstaklega þegar þess er gætt að
meiri hluti hinna upphaflegu nefndar-
manna munu vera félagar í Stúdenta-
félaginu, og félagið auk þess sjálfkjörið,
allra hluta vegna, til að eiga mann í
nefndinni.
En félagið mun þó eflaust meta mest
heppileg úrslit þessa máls. Það var
Stúdentafélagið sem bestann þátt átti í
því að jafnvægi komst á nefndina og
að flokkarnir féllust í faðma, og það
mun vafalaust líka telja sér skylt að
forðast nú að kveikja í tundrinu og
eyðiieggja þannig vinnu sína.
Argos.
Raddir úr heimi vísindanna.
Ef nokkrir hafa lesið bækling land-
læknis Guðm. Björnssonar um skaðsemi
áfengis, munu þeir hafa rekið augun í
að á kápunni eru prentaðir ýmsir ritn-
ingarstaðir úr guðspjöllum bannpostula
og annara heilagra manna, líkt og
vottorð um undursamlegan bata á margra
ára kveisu eru prentuð á kápunni á
Bramabókunum, eða vitnisburðirnir um
undursamlega sáluhjálp eru prentaðir í
Herópinu.
Landlækninum mun hafa þót tryggi-
legra að geta borið fleiri menn fyrir
ýmsum þeim kenningum, sem bæklingur-
inn flytur og skulum vér ekki lá hon-
um það, ef þær eru margar jafn áreið-
anlegar og kenningin um brennivíns-
bakteríuna; reyndar minnast Brama-
bókarvottorðin á kápunni ekkert á
skepnu þessa, þar er Guðmundnr Björns-
son einn um hituna.
En ef landlæknirinn skyldi einhvern-
tíma hér eftir finna hvöt hjá sér til að
gefa út samskonar „Brama-Lífs-EIexír-
bók“, vildi Ingólfur gjarnan mega leggja
sinu skerf til vottorðanna, og vonum
vér fastlega að iandlæknirinn smái
hann ekki.
Hér setjum vér nú til að byrja með
tvö vottorð, ef til vill koma fleiri seinna.
Dr. med. Wilh. Sternberg segir í Die
Alkoholfrage, Leipzig 1909, bls. 73:
Nach alledem musz man zu dem
Schlusz gelangen: Je fanatischer die
Lehre der absoluten Abstinenz gepredigt
wird, desto sicherer kann man annehmen,
dasz ihre Apostel nichts verstehen.
(Á íslensku: Eftir þessu hljóta meni
að komast að þeirri niðurstöðu: að með
því meira ofstæki sem kenningin um
algert bindindi er prédikuð, með því
meiri vissu geta menn ályktað að post-
ular hennar eru gersamlega skilnings-
lausir).
Og Próf. Alf. Torp segir í Samtiden,
9. h. 1910, Nogle tidsbetragtninger:
Avholdssaken utvikler sig her med
en fanatisme og en tranghet, som tyder
paa, at dens ledere er helt blottet for
videnskabelig syn og tænkesæt. Idet
den sigter mot den enkeltes umyndig-
garelse og sætter forbud og ,Tvang
i stedet for viljens opovelse tÆ selvbe-
herskelse, blir den likefrem en Kultur-
fare.
(Á íslensku: Bindindismálinu þokar
hér áfram með slíku ofstæki og þröng-
sýni, er bendir til þess, að forvígismenn
þess séu gersneyddir vísindalegum skoð-
unar- og hugsunarhætti. Með því að
takmark þess er að gera einstaklinginn
ómyndugann og það setur þvingun og
bann í stað þes* að stæla viljann til
stjórnar á sjálfum sér, verður það menn-
ingunni blátt áfram hætta).
Vér vonumst nú til að oss veitist sú
ánægja að sjá þessa tvo vitnisburði í
vottorðasafninu á kápunni á næita bann-
bæklingi landlæknising. Gætu þá þessi
tvö vottorð komið í staðinn fyrir mynd
af höfuudinum.
Ingiraundur skýrir frá mannvirkinu mikla.
Frá aldaöðli hefir vinaþjóðunum ís-
lendingum og Dönum leikið mikill hugur
á því að komast sem allra næstir hvorir
öðrum og langað til að brúa þetta mikla
djúp sem náttúran hefir verið svo hlá-
leg að síaðfesta á milli þeirra.
En djúpir eru íslands álar og seint
hefir brúarsmíðin gengið.
Sá er fyrstur gerði verulega gang-
skör að því var Kristján konungur vor
IX — hásællrar minningar.
Hann byrjaði á brúuni Dana megin
og lagði í hana töluvert af pappír og
kallaði stjórnarskrá.
Líka lagði hann í hana þá Goos,
Rump og Nellemann en það var nú
minna,
Því miður dó Kristjðn löngu seinna
og var graflnn. Yar þetta hinn mesti
hnekkir — sérstaklega fyrir familíuna
— en þó var bót í máli að Friðrik var
eftir. Hann vann að brúnni af mesta
kappi — lagði í hana bæði; fínustu
middaga, dýrindis vín og sand af geð-
ugustu skálræðum — að ógleymdu
dinglum danglinu góða, sem er öllum
þeim minnisstætt, sem ekki fengu það.
Hann togaði alþingismennina okkar
út yfir pollinn og gerði þá að undir-
smiðum, en að yfirsmið gerði hann
Hafstein, sem svo aftur togaði hann
hingað og lagði hann sjálfan í brúna.
Og nú er Friðrik úr sögunni.
En Hannes vann sleitulaust að brúnni
í mörg ár og lagði í hana bæði fossa-
hljóminn, himinblámann og heiðjökla-
hringinn auk fyrirgefning syndanna og
misskilninginn sem aldrei framar átti
að vera, og þegar þetta var ekki nóg
þá bætti hann við kláru kampavíni,
íslensku stúlkunum og iöngum útreiðar-
túrum og settist svo niður að Ioknu
verki og orkti brúardrápuna.
En enginn þorði þó ennþá að ganga
brúna, því hún var líkust fögrum regn-
hoga af allri vætunni, sem í hana hafði
verið látin.
En þá kom Björn.
Hann lagði í hana annað og mun
haldbetra.
Hann lagði í hana lof um Dani og
smjaður, sem jafnvel þeim þótti nógu
sterkt og hann lagði í hana stoðir úr
kröftugustu afneitunum sem ekkert var
tálgað af, hann tvinnaði saman blekk-
ingarvef Heimastjórnarmanna og í»a-
foldar-ósannindum og tengdi með því
allt saman af hinni mestu list.
Eu brúarstrengirnir sem voru einsog
mjúkasta silki, voru allir úr ósvikinni
íslenskri Dana ást, sem hann snrapart
hafði fuudið og sumpart sjálfur búið
til og sem var svo smágerð að enginn
nokkurntíma hafði séð hana eða vissi
af að hún var til.
Mest vann hann að smíðinni í Höfn
og nú um dagiun rak hann smiðshöggið
á brúna í Skræiingjafélaginu.
DaDÍr eru stórhrifnir og þeir hafa
áformað að brúarsmiðnum sjálfum skuli
veitast sú æra að ganga hana fyrstur
manna.
Hann ætlar að prófa hana síðast í
janúar þegar hann kemur heim á þing.
-----En þó hann láti ekki á miklu
bera, Björn gamli, í því efni þá er mér
samt sagt að hann sé ekki allskostar
rólegur á kvöldin í rúminu sínn þegar
hann hugsar til þess ferðalags.
Því setjum nú svo að einhver Heima-
stjórnar-blekkingar-vefurinn bilaði. Eða
einhver ísafoldar-ósannindin væru ekki
nógu kröftug.
Eða jafnvel Dana-ástin reyndist of
vatnsborin? Þá væri ekki gaman að
standa á miðri brúnni uppi yfir dýpsta
álnum í Atlantshafi.
— — — Og sem vinur Björns og
gamall, dyggur flokksmaður, hrópa ég
til hans: Farðu sjóveg, í öllum bænum
farðu sjóveg og láttu þá konungkjörnu
fara brúna.
Þeir mega ganga í vatnið.
Tillögur 1 fánamálinu.
Eftirfarandi þrjár tillögur voru sam-
þyktar á fundi Landvarnarfélagsins í
gærkvöld, með öllum atkvæðum:
1. Þar sem íslendingum verður eigi
á löglegan hátt meinað að sýna á
landi uppi lit sérstaks þjóðernis og
merki sjálfstæðisréttar með því að
draga íslenskan fána á stóng, skorar
fundurinn á fánaeigendur alla að
viðhafa þenna fána einan, nema
þeir komist ekki hjá öðru sem um-
boðsmenn annara ríkja.
Ennfremur telur fundurinn það
sjálfsagt, að opinberar stofnanir ís-
lenskar nætti að veifa dönskum
fána, þar sem þeim og ber engin
skylda til fánanotkunar yfirleitt.
2. Fundurinn telur það ótvírœða slcyldu
allra þeirra, er landvarnarmenn
vilja heita og skilnaðarstefnuskrána
viðurkenna, að nota íslenska fánaun,
þar sem því verður viðkomið, og
annan ekki, ef þeir vilja fána veifa.
3. Fundurinn ætlast til þess, að þing
og stjórn íslensku þjóðarinnar vinni
að þyí, að hinn íslenski fáni geti
sem fyrst öðlast alþjóðaviðurkenn-
ingu sern siglingafáni íslendinga,
og nemi þau ákvæði úr lögum lands-
ins, er eigi eru samrýmanleg þessu.
Eunfremur kans félagið 5 manna nefnd
til að vinna að framgangi fánamálsins.
Frá Gróttu til Gvendarbrunna.
Á gamlárskvöld
var veður hið besta, heiðskýrt og
var margt manna á ferli allt kvöldið,
og sumir fram á nótt. Frá kl. 8 um
kvöldið og fram til kl. 10—11 lék
Hornsflokkurinn mörg lög uppi við
Mentaakólann, en múgur og margmenni
var á gangi í Lækjargötunni á meðan
til að hlusta á hljóðfærasláttinn. Flug-
eldum var skotið víðsvegar um bæinn
og frá sumum skipunum á höfninni og
mikið var um gleðskap alstaðar í bænum.
Kappsund
var háð nú aftur í ár á nýársdag.
Veður var kalt og hráslagalegt, en þó
var fjöldi manns samankominn á bæjar-
bryggjunni til að sjá víkingana þreyta
sundið. í sjónum var aðeins 2° hiti og auk
þess nokkur ylgja, svo ekki var árenni-
legt fyrir þá að leggja út á djúpið.
Vegalengdin sem kapparnir áttu að
synda, var 50 stikur og voru þeir 4
sem kepptu. Fremstur þeirra varð
Stefán Ólafsson, sá sami, sem sundið
vann í fyrra. Hann synti þessa vega-
lengd á 42 sek., og vaDn því aftnr í ár
sundbikarinn; ef hann vinnur hann enn
á ný næsta ár, fær hann bikarinn til
eignar.
Tveir urðu jafn fljótir, og syntu þeir
vegalengdina á 48 sek., en sá sem sein-
astur varð á 54 sek.
Leikfélagið
hefir nú leikið „Kinnarhvolssystur“
fimm sinnum og altaf fyrir fullu húsi.
Mönnum geðjast ágætlega að leiknum
og þá sérstaklega að leik frú Stefaníu
í síðasta þætti, en sá leikur á það líka
fyllilega skilið að allir, sem geta, fari
að sjá hann, ekki síst ef það er satt,
sem heyrst hefir, að frú Stefanía ætli