Ingólfur - 14.11.1911, Síða 3
INGÓLFUR
183
eða bindindisloforð sitt, en nokkur ann-
ar maður sem eg þekti. Eg skrifaði
þessa staðhæfingu af fullri þekkingu og
i hreinni alvöru.
Er það ekki skýlaust brot á loforði
Goodtemplara, að taka við peningum,
láta kaupa sig — með öðrum orðum:
móta sér — til þess að senda vikulega
út á meðal alþýðu á prenti skrum og
akjall um áfengiseitrið ? Þetta hefir
Björn Jóneson gert svo tugum ára skift-
ir. Á meðan Goodtemplarar lý»a sjálf-
ir velþóknun sinni á þessu athæfi eiga
þeir langt í land til þess að skilja anda
Reglunnar og kjarna loforða sinna. Björn
Jónsson á heiður og þakkir skilið fyr-
ir margar ítarlegar og áhrifamiklargrein-
ar og margar snjallar ræður um bind-
indismálið, og sérstaklega bera honum
hlýjar þakkir allra sannra Goodtempl-
ara fyrir starf hans á tveimur síð-
uatu þingum fyrir það mál. Eu hversu
ítækir flokksmenn, sem Goodtemplarar
eru, þá má ofstæki þeirra í með-
haldi með einstökum mönnnm aldrei
fara svo langt, að virðingu og sóma
reglunnar sé hætta búin; en þannig
verður það, ef meðlimir hennar sjá
ekki, að sá sem gerist verkfæri í hendi
brennivínssala til þess að útbreiða á-
fengislof, brennivínskaup og sölu og þar
af leiðandi brennivínsdrykkju, er brot-
legur meðlimur.
Bj'órn Jónsson hefir brotið Goodtempl-
araheit sitt í livert slcifti sem Isafold
undir lians stjórn hefir flutt áfengisaug-
lýsingu án athugasemda eða mótmœla,
og það er býsna oft.
Eg teldi mér vanvirðu að heita Good-
templari ef andi félagsins væri svo mik-
illi hálfvelgju blandinn, að Goodtempl-
arar mættu að ósekju hjálpa vínsölum
til þess að geta komið út á meðal fólks-
ins aem mestu af áfengi, Eins lengi
og eg verð bindindismaður — og eg
vona að það verði jafnlengi og eg lifi
— mun eg eftír föngum reyna að berj-
ast á móti þess konar hálfvelgju innan
félagains. Eg væri svikull Goodtempl-
ari ef eg gerði það ekki.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Dr. Cook í Khöfu.
Það þótti tíðindum sæta, er aú
fregn barst til Kaupmannahafnar, að
dr. Cook, sá sem þóttist hafa fundið
Norðurpólinn, væri væntanlegur aftur
þangað og ætlaði að halda þar fyrir-
leatur. Eins og kunnugt er tóku Dan-
ir honum tveim höndum þegar hann
kom úr hinni frægu „Norðurpólsferð"
sinni, háskólinn sæmdi hann doktors-
nafnbót og mikið var dýrðaat með hann.
En er það komat upp, að dr. Cook hafði
skrökvað upp allri sögunni, urðu Danir
skömmustufullir mjög, og meganúekki
ógrátandi á Cook minnast. Þótti þeim
nú, eins og von var, hin mesta bíræfni
af honum, að ætla sér að koma og halda
fyrirle»tur um för aína, einmitt í Kaup-
mannahöfn.
Dr. Cook kom þ. 24, f. m. og hélt
fyrirlestur þá um kvöldið í höll Oddfel-
lowa í Höfn. Var honum tekið með
ópum og óhljóðum strax og hann kom
inn á pallinn, og fékk hann með naum-
indum hljóð til að tala. Sýndi hann
þar Ijósmyndir úr ferðalagi sinu, þar
á meðal mynd af „pólnum“, með stjörnu-
merki Bandaríkjanna blaktandi þar á
stöng. Þótti mönnum þetta kynlegt,
því menn vissu ekki til, að hann hafi
haft nokkra ljósmyndavél á ferðalaginu!
Sýndu Hafnarbúar honum nú alla þá
lítilavirðingu sem þeir gátu og má
Cook veslingnum nú þykja tvennir tím-
arnir, eða þegar hann kom þar i fyrra
sinnið, umkringdur af öllu stórmenni
Dana og krýndur öllum þeim heiðri,
aem þeir gátu sýnt honum mestan.
„Fjalla-Eyvindur"
leikrit Jóhanns skálds Sigurjónssonar,
heflr nýlega verið gefið út í Khöfn.
Blöðin hæla bókinni á hvertreipi. Mun
hennar verða getið hér seinna.
Próf. Ágúst Bjarnason
varði doktorsritgerð sina við háskólann
fyrir skömmu. Vér höfum ekki enn
fengið þau blöð, þar sem minat er á
vörn hans.
A Iþmgiskosnmgar.
í Barðastranasýslu er koainn Björn
Jónsson fyrv. ráðherra með 235 atkv.
Guðm Björnsson sýslum. hlaut 119 atkv.
1 Austur-Skaftafellssýslu er kosinn
Þorleifur Jónsson á Hólum, með 82
atkv. Séra Jón Jónsson á Stafafelli
hlaut 68 atkv.
Er nú að eins ófrétt um Norður-í»a-
fjarðarsýslu, en þar er talið víst að hr.
Skúli Thóroddsen verði kosinn.
Borgarstjóri Páll Einarsson
er nú kominn úr utanför sinni; fórhann
eins og kunnugt er til útlanda í þeim
tilgangi, að reyna að útvega bænum til-
boð um lán til hafnargerðarinnar, en
margir voru í sumar vondaufir um að
takast myndi að fá það nokkursstaðar.
Vér höfum uú átt tal við borgarstjóra
til þess að fá að frétta um árangurinn
af för hans. Sem betur fer reynist það
ekki svo, að öll sund væru oss lokuð,
og hefir hann nú meðferðis tilboð um
lánið frá 3 bönkum í Kaupmannaböfn,
Landmandsbanken, Privatbanken og
Handelsbanken, og skildist oss að það
væri með allgóðum kjörum.
Annara sagði borgarstjóri oss svo
margt, sem vér lofuðum aö þegja yfir,
að vér eigum bágt með að muna hvað
vér megum segja og hvað e£ki;en svo
mikið er víst, að hann var i besta
skapi, og tökum vér það sem góðs vita.
Hneyksli í Goodtemplarareglunni,
Hún vill þröngva skoðanafrelsi
meðiima sinna.
Eitirtektarverður brottrekstur.
Mikið afrek er mælt að templarar hafl
unnið nýlega. Þeir liafa að því er sagt
er vikið hr. kaupmanni Ásgeiii Sigurðs-
syni, konsúl Breta, úr Reglunni fyrir
það eitt, að hann studdi til þingmennsku
þingmannaefni vor andbanninga.
Þröngsýni, hroki, heiraika og frekja
eru þeir göfugu eiginlegleikar, sem
þetta síðasta afrek templara er bygt á.
Ef þeir ætla sér að ávinna félagsskap
ainum óblandna og innilega fyrirlitningu
allra réttiýnna manna, þá verður ekki
annað sagt enn að þeim takist það
furðanlega. Ef þeir ætla sér að eyði-
lGSSÍ8, félagsakapinn, þá eru þeir vissu-
lega á réttri leið. Þegar svo langt er
komið, að þeir vilja mega ráða ekki
einungia því, hvað menn eta og drekka,
heldur einnig þvi hvaða, akoðanir menn
megi hafa á mönnum og málefnum, þá
getur varla hjá því farið, að allir ær-
legir og góðir drengir kjósi heldur að
segja skilið við þá. Þessir háu herrar
í Reglunni eru annnara farnir að gerast
sá blettur á þjóðfélagi vorn, að full á-
stæða virðist til að grípa til vopna gegn
þeim. Aðaltilgangur þeirra er beraýni-
lega ekki letgur sá, að efla bindindi í
landinu, heldnr sá, að ala upp her af
nógu þrællunduðum og smáaálarlegum
fénaði, er þeir geti sigað útí hvað sem
er og notað í pólitíakar þarfir sínar,
Ekki öfundum vér neinn þann aem
vill leggja sig undir svipu þessar herra.
En þeim fer nú væntanlega að fækka
úr þeasu.
Eftir að þetta var skrifað höfum vér
átt tal við einn af bestu menn Regl-
unnar og sagði hann oss, að enn muni
ekki vera búið að vinna afrekið — að
minsta kosti væri það „enn ekki fyrir
blöðin“. Ef til vill fer þá avo, að
templarar þori ekki þegar til kemur að
gera alvöru úr þessu hneykali. En
hvort sem svo fer að þetta verði nokk-
urn tíma „fyrir blöðin“, eða ekki, þá
stendur þó óhaggað alt það, aem sagt
er hér að ofan, því að Stórstúkan hefir
úrskurðað að skuldbinding félagsmanna
skuli skilin á þá leið, og templarar
þora þá ekki að framfylgja fyrirakip-
unum hennar, ef þeir hætta við þenn-
an brottrekstur, sem vér fullyrðum, að
hafi verið ráðinn.
Frá Gróttu til Gvendarbrunna.
„Ceresu og „Sterlingu komu frá út-
löndum 13. þ. m. Þau fóru hérumbil
samtímia frá Vestmannaeyjum á sunnu-
dagskvöldið var, og er svo sagt, að
ekki hafi verið til aparað hvorki með
kol né annað, og hafi hvor viljað kom-
ast á undan öðrum til Reykjavíkur, enda
komu skipin hingað um mjög líkt leyti
uni morguninn þ. 13., Ceres þó ýfið á
undan- Sagt er að þau hafi verið h.
u. b. 9*/a kl.tíma frá Vestmannaeyjum
hingað. Farþegar með þeim voru með-
al annnara: Helgi Zoéga kaupm., Guðm.
Böðvarsson kaupm., próf. Ágúst Bjarna-
son, borgaratjóri Páll Einarsson, frk.
Sigríður Siemsen o. fl. frá útlöndum.
Frá Vestmannaeyjum komu þeir Karl
Einarsson sýslum., og Gunnar Ólafason
kaupm.
Taugaveikin er enn að stinga sér
niður hér og þar í bænum, en er þó
sögð mjög væg víðaat hvar. Að avo
miklu leyti sem unt er að koma fyrir
eru sjúklingarnir íluttir á spítalann. Auk
þess eru ýmsir kvillar aðrir að gera
vart við sig bænum, segja læknarnir.
prof. Finnur Jónsson hefir ánafnað
háskólanum hér alt bókasafn sitt eftir
sinn dag, að þvi er „Lögrétta" skýrir
frá.
Trygqvi Gunnarsson bankastj. hefir
gefið Ungmennafélagi íslands stóra
spildu af landi anstur í Árnessýslu, og
ætlaat til að hann verði hafður til skóg-
ræktar.
Sameinaða Gufuslcipafélagið í Khöfn
var nýlega búið að ákveða að byggja
til íalandsferða stórt farþega og flutn-
ingaskip, mcð öllum nýtísku útbúnaði
og ríkmannlega úr garði gert; var á-
ætlað að það mundi kosta nálægtmilli-
ón króna. — En nú er komin frétt
um að félagið aé hætt við að byggja
skipið; ekki er fullkunnugt um ástæð*
urnar til þesa.
Þrír nýjir botnvörpungar eru í smíð-
um i Englandi fyrir meun hér i bæ.
Odýrast Tóbak
hverju nafni sem nefnist, sömuleiðis
Vindlar, Vindlingar
og allskonar
Soelgœti
í stóru úrvali.
Verslunin Vikingur
öarl LárussoB.
Cacao og Chocolade
í heildaölu og smásölu
Á einn þeirra að heita „Skúli Fógeti,“
og eiga þeir hann „ Jóns Forseta“ félag-
ar. Hinir tveir eiga að heita „Baldur“
og „Bragi,“ eign þeirra bræðra Th. og
Péturs J. Thorsteinsson. — Pétur Ól-
afsson kaupm. á Patreksfirði sigldi tij
Englands um daginn og er sagt að hann
hafi þar ætlað að kaupa sér botnvörp-
ung. Alt er þetta gert með tilstyrk
íslanda Banka. — Enn er sagt, að mik-
ill bolnvörpuútvegur sé ráðgerður í
Hafnarfirði. Þar hefir hr. Magnús Th.
S. Blöndahl keypt verzlunarhúa þaujog
lóð, sem Brydea-verslun átti áður, og
mun ráðgert að verka fiskinn þar. Er
mælt að nokkuð margir íslendingar verði
i félagi um útgerð þessa, og að þýskt
útgerðarfélag eitt verði í samvinnu með
þeim. — Ennfremur kvað íslendingsfé-
lagið hafa hugsað sér að leigja tvo
botnvörpunga um næstu vertíð.
Yfirréttarlögmaður Oddur Gialason
lét í sumar byggja ofurlítinn skemtiskála
inni í blómsturgarði sínum ; en honum
hafði láðst að sækja um leyfi til hinn-
ar háu byggingarnefndar, og er það
talin stór synd. Ennfremur hafði hann
látið aetja torfþak á skálann, og er það
talin enn stærri synd því, avo er ákveð-
ið í byggingarsamþykt höfuðborgarinn-
ar, að ekki megi reisa hús með torfþaki
inni í bænum. Hin háa byggingarnefnd
heflr nú skipað hr. Oddi Gíslasyni að
rífa þakið af skála sinum. Mörgum
mun þykja þetta kynlegt, þar sem akál-
inn var allra laglegaata hús, og það
aem prýddi h'ann var einmitt torfþakið,
auk þess sem hann stóð í blómsturgarði
privatmanns, og gerði þar engum manni
mein. — Ástæðan til þesaarar fyrskip-
unar ér oss aagt að sé sú, að bygging-
arnefndin hafi í geðilsku bannað hr.
Brillouin konsúl að reisa kofa með torf-
þaki á lóð hans, og hafi hún nú ekki
viljað gera sér mannamun.
Von er á frá útlöndum í þessari viku
skipunum „Vendayssel11 og „Kiew“ og
eru þau bæði nærri því fullfermd af á-
fengi. Hlýtur það að vera ógurleg sjón
fyrir alla Templara, að verða að horfa
uppá alt það áfengi og geta ekkert af
því sett sér til munna.
Starfinn sem umsjónarmaður áfengis-
kaupanna er veittur Jóni Á. Egilsson,
bókhaldara í Ólafsvík. Umsækjendur
voru 16.
Miklar tröllasögur ganga utn það hér
í bænum, að ráðist hafi verið á konsúl
Brillouin i kvöld; vér höfum apurt hr.
Brillouin sjálfan hvort nokkuð sé hæft
í því, og kveður hann nei við því.