Landið - 03.03.1916, Blaðsíða 3
L A N D I Ð
MAISMJ OL
selnr
VBRZLUNIN NÝHÖPN
fyrir neðan lieildsöluverð hér á staðnum.
Maismjöl kaupa því alíir i Nýhöfn
XNÆSTU dagana verður farið að vinna með mokstursvél f
Reykjavíkurhöfn og verða þeir, sem fara um höfnina, að athuga það,
sem hér segir:
Mokstursvélin verður bundin með 6 keðjum, nl. einni framaf, einni
afturaf og tveim ét af hvorri hlið. Keðjunum verður fest með akkerum,
ef ekki er hægt að festa þeim í landi. Akkeris-staðirnir verða merktir
með rauðum duflum (tunnum). Á rá vélarinnar verða höfð þessi merki:
pegar dimt er: á öðrum ráarendanum i hvítt og eitt rautt ljós hvort
upp af öðru, á hinum ráarendanum i hvítt Ijós: en þegar bjart er:
á öðrum ráarendanum 2 svartar kúlur hvor upp af annari, á hinum
ráarendanum 1 svört kúla. —- Skip, sem fara fram hjá mokstursvélinni,
verða að fara mjög gætilega og með hægri ferð, og fara eingöngu
þeim megin vélarinnar sem 2 Ijós eða 2 kúlur eru. Það er með öllu
bannað að sigla framanvert við vélina, en framendinn er sá endi talinn,
þar sem moksturskeðjan liggur ofan í sjó. — Þegar unnið er með
köfurum, verða tvö flögg á siglutié mokstursvélarinnar og má þá ekkert
skip koma nálægt henni. Á mótorbátnum verða í myrkri höfð 2 hvít ljós
hvort upp af öðru, þegar hann er með pramma í eftirdragi, en í birtu
verða gefnar hljóðbendingar.
Reykjavík 24 febrúar 1916.
Hafnarnefndin.
3r
Aöalfundur
Sj álfstæösflokksins
verður haldinn í Templarahúsinu laugardagskvöldið 4. þ m.
og hefst kl. 8V2
Stjórn sú, cr kosin var á síðastliðnu vori
gerir grein fyrir störfum sínum.
Kosin ný stjórn 0. fl.
Stjórnin.
I
I
JS.
Síml iir. «44.
Ef þór þurfið að kaupa
matvörur, tilbúinn fatnað, olíufatnað,
skilvindur, saltkjöt, rúllupylsur, tólg,
ísl. smjör, hollenzkt smjör, margarine,
þá komið í Kaupang,
Par eru góðar vörur og
W* ódýrar vörur.
Verzlunin Kaupnngnr.
Tennur
eru tilbúnar og settar inn, bæði heilir
tanngarðar og einstakar tennur
á Laugavegi 31, uppi.
Tennur dregnar út af lækni daglega
kl. 11—12 með eða án deyfingar.
Viðtalstími 10—5.
Sophy Bjarnarson.
og röggsama Iandsstjórn, sem hefir
ætíð lagalegan ihlutunarrétt um all-
an hag bankans, ekki verða lengi
að taka ofan í lurginn á banka-
stjórninni, og setja hana frá.
Nei, það er síður en svo, að það
sé hættulegt að breyta þessu, En
það gæti hinsvegar -verið á margan
hátt viðsjárvert, að hafa það eins
og það er.
Hugsum oss t. d. duglega og
sómasamlega bankastjórn, en lélega
landsstjórn og þó framhleypna og
afskiftasama. Hugsum oss enn
fremur, að sú landsstjórn væri and-
víg bankastjórninni af einhverjum
ástæðum. Vildi t d. bola einhverj-
um burt úr henni til þess að koma
þar öðrum að. Væri þá nokkuð
hægra fyrir slfka landsstjórn, en að
eiga einn eða tvo af sínum viljug-
ustu þjónum f þessum trúnaðar-
stöðum bankans, sem hún ræður
yfir, setja þá þar til höfuðs banka-
stjórninni, þar sem þeir gætu lcyft
sér hvað sem þeim sýndist í skjóli
landsstjórnarinnar, láta þá leita
uppi höggstaði á henni, ella gera
henni starfið óbærilegt.
Þetta er ekki nema dæmi, en
það ætti samt að geta skýrt það,
að svo getur lítil þúfa valdið þungu
hlassi, að þetta ákvæði gœti, ef
illa vildi til, orðið til þess, að
hjálpa illri og ónýtri landsstjórn til
þess að bola burtu góðri og dug-
legri bankastjórn. xy.
JF'réttir.
Snjóflóð
féll fyrir nokkru á Naustavik í Nátt-
faravík á móti Húsavík. Urðu þrír
synir bóndans þar fyrir flóðinu og
meiddust töluvert. Annað tjón varð
lítið.
Prestskosning
fór fram nýlega i Saurbæjarþingum
i Dalasýslu. Um kallið sóttu séra Björn
Stefánsson á Bergstöðum og cand.
theol. Jón Guðnason, og varð Jón
hlutskarpari, kosinn (með eitthvað 80
atkvæðum.
Kolavelðar,
þ. e. veiðar steinkola, er fallið hafa
í sjóinn, eru stundaðar hér á höfninni
um þessar mundir. Slæða menn upp
kolin skippundum saman og hafa
mikið upp úr. Ekki vitum vér til þess,
að veiðar þessar hafi verið reknar
hér fyr.
Loftskeytntæki
til móttöku skeyta annarsstaðar að
hafa símamenn hér í bænum. Þykir
það gott að fá einhverjar fregnir frá
útlöndum nú i símaleýsinu.
Látlnu
er séra Árni Jónsson á Hólmum (
Reyðarfirði. Varð bráðkvaddur á sunnu
dagskvöldið var.
Hann var lengi prestur á Skútustöð-
um við Mývatn og nokkur ár þing-
maður Norður-Þingeyinga.
Hann var tvígiftur og átti 9 börn.
Síra Árni var áhugasamur um lands-
mál og mætavel látinn.
Sæsimiuii.
Landssjórnin hefur nú leigt björgun-
arskipið „Geir“ til þess að gera við
simann. Lagði það á stað aðfaranótt
síðasta þriðjudags. Fóru þeir á
skipinu O. Forberg símastjóri og Paul
Smith sfmaverkfræðingur.
Uniboðsinnðnr
ábyrgðarfél. „Danmark" hefur beðið
oss að geta þess, að forstjóri þess er
V. Falbe Hansen konferenzráð, vá-
tryggingarfjárhæðin 90 milj. kr., en
eignir 21 milj. kr.
Félagið „Fram“
hélt fund um daginn, og talaði Jón
landsverkfræðirigur Þorláksson um hús-
næðisleysið í bænum. Bæjarstjórninni
var boðið á fundinn.
Ræðum. komst að því, að nauðsyn
væri á, að bæjarstjórnin léti byggja
ibúðarhús fyrir þurfamenn bæjarins, til
þess að rýma fyrir öðrum.
Mannanafnnbókin.
Væntanlega kemur bráðum dómur
um hana hér ( blaðinu.
Árn Pálsson bókavörður hélt fyrir-
lestur um hana á sunnud. var. Fann
hann þar margt — eða flest — at-
hugavert.
Nauðsyu.
Það sést betur nú, en nokkru
sinni áður, hver háski það er, að
hafa aðeins einn ráðherra. Vér
skiljum ekki annað, en þjóðin vakni
til meðvitundar um þetta skaðræði,
á þessum tímum, þegar — jafnvel
frekar en endranær — „rangsleitn-
in gerir sér ragmenskuna að þjón
og eigingirnin litilmenskuna að
lipru vopni", eins og kennimaður
einn komst að orði.
Það er eitt allra-mestu og bráð-
nauðsynlegustu velferðarmálum, að
fá þrjá ráðherra. Það grípur inn á
öll svið. Astandið er óþolandi eins
og það er nú: Réttarleysi og geð-
þótti ríkja í hásætinu, en skrið-
dýrshátturinn kyssir fótskör þeirra.
Hve lengi á petta að standar
jjlekkingartilrauti.
„tsafold* er eitthvað að ybba
sig við Hákon J. Kristófersson
alþm. Það hefur alt í einu runnið
upp ljós fyrir henni, að hann hafi
verið „þversum" maður á síðasta
þingi — eins og hún kallar þá
sjálfstæðismenn, er ekki sviku
stefnu sína með þeim Einari og
Sveini.
Þar sem hún ætlar nú að fara
að elta penna mann, sem er einn
af allra ábyggilegustu, sjálfstæðustu
og vönduðustu bændum á þingi,
þa er harla sennilegt, að hana
vanti sæti fyrir einhvern ö-sjálf-
stæðismanninn við næstu kosning-
ar, ef til vill einhvern lögýrœðing-
inti sinn til þess að prýða hóp
loddaraflokksins á þingi.
RéttarJarsástanðið.
Stöku maður kvað afsaka ráð-
herra fyrir athæfi hans í gjaldkera-
málinu, fyrir þá sök, hvernig hann
skipaði sýslumannsembættið í Dala-
sýslu — mági sínum. Menn segja,
að þegar hann hafi verið búinn að
framkvæma annað eins réttlætis-
brot, sem tæplega mun eiga sinn
Iíka í sögu embættisveitinga á ís-
landi, þá hafi hann eðlilega verið
búinn að kippa fótunum undan sér
sem stjórnanda, — kippa fótunum
undan því, að geta réttilega fundið að
eða dæmt að verðleikum afbrot sýsl-
unarmanna og embættismanna í land-
inu. Honum sé því nokkur vorkunn.
En mjög hæpið er það líklegasamt
sem áður, að almenningur taki þessa
afsökun fyrir góða vöru og gilda.
Hviti Hanzkiitn. 33
veitingar voru. Látlaust small í töppunum,
þegar þeir voru dregnir úr kampivínsflösk-
unum, eins og flöskurnar væri aðeins opn-
aðar til þess að berast á. í nokkrum her-
bergjum var eingöngu spilað á spil, og Clif-
ford tók eftir því, að þau voru einnig troð-
full. Hér var nokkurskonar Monte-Carlo1), al-
veg fyrir framan nefið á lögreglunni.
»Mér er sönn ánægja að sjá yður«, sagði
frú Raby við Clififord, þó að hún hefði auð-
vitað ekki nokkurn grun um það, hver hann
var. »Það var fallega gert af yður, að koma.
— Lady Charlton, mér er sönn ánægja og
heiður — þér hafið sjálfsagt komið með
dætur yðar«.
Cl fford gekk frá, til þess að trufla ekki.
Nú gat hann gengið um í skrautlegu her-
bergjunum, eins og honum þóknaðist sjálfum.
Hann hafði borðað vel, og nú langaði hann
mest til þess að skemta sér. Alvaran mundi
sjalfsagt byrja, þegar frú Garaldine Manton
kæm'. Clifford datt ekki í hug, að það væri
hennar létta nafn, en það gerði hvorki til
né frá.
Honum varð reikað inn í stóra stofu, og
voru þar settir fram tveir tugir borða, til
1) Monte-Carlo er bær á Suður-Frakklandi. Þar
er heimsfrægur spilabanki.
34
þess að spila »bridge«. Öíl voru þau notuð,
nema eitt. Við það stóðu þrír menn, eins
og þá vantaði spilafélaga. Hár maður svart-
sk^ggjaður kinkaði kolli til Cliffords, mjög
kunnuglega.
»Ég man ekki hvað þér heitið«, sagði
hann, »en ég kannast við andlit yðar. Viljið
þér vera fjórði maður í spilinu?«
»Já, þangað til þér getið fengið annan«,
sagði Ctift'ord«, en ég vil segja yður, að það
getur verið, að ég þutfi að fara, þegar minst
varir«.
A meðan þeir voru að koma sér fyrir við
borðið, horfði Ctifford grandgæfilega á með-
spilendur sina. Honum fanst ekki sérlega til
um neinn þeirra, öðrum fremur. Allir voru
þeir harðlegir og fégjarnir að sjá, jafnvel sá
yngsti, sem varla var af unglingsaldri. Lititl
munur var á framkomu þeirra og látbragði.
»Við spilum víst upp á eitt pund (18 kr.)
fyrir IOO strik«, mælti skeggjaði maðurinn.
Það var hátt spilað, en Ct fford samþykti
það orðalaust. Hann fann, að heppnin myndi
fylgja sér og vildi freista gæfunnar. Og þar
að auki var hann góður spilamaður og hafði
stytt sér marga næturvökuna í Suðurafríku,
við þetta spil. Þegar þeir höfðu sp'lað þrjár
rúbertur, var hann búinn að vinna 50 pund.
Fólk gekk stöðugt um stofuna, kom og fór,
35
og ómur margra radda blandaðist giamrinu
í gullinu og skrjáfinu í seðlunum. Margir
spiluðu hærra, en þeir höfðu efni á — hálf-
gerðir drengir, sem voru náfölir af geðs-
hræringu og ungar stúlkur sem hlógu krampa-
hlátri. Spiladjöfullinn og gullþorstinn hélt
fólkinu heljartökum. Einhver gerði skeggjaða
manninum vísbending og hann afsakaði sig,
en sagðist koma brátt aftur. Ctifford stóð
upp og litaðist um Hann kom auga á frú
Geraldine Manton, hún brosti til hans og
hann þóttist sjá það á henni, að henni þætti
vænt um, að hann var í þessum íélagsskap.
Hann heyrði hlátur og hvísl fyrir aftan sjg
°g þegar hann sneri sér við, sá hann einn
meðspilenda sinna horfa á sig mjög illilega.
Hver sem nú ástæðan var, þá var það víst,
að maður þessi var svaiinn óvinur hans.
Cliford komu í hug viðvörunarorð Sir Arthurs,
en við nánari íhugun komst hann að þvf,
að þetta væri tóm ímyndun. Það var einber
hending, að hann hatði farið að spila »bridge«
við þessa menn.
Clifford sneri sér frá þeim aftur. Það var
komið upp ósamlyndi við borð eitt þar ná-
lægt. Einn af spilamönnunum, ung og lag-
leg stúlka, hafði nýlega rétt 20 punda seðil
yfir borðið og annar spilamaður hafði sagzt
eiga hann Clifford las sannleikann á andliti
3