Landið


Landið - 05.07.1918, Blaðsíða 2

Landið - 05.07.1918, Blaðsíða 2
io6 LANDIÐ „Hugfró“ J Tóbaks- og sælgætis-verzlun, Laugaveg1 34. Sími 739. Keykj avík. Heildsala. Smásala. Allskonar tóbaksvörur og sælgæti. Vörur sendar um alt land gegn eftirkröfu. Allar pantanir afgreiddar tafarlaust. Sendið pantanir með síma eða bréfi. »Hugfró« er ný verzlun, sem fær vörur sínar milli- ^ liðalaust, og er strax að verða stsersta og bezta tóbaksverzlun landsins. Utanáskrift símskeyta: »Hugfró«. Reykjavík. Virðingarfylst. Ó1 afsson. =K =^r—m= :K vísi verður ákveðið, heimilast hér- aðslæknum landsins að hækka gjaldskrá þá, sem um getur í 4. gr. laga nr. 34, 16. nóv. 1907, svo og borgun fyrir ferðir, sem ákveðin er í 5. gr. sömu laga, um alt að 50%. — 2. gr. Lög þessi öðl- ast þegar gildi. Greinargerð. Þar sem það virð- ist óhjákvæmilegt, að bætt séu launakjör lækna, en nefndinni hins vegar virðist sanngjarnt, að almenn- ingur taki nokkurn þátt í því, að bæta kjör þessarra starfsmanna þjóðarinnar sérstaklega, hefur hún leyft sér að bera þetta frv. fram. 33. Frv. til laga um verðlags- nefndir. Frá bjargráðan. nd. 1. gr. Stjórnarráðinu veitist heimild til, eftir tillögum bæjarstjórna, að skipa nefndir til að ákveða verðlag á út- lendri og innlendri vöru. — 2. gr. Stjórnarráðið setur með reglugerð nánari ákvæði um starfsvið nefnda þessarra og önnur atriði um fram- kvæmd laganna. í reglugerð má ákveða sektir fyrir brot gegn ákvæðum reglugerðar eða ráðstöf- unum, gerðum samkvæmt henni. — 3 gr. Ákvæðum verðlagsnefnda má skjóta til stjórnarráðsins til fullnað- arúrslita. — 4. gr. Verðlagsnefndir fá borgun fyrir starf sitt úr bæjar- sjóði, eftir reikningi, sem bæjar- stjórnin úrskurðar. — 5. gr. Með lögum þessum eru úr gildi numin lög nr. 10, 8. sept. 1915, og lög nr. 7, 8. febrúar 1917. — 6 gr. Lög þessi öðlast gildi þegar í stað. Pingsályktunartillögur. 38. Tillaga til þingsályktunar um almenningseldhús. — Alþingi ályktar að heimila landsstjórninni að veita tveim mönnum, einum karlmanni og einum kvenmanni, sem bæjarstjórn Reykjavíkur mælir með, alt að 4000 kr. styrk til þess að kynna sér erlendis fyrirkomu- lag almenningseldhúsa og rekstur þeirra. Styrkur þessi veitist gegn því, að Reykjavíkurbær leggi fram það, sem á vantar. — Alítist þess eigi þörf að senda menn utan í þess- um erindum, er landsstjórninni heimilt að verja fénu til styrktar því, að almenningseldhúsi verði komið á fót. 39. Tillaga til þingsál. um lán handa klæðaverksmiðjunni Álafossi. — Alþingi ályktar að heimila lands- stjórninni að lána eigendum klæða- verksmiðjunnar á Alafossi alt að 100 þús. krónur, til að fullkomna verksmiðjuna á ýmsan hátt. — Lánið veitist gegn veði í verk- smiðjunni og ábyrgð, er stjórnin tekur gilda, ávaxtist með 5% og greiðist með jöfnum afborgunum á 20 árum. 40. Tillaga til þingsál. um bráða- birgðalaunaviðbót handa starfs- mönnum Iandssímans. Frá fjárveit- inganefnd nd. — Alþingi ályktar að heimila Iandsstjórninni að verja alt að 40000 kr. á ári af tekjum landssímans til bráðabirgðalauna- viðbótar handa starfsmönnum lands- símans. — Af launaviðbót þessarri greiðist engin dýrtíðaruppbót. Við tillögu þessa hafa komið breytingartillögur frá þeim Magn. Guðm.syni, Gísla Sv., Pjetri Otte- sen og Ein. Árnasyni: 1. Fyrir „40000“ í 1. málsgr. tlll. komi: 25000. — 2. Önnur málsgr. orðist svo: Stjórnarráðið úthlutar launa- viðbót þessarri, að fengnum tillög- um landssímastjóra. 41. Tillaga til þingsályktunar um raflýsingu á Laugarnesspítala. — Alþingi ályktar að heimila landsstjórninni að verja fé til þess að raflýsa holdsveikraspítalann í Laugarnesi. * Samþykt frumvörp. Um bæjarstjórn á .ísafirði. Um hækkun á vörutolli. Um hafnsögu f Reykjavík. Um bæjarstjórn í Vestmannaeyj- um. Um mótak. Um stimpilgjald. Samþyktar þingsál.till. Um rannsókn sfmaleiða. Um heimild fyrir stjórnina til þess að veita styrk til að kaupa björgunarbát. Um þóknun handa Jóh. Þóíðar- syni pósti á ísafirði. Um lán handa Suðurfjarðahreppi Um uppgjöf á eftirstöðvum af láni úr landssjóði til Fiskifélags ís- lands til steinolíukaupa. Um efnivið til opinna róðrarbáta. Síldveiðin 1918. Álitsskjal utgerðarmanna. Útgerðarmenn, víðsvegar af Iand- inu, hafa átt fundi með sér hér í bænum fyrir skömmu og kosið nefnd til þess að bera fram tillög- ur við stjórn og þing, viðvíkjandi síldveiði í sumar. AHstórt álitsskjal hefur birzt frá nefnd þessarri, þar sem grein er gerð fyrir hag síldar- útvegsins, eins og hann stendur nú. — Samkvæmt skýrslu þessarri eru nú í landinu um 300000 síldar- tunnur, taldar nær 6 miljón króna virði Auk þeSs liggur mikið fé í bryggjum, húsum, síldarstæðum o. fl., sem að síldveiði Iýtur. Nú hefur aðeins fengist útflutn- ingsleyfi á 50 þúsundum tunna til Svíþjóðar, en það er miklu minna en vænta má, að veitt verði. Horfir því til vandræða um alt hvað meira veiðist. Nefndin leitar þess vegna hjálp- ar landsstjórnarinnar í þessu efni og fer fram á, að stjórnin kaupi, fyrir hönd landssjóðs, alt að 150 þús. „ápakkaðar" tunnur síldar og borgi þannig: Fyrstur 50000 tunnurnar 75 au. kg. Aðrar 50000 — 50------- Þriðju 50000 — 40------- en þá yrði meðalverð 55 aur. kg., eða alt kaupverðið kr. 827500000. Nefndin hugsar sér að stjórnin selji svo síldina því verði, er hér segir: Til Svíþjóðar 50000 tunnur á 1 kr. kg. = kr. 500000.00. Til Ameríku 25000 tunnur á 50 au. kg. — kr. 1250 000.00. En til manneldis, skepnufóðurs og ef til vill bræðslu yrði að nota 75000 tunnur á 27 aura kg. = kr. 2025000 00 Það eru samtals kr. 827500000. Samkvæmt þessarri áætlun ætti Iandssjóður ekki að tapa á þess- um kaupum. Málið verður nú lagt fyrir alþing. Aðalfundur Eimskipafélagsins var haldinn hér í bænum 22. þ. m. Samþykt var að skifta ársarðinum þannig: 1. I eirdurnýjunar- og varasjóð legg- ist.................kr. 77217.20 2. Stjórnendum félags- ins sé greitt í ómaks- laun alls...........— 4500.00 3. Endurskoðendum . greiðist í ómakslaun alls ...............— 1500.00 4. Hluthöfum félagsíns greiðist í arð 7% af hlutafé því, kr. I-Ó73-3SJ-53) sem rétt hefurtilarðs ... — 117134.61 5. Utg.stjóra greiðist sem ágóðaþóknun . — 2000.00 6. í eftirlaunasjóð fé- lagsins leggist . . — 25000.00 7. Radíumsjóði íslands séu gefnar .... — ioooo.oo kr- 23735r-8r En 521 þús. kr. var varið til frádrátt- ar bókuðu eignaverði félagsins. Tvær tillögur komu fram um laga- breytingar. Náði aðeins önnur sam- þykki fundarins, Samkvæmt henni Lifsábyrgðarfélagið JYLLAND. undir eftirliti danska ríkisins og við- urkent af því, býður íslendingum hagkvæm lífsábyrgðarkjör. Ávaxtar íslenzkar innborganir hér á landi. Alíslenzk læknisskoðun; yíir- læknir félagsins hér er Guðmundur Björnson landlæknir. Skírteini gefin út hér í Reykja- vík af aðalumboðsmanni félagsins hér, samkvæmt umboði félagsins. Athugið tryggingarskilyrðin áður en þér kaupið líftryggingu annars- staðar. Aðalumboðsmaður á ísiandi Ó. G. Byjólfsson, Reykjavík. hefur stjórn félagsins framvegis ó- bundnar hendur um hve mikla ágóða- þóknun hún veitir framkvæmdarstjóra félagsins. Fjórir menn gengu úr stjórn, sam- kvæmt hlutkesti og voru þessir dregn- ir úr: Eggert Claessen, Jón Þorláksson, Halldór Daníelsson, Árni Eggertsson. Með því að Vestur-íslendingar höfðu eigi tilkynt útnefning fulltrúaefna, samþ. fundurinn að fela stjórninni að kjósa mann í stað Árna Eggertssonar, þegar hún hefði ráðfært sig við hann, en hans er nú von á Gullfossi. í stjórn voru endurkosnir: Eggert Claessen með 16268 atkv. Jón Þorláksson — r2594 — Halldór Daníelss.— 8447 — Endurskoðandi var endurkosinn Ó. G. Eyjólfsson, en varaendurskoðandi Guðm. Böðvarsson. Halldór Eiríksson, sem áður var varaendurskoðandi, mælt- ist undan endurkosningu. Samþ. var tillaga stjórnarinnar um aukin skipakaup. Rætt var og um lög um eftirlaun starfsmanna Eimskipafé- lagsins og því máli írestað til næsta fundar. Símskeyti lá fyrir fundinum frá hlut- höfum i Vesturheimi. Um það urðu nokkrar umræður. Samþ. var að lokum till. frá Sig. Eggerz ráðherra um að fundurinn teldi æskilegt, að samband héldist milli hluthafa austan hafs og vestan, en síðan önnur frá P. A. Ólafs- syni, þar sem æskilegt var talið að allir hlutir Eimskípafélagsins lentu í hönd- um hérlendra manna og stjórninni falið að gangast fyrir hlutabréfakaupum vestra. Tillaga var samþykt frá B. H. Bjarna- son um að veita Emil Nielsen 5000 kr. dýrtíðaruppbót fyrir árið 1917 og önnur tillaga frá Sigurjóni Jónssyni, að veita stjórninni 4500 kr. uppbót í sama skyni. Yfirdómari Eggert Bricm var fundar- stjóri, en Gísli sýslumaður Sveinsson skrifari. Forsetastörf annaðist varafor- seti Halldór Daníelsson, því að Sveinn Björnsson forseti var sjúkur. íslenzka samninganefndln. Skrifarar hennar eru þeir Gísli ís- leifsson fulltrúi og Þorsteinn Þorsteins- son hagstofustjóri. Fréttir. Slys á Siglnflrdi. 19. f. m. vildi það sorglega slys til hér, að ungur maður, Rögnvaldur Rögnvaldsson að nafni, ættaður af Höfðaströnd, datt út af bryggju og druknaði. Var verið að leggja pall á bryggjuna og kölluðu smiðirnir á hann til þess að lypta undir tré; gekk hann hratt fram til þeirra, en aðra leið en vanalega, og datt niður. Um leið féli niður pallur og náði pilturinn strax í hann en slepti honum jafnskjótt, sökk til botns og skaut aldrei upp aftur. Svo hittist á, að menn á bát voru að róa þarna fram hjá örfáa faðma frá; snéru þeir strax við, en gátu þó ekíci náð 1 hann. Þarna var um 16 feta dýpi, og enginn viðstaddur svo vel syndur að kafað gæti til botns, en þó var það reynt, Eftir á að gizka fimtán mínútur náðist maðurinn upp; var þá læknir kominn á staðinn, gerði hann strax tilraunir til lífgunar en þær reyndust árangurslausar þrátt fyrir það þó alt væri gert sem tilheyrir og hægt var. — („Fram"). Svínartokt Kanpmannnhafnarbæjar. Kaupmannahafnarbær er nú að ráð- ast í svínarækt, og það svo um munar, því ætlunin er, eftir því sem „Politik- en" segir frá, að framleiða 4000 svín árlega. Byrjunin var gerð með 310 gölt- um og gyltum. („Dbr."). Próf. Fyrri hluta læknaprófs hafa lokið: Guðni Hjörleifsson með 1. eink. og Danfel Fjeldsted, Eggert Einarsson Briem, Jón Árnason og Karl Magnús- son með 2. eink. — ý Frú Gnðrún S. Ólafsdóttlr á Bergsstöðum, kona síra Björns Stefánssonar, en dóttir Ólafs prófasts Ólafssonar í Hjarðarholti er nýlátin eftir nýafstaðinn barnsburð. Hún Iætur eftir sig 4 börn. Prestastofna hófst hér 1 bænum 26. f. m. Jón pró- fastur Sveinsson prédikaði við setning- una. Fundirnir voru haldnir í húsi K. F. U. M. og tveir fyrirlestrar fluttir í kirkjunni af síra Magnúsi Jónssyni dó- sent og biskupi. Þórður Tliorstelnsson sonur Steingríms skálds og rektors, særðist öðru sinni á Frakklandi í vetur

x

Landið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Landið
https://timarit.is/publication/194

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.