Alþýðublaðið - 23.05.1963, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 23.05.1963, Blaðsíða 4
ERUM VIÐ BAKKABRÆÐUR? STJÓRNARANDSTAÐAN heldur því fram, að erlent fjármagn sé íslendingum mikill háski. Rétt mun það, að forsjá sé kappi betri í þeim efnum. Samt fer því fjarri, að erlent fjármagn þurfi að vera íslenzku þjóðinni hættulegt, ef við kuimuni að lialda á þeim málum. Framtíðarþró- un atvinnuveganna og efnahagslífsins á Islandi kann að vera undir því komin, að við öflum okkur erlends f jármagns, án þess að verða því svo háðir, að hætta stafi af. Reynslan er lærdómsrík. Við liöfum tekið mörg erlend lán undanfarna áratugi og varið þeim fjármunum til margvíslegra framkvæmda heima fyrir. Framsóknarflokkurinn hefur átt drjúgan þátt í þeim ráðstöfunum. Ekki hefur þetta er- lenda fjármagn reypzt hættulegt frelsi og sjálf- stæði íslendinga. Þvert á móti. Það hefur auð- veldað okkur að ávaxta gæði landsins og bæta hag þjóðarinnar. Framtíðarverkefni íslendinga eru vissulega mörg og mikil. Land okkar og haf er að ýmsu leyti óunnin náma. Auðæfi híða okkar í skauti jarðar og djúpi sjávar. Auðvitað þurfum við fjár magn til að finna þau og vinna. Þátttaka okkar I alþjóðlegu samstarfi á að gera það mögulegt, að þetta fjármagn fáist, án þess að hætta fylgi. Þess vegna er afstaða stjórnarandstöðunnar ekk- ert annað en minnimáttarkennd. Og þetta mun varla stefna liennar, ef málið er krufið til mergj- ar. Alþýðubandalágið og Framsóknarflokkurinn taka ekkert ínark á upphrópunum Tímans og Þjóðviljans um skaðsemi erlends fjármagns. Hluti af heiminum. FRAMSÓKNARFLOKKURINN telur sig mál- svara samvinnuhreyfingarinnar, en hún er alþjóð leg eins og allir vita. Erlent fjármagn á hennar vegum myndi naumast varhugavert að dómi Framsóknarflokksins. En er þá hættulegt, að ís- lendingar verði sér úti um erlent fjármagn með þátttöku sinni í alþjóðlegu samstarfi, sem hef- ur meðal annars þann tilgang að tryggja efna- hag og atvinnulíf hlutaðeigandi ríkja? Eða eru íslendingar kannski þeir Bakkabræður, að þá megi ekki senda á mannamót þjóðanna nema til þess að þegja og halda að sér liöndum? . Sú tíð er liðin, að ísland geti talizt afskekkt Iand og einangrað. Lega þess er á krossgötum veraldarinnar. Við erum hluti af heiminum. Þess vegna er ekkert sjálfsagðara en íslendingar not- færi sér þegnréttinn í samfélagi þjóðanna, en vitaskuld með liliðsjón af ábyrgð og skyldu. Austræna gullið. KOMMÚNISTAR þykjast ekki mega heyra það nefnt, að vestrænt fjármagn komi tU sög- unnar á íslandi. Kenning þeirra er sú, að við skulum forðast allar stórframkvæmdir, sem mark að geti tímamót. En ætli þeim sé þetta alvara í raun og veru? Sennilega myndu kommúnistar ljá máls á lán- tökum austan járntjalds, ef þeim væri trúað fyr- ir íslenzkri landsstjórn. Og sumir ætla, að þeir meti mikils slíka fjármuni nú þegar. Stórfyrir-- tæki kommúnista í Reykjavík hljóta að hafa kost- að ærna peninga. Hér skal ekkert um það full- yrt, hvaðan þeir séu komnir. En hugsum okkur, að gullið sé ef til vill austrænt. Gæti verið, að liér sé einmitt fundin skýr- ingin á afstöðu ÞjóðvUjans til hugmyndarinnar um erlent fjármagn? Kommúnistum er ekkert keppikefli, að þátttaka okkar í samtökum vest- rænna þjóða efli hag og sjálfstæði íslendinga. Hins vegar kunna þeir vel að meta Rússagullið. Það er alls ekki sama, hvaðan peningarnir koma. Og hvað yrði Eysteini Jónssyni fyrir, ef hann kæmist í fjármálaráðherrastólinn einu sinni enn og réði efnahagsmálum þjóðarinnar? Dettur nokkrum manni í hug, að frægasti skuldakóngur landsins seildist aldrei í erlenda fjárhirzlu? Vildi hann þá fremur Rússagullið en þá peninga, sem íslendingum standa til boða á Vesturlöndum? Spurningarnar eru kannski óþægUegar, en tíma- bærar hljóta þær að teljast. Misheppnaður áróður. ÍSLENDINGAR hafa kunnað að fara með er- lent fjármagn. Stundum fylgdi því áhætta. Samt liefur það átt mikinn þátt í frámförum okkar og velmegun. Þess vegna kemur ekki til mála, að hrakspár Tímans og Þjóðviljans skjóti nokkrum íslendingi skelk í bringu. Þetta er misheppn- aður áróður, sem engan blekkir. Hins vegar gerum við okkur ljóst, að erlent fjármagn verð- ur að þjóna íslenzkum hagsmunum. Og Bakka- bræður hefðu scnnilega ekki kunnað meö það að fara. — Ilerjólfur. 10KAIÖNLEIKAR S. I. A STARFINU A FÖSTUDA6 Vatnajök pósturá ÞETTA er fimmta árið, sem Jökla rannsóknafélagið gefur út Vatna- jökulsumslögin í 5000 tölusettum eintökum. Auk þess eru gefin út 1000 ótölusett umslög. Sérstök myndskreyting er á þessum um- slögum. í fyrra var mynd af Sveini Pálssyni til minningar um tvö SEXTÁNDU og síðustu tónleik- «r Sinfóníuhljómsveitar íslands á fiessu starfsári verða haldnir í f láskólabíói nk. föstudag, 24. maí. 3Á efnisskránni eru þrjú verk: For- feikurinn að Meistarasöngvurun- *im eftir Wagner, Orgelkonsert eftir Poulcnc og loks 4. symfónía Brahms. Einleikari í orgelkonsertinum ■verður bandaríski organleikarinn 3E. Power Biggs, og leikur hann á lítið rafmagnsorgel, sem fengið verður að láni til tónleikahalds- fns. Lét hann þess getið i viðtali við blaðamenn í gær, að sér þætti f)að fallegur virðingarvottur við Poulencs, sem dó í janúar sl., að ! velja ■ orgelkonsert hans til flutn- ings nú. Annars gat Mr. Biggs þess sér- staklega hve mikið væri til af góð- um pípuorgelum á íslandi. Hafði hann meðferðis lista yfir 27 pípu- orgel, sem eru í íslenzkum kirkj- um. Kvað hann íslendinga búa ó- venjulega vel að þessu leyti. Hann minntist sérstaklega á orgel Akur- eyrarkirkju, sem hann lék á sl. sunnudag og kvað það afargott hljóðfæri. Hann kom hingað síðast um 1957 og finnst mikið til um breytingarnar á þessu sviði sem öðrum. Hann hefur þegar leikið í Reykjavík tvisvar, einu sinni á Akrancsi og á Akureyri og fer í hundruð ára afmæli hans, en í ár' er litprentuð mynd af jöklasóley, i sem er það fjallablóm okkar, er hæst leitar, og hefur fundizt hér í blóma í 1500 metra hæð yfir sjó. Flestir kaupendur að tölusettum umslögum réyna að halda sömu númerum ár eftir ár og fá þannig samstæða ,,seríu“-árganga. Eig- endur tölusettra umslaga frá 1962 þurfa að gefa sig fram sem allra fyrst eða fyrir 25. maí n.k., ef þeir vilja tryggja sér forgangsrétt að sömu númerum í ár. Umslögin verða til sölu og afgreiðslu eins og áður í Radíóbúðinni, Óðinsgötu 2, á vegum Magnúsar Jóhannsson- ^ar, og tekið á móti pöntunum í síma 18275. Verð umslaganna er eins og áður: tölusett 10,00 kr., en jótölusett 5,00 kr. | Auk þess hefur félagið látið prenta bréfspjöld með litmynd af jóklasóley og ýmsum fróðleik um .Vatnajökul á ensku og íslenzku. ;Eru spjöld þessi ætluð til að setja innan í umslögin. Spjöldin eru seld sérstaklega með umslögunum, og er verð þeirra tvær krónur. Póststjómin hefur reynzt okkur mjög velviljuð og Pósthúsið í Reykjavík hefur sent með okkur á Vatnajökul öll árin einn sinn bezta stimplara og skíðagarp, Grím Sveinsson, og væntum við, að svo verði einnig í þetta sinn. . Mánudaginn 20. þ. m. mun verða settur upp á Pósthúsinu í Reykja- vík sérstakur póstkassi fyrir Vatna jöklapóst. Þar getur fólk póstlag’ umslög sín til föstudagskvölds 31. maí, en Vatnajökulsleiðangurinn leggur af stað frá Reykjavík þann 1. júní og kemur til baka 12.—14. júní. — Leiðangursstjórar verða: Magnús Eyjólfsson og Stefán Bjarnason. í sumar er ráðgert að haldið verði uppi veðurathugunum í Jök- ulheimum á vegum Jöklarann- sóknafélagsins. Athugunarmenn munu dveljast í Jökulheimaskála, og geta ferðamenn því alls ekki fengið gistingu þar nema þeir hafi til þess sérstakt leyfi frá stjórn félagsins. Frá Jöklarannsóknafélagi íslands. UndrabíHinn Frh. nr opnn. lega 118 þúsund. Verðmunurinn liggur í ýmsum smámunum, eink- um hvað varðar útlit. Vél og drif eru nákvæmlega eins í báðum bíl- um. Ýmsum kann að þykja slæmt að geta ekki notað gírana til að „halda við” niður brekku. DAF er búinn vélbremsu, sem einmiti er til sliks ætluð, og kemur þann- ig í stað „gírhemlunar” Benzíneyðsla DAF er áætluð 6 — 7,5 lítrar á Iiverja 100 kíló- metra. Benzíntankur tekur 28 lítra. Ekki sakar að taka það fram að lokum að DAF er algjörlega smur- koppalaus, og þarf því aldrei að smyrja. Fjöðrun er þannig, að þver- fjöður er að framan, ásamt tví- virkum höggdeyfum við afturhjól eru gormar með ívívirkum högg- deyfum. Söluumboð DAF bílanna á ís- Iandi hefur O. Johnson og Kaaber og hafa menn á vegmn fyrirtækis- ins undanfarið dvalizt í Hollandi til að kynnast viðhaldi og viðgerðum bílanna. DAF virðist vera bæði lipur og vandaður bíll, búinn ýmsum ágæt- um kostum, sem aðrir bílar af sömu stærð hafa ekki. EkiII. dag til Vestmannaeyja, en á föstu- | dag leikur hann sem sé orgelkon- sert Poulencs með Sinfóníuhljóm- sveitinni. William Strickland stjómar á föstudag síðustu tónleikum sínum með Sinfóníuhljómsveit íslands að þessu sinni. Lét hann í gær í ljós ánægju sína með samvinnuna yið hljómsveitina og áheyrendur. Hann kvað áheyrendur vera mjög mót- tækilega og hlýja, ef þeim líkaði vel, en sömuleiðis létu þeir líka vita af því, ef þeim þætti ekki tak- ast nógu vel. Hann kvaðst mundu minnast dvalar sinnar hér með verulegri ánægju. Frh. á 14. síðu. Hörpusilki er innan og ut- anhússmálning, framleidd í yfir tuttugu litum. Hörpu- silki þekur vel og er sérlega auðvelt í notkun. Fæst um land allt. 4 23. maí 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.