Alþýðublaðið - 01.06.1963, Blaðsíða 1
SJÓMANNADAGUR '63 BL 2
Baráttunni
verður að
halda áf ram
NÚ VERÐUR Sjómannadagurinn haldinn hátíð-
legur í 26. sinn. Sjaldan hafa sjómenn haft betri og
meiri ástæðu til að fagna og gleðjast yfir xmnum sigr-
um og bættum kjörum. Afkoma sjómanna hefur ugg-
laust aldrei verið betri, og aðbúnaður á skipunum.
jafnt fiskibátum sem flutningaskipum, er nær undan
tekningalaust góður.
Sjómenn geta nú fagnað árangri áratuga baráttu.
fyrir bættum kjörum. En baróttunni er raunverulega
aldrei lokið. Hún breytir um svið og málefnin verða
önnur. Þeir dagar eru liðnir, að sjómaðurinn og braut
ryðjendumir f landi þurftu að heyja harðvítugt stríð
fyrir mannsæmandi tryggingum og svefn- og hvfld-
artíma. Þeir dagar eru einnig liðnir, að sjómaðurinn
varð aðeins að treysta á Guð og hamingjuna þegar
hann fór í róður — án allra öryggistækja og eftirlits.
Nú er öldin önnur. Slysavamir hafa aukist gífur-
lega. Allt í kringum landið eru skipbrotsmannaskýli,
f hverju skipi er gúmmíbjörgunarbátur og önnur ör-
yggistæki. Líftryggingar sjómanna hafa hækkað mik
íð. Þó má aldrei stöðva sóknina og enn verður að bæta
slysavamimar.
En þessi barátta og sá árangur, sem náðist, má
ekki gleymast. Hún var lykillinn að þeirri góðu að-
stöðu og kjörum, sem sjómaðurinn hefur í dag. Þessi
barátta var upphafið að þeirri sigurgöngu, sem sjó-
menn hafa gengið á síðustu áratugum, og hefur leitt
til þess, að íslenzkir sjómenn hafa í flestum tilfeUum
náð lengst sinna starfsbræðra í heiminum.
Það lætur nærri að í hverri viku komi nýtt skip
til landsins. Stundum eru það lcaupskip, en mest kem-
ur af fiskibátum. Flotinn okkar er nýr og fullkominn.
Við höfum náð lengst allra þjóða í ýmissi veiðitækni,
og erum t. d. algjörir forystumenn í þeirri tækni, sem
lýtur að síldveiðum. í þeim efnum leita aðrar þjóðir
til okkar og vilja læra.
Þessi góði árangur er skiljanlegur, þegar þess er
gætt hve mikið íslendingar eiga undir fiskveiðum.
Þess vegna verður líka að búa vel að þeim mönnum,
sem eru jafnvel lengstan hluta ársins á sjónum. Allt,
sem verður þeim til hagsbóta, verður einnig þjóðinni
til hagsbóta. Sama máli gegnir um farmennina okk-
ar, sem gegna mikilsverðu hlutveriri vegna einangr-
5,*
Framhald á 10. sflta,