Alþýðublaðið - 14.06.1963, Síða 9
\ ÚKA
NANS_
beðið um köku er komið með pínu-
litla köku, sem kostar offjár. Þeg-
ar beðið er um brauð er komið
með voða lítið brauð, voða lítið
smjör og voða lítið ále'gg. Hér er
sú siðvenja aftur á móti, að það er
alltaf komið með eitthvað risa-
stórt, hvað svo sem pantað er.
Mikið af brauði, mikið af smjöri,
mikið af áleggi. Viðskiptavininum
er svo í sjálfsvald sett, hvort hann
borðar yfir sig eða kann sér maga
jmál.
Það er ótal margt fleira, sem
finna má í Chicago, enda er hún
önnur stærsta borg Bandaríkjanna.
Allt er risavaxið. Helmingur ís-
lendinga gæti t. d. leigt hér á Con-
rad Hilton, sem er elzta hótel borg
arinnar. Og það er veröld út af
fyrir sig með börum og búðum,
kaffistofum og matsölum, þar sem
velvaxnar meyjar dansa á skaut-
um þegar kvölda fer. Þegar dansi
þeirra lýkur er tréhlera rennt yf-
ir ísinn, og almenningur stígur
1 dans eftir músik hinna kjólklæddu
hljóðfæraleikara. Hérna á horn-
1 inu er næturklúbburinn Blái eng-
• illinn, þar sem boðið er upp á
; I drykki frá Jamaica, sem heita Ca-
Alfred Bjerregaard
fjölsótt og koma menn með gesti
sína frá öllum klúbbum landsins.
Bifröst er sennilegast ákjósanleg
asti staðurinn hér á landi til slíkra
fundarhalda, húsakynni mjög rúm
og vistleg og umhverfi með því
fegursta, sem við eigum. Gistirými
er töluvert, og þó ekki nærri til
að hýsa alla, en sem betur fer er
gott gistirými ekki mjög langt frá
og hefur það verið fengið til ráð
stöfunar, en bílar verða hafðir í
förum milli gististaðanna og fund
arstaðs. u
■ ■■■■■■■■ ..............................................................
■ ••■■■■■■ ....................................................................
lypso, Bikini og annað eftir því,
og þar dansa brúnar og fagrar
meyjar limbo niður í gólf.
I Tvær konur voru myrtar hérna
í borginni í gær, — og var það þó
sunnudagur. En morð eru hér ekki
nema daglegt brauð, og þótt ís-
lenzkir bændur skirrist við að
sálga húsdýrum sínum á sunnu-
dögum liorfa morðingjar hér ekki
í það að myrða kvenfólk, þótt
helgur dagur sé. Hér má aka eftir
götu, þar sem öðru megin eru nýj-
ar, hreinlegar blokkir, hínum meg-
in óhrjálegir kofar og hin aum-
asta fátækt. Lítil, mjóslegin
svertingjabörn sjúga á sér fing-
urna, og sólin skín á skítuga larfa
þeirra. En sólin skín líka á þá
gljáandi kátiljaka, sem aka hjá.
Þannig eru stórborgirnar. —
Risavaxin söfn mannlegra örlaga.
Og þau söfn eiga eintak af öllu.
Ég sagði í síðasta bréfí, að ég
ætlaði að segja þér meira frá Cape
Canaveral. Það hafa ekki allir
orðið þeirrar lukku aðnjótandi að
sjá eldflaug með eigin augum,Jen
sannleikurinn er kannski sá, að
eldflaug er ekki öllu ljósari í eigin
líki en á ljósmynd. Þetta er flókið
fyrirbrigði. — En menn, sem skilja
eldflaugar og senda menn út í
geiminn sögðu okkur, að árið 1964
mundu Bandaríkjamenn líklega
senda tvo menn út í geim, og þeir
yrðu á ferðalagi þar úti £ lengri
tíma, allt upp í hálfan mánuð. Þeir
sögðust eiga eftir að kanna ótal
margt úti í geimnum. Þegar hefði
komið í ljós, að maðurinn gæti
þrifist vel, hann gæti hreyft sig,
sofið og matast. Hann væri dálítið
vankaður, þegar hann kæmi aftur
f faðm móður jarðar, en næði sér
brátt. Aðspurðir um ferðir til
mánans sögðu hinir vísu menn, að
líklega yrðu þrír menn sendir til
mánans í kringum 1966. Búizt er
við, að ferðin taki sjö daga, sex
dagar fari í ferðina fram og til
baka — einn dag spássera ferða-
langarnir um tunglið! — Hópur
manna er æfður til geimferða, en
ekki hefur verið ákveðið enn,
hverjir verða valdir til þess að
stíga fyrstir manna á land á mán-
anum. Hópur kvenna hefur boðið
i sig fram til tunglferða, en ekki er
| talið líklegt, að kvenmaður verði
| í fyrsta hópnum. Þrennt þarf,,
! geimfari nefnilega að hafa til að
bera: Líkamlegt þrek, skynsemi og
tæknilega þekkingu á farartækinu
og þeim tólum sem fylgja þvj.
Það er fróðlegt að skoða allt það
sem til er í veröldinni. En að
standa andSpænis fullkomnustu
vopnum nútímans er eins og að
rnæta fílefldum draug uppi á ör-
æfurn. Angistin læsir sig um
mann. Að horfa á allar þær þús-
undir einkennisbúinna manna,
sem lifa í heimi, sem við ekki
þekkjum, þar sem er slegið sam-
an hælum og gengið í takt — í
dag eftir músík lúðrasveitar — á
morgun kannski á eftir eldflaug-
inni út í opinn dauðann, er eins og
að ganga um líkhús. En ef til vill
er það þó satt, þegar öllu er á botn
inn hvolft, það, sem vinur minn
sagði um daginn. — „Við göngum
auðvitað um líkhús. En við eigum
I ekki að hrista hausinn, heldur vera
þakklát þeim mönnum, sem hafa
fórnað lífi sínu og hrærast í lik-
húsi — til þess að við getum ferð-
ast áfram í sólinni!?
Kærar kveðjur ....
H.
Tvær skátastúlkur virða fyrir sér nobkurn hluta tjaldbúðanna í Helgadal.
UM HVÍTASUNNUNA hélt skáta- i
féíagiS Hraunbúar í Hafnarfirði |
skátamót í Helgadal. Tókst mótiS \
hið bezta og veðurguðirnir i
brostu við þátttakendum móts- i
ins. Mörg félög tóku þátt í mót- i
inu og allir fóru heim glaðir og í
ánsgðir með góðar endurminn- I
ingar í vegsnesíi. Hér birtast f
þrjár myndir frá mótinu. Mynd- \
in hér fyrir ofan sýnir skáta úr |
Skátafélagi Reykjavíkur ganga |
fylktu liði til fánahyllingar, en i
myndin hér til vinstri er af skáta I
stúlkum, sem eru önnum kafnar \
við matseld. Þátttakendur á \
þessu skátamóti voru um 700.
íiiHi'MiiiiiiiiiiiiiMtMiitmtmitiiiititittiuitmiiiimtiMiiiiiaii
!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■I ,■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■I
i ■■■■ ■ ■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■ ■ ■■■■■■■■■■■■■■■ ■ ■’■ ■ ■■ ■■•••••■•■■•••■■•■■■••■■••■•■■•■■■•■■•••■■•■•■•■•••■•■■•••■•■•■MHM>ta«>BMa»iiiiatMMMiMiMi>aaaiiiiaamiin»iaMiiMiiMi»aiiiMaMaMaiiiai>i>MM»iMiaamatMaiMiHÍ
!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■! •■■•'■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■B■-■■■■■■»■■■■■■■■■•■■■■■•■•■■■■■■•••■•■■■■■■■■■■■•■■•■■■■(■ ■■■■■■■■ ■»■■•■■»■■■■■■■»■■•■■■■■■■■«■••■■■■■•■■■■■■■■■■■•■■■■■■■••■■•■■■■■■•■ ■■■■■■••■■•■■■■■■•■fc■■•y
!■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■.■••■•■■■■■■••■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■•■■■■■■■■BBaMB«iBaaBBBBaaBaBBBaaaaaBaBaaBaBaaBBaBBBBaBaB*BaBBaBBBaLBBaBBBBBari»BBBBBaiaiBBBaaaBBBaBBBBaBBBaBBBaBBaBBBBBaBBBaBBBBBBB«BBaBaaBaBaBBaBBBBBaBBBBaaBBBBaBBaBaBBBBBBaBBBBBaBBaaBl
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 14. júní 1963 $