Lögrétta - 17.04.1906, Blaðsíða 2
66
LÖGRJETTA.
Lögrjetta kemur út á hverjum Miö-
vikudegi og auk þess aukablöð við og við,
minst 60 blöð alls á ári. Verð: 3 kr.
árg. á íslandi, erlendis 4 kr. Gjalddagi
1. júlí.
Skrifstofa opin kl, 101/*—11 árd, og kl.
3—4 siðd. á hverjum virkum degi.
Innheimtu og afgreiðslu annast Arin-
björn Sveinbjarnarson, Laugaveg 41.
Þá er talað um bjargráð, sem
koma ættu að gagni fiskiskipum,
sem eitthvað hlektist á í stórviðr-
um úti á sjó, líkt og nú átti sjer
stað. Yrði þá að kaupa sjerstak-
lega útbúið gufuskip, sem þá væri
sent út til þess að leita fiskiskip-
anna i háskaveðrum. Sjómönnum
er kunnugast um, hvort þetta sje
tiltækilegt. En einn af skipstjór-
unum hefur nýlega stungið upp á
því hjer í blaðinu, að fá spítala-
skip, er fylgdi þilskipaflotanum og
tæki við þeim sjómönnum sem
veikjast á hafi úti. Mætti nú ekki
sameina þetta tvent, fá gufuskip,
sem ætlað væri þetta tvöfalda verk?
Enn mætti hugsa sjer, að Faxa-
ílóagufubáturinn væri sjerstaklega
útbúinn með þetta fyrir augum.
Slysin, sem hjer eru nýorðin,
knýja menn til að hugsa eitthvað
í þessa átt.
Stórslys enn.
Tvö fiskiskip farast.
48 menn drukna.
Á föstudaginn langa kom gufubát-
urinn „fteykjavík" úr póstferð frá
Borgarnesi og flutti þá fregn, að ná-
lægt Ökrum á Mýrum hefði rekið
ýmislegt, er sýndi, að fiskiskip hefði
farist þar framundan í ofsaveðrinu á
laugardaginn 7. þ. m. Með-d annars
höfðu rekið þar 5 köffort heil með
fatnaði í, poki með brauði, ýms brot
af innviðum úr skipi o. m. fl., þar
á meðal nafnspjald skipsins, og stóð
á því
»Enielie frá Reykjavík«.
Þetta skip varj’eign Th. Thorstein-
sons kaupmanns 'og skípstjóri á því
Björn Gíslason frá Bakka hjer í bæn-
um, hálffertugur maður, kvæntur.
Skipið hafði sjestghjer úti í flóanum
stormdaginn og[voru menn þvíorðnir
hræddir um það. 24 menn voru á
því og voru þeir þessir, auk skip-
stjórans:
2. Arni Sigurðsson, stýrimaður,
úr Rvík, 30 ára.
3. Árni Guðmundsson frá Akra-
nesi, 44 ára, búandi.
4. Ásgeir Ólafsson 'úr Rvík, 19
ára, vinnum.
5. Guðjón Guðmundsson úr Rvík,
26 ára, vinnum.
6. Guðjón Ólafsson frá Patreks-
firði, 23 ára, lausam.
7. Guðlaugur Óiafsson ffrá Bakka
í Rvík, 19 ára, vinnum.
8. Guðm. Bjarnason frá Akranesi,
22 ára, búandi.
9. Guðmundur Guðmundsson frá
Patreksfirði, 30 ára, lausam.
10. Guðmundur Guðmundsson úr
Rvík, 25 ára, vinnum.
11. Guðmundur Jónsson úr Rvik,
22 ára, búandi.
12. Guðmundur Kristjánsson frá
Akranesi, 15 ára, sonur nr. 17.
13. Guðmundur Magnússon [frá
Akranesi, 59 ára, búandi.
14. Guðmundur jÞorsteinsson frá
Akranesi, 49 ára, búandi.
15. Hannes Ólafsson'frá/Akranesi,
23 ára, búandi.
16. Kristinn Jónsson úr Rvík, 17
ára, vinnum.
17. Kristján Guðmundsson frá
Akranesi, 53 ára, búandi.
18. Kristján Magnússon frá Akra-
nesi, 51 árs, búandi.
19. Ólafur Eiríksson úr Rvík, 37
ára, búandi.
20. Ólafur Ólafsson frá Akranesi,
47 ára, búandi.
21. Sigurður Jónsson frá Akra-
nesi, 35 ára, búandi.
22. Stefán Bjarnason fra Túni í
Pióa, 20 ára, vinnum.
23. Stefán Böðvarsson frá Falla-
andastöðum í Hrútafirði, 29 ára, bú-
andi.
24. Þorsteinn Bjarnason frá Akra-
nesi, 17 ára (bróðir nr. 8).
Skipið var 18 eða 19 ára gamalt,
keypt i Englandi, gott skip og vel
búið, 80 smál. að stærð.
»Sophie Wheatly«
hjet hitt skipið, sem farist hefur, en
skipstjóri Jafet Ólafsson, hjeðan úr
bænum, 33 ára, kvæntur og átti 1
barn. Skipið var fjelagseign þeirra
þriggja: skipstjórans, Th. Jensens
kaupmanns og Guðlaugs Torfasonar
snikkara. Þetta skip hafði einnig
sjest hjer úti í flóanum stormdaginn.
En engar frjettir flutti „Reykjavíkin"
af því á föstudaginn. Fjekk því Guð-
laugur snikkari hana til að fara upp
1 Borgarnes aftur á laugardaginn og
fór sjálfur með. Þegar jangað kom
beið hans þar brjef frá Ásgeiri í
Knararnesi, sem hafði átt að ná í
póstinn daginn áður, en komið of
seint. Skýrir hann svo frá, að rekið
hafi hjá Knararnesi afturhlut af þil-
fari úr fiskiskipi, en á bjáika einum
í flakinu sje messingsplata og á hana
grafið „Sophie Wheatly". Þessiplata
hafði verið á bita í káetu skipsins.
Skipið var keypt í Lundúnum fyrir
3 árum, hafði áður verið spítalaskip
og er sagt hafa verið einna best og
vandaðast að útbúnaði aföllum fiski-
skipunum hjer. Guðlaugur skildi
mann eftir i Borgarnesi til þess að
grenslast eftir, hvort ekki ræki fleira
úr skipinu.
Á pessu skipi fórust, auk skip-
stjórans, þessir menn:
2. Eyvindur Eyvindsson úr Rvik,
26 ára. búandi.
3. Steindór Helgason úr Rvík, 36
ára, vinnum.
4. Guðni Einarsson frá Brands-
húsum í Rvik, 31 árs, lausam.
5. Þorvarður Karilsson frá Gísl-
holti í Rvík, 32 ára, búandi.
6. Þórður Eyvindsson, frá Eyja-
koti á Eyrarbakka, 23 ára, vinnum.
7. Ólafur Eiríksson frá Hæli í
Eystrahreppi, 19 ára, vinnum.
8. Steinn Steinsson frá Grund í
Skorradal, 27 ára, vinnum.
9. Arnbjörn Sigurðsson frá Hólms-
bæ á Eyrarbakka, 39 ara, vinnum.
10. Jón Bjarnarson frá Kiöpp í
Rvík, 29 ára, búandi.
11. Jón Sigurðsson úr Rvík, 17
ára, vmnum.
12. Sigurður Jónsson frá Krums-
hólum í Borgarhieppi, 26 ára, lausam.
13. Sigurður Kristjánsson frá Ár-
giisstöðum í Rangárvaliasýslu, 22 ára,
vinnum.
14. Jón Hákonarson frá Hauka-
dal í Dýrafirði, 21 árs,» vinnum.
15. Þorbergur Eggertsson frá
Keldudal i Dýrafirði, 21 árs, vinnum.
16. Guðfinnur Þorvarðsson úr
Rvík, 56 ára, vinnum.
17. Jón Guðmundsson frá Kirkju-
bólsdal í Dýrafirði, 22 ára, vinnum.
18. Gísli Steindórsson írá sama
bæ, 24 ára, vinnum.
19. Gísli Hallsson úr Rvík, 35
ára, búandi.
20. Kristján Helgason frá Hesta-
nesi í Kjós, 17 ára, vinnum.
21. Gísli Gíslason frá Höskuldar-
koti, 21 árs, vinnum.
22. Matthías Sumarliðason frá
Grund í Skorradal, 28 ára, vinnum.
23. Koriráð Magnússon úr Rvik,
19 ára, vinnum.
24. Þorvaldur Gissurarson úrYið-
ey, 19 ára, vinnum.
Skipið var 81 smál. að stærð. 25
menn hafa verið á þvi í vetur, en
tveir af þeim, báðir norskir, höfðu
nýlega verið settir hjer í iand.
Urvalslið
hafði verið á báðum þessum skipum
og skipstjórarnir báðir orðlagðir sjó-
menn, einhverjir með þeim dugleg-
ustu á öllum fiskiskipaflotanum hjer.
Hefur án efa eitthvað laskast af sigl-
ingafærunum á báðum skipunum,
en engra bjarga von ef skip á annað
borð hrekjast nær norðurströnd fló-
ans í öðru eins veðri og þessu.
Framundan Mýrum
er þjett skerjaþyrping iangar leiðir
út í flóann, alt að þrem mílum.
Þessi skip bæði hafa því að líkindum
farist langt frá iandi.
Fyrir nær 40 árum segja menn
að komið hafi hjer ákaft stormveður
frá sömu átt og nú og um sama
leyti árs; hafi þá fjöldi franskra fiski-
skipa verið hjer í flóanum og alt að
20 af þeim rekið upp í skerjaþyrp-
inguna framundan Mýrunum og þau
farist þai' öll.
Tombóla.
Eknastyrkur og bjargráð.
A skírdag áttu formenn llestra
hinna stærri fjelaga hjer í hænuin
fund með sjer til þess að ræða um
bjargráð við sjávarháska og kaup
á björgunarfærum. Kom þeim sam-
an um, að greiðasti vegurinn til þess
að afla fyrirtækinu peninga væri
sá, að efna til tombólu til styrkt-
ar því. í forstöðunefnd tomhól-
unnar kaus fundurinn frúrnar Kat-
rínu Magnússon, Kristínu Jakobs-
son, Ragnheiði Hafstein og Þór-
unni Jónassen, Ásgeir Sigurðsson
kaupm., Björn M. Ölsen prófessor,
Halldór Jónsson bankagjaldkera,
Hannes Hafliðason skipstjóra og
Sighv. Bjarnason bankastjóra.
Nefndin hefur ákveðið og aug-
lýst, að tombólan verði haldin næsta
laugardag og sunnudag og veita
þau öll, sem í nefndinni eru, gjöf-
um til tombólunnar móttöku og
óska, að þeim sje skilað til sín
eigi seinna en á sumardaginn fyrsta.
Eftir að þetta var ráðið komu
fregnirnar um strand tveggja fiski-
skipanna við Mýrar, og nel'nd komst
á fót til þess að annast samskot
handa fátækum ættingjum þeirra
sem druknað höfðu. Tombólu-
nefndin breytti þá ákvörðun sinni
á þann hátt, að 2/3 hlutar ágóðans
skyldu í’enna í þann sjóð, en x/3
til bjargráðanna.
r
Utlendar frjettir.
5 millj. rúbla
er sagt að hermennirnir, sem verið
hafa, að kúga bændauppreisnina í
Eystrasaltsfylkjunum. hafi sent heim
til sín þaðan, auk ýmsra dýrra muna.
Þessu fje hefur ýmist, verið rænt frá
uppi eisnarmönnum, eða þeir hafa verið
látnir gjalda það sjer til lífs.
400 flóttamenn
rússneskir voru um miðjan siðastl.
mánuð í Svíþjóð. Jafnaðarmenn þar
taka vel við þeim og hjálpa þeim eftir
megni.
Lautinant Schmidt
var skotinn 19. f. m. Sú ein breyt-
ing fjekst á dauðadóminum, að hann
skyldi skjótast en eigi hengjast. Hann
varð vel við dauða sínum og bað um,
að ekki yrði bundið fyrir augu sjer.
Á ýmsan hátt. Ijetu menn gremju sina
í ljósi yfir þessari aftöku, þótt ekki
yrði alment uppþot; eitt af herskip-
unum hafði dregið upp rauðan fána.
Annars hafði óttinn við uppþot á her-
skipunum verið svo mikill, að á þrem-
ur af þeim höfðu fallbyssurnar verið
gerðar óskotfærar.
Menn tala um, hve fátt komi fram
í russnesku uppreisninni a.f Sjerkenni-
legum einstaklingum, sem dragi að
sjer eftirtekt fjöldans, — hve miklu
meira hafi verið af þeim í stjórnar-
byltingunni miklu á Frakklandi. Af
einstökum mönnum hafa enn eigi
aðrir vakið almenna eftirtekt í rússn.
byltingunni, en Schmidt lautinant og
Gapon prestur.
15 ár í Síberíu.
í Árósum í Danmörku var nýlega
t.ekinn fastur ungur ungur maður rúss-
neskur, sem Kastan hjet. Hann hafði
flúið úr hernum og nú dvalið um
tíma í Danmörk, lengstum í Khöfn;
þar hafði Gyðingasöfnuðurinn tekið
hann að sjer og sjeð honum fyrir
uppeldi, en nú ætlaði hann að leita
sjer atvinnu í Árósum. Lögregluþjónn
rakst þar á hann á götu, sá að þetta
var útlendingur og spurði, hvort hann
hefði atvinnu. „Nei. ekki nú, en reyni
að fá hana“, svaraði Kasta.n. „En
áttu þá peninga?" mælti lögreglu-
þjónninu. Kastan átti tæpa krónu.
Þá var hann tekinn fastur, því að í
Danmörku skipa lögin svo fyrir, að
atvinnulausir og fjelausir útlendingar
skuli sendir heim til sín.
Á skipinu, sem átti að flytja Kastan
heim, talaði danskur blaðamaður við
hann. Kastan sagði honum, að þegar
heim kæmi, byggist hann að minsta
kosti við 15 ára útlegð í Síberíu. Hann
reyndi að flýja frá skipinu meðan það
lá i höfninni, kastaði af sjer jakkanum
og ætlaði að fleygja sjer fyrir borð,
en rjett í því náði danskur lögreglu-
þjónn í hann. Voru þá sett á hann
handjárn, og svo hjelt skipið á stað.
Undir eins og saga þessi varð kunn
í Danmörku, vakti hún áka.fa gremju.
Menn veittust að lögregluþjóninum,
sem tók Kastan. En hann hafði ekki
gert annað en lögin bnðu honum að
gera.
Kirkjuóeirðirnar í Frakklandi.
Enn heldur áfram óeirðunum í
frönsku kirkjunum þegar listar eru
gerðir yfir kirkjumunina. Sarrien-
stjórnin heldur því áfram eins og hin
fyrri stjórn. 15. mais var uppskrift-
inni lokið í 43 þús. kirkjum, en 20
þús. voru eftir. í bænum Abele, á
landamærum Frakklands og Belgíu,
höfðu 40 ungir menn æft sig í vopna-
burði til þess að vera við því búnir
að verja kirkjuna þegar umboðsmann
stjórnarinnar bæri þar að. Þeir settu
varðmenn á kirkjuloftið, en bjuggu
um sprengivjelar kringum kirkjuna.
Enn hefur ekki frjest, hvernig leikar
hafi farið þar.
í öðru þorpi keyptu bændurnir 3
birni af dýrasýningamanni, sem þar
fór um, og settu þá til varnar í kirkj-
una. Þegar umboðsmaður stjórnar-
innar koin þangað, þótti honum varn-
arliðið óárennilegt og þakkaði fyrir að
komast óskemdur burtu.
Eourrieres-nániaslysið.
13 menn fundust á einum stað lif-
andi niðri í námunum og höfðu þá