Lögrétta - 17.04.1906, Qupperneq 3
LÖGRJETTA.
67
verið J>a,r grafnir nær þrjár vikur; þeir
höfðu nærst á hráu hrossakjöti og
höfrum, er hestunum voru ætlaðir. 1
maður fanst lifandi á öðrum stað og
hafði lifað á brauði og konjaki, er
hann fann í vösum dáinna fjelaga
sinna. Óvíst er enn, hve margir menn
hafa látið þarna lífið, en talið að þeir
muni nálægt 1000.
Franska þingið hefur veitt */2 millj.
franka til þess að bæta úr neyðinni,
sem af þessu slysi hlýst. Stórfje hefur
safnast í sama skyni bæði utan ríkis
og innan. Loubet, áður forseti, er
formaður hjálparnefndarinnar.
Eftir slysið gerðu námaverkmenn
þarna í grendinni verkfall og kröfðust
ýmsra umbóta á kjörum sínum. Yerk-
fallsmönnum hefur stöðugt fjölgað
og oft litið ófriðlega úr. Clemenceau
innanríkisráðherra brá sjer nýlega til
þeirra og talaði þar á fjölmenri sam-
komu; kvaðst hann ekkert að verk-
fallinu finna, en þess vildi hann biðja
þá, að hafa engar óspektir í frammi
og neyða sig ekki til þess að senda
þangað her. — Að orðum hans var
gerður góður rómur.
Nýmæli á löggjafarþingi.
Nú í vetur kom fram á löggjafar-
þinginu í Jova í Bandaríkjunum frum-
varp þess efnis, að læknum veitist
heimiJd til að stytta líf þeirra sjúkl-
inga, sem taldir eru ólæknandi, sömu-
leiðis fábjána og mjög vanskapaðra
barna.
í frumv. er lækninum gert að skyldu
að deyða sjúklinginn, ef hann heimtar
það sjálfur, svo framarlega sem þrír
læknar þar til valdir dæma sjúkling-
inn ólæknandi.
Þetta mál hefur verið rætt víðar í
Bandaríkjunum og hefur sumstaðar
ekki lítið fylgi, svo sem í Ohíó,
Massachusetts og Pennsylvaníu. Eigi
er þó búist við að frumvarpið nái
staðfestingu st.rax.
Marokkó-niálið.
Að loknm náðist samkomulag á
fundinum í AJgeciras. Frakkar og
Spánverjar skifta með sjer löggæsl-
unni í helstu borgunum. Allir, sem
hlut eiaa að máli, kvað gera sjer úr-
slitin að góðu. Fundarmenn skildust
7. þ. m.
Enski lierinn.
70 af þingmönnum Breta hafa sent
stjórnarformanninum áskorun þess efn-
is, að niður verði færð útgjöldin til
hersins.
Fríverslunarmálið.
13. f. m. fór fram atkvæðagreiðsla
í enska þinginu um fríverslunarmálið
og urðu 471 atkv. með því, en 123
á móti.
Loftsiglingar.
Þýskalandskeisari hefur myndað fje-
lag, sem á að reyna að flnna lausn
á því, hvernig útbúa skuli loftför svo
að þau verði hæf til ferðalaga, stýr-
anleg o. s. frv. Höfuðstóll fjelagsins
er 1 millj. rnarka.
Snjóveður
var svo mikið i ÞýskaJandi 24. f. m.
að menn muna þar ekki annað eins.
Það náði einnig til Austurrikis og
Svisslands.
Fóikstal
fór fram í Danmörku í vetur, 1. febr.,
og reyndisi mannfjöldinn þar þá 2,588,-
919.
í Færeyjum reyndist fólksfjöldinn
16,324.
Til Grænlands
fer Mylius-Erichsen aðra ferð nú í
sumar og gerir ekki ráð fyrir að koma
heim aftur fyr en sumarið 1908. Ýmsir
vísindamenn verða í þessari för. Skip
þeirra heitir „Danmark".
Eldgos og jarðskjálftar.
10. þ. m. segir loftskeyti að Vesú-
víus gjósi í ákafa, og nú um nýjan gýg.
17. f. m. var jarðskjálfti á Formósu
frá morgni til kvölds og fórust menn
svo þúsundum skifti.
Ungverjaland.
Þar segir Joftsk. frá 10. þ. nr. sátt
komna á milli keisara og þings, með
tilslökun frá beggja hálfu.
Andaloddarar.
Nafnkunnasti andamiðill á Englandi,
Craddock, er nýlega orðinn uppvís að
svikum. Hann var á einni af sýn-
ingum sínum að leika anda, en mað-
ur, sem hafði áður grun um að svik
mundu í tafli, tók um úlfliði andans
og kom þá i Ijós, eftir nokkrar stymp-
ingar, að andinn var enginn annar en
C. sjálfur. Kellingu hans varð svo
ilt við þetta, að hún kom æðandi til
með glóandi eldskörung og vildi duga
manni sínum.
Alex. Kielland dáinn.
Hann andaðist aðfaranótt 6. þ. m.
af hjartaslagi, 57 ?ra gamall. Hann
var staddur í Björgvin, hafði dvalið
þar nokkra daga á sjúkrahúsinu, en
var þó hress og hafði daglega verið
á gangi úti. Kvöldið áður en hann
dó hafði hann verið á ferli og ekkert
á honum sjeð, en kl. 4 um nóttina
fann vökukonan hann ðrendan í rúm-
inu.
Prinsessa Louisa dáin.
Hún var elsta dóttir Friðriks YIII.
og gift Friedrich prinsi af Schaumburg-
Lippe, herforingja í Austurríki. Hefur
hún legið veik siðan í haust, þar til
hún dó, 4 þ. m. Hún var 31 árs.
Rússneska þingið.
Kosningarnar gangafrjálslynda þing-
stjórnarflokknum í vil. Spáð er, að
Witte-stjórnin sitji ekki lengi að völd-
um. Vinstri blöðin rússnesku leggja
á móti því, að önnur ríki veiti stjórn-
inni lán, segja að almenningur í Rúss-
landi meti það til óvináttu við Frakka,
ef Wittestjórnin fái þaðan fjárstyrk.
ru
próf. dr. Þorv. Thoroddsens.
Jeg mælist til þess, að próf. dr.
Þorv. Thoioddsen skoði sjálfur ein-
hvern af þeim stöðum, sem jeg hef
rannsakað, áður en hann gefur frekar
í skyn, að uppgötvanir mínar í jarð-
fræði íslands sje ekkert annað en
heilaspuni.
Það er engin von, að prófessor Þor-
valdur geti áttað sig á hinni nýju jarð-
fræði Tslands, án þess að hann sjái sjálf-
ur eitthvað af þvi, sem jeg hef fyrstur
athugað. En fjarri er mjer að ætla
að fáryrðast við hann þess vegna. Það
er áreiðanlega ekki neitt uppgerðar
skilningsleysi, sem kemur próf. Þor-
valdi til að nefna athuganir mmar
bollaleggingar og botnleysu. (Sbr. Eim-
reiðin XII., bls. 73—4).
Og vist er hinn lærði og skemtilegi
hötundur landfræðissögunnar makleg-
ur þess, að honurn sje fyrirgeflð, þegar
hann veit ekki hvað hann er að gera.
Dr. Helgi Hjeturssvn.
ísland erlendis.
Trúloínð eru í Khöfn frk. Kristín
Thoroddsen, dóttir Þ. Th. bankagjald-
kera, og Steingr. Matthíasson læknir.
Mínir menn. Úr brjefi frá Kaup-
mannahöfn: „Stúdentar hjer í bæn-
um segja eftir Valtý Guðmundssyni,
að hann ætli að fara til Ameríku í
sumar iil þess að þurfa eigi að vera
hjer í konungsboðinu, og að hann
segi, að „rninir menn“ mæti eigi“.
„Skýstrokkurinn“ heitir mynd,
sem Einar Jónsson sýnir á fríu sýn-
ingunni í Khöfn í vetur, og er hún
talin með tilkomumestu myndunum
þar í þetta sinn.
Khöfn 7. apríl: „ . . . Fjöldi landa
hjer eru nú veikir af mislingum, eink-
um yngra fólkið; sýktust margir á
dansleik í Iðnaðarmannafjelaginu, því
þangað hafði komið mislingasjúkur
maður.
Prófessor Finnur Jónsson og dr.
Valtýr hafa nýlega háð harða rimmu
í „Nationaltidende", en Bogi Melsted
sent dr. Valtý hnútur í „Köbenhavn".
Próf. Finnur hjelt nýlega fyrirlestur í
„Kjöbenhavns Venstreforening" um
ísland og Danmörk og flytur blaðið
„Kjöbenhavn" langan útdrátt úr hon-
um.
Guðm. læknir Hannesson talaði ný-
lega í ísl. stúdentafjelaginu um skiln-
að íslands og Danmerkur. Hann tal-
aði mjóg hógværlega og laust við æs-
ingar og ofsa.
í „Extrablaðinu" stóðu nýlega
svæsnar árásir á ráðherrann og Jón
ritstj. Ólafsson og var þar meðal ann-
ars þýðing á „íslendingabrag". Land-
ar af öllum flokkum eru sárgramir
yfir þeim greinum og ýmsir höfðingj-
ar Landvarnarmanna meðal stúdenta
hafa lýst yflr, að þeir ættu ekkert i
þeim, en í „Köbenhavn" hefur Gísli,
sonur J. ÓL, vasklega svarað fyrir
hönd föður síns og dróttar því að dr.
Valtý, að hann muni vita eitthvað
um það, hver sje höfundur þessara
greina“.
Reykjavík.
Fyrirlestur hjelt mag. Ágúst
Bjarnason hjer á palmasunnud. um það,
hvernig skýra mætti hin svonefndu
„dularfuilu fyrirbrigði" á náttúrlegan
hát.t, þ. e. án þess, að eigna þau önd-
um framliðinna manna, eins og anda-
trúarmenn gera.
Skip brennur. Á miðvikudaginn
var kviknaði í fiskiskipi hjer inni á
höfninni, „Nelsson" frá ísafirði, eign
Tangs-verslunar. Verið var að sjóða
stálbik í lúkarnum og komst eldur í
það. Skipið brann mjög innan og þaif
mikla viðgerð.
Veðrið. Framanaf síða.st.l. víku
hjeldust útsýnningsstormar með regni.
En á skírdag kom snjóveður og hlóð
niður fönn allan síðari hluta dagsins.
Síðan hefur ekki þiðnað. En páska-
dagana var bjart veður og heiðskírt
og svo er enn.
Strand „Ingvars“. Ekki hafa fleiri
lík rekið enn, en þau 11 sem um er
getið í síða.sta blaði. Það eru lík
þessara manna: Tyrfingsskipstj. Magn-
ússonar, Tómasar Tómassonar, Ólafs
Sveinssonar, Þorst.. Jónssonar, Tímót.
Ól. Guðmundssonar, Sigurbj. Jónsson-
ar, Guðj. Kr. Jónssonar, Geirs Hildi-
brandssonar, Jóh. Teitssonar, Ól. Ein-
arssonar og S. M. Larsens.
Líkin voru færð tíl kirkju í Viðey
og kistulögð þar. en siðan flutt hingað.
Jarðarförin á að fara fram á föstu-
daginn kemur.
Namskotin. Hlutafjelagið „Lögr,“
hafði ákveðið að koma saman til
skemtunar siðasta vetrardag. Nú
Næsta blað „Lögrjettu“
keniur út næstk. laugardag.
hefur það afráðið, að hætta við sam-
komuna, en gefa það fje sem til
hennar var ætlað í samskotasjóðinn
handa ættingjum þeirra sem drukkn-
að hafa.
Stúdent.afjelagið hafði boðað til
sumargleði að vanda., en afrjeð á
fundi í gærkveldi, að hætta við hana,
en að þeir sem ætluðu að t.aka þátt
í henni gefl í þess stað hver sinn
skerf til samskotasjóðsins.
Frá fjallatindum til fískimiða.
Fjárkláðinn. Myklestað fjárkláða-
læknir kom snemma i þ. m. úr skoð-
unarför sinni austur, sem um er getið
áður hjer í blaðinu. Segir hann fregn-
ina, um að kláði væri þar á tveim
bæjum, markleysu eina. Hann fann
þar hvergi kláða.
Nú er hann kominn áleiðis norður
í Strandasýslu til þess að skoða kláð-
ann þar, því sendimaður hans, Björn
Guðmundsson, staðfesti frjettirnar, sem
„Lögr.“ hafði áður fengið þaðan.
Síðan haf.i komið frjettir úr Skaga-
flrði um að fjárkláði sje fundinn þar
á 25 bæjum.
Laus prestaköll. Tjörn áVatns-
nesi, veitist frá næstk. fardögum, met-
ið, með 300 kr. föstu t.illagi, 1185 kr.
Umsóknarfrestur t-il 12. maí.
Möðruvellir í Hörgárdal í Eyjafjarð-
arprófastsdæmi (Möðruvalla og Glæsi-
bæjarsóknir). Metið kr. 1294,10. Á
brauðinu hvíla eftirlaun til prestsekkju,
sem nu eru kr. 94,10. Væntanlegur
prestur í brauðinu varður að sætta
sig við allar þær breytingar, sem á
því kunna að verða gerðar. Veitist
frá næstu fardögum. Auglýst 10. apríl.
Umsóknarfrestur til 21. maí 1906.
Pistilsflrði 20. mars: „Veturinn
hefur mátt heita góður, off.ast jarðir,
en fremur stormasamt, hey munu al-
staðar vera nægileg. — 26. des. f. á.
dó yfirsetukonan Járabrá Einarsdóttir
í Garði; hún hafði verið ljósmóðir
nær þvi 40 ár og hafði orð á sjer fyrir,
hve vel hún rækti það starf, enda
var hún hin vandaðasta kona í hví-
vetna. Hún var á sjötugsa.ldri".
Baðstofa braim 7. þ. m. á Voga-
læk á Mýrum; munum varð bjargað
og önnur hús varin.
I Garðsjó urðu í ofsaveðrinu 7.þ.m.
stórskaðar á fiskinetjum; hefur fjöldi
af þeim algerlega borfið og er það tjón
metið alt að 30 þúsundum. Til og
frá úti um flóa hafa netjahlutar sjest
á reki fullir af fiski. í brjeflnu frá
Ásgeiri í Knararnesi, sem um er getið
annarsstaðar hjer í blaðinu, er sagt,
að fiskinet hafl ásamt öðru rekið uppi
á Mýrun .
Skip sökk hjer fyrir sunnan Reykja-
nesið í stórviðrinu 7. þ. m. Það var
enskur botnvörpungur, en nafnið vita
menn ekki. Fregnin er frá frönsku
botnvörpuskipi, sem kom inn hingað
á þriðjudagskvöld í síðastl. viku.
Mannalát. 2. þ. m. andaðist Ólafur
Þorbjarnarson hreppstjóri á Kaðals-
stöðum í Stafholtstungum, hálfsjötug-
ur.
4. þ. m. andaðist á Akranesi Vil-
hjálmur Guðmundsson verslunarmað-
ur, eftir langa, legu í hjartasjúkdómi,
41 árs.
Hafnarfjarðarskipin. Þrjú skip
þaðan hefur vantað. en eitt, af þeim,
„Guðrún", eign Ág. Flygenrings, kom
inn á Páskadag, hafði hrakist til Fær-
eyja, en ekki brotnað eða skemst að
neinum mun. Annað skipið, „Róbert“,
eign sama manns, sást rjett fyrir
storminn austan við Vestmannaeyjar,
svo að menn telja því enga hættu
hafa verið búna. en inn er það ekki
komið enn. Þriðja skipið. „Kópanes",
eign S, Beigmanns, hefur sjest eftir
storminn.