Lögrétta - 16.08.1907, Side 4
144
L0GRJETTA.
Það hefur lengi brunnið við á Tyrk-
landi, að þar hefur orðið brátt um
landstjórnarmenn, og vanalega af
völdutn hirðmanna soldánsins, eða
ráðgjafa. Abdul Asis er talinn einna
nýtastur Tyrkjakeisari á 19. öld; hann
kúguðu ráðgjafar hans til að afsala
sjer völdum og hengdu hann fám
dögutn síðar, árið 1876. Það er sagt
alvanalegt á Tyrklandi, að þegar nýr
soldán sest að völdum, þá eru bræður
hans af lífi teknir. Sama er sagt frá
Perslandi, að þar vilja þeir ekki eiga
á hættu, að nokkur konungsson sje
á líft nema sá, sem völdum ræður.
Þeir stytta og konungum sínum aldur,
og er jafnvel sagt, að fáir Persakon-
ungar deyi á sóttarsæng. Hið síðasta
konungsmorð skeði þar í landi 1896.
Fyrir utan Lincoln hafa tveir Banda-
ríkjaforsetar verið myrtir, Garfield og
McKinley. Garfield var skotinn til
bana árið 1801 í Washington af manni,
sem þótti sjer rangt til gert í em-
bættaveitingu. McKinley var og skot-
inn til bana, af anarkista, sem myrti
forsetann af því, að hann var hátt
settur í mannfjelaginu. Sá atburður
gerðist á 20. öldinni og er öllum í
fersku minni.
Á Frakklandi hefur og verið setið
um líf forsetanna. Reynt var ti! að
sprengja Felix Faure í loftið á Paris-
argötum árið 1897. Og árið 1904
fjell Carnot fyrir ítölskum anarkista.
Forsetinn var þá á ferð í Marseille,
og ók um borgarstrætin í opnum
vagni með borgarstjóranum, en lýð-
urinn stóð alt umhverfis og æpti fagn-
aðaróp; þá gekk maður að vagni for-
setans og rjetti honum blómsveig með
vinstri hendinni, en lagði rýtingi fyrir
brjóst honum með þeirri hægri og
var það banasár. Forsetar Frakklands
hafa engin völd, heldur eru hafðir til
málamynda og prýðis þjóðfjelaginu
og því virðist lítt skiljanlegt, hvers
vegna morðingjarnir veitast að þeim,
en ekki þeim stjórnmálamönnum, sem
völdin hafa.
Af annara landa forsetum hafa
sumir myrtir verið í jarðskiálfta-ný-
lendunum í Suður-Ameríku, t. a. m. í
Uruguay og Guatemala.
Kr. Sig.
Reykjavik.
Stúdentarnir frá 1882 komu hjer
saman nú nýlega í 25 ára minning-
argildi. Þessir 9 voru þar viðstaddir:
Dr. Jón Þorkelsson landskjalavörður,
síra Kristinn Daníelsson á Utskálum,
Sveinbj. Sveinbjörnsson yfirkennari í
Árósum, Hannes Thorsteinsson banka-
ritari, síra Stefán Jónsson á Staðar-
hrauni, Sigurður Thoroddsen kennari,
Friðrik Jónsson kaupmaður, Árni próf.
Jónsson á Skútustöðum og Ólafur
prófastur Ólafsson í Hjarðarholti (er
var með þessum bekk allan skóla-
tímann, en útskrifaðist ári síðar sökum
þess, að hann var eitt ár kennari á
Þingvöllum). En á Iífi eru auk þess-
ara af stúdentum þessa árs: Jón próf.
í Görðum á Akranesi, Halld. præp.
hon. á Presthólum, Bogi Th. Melsted
magister í Khöfn, Hafsteinn prestur
Pjetursson í Khöfn, dr. Jón Stefáns-
son og Stefán læknir Gíslason á Dyr-
hólum. Hafa þeir allir verið hjer í
Rvík nú í sumar nema dr. Jón Ste-
fánsson, sem ekki er hjerlendis.
Dánir eru: Niels Finsen prófessor
(höfundur ljóslækninganna), Ólafur
Davíðsson náttúrufræðingur, Hannes
L. Þorsteinsson Fjallaprestur, Pjetur
Maack Þorsteinsson Grunnavíkurprest-
ur og Gísli Guðmundsson frá Bolla-
stöðum, sem druknaði ungur viðjót-
landssíðu.
Jarðarför Ben. Gröndals fór fram
í gær og hjelt kand. theol. Haraldur
Níelsson húskveðju á heimili hins
látna, en síra Jóhann Þorkelsson ræðu
í kirkjunni. Fjöldi manns tók þátt í
jarðarförinni. Við gröfina var þetta
kvæði sungið og er það kveðja frá
Stúdentafjelaginu, en ort hefur Þor-
steinn Erlingsson:
Hjer hefur særður svanur kropið
að sæluskauti móðurlands,
því nú var höfuð niður dropið
og nú var lokuð tjörnin hans,
en lengi þíddi’ hann þrönga vök
og þreytti’ hin fornu vængjatök.
Og sumrin öll við sönginn mæran
við sátum glaðir úti þar,
og höfum allir hugumkæran
hvern himin, sem þá vængi bar;
svo vítt fór Gröndals vegsemd þá
sem vorir gleðihlátrar ná.
Og þegar allir svanir sungu
á sumarkvöldin, þjóðin fann,
hver ljómi vafði vora tungu
og viltá fjallasvaninn þann.
Hún fann hvað yrði’ á heiðum hljótt,
er hann bauð síðast góða nótt.
Og það skal okkar móðir muna,
þó margra söngur reynist tál,
að hans var ólmur, oft úr funa,
en aldrei nema hjartans mál,
og það sem refum eign er í
var ekki til í brjósti því.
Yið krjúpum ekki’ að leiði lágu,
því listin á sjer paradís;
nú streyma Gröndals hljómar háu
af hafi því sem aldrei frýs.
Hvern snilling þangað baninn ber,
sem Bjarni’ og Jónas kominn er.
Bæjarstjórnin. Aukafundur 27. f.
m. í tilefni af brjefi til bæjarstj. frá
kennaraskólanefnd alþingis lýsti bæj-
arstjórnin því yfir, að hún stæði enn
við tilboð sitt til alþingis frá 1905
um ókeypis lóð, hæfilega stóra, undir
kennaraskóla — alt að 600 ferfaðma
— og, að heimila x—2 bekki barna-
skólans til æfinga fyrir nemendur
kennaraskólans.
Formanni bæjarsjórnar var falið
að fara fram á það við Iandstjórn-
ina, að bænum verði skilað aftur 50
dagsláttum af þeim 100 dagsláttum,
sem geðveikrahælinu á Kleppi var
heimilað til afnota af Kleppslandi,
með því að fult útlit er fyrir, að hælið
hafi alls ekki brúk fyrir svona mikið
land.
Ákveðið, að kaupa af Vilborgu
Gunnarsdóttur lóðarspildu fyrir framan
hús hennar við Lindargötu, 61 feral.
á kr. 1,50 feral. Sömul. af ekkjufrú
Bríetu Bjarnhjeðinsdóttur 76 feral.
lóðarræmu, til breikkunar Bókhlöðu-
stígs, fyrir 2 kr. feral.
Ut af frumvarpi, er komið hefur
nú fram á alþingi um lóðarnám af
bæjarlandinu handa prívatfjelaginu
„Höfn“, fól bæjarstjórn formanni sín-
um að afhenda þingmönnum bæjar-
ins mótmæli bæjarstjórnar gegn fram-
gangi þess máls.
Kyennaskólinn í Rvík 1874-1906.
Svo heitir nýr bæklingur, sem út
er kominn á kostnað Sigurðar Krist-
jánssonar, og er þar sögð saga kvenna-
skólans í Rvík, sem er elsti og merk-
asti kvennaskóli þessi lands.
Fremst er þar ritgerð eftir Pál sagn-
fræðing Melsted og segir frá tildrög-
unum til skólastofnunarinnar og rekur
síðan stuttlega sögu skólans fram til
1891. Ritgerðinni fylgja reglur skól-
ans og nokkrar tímatöflur.
Næst er ritgerð eftir frú Th. Mel-
sted og segir frá skólanum síðustu
15 árin, sem hún stjórnaði honum,
1891—1906, en hún sagði af sjer
stjórn hans í fyrra og tók þá við
frk. Ingibjörg Bjarnason.
Þriðji kaflinn er 2 ritgerðir eftir
frú Th. Melsted um kvenlega mentun
og kvennaskóla Rvíkur, samdar vorið
1897 og prentaðar þá í ísaf.
Fjórði og síðasti kaflinn er stutt
æfiágrip frú Th. Melsted, eftir mag.
Boga Th. Melsted. Fylgir þar mynd
af henni, tekin 1870, en framan við
bókina er önnur mynd af henni, tekin
1907.
í fyrra höfðu um 1100 stúlkur gengið
á skólann frá byrjun hans; hann hefur
verið hin þarfasta stofnun og verð-
skuldar fyllilega, að honum sje allur
sómi sýndur.
Ranghermi er það í frásögn frjetta-
ritara Lögrjettu í síðasta blaði, að í
miðdegisveislunni við Geysi hafi ekki
verið gert ráð fyrir neinum ræðum.
Um ræðurnar, sem þar voru haldnar
af alþingismanna hálfu, hafði heim-
boðsnefndin beðið, og voru þær því
fluttar samkvæmt ráðstöfun hennar,
eins og aðrar veisluræður alþingis-
manna.
Orður og titlar. Inn í þann lista
í síðasta blaði vantaði þetta, er út-
hlutað var hjer í Rvík: Eiríkur Briem
docent, sem áður var kommand. af
dbr., varð dannebrogsmaður. Sömu-
leiðis urðu þeir dannebrogsmenn Bjarni
Jónsson snikkari og Stefán Eiríksson
trjeskurðarmaður.
Prófessorsnafnbót fjekk Þórhallur
lektor Bjarnarson.
Verðleikamedalíuna úr gulli fjekk
Tryggvi Gunnarsson bankastjóri.
Silfurmedalíu fengu þeir Guðmundur
Hávarðsson konungsekill ogjón Sig-
urðsson bóndi í Laug.
Piltup,
16—18 ára, getur fengið að læra
skraddaraiðn á saumastofu í Hafnar-
firði með því að snúa sjer til Vig-
fúsar Guðbrandssonar hjá H. And-
ersen og Sön.
Ostar •• pylsur
hvergi ódýrari en í verslun
Xristins jííagnússonar.
Ivær Saumastúlkur,
duglegar til aö sauma jakka,
geta vengið vinnu strax hjá
Guðm. Sigurðssyni
skraddara.
„ÓÐINN^. Kioskinn á
Lækjartorgi hefur tekið að sjer út-
burð á »Óðni« og eru menn beðn-
ir að snúa sjer þangað, ef vanskil
verða á blaðinu.
Stúlka,
sem er vön að sauma (jakka) getur
fengið fastavinnu á saumastofu í
Hafnarfirði með því að semja við
Vigfús Guðbrandsson hjá Ander-
€iríkur Xjerúlj
læknir
'V'esturg’ötu. 22.
Heima virka daga frá 10
11 f. m. og 2—3 e. m.
jHíargarine,
mjög gott, 2 tegundir,
nýkomnar í verslun
Nic. Bjarnason.
mjög gott og ódýrt, er nú
komið í verslun
Xristins jVíagnússonar.
sen & Sön.
Peisur
nýkomnar til
ij.JInðersen i Sön.
hvergi betri en hjá
jtic. Bjarnason.
jVtálverkasýning
Ásgríms Jónssonar er í Góðtempl-
arahúsinu uppi á lofti. Opin hvern
dag 11—3. Aðgangur 25 aura.
Hgfy* Auglýsingum í „Lög-
rjettu“ veitir viðtöku Jón
kaupm. Brynjólfsson, Aust-
urstræti 3.______________________
Prentsmiðjan Gutenberg.
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
Biöjiö kaupmann yðar iim
Edelstein, Olsen Co-
bestu og ódýrustu
Cylindlerolíii,
"Vj elaolíu,
Cunstvj elafeiti,
Þurkunartvist,
Karbólincum,
Tjöru o. 11., o. 11.
öoooooooooooooooooooo 00000 00000000000000