Lögrétta - 20.11.1907, Blaðsíða 3
L0GRJETTA.
215
Frá fjallatindum til fiskimiða.
Hellir fnndinn. Frá Vestmanna-
eyjum er skrifað: Sunr.udaginn 21.
júlí síðastl. hófu 5 menn göngu sína
upp á „Heimaklett" til þess að skoða
útsýni þaðan o. fl.
Foringi fararinnar var Ágúst Gísla-
son úr Vestmannaeyjum; hann hafði
áður haft hugmynd um hellismunna
norðan undir Ystakletti, niður við sjó-
inn, og hafði því með sjer kerti, olíu
og fleira til eldsneytis; og er þeir
voru komnir alla leið upp á Hákolla,
en svo heita hæstu hnúkar á Heima-
kletti, þá fara þeir austur af Hákoll-
um og niður svokölluð Klettaskörð,
ofan Selhellna-urð, — urð sú liggur
norður undir Miðkletti við sjóinn og
er allstórgrýtt og slæm yfirferðar.—
Svo hjeldu þeir að áðurnefndum hell-
ismunna, sem er ekki stærra en svo,
að þrír menn geta jafnhliða skriðið
þar inn. Er þeir voru kornnir svo
sem lengd sína, verður fyrir þeim all-
stór geimur; kveiktu þeir þá brátt
á blysum og sáu þá að þetta var
stór og fallegur hellir, sem er því
nær sljettur í botn og mæni. Stærð
hellis þessa mældu þeir að nokkru
leyti; lengdin er 17 faðmar, breiddin
12 faðmar; hæðin ekki nákvæmlega
mæld, þó ca. 12 al. Helli þennan
hafa þeir er fundu skírt »Leynir«.
Þeir sem fundu eru þessir: Ágúst
Gíslason og Sigurður Sigurðsson,
báðir úr Vestmannayjum, og Stefán
Jónsson steinsm., Jóhann Kristjánsson
skósm. og Sigurður Ólafsson lausam.,
allir úr Reykjavík.
Laust prestakall. Staður í Stein-
grímsfirði í Strandaprófastdæmi (Stað-
ar- og Kaldrananessóknir) er laus.
Núverandi mat kr. 1313,61. Prests-
ekkja er að vísu í brauðinu, en hún
fær væntanlega eftirlaun úr landsjóði.
Auglýst 12. nóvember. Umsóknar-
frestur til 16. janúar 1908. Veitist frá
næstu fardögum.
Hólamannafjelagið vill efla sam-
vinnu milli þeirra, sem nám hafa
stundað við skólann á Hólum og
annara búfræðinga á Norðurlandi,
styður að útbreiðslu búnaðarþekk-
ingar og styrkir þau málefni, sem
landbúnaðinum eru til tramfara. Flestir
Hólamenn hin síðari árin munu vera
í fjelaginu og greiða 2 kr argjald.
Síðastliðinn vetur hjelt fjelagið uppi
fyrirlestrum um landbúnað, sölu land-
búnaðarafurða, samvinnufjelagsskap
°g unglingaskóla. Alls voru fyrir-
lestrarnir 14, 3 í Húnavatnssýslu, 4
í Skagafjarðar, 6 í Eyjafjarðar, og
1 í Suðurþingeyjarsýslu. Ingimar
Sigurðsson, bróðir Sigurðar skóla-
stjóra, flutti 5 •yrirlestrana. Yfir 900
manns sóttu fyrirlestrana alls, fæstir
voru áheyrendur 30 og flestir 120
(heima á Hólum). Landsbúnaðarfje-
lagið hefur lítilfjörlega styrkt tyrir-
lestrahaldið, og eru horfur á, að þeim
verði haldið uppi áfram í vetur, og
er þetta einhver myndarlegasti vís-
irinn, sem enn er kominn til fyrir-
lestrahalds í sveitum, sem vakað hef-
ur fyrir ýmsum hin síðari árin.
Reykjanesvitinn. Þorvaldur verk-
fræðingur Krabbe kom í fyrra dag
sunnan frá vitanum. Þá var turninn
kotninn upp 23 fet, en eftir að steypa
42 fet. Að rúmmali er lokið helm-
ingi steypunnar af turninum, vegg-
þyktin neðst yfir 4 álnir, en verður efst
2 alnir. Hin steypta undirstaða er
8 feta há; að henni meðtalinni eru
2 hlutir steypunnar af. Verkfræðing-
urinn telur þurfa 20 óskerta vinnu-
daga til að koma upp turninum, og
viðri bærilega ætti hann þá að geta
1
silfur-plett-líorölninaö, g-izll-og siifn.i*-skrautgripi?
Auðvitað í Vallarstræti 4, hjá gullsm. B. Símonar-
syni. Hafið þjer ekki komið þar? Þar fást framúrskar-
andi smekklegar og ódýrar vörur af því tægi og einnig
margt fleira fallegt og gott, svo sem ýmiskonar kjólatau,
silkitau, nærfatnaður o. fl., o. fl.
flýtií yíur þangað áður en alt er nppselt.
Veðurathuganir í Reykjavík
eftir Mag'niis Thorberg.
Nóv. 1907. I Klukkan Loftvog , millim. Hiti (Celsius) >- -1 0 0 1 e Ps o* Veðrátta
6. 7 759.0 7-7 sv 3 Regn
1 754-2 8.5 s 6 Regn
4 751-3 8.1 SA 7 Regn
10 748.9 4-8 SA 6 Skýjað
7. 7 749-5 1-3 SSV 6 Skýjað
1 748-3 2-3 S 5. Skýjað
4 747-9 i-9 S 2 Skýjað
10 74S.1 0.0 SV 2 Hálfskýjað
8. 7 748.8 -4- 0.7 A 2 Hálfskýiað
1 748.5 1.0 NA 4 Hálfskýjað
4 749-8 0.8 NNA 5 Smáskýjað
10 7 51 -9 0.0 S 2 Hálfskýjað
9- 7 756.6 + 0.4 SA I Skýjað
1 761.5 -r 2.0 SSA I Skýlaust
4 761.1 -5- 2.4 Logn O Skýlaust
10 759-3 -r- 2.4 Logn O* Skýlauát
IO. 7 754-6 -r- 0.5 Logn O Snjór
1 751-5 0.4 N 2 Alskýjað
4 749-4 1.0 Logn O Móða
10 746.5 0.3 Logn O Snjór
II. 7 743-1 0.0 SA I Alskýjað
1 746.1 -r- 1.8 N 4 Smáskýjað
4 746.8 -T- 0.4 NNV 3 Smáskýjað
10 745-8 -7- 1.4 Logn O Snjór
12. 7 740-4 -r I.I NA 3 Skýjað
1 741 -5 0.8 A 2 Skýjað
4 743-5 0.3 Logn O Alskýjað
10 747-2 -p 0.5 A 2 Snjór
Meðalhiti í vikunni -J- 5.1;
kl. 7 + 4-3: kl. 1 + 6.0;
kl. 4 + 5.9; kl. 10 + 4.4.
komist upp fyrir jól. Unnið er við
Ijós, og eins á nótt sem degi.
Þar eru nú 80—90 manns við vinnu.
Tíu vagnar ganga jafnt og þjett til
aðdrátta. Hestar eru þar milli 20 og
30. Heyfóður er örðugt að fá. Send
voru þangað 1IOOO af skosku heyi,
en bráðum er það hey gengið upp.
Úr Mýrdal er skrifað 3. þ. m.:
„Tíðin er ágæt og unnið af kappi
að jarðabótum".
Sigurður Eiríksson regluboði er
nýkominn heim úr ferð um Áustfirði
og hefur heimsótt flestar stúkur, sem
þar eru nú. Lætur hann fremur vel
af stúkunum á Austurlandi. Hann
stofnaði nýja stúku á Seyðisfirði með
mjög efnilegu fólki, þar á meðal Hall-
dóri Jónssyni skólastjóra og tveimur
öðrum kennutum barnaskólans þar.
Eitt ár næstundanfarið var engin
stúka á Seyðisfirði og reglan þar
dauð.
11. þ. m. var gengið til atkvæða
uin það á Seyðisfirði, hvort veita
skyldi Þorsteini Jónssyni veitinga-
rnanni veitingaleyfi, en það var felt
með miklum meiri hluta.
Slys. Fónað er frá Sauðárkróki í
gær: Hörmulegt slys vildi til 15. þ. m.
í vesturós Hjeraðsvatna í Skagafirði.
Sigurður hreppstjóri Ólafsson á Hellu-
landi fór á mótorbati með sonum
sínum 3 frá Sauðárkróki tð vestur-
ósnum og lögðu þeir bátnum í ós-
inn. Skafti sonur Sigurðar varð eftir
við ósinn til að gæta bátsins, því
suðaustanstormur var á. Um kvöldið
rær Skafti á pramma út í bátinn til
þess að ausa hann, en misti pramm-
ann frá bátnum. Var nú komið rok
og skóf yfir mótorbátinn, svo að hann
hálffýlti, en hann mun hafa staðið í
botni. Ólafur bróðir Skafta leitar nú
til Jóns ferjumanns Magnússonar og
heitir á hann til hjálpar, að ná Skafta
úr bátnum. Fer Jón niður að ósnum,
kallar til Skafta og biður hann vera
rólegan; kveðst muni sækja hann
þegar er veðrinu sloti. En ekkert
heyrðist fyrir ofsanum. Sjá þeir nú, að
Skafti kastar sjer út úr bátnum og
ætlar að synda í land. Veður Jón þá
á móti honum upp í axlir og ætlar
að ná í hann. En þegar Skafti átti
eftir á að giska 3 faðma að Jóni,
kemur á hann ísrek framan úr Vötnum,
sem færði hann í kaf, og druknaði
hann þegar. Lík hans er ófundið enn.
Skafti var um tvítugt, besta manns-
efni og þjóðhaga smiður, eins og
faðir hans.
Fríkirkj umanna verð-
ur haldinn í Fríkirkjunni
sunnudaginn 24. þ. m., kl.
5 e. h. Áríðandi að menn
fjölmenni.
Reykjavik lð. nóvember 1907.
Ólafur Runólfsson.
^allðór Danielsson
bæjarfógeti i Reykjavík
Gjöri kunnugt: Að mjer
hefur tjáð Vigfús Jósefsson skip-
stjóri hjer í bænum, að hann sje
neyddur til, samkvæmt konung-
legu leyíisbrjefi, er hann hefur til
þess fengið, dags. í dag, að fá ó-
gildingardóm á skuldabrjeli að
upphæð 500 krónur, er Guð-
niundur Bjarnason liefur geiið út
3. október 1903 til handa Kristni
Brynjólfssyni, með veði í húseign-
inni nr. 4 í Mjóstræti hjer í bæn-
um, þinglesnu 22. s. m., en skulda-
brjef þetta liafi verið innleyst, en
glatast án þess að vera afmáð úr
veðmálabókinni.
I
Fyrir þvi stefnist hjer með, með
árs og dags fresti, þeim sem kynni
að hafa ofangreint skuldabrjef í
höndum til þess að mæta á bæj-
arþingi Reykjavíkur kaupstaðar
fyrsta þingdag (fimtudag) í febrú-
mánuði 1909 á venjulegum stað
(bæjarþingsstofunni) og stundu
(kl. 10 árd.), eða á þeim stað og
sfundu, sem bæjarþingið verður
þá haldið, til að koma fram með
skuldabrjefið og sanna heimild
sína til þess, með því að sefnandi
mun, ef enginn kemur fram með
það innan þess tima, krefjast þess,
að tjeð skuldabrjef verði ónýtt
með dómi.
Til staðfestu nafn mitt og em-
bættisinnsigli.
Reykjavík 1 nóv. 1907.
Halldór Daníelsson.
Gjald 50 —
fimtíu aurar
— Borgað: —56
H. D.
Aðalfundur
fornleyjajjdagsins
verður haldinn föstudaginn 22.
þ. m., kl. 5 e. h. í húsi presta-
skólans.
Rvík 19. nóv. 1907.
Eirikur Briem.
Stúkan „VerOauði"
heldur opinn lund næsta þriðju-
dag 26. þ. m., ld. 9. e. h.
Meðal annara tala þar: Einar
Pórðarson barnakennari, Halldór
Jónsson bankafjehirðir, Olafur Rós-
cnkranz leikfimiskennari og Pjetur
Zóphóniasson ritstjóri.
Allir velkomnir meðan rúm
levfir.
Hlutafjelagið »Reginn« rekur
allskonar málmsmíði á Eyrar-
bakka með firmanafninu »Reg-
inn«. Dagsetning samþykta 14.
janúar 1907 og 1. maí s. á, Stjórn:
Oddur Oddsson gullsmiður, Jó-
liann V. Daníelsson verslunar-
maður, Gísli Skúlason prestur,
Guðni Jónsson formaður og Sig-
urður ísleifsson trjesmiður. Firm-
hð rita i sameiningu: Oddur
Oddsson, Jóhann V. Daníelsson
og Guðni Jónsson, og í forföllum
einhvers þeirra: Guðmundur Jóns-
son. Höfuðstóll fjelagsins er 6000
kr. og skiftist í 100 kr. hluti, er
hljóða á nafn. Hlutafjeð má auka
upp í alt að 10000 kr. J/4 hluta-
fjárins greiðist fyrir 1. júlí 1907,
en 3/4 fyrir 1. júlí 1910.
Skrifstofu Árnessýslu,
4. nóv. 1907.
Sigurdur Ólafsson.
Prentsmiðjan Gutenberg.