Lögrétta - 25.03.1908, Blaðsíða 2
46
L0GRJETTA.
Lögrjetta kemur á út hverjum mið-
vikudegi og auk þess aukablöö við og við,
minst 60 blöð als á ári. Verð: 3 kr. árg.
á íslandi, erlendis 4 kr. Gjalddagi 1. júlí.
Skrifstofa opin kl. 10*/»—11 árd. og kl.
3—4 síðd. á hverjum virkum degi.
Innheimtu og afgreiðslu annast Arinbj.
Sveinbjarnarson, Laugaveg «.
bæði umboðssölum og því, að hann
kom qí seint með kjöt sitt til Krist-
janíu, að hann fjekk eigi 60 kr. fyrir
tn. af því.
Kaupm.höfn 11. mars 1908.
Bogi Th. Melsteð.
Sjálfskuldarábyrgðarlán
Og
víxi llán.
Þess hefur vart orðið, að það eru
býsna-margir, sem misskilja víxillán-
in, eða rjettara sagt: misskilja ábyrgð
þá, sem víxillánunum er samfara fyr-
ir þá, er nöfn sín rita á víxil.
Mönnum er orðin alkunn ábyrgð
sú, er menn takast á hendur með
því að gerast sjálfskuldarabyrgðar-
menn að lánum, að ábyrgðin hvílir
þar jafnt á öllum ábyrgðarmönnun-
um (hafi þeirij eigi gert sjerstakan
samning með sjer um annað fyrir-
komulag). Geti lántakandinn eigi
staðið í skilum með greiðslu vaxta
og lánsupphæðar, svo að lánardrott-
inn krefji einhvern af sjálfskuldar-
ábyrgðarmönnunum, þá getur sá, ef
hann greiðir, átt aðgang að hinum
(sjálfskuldar)ábyrgðarmönnunum og
fengið endurborgaðan hjá þeim til-
tölulegan hluta fjár þess, er hann
hetur orðið að greiða.
Þetta má skýra betur með dæmi:
Arni tekur ioo kr. lán í banka
og fær fyrir sjáltskuldarábyrgðar-
menn Bjarna, Jón, Ólaf og Sigurð.
Arni stendur nú ekki í skilum,
svo að bankinn krefur Ólaf og hann
greiðir alt lánið, ioo kr., bankanum.
Sje nú lántakandinn sjálfur (Árni)
öregi, eða annara orsaka vegna sje
eigi hægt að fá borgun hjá honum,
þá á Ólafur rjett til þess, að láta
Bjarna, Jón og Sigurð endurborga
sjer 75 kr. af nefndnm IOO kr., 25
krónur hvern þeirra. Geti ekkert
fengist hjá Bjarna, verða hinir 3 að
skifta með sjer skuldinni, Jón og Sig-
urður að endurgreiða Ólafi 33 kr. 33
aura hver. Fáist heldur ekkert hjá
Jóni, verða þeir Ólatur og Sigurður
að skifta með sjer skuldinni, og Sig-
urður að endurborga Ólafi 50 kr. af
þeim 100 kr., sem hann lagði út.
Geti nú Sigurður heldur ekkert greitt,
verður Ólafur að bera skuldina einn.
Þetta alt er bein afleiðing þess, að
sjálfskuldarábyrgðarmennirnir.ábyrgj-
ast lánið einn fyrir alla og allir fyrir
einn, eins og lánið hvíli alt sjerstak-
lega á hverjum þeirra tyrir sig. Þeir
eru allir til samans ein heild, og hver
þeirra um sig hefur jatnar skyldur
til endurgreiðslu lánsins sem hver
hinna.
Þessu er öðruvísi larið með víxil-
lánin. Þeir, sem á víxil skrifa, ábyrgj-
att ekki fjárhæð víxilsins „einn fyrir
alla og allir fyrir einn“, heldur verð-
ur útgefandi einn að bera ábyrgð
allrar víxilupphæðarinnar, að svo
miklu leyti sem samþykjandinn stend-
ur ekki í skilum.
Auðvitað er samþykkjandinn hinn
rjetti skuldunautur, en eigandi víx-
; ilsins getur krafist borgunarhjá hverj-
um sem hann vill af þeim, er ritað
I hafa nafn sitt á bak víxilsins, ef
samþykkjandi hefur ekki greitt á
i gjalddaga. Sá, sem krafinn er og
greiðir víxilinn, hann á rjett til að
krefja hvern þann, er skrifað hefur
nafn sitt ofar en hann á baki víx-
ilsins, um alla víxilupphæðina og
þannig koll af kolli, uns röðin er
komin að samþykkjanda. Þetta má
og skýra betur með dæmi:
Bjarni gefur út 100 kr. víxil á
Árna, sem Árni samþykkir.
Bjarni skrifar svo nafn sitt efst
á bak víxilsins og síðan, fyrir neð-
an hans nafn, skrifa þeir nafn sitt,
fyrst Jón, svo Ólafur og neðst Sig-
urður. Bankinn kaupir síðan víxil-
inn.
Þá er gjalddagi er kominn og Árni
greiðir ekki bankanum víxilinn, þá
lætur bankinn afsegja hann. Bank-
inn á þá sem víxileigandi aðgang
hvort sem hann vill að Sigurði, Ól-
afi, Jóni, Bjarna eða Árna, að víxil-
upphæðinni. Krefji hann nú Sigurð
og Sigurður greiði 100 krónurnar og
afsagnarkostnað, þá á Sigurður rjett
til þess að fá endurborgað sjer að
skaðlausu (alt) hvort sem hann vill
heldur hjá Ólafi, Jóni, Bjarna eða
Árna. Krefji hann Jón, ogjón borgi,
þá á Jón einungis aðgang að Bjarna
eða (og) Árna.
Reglan um víxilábyrgðina er því
þessi:
Utgefandi víxils ber ábyrgð allrar
víxilupphæðarinnarað skaðlausu gagn-
vart öllum ábekingum víxilsins, en
hefur aðgang að endurborgun hjá
samþykkjanda einum. Hver ábek-
ingur ber ábyrgð á allri víxilupp-
hæðinni að skaðlausu gagnvart sjer-
hverjum þeim, er nafn sitt hefur rit-
að neðar á bak víxilsins heldur en
hann sjálfur, en hefur aðgang að
endurborgun allrar víxilupphæðar-
innar að skaðlausu hjá hverjum þeim,
er ritað hefur nafn sitt ofar á bak
víxilsins, heldur en hann, svo og hjá
samþykkjanda.
Kostnaðaráætlun
Landvarnarmanna.
Einn af forkólfum Landvarnarliðs-
ins, Bjarni Jónsson frá Vogi, milli-
bilsritstjóri „Þjóðviljans", hefur í 9.
tölubl. „Þjóðviljans* kveðið upp úr
með það, hve dýrt þeir hugsa sjer
það muni verða fyrir ísland, að „leika
sjálfstætt ríki“, þegar hugmyndir
þeirra og kröfur eru komnar í fram-
kvæmd.
Þeir ætla sjer að hafa 2 sendi-
herra, „er sæti á heppilegum stöð-
um og færi svo þangað, sem vjer
þyrftum að hafa menn til samninga".
Þessum tveim sendiherrum ætla þeir
að borga 50 þúsund krónur á ári
hverju.
En til strandvarna búast þeir við
að þurfa að hafa „aukinn kostnað t.
d. 200 þúsund kr.“ á ári hverju.
í „Aftureldingu“ mun hr. Guðm.
Hannesson hafa bent á, að vjerlegð-
um á konungsborð hlutfallslega við
Dani; mundi sú upphæð nema ár-
lega rúmum 30 þúsund kr.
Eftir þessum áætlunum Landvarn-
j arhöfðingjanna, ættu þessir þrir gjald-
j liðir að verða 280 þúsund krónur á
ári hverju, ef vjer færum undir þeirra
stjórn að „leika sjálfstætt ríki“. '
Það er þó dýrmætt að sjá frá
þeim einhverja kostnaðaráætlun.
Von er þó þeir tali um það í
stefnuskrá sinni, að þeir ætli að fara
sparlega með landsfje. Það veitir
ekki af því, ef meira en fjórði part-
urinn af öllum tekjum landsjóðsins
á að fara í þessa 3 gjaldliði, að fara
sparlega með hina þrjá fjórðu part-
ana. a.
Unglingaskólinn á Núpi
í Dýrafirði hefur í vetur 15 nemend-
ur, 9 pilta og 6 stúlkur. Námstund-
irnar eru 30 á viku hverri. Náms-
greinarnar eru: Móðurmálið og bók-
mentir þess, föðurlandssagan, mann-
kynssaga, landafræði, danska, nátt-
úrusaga, reikningur, þjóðhagsfræði og
söngur. Auk þess eru við og við
haldnir fyrirlestrar um ýms fræðandi
efni. Síra Sigtryggur Guðlaugsson er,
eins og í fyrra vetur, kennari skól-
ans og forstöðumaður. Meiri hluti
nemendanna hefur fjelagsbú, að því
er fæði snertir.
Þetta er að eins annar veturinn,
sem skólinn hefur staðið, og er því
enn lítil reynd komin á nytsemi
hans, en flestir, sem til hans þekkja,
munu gera sjer góðar vonir, og óska
þess, að hann þurfi ekki að veslast
upp þegar í fæðingunni, fyrir efna-
skort og áhugaleysi. Sem betur fer
virðist raunar ekki svo mikil ástæða
til að óttast það. Síðastliðinn vetur
naut hann styrks bæði af sýslusjóði
Vestur-ísafjarðarsýslu og af landsfje.
Smátt var að sönnu skamtað, en von-
andi verður meira látið í askinn næst,
og fer þá alt vel. Jeg hygg, að fram-
tíð skólans sje eitt af áhugamálum
sýslubúanna og þakklæti á sýslunefnd-
in skilið fyrir hugulsemi sína og
stuðning í skólans garð.
Þótt skólinn sje ungur og fjárhag-
urinn þröngur, hefur hann þó eign-
ast dálítið af kensluáhöldum, svo sem:
jarðgönguvjel (tellurium), stóra upp-
drætti af heimsálfunum, Norðurlönd-
um og íslandi; einnig af lífsháttum
og verkum fornaldarþjóða; veggspjöld
minni, með litmyndum úr lifi frum-
þjóðanna og 50 dýramyndum; 320
myndablöð með myndum af mann-
virkjum og tilkomumestu stöðum
jarðarinnar, einnig ofurlítið jurtasafn
og steina. Þetta, sem að verði nem-
ur hátt á annað hundrað króna, hef-
ur að nokkru verið keypt fyrir styrk
þann, er skólanum var veittur af
landsfje, og að nokkru fyrir gjaflr ein-
stakra manna, einkum nemendaskól-
ans, sem þannig hafa búið í haginn
fyrir eftirkomendurna. — Góð íyrir-
mynd.
Unglingaskólarnir eru eitt af hin-
um nýju lífsmerkjum þjóðarinnar, og
á þeim byggjast að ýmsu leyti fram-
tíðarvonir hennar. Þingi og Þjóð er
þvi skylt, og ætti að vera Ijúft, að
hlúa að þeim og gera alt sem unt
er til þess þeir geti orðið að tilætl-
uðum notum. Kostnaðurinn mun að
sönnu mörgum vaxa í augum, eink-
um nú, þegar svo virðist, sem þorri
fólks eigi í vök að verjast í efnalegu
tilliti. Eigi að síður leitast menn þó
við að framkvæma ýmislegt, sem út-
heimtir ný og aukin gjöld: sjávárút-
vegurinn er aukinn, jörðin er þurk-
uð og plægð meira en áður var, ný
vinnuáhöld eru keypt, verslunarvör-
urnar vandaðar, leitað að nýjum og
betri sölustöðum, samgöngur bættar o.
s. frv.; alt þetta er gert af því, að
reynsla er fengin fyrir því, að það
gerir, þegar fram líða stundir, að öll-
um jafnaði meira en að borga kostn-
aðinn, og verður þannig til að auðga
og hefja þjóðina; en undirstaðan til
nýrra og góðra framkvæmda er and-
lega og líkamlega þroskuð og fram-
kvæmdarsöm þjóð. Þjóð, sem elsk-
ar landið sitt og kann að meta til-
veru sína og rjettindi, getur brugðið
erfiðleikunum hælkrók og kastað stein-
um úr götu sinni. Unglingaskólarnir
eru sjálfkjörnir til þess að leiða æsku-
lýðinn í þessa áttina. Nái þeir þeim
tilgangi, mun reynslan sanna, að
þeir með tímanum gera meira en
borga kostnaðinn. Þeir munu skila
honum aftur margföldum í þjóðar-
innar hendur.
Kr. G.
£anðsreikningurinn 1906.
I 9. tbl. Lögr. þ. á. var skýrt
nokkuð frá þessum reikningi og sagt,
hvernig fjárhagur landsins stóð í árs-
lok 1906. Nú er reikningurinn prent-
aður, svo að allir geta kynt sjer hann,.
en þetta er hið helsta úr honum:
Tekjurnar hafa farið nær 344 þús.
kr. fram úr áætlun. Þær voru áætl-
aðar tæp 1 millj. og 12 þús. kr., en
urðu 1 milij. 355V2 þús.
Gjöldin voru áætluð 1 millj. 210
þús. kr., en urðu 1 millj. 379 þús.
Tekjuhallinn er því eigi full 24
þús.
Þær tekjugreinar, sein mest hafa
farið fram úr áætlun, eru þessar: Á-
búðar og lausafjárskattur um rúm 11
þús., aukatekjur um rúm 14 þús., út-
flutningsgjald um nær 56 þús., áfeng-
istollur um rúm 58 þús., kaffi og
sykurtollur um nær 77 þús., tóbaks-
tollur um rúm 10 þús., tekjur af póst-
ferðum um rúm 48 þús., sektarfje
fyrir ólöglegar fiskiveiðar um nær 11
þús., viðlagasjóðstekjur um nær 14.
þús.
Gjaldamegin bætast við áætlunina
útgjöld samkvæmt nýjum lögum og
nema þau nær 75 þús. Til vegabóta
voru ætluð tæp 60 þús., en urðu rúm
90 þús., til verklegra tyrirtækja tæp
189 þús., en urðu rúm 223 þús. Rit-
símakostnaður fór tæp 28 þús. fram
úr áætlun.
Keykjavik.
SöguQelagið hjelt aðalfund sinn
fyrra laugardagskvöld. Formaðurþess,
dr. Jón Þorkelsson, setti fundinn og
skýrði frá hag fjelagsins og starfi
þess; höfðu því bæst 24 nýir með-
limir á árinu, en 3 sagt sig úr þvL
Fjelaginu barst tilboð um handrit
um galdra eftir Ólaf Davíðsson heit.
frá Hofi. Var samþykt að fela stjórn-
inni að vita hvað það kostaði og
semja um kaup á því.
Samþykt var að kaupa rit þeirra
dr. Jóns Þorkelssonar og Einars Arn-
órssonar kand. jur., um ríkisrjett ís-
lands, handa fjelagsmönnum. Utgef-
andi selur fjelaginu ritið á I kr. eint.
Hannes Þorsteinsson ritstj. átti að
ganga úr stjórninni, en var endur-
kosinn með lótaklappi. Sömul. voru
endurkosnir varastjórnendur: Benedikt
Sveinsson og Pjetur Zóphóníass. rit-