Lögrétta - 25.03.1908, Síða 3
LÖGRJETTA.
47
stjórar og endurskoðendur: Sighvatur
Bjarnason bankastj. og Einar Gunn-
arsson kand. phil.
Samþ. var, að þeir, er gengju í
fjelagið, fengju allar bækur, er það
hefur gefið ut, fyrir io kr. Má bú-
ast við því, að margir verði til þessa,
þvf þetta eru mjög ódýr bókakaup,
og allar bækur, er fjelagið hefur gef-
ið út, eru mjög fróðlegar.
Jóhann Kristjánsson ættfræðingur
afgreiðir bækur fjelagsins næsta ár.
1 stjórn fjelagsins eru nú dr. Jón
Þorkelsson (formaður), Jón Jónsson
sagnfr. (skrifari) og Kl. Jónsson land-
ritari (gjaldkeri).
Bæjarstjórnin. Fundur 19. mars.:
Samþ. að verja alt 450 kr. til sund-
kenslu fyrir karlmenn, að minsta
kosti í 3 mánuði, og ait að 150 kr.
til sundkenslu fyrir kvennmenn, að
minsta kosti í 1 l/s mánuð, og 62 kr.
til áhaldakaupa við sundkensluna.
Veganefnd lagði til að Páll Erlings-
son yrði valinn til að kenna piltum
sund í 4 mánuði fyrir 450 kr. og
kenni frá 12—8 á hverjum virkum
degi.
Samþ. að bæjargjaldkerastarfið
verði auglýst með 2500 kr. launum
og setji sa sem það tekur að sjer
4000 kr. veð. Hann hafi og á hendi
lögtaksfiamkvæmd bæjargjaldanna og
hafa skrifstofu á því svæði í bæn-
um, sem bæjarstjórn síðar ákveður.
Lögð fram skýrsla um sjóð Þor-
bjargar Sveinsdóttir ljósmóður og
hafði verið útbýtt úr honum 1907
72 kr. og þeim skift rnilli 5 kvenna.
Afsalað forkaupsrjetti á erfðafestu-
löndum Arna Guðmundssonar, Norð-
urmýrarbletti, er hann selur fyrir
5000 kr., og Jóns Guðmundssonar,
Melstaðabletti, er hann selur fyrir
3500 kr.
Þessar brunabótavirðingar samþ.:
Húseign D. D. P, hlutafjel., við Amt-
mannsst., 5568 kr.; Páls Guðmunds-
sonar við Njálsg. 6864; hlutafjel.
„Iðunnar" 85,195; landsjóðs við
Klapparst, 8131; Þórðar Narfasonar
við Nýlendug. 3280.
Akveðið að greiða Pjetri Pjeturs-
syni gjaldkera 1000 kr. í eftirlaun
a ári frá 1. júlí næstk.
Isfjelagið. Viðskiftavelta þess
hafði síðastl. ár verið 37 þús. kr., og
var samþ. á aðalfuudi 16. þ. m. að
greiða ijelagsmönnum 12% af hlut-
um sínam, en tekjuafgangi þó eigi
skift upp. Chr. Zimsen konsúll átti
að ganga úr stjórninni, en var end-
urkosinn.
»SameignarkaupQelag Rvíkur
heitir fjelag, sem hjer er nýstofnað
og hafa verkmannarjelögin komið þv
á fót. Formaður fjelagsins er Sig
urður Sigurðsson búfræðingur.
»HugÍnn« kvað nú vera hættu
að koma út. Ritstjóri hans, Bjarn
írá Vogi, fór til útlanda nú nýlega
lifandi myndir. Sagt eraðnýt
sýningahús lyrir lifandi myndir eig
að koma hjer upp í sumar, og verð
E'nar Gunnarsson ritstj. „Unga Is
'ands” fyrir því. Hann er nú er
Endis, líklega til að undirbúa það.
Frá útlöndum hafa margir Reyk
V|kingar komið nú með síðustu skip
Ásg. Sigurðsson konsúll, ú
-undúnaför; Ben. S. Þórarinss. kaup
'Uaðyr, frá Khöfn; Jón Þórarinssoi
' °lastjóri, er dvalið hefur eriendi;
1 an í haust; Einar Benediktsson fyrv
^ýslumaður, sem nú býr f Edinborg
S'U Jakobsen og frú hans; Jakot
avsteen verslunarm., Bjarni Jóns
■s°n trjesmíðameistari o. fl.
Áð norðan komu hingað mec
«pl. ”
u-ijunni,, a manudaginn: Jón Jóns
s°n frá Múla (áleiðtil útlanda), Pjet
Ur Jónsson frá Gautlöndum (á skatta
nefndarfund), sýslumannsfrú M. Guð
nrundsson frá Akureyri, Búi Ásgeirs
son Verslm,, Th. Krabbe verkfræð-
ingnr.
Fjel. ,„Eram“ hjelt fjöruga skemti-;
samkomu á laugardagskvöldið var,
og tóku þátt í henní um 400 manns.
Þar var sungið fyrir minni fjelagsins
þetta kvæði, eftir G. M.:
Fríð og rík skal foldin ljóma
fögrum gróðri klædd;
hjóðin elfd að orku’ og sóma, |
upp við metnað fædd.
Fram skal sótt með frjálsum höndurn,
fram með hug og starf. j
Ei að baki öðrum löndum
Island standa þarf.
Miklumst ei af öldnum frama
íslands gullöid frá,
höfum oss þá hugsjón tama
hærra gengi’ að ná.
Þung er minning þrotins sóma,
þungur arfur vor,
ef nú horfa ei til blóma
aldar vorrar spor.
Vinir, sjáið! — Verkið bíður:
veglaus heiðalönd,
hjeraðsfaðmur himinvíður,
hafnlaus sjávarströnd.
Elfarflóð sjer áfram ryður,
auðlegð þess ei næst;
enn í bergsins æðar niður
íslands gull er læst.
Nemum landið, byggjum brautir,
bindum sveit við sveit,
mætumst, sigrum sömu þrautir,
sinn í hverjum reit.
Ljettum framann frjálsum höndum,
fegrum nes og dal!
Ei að baki öðrum löndum
ísland standa skal.
Þegar frónskir flotar bruna
fram, þar höfnin er,
heiðar undir hjólum duna,
hlekki fossinn ber,
þegar ísland alt er setið
yrkt, frá brún að strönd —
þá mun orð þess einhvers metið
um hin miklu lönd.
Sækjum fram i sama anda,
setjum markið hátt!
Fælur þær, sem fyrir standa,
fækka smátt og smátt.
Fylgjum íslands frama merki,
fylkjum, stöndum þjett! —
Félag vort áð fögru verki,
fram! — Þú st.efnir rjett.
Ungmfjel. Rvíkur. Skemtun sú,
sem auglýst var í síðasta blaði und-
nafni þess og fram fór síðasti. laug-
ardagskvöld og sunnudagskvöld, var
ekki haldin at fjelaginu, heldur af
nokkrum mönnum úr því, og gekk
ágóðinn til Heilsuhælisfjel. Skemtunin
var vel sótt bæði kvöldin og mun !
flestum hafa fundist óþarft alt það
mas, sem út úr undirbúningi hennar
hafði spunnist, og leikurinn, sem
sýndur var, meinlaus í allra garð.
Frá fjallatindum til fiskimiöa.
Ný ísl. frímerki hafa verið gefin
út og eru nú komin til sölu. Það eru
einseyrisfrímerki, græn og rauð að
lit, en annars eins að gerð og frí-
merkin, sem út komu í fyrra með
myndum beggja síðustu konunganna.
Ólafsfjarðarsíminn. Á nýafstöðn-
um sýslufundi Eyjafjarðarsýslu var
Þóroddstaðahreppi leyft að taka alt
að 5000 kr. lán, gegn ábyrgð sveit-
arfjelagsins, til þess að leggja síma
milli Dalvíkur og Olafsfjarðar.
Brú á Eyjafjarðará vilja nú Ey-
firðingar fá, enda eru nú vagnvegir
komnir að ánni báðumegin. Sýslu-
fundur samþykti, að fara þess á leit
að fjárveiting til þessa yrði tekin á
næstu fjárlög.
Skipskaðar. Þilskipið „Alaska",
eign Sigvalda Þorsteinssonar kaupm.
heldur st. Einingin nr. 14 í
Góðtemplarahúsinu laugard. 28.
þ. m.
Nanar á götuauglýsingum.
á Akureyri, sleit upp í stórviðri, um
síðastl. mánaðamót, á Skjaldarvík og
rak upp á bryggju, sem Thor E. Tul-
inius á þar í víkinni. Skipið laskað-
ist svo, að várla verður við það gert,
enþaðvar óvátrygt. Bryggjan skerr.d-
ist einnig mikið.
í sama veðri sleit einnig upp skip í
Sandgerðisbót og rak upp á Oddeyri
norðanverða. Það skip átti „Svenska
Bolaget" í Gautaborg og laskaðist
það lítið eitt.
Mannalát. Dáinn er nýlega á Ak-
ureyri Kristján Sigfússon yfirkennari
barnaskólans á Akureyri, rúml. fer-
tugur.
19. f. m. andaðist á Búðum á Snæ-
fellsnesi Vigfús Jónsson, er þar hafði
áður verið hjá Sigurði kaupm. Sæ-
mundsen.
20. f. in. andaðist Gestur Eyjólfs-
son bóndi á Húsatóftum á Skeiðum,
tæpra 56 ára.
Lengsta gaddavírsgirðingin.
Glæsibæjarhreppur setur upp í vor
samgirðing, yfir 3 mílur á lengd, fyrir
ofan alla bæi í Kræklingahlíð og á
Þelamörk. Girðingin verður fimmsett
gaddavírsgirðing og kostar yfir 7000
kr. Landbúnaðarfjelagið leggur til 5
au. á hverja feralin, eða alls fullar
600 kr. Þetta verður lengsta girðing
landsins. .
Dalatangavitinn. Th. Krabbe
verkfræðingur hefur nýlega verið
eystra til þess að undirbúa vitabygg-
inguna. Um hana hefur „Austri" þetta
eftir verkfræðingnum: „Nýi vitinn á
að standa litlu neðar en hinn gamli,
og verður gerður úr steinsteypu. Turn-
inn á að verða ferstrendur, 3 metrar
á hvern veg og 6 metrar á hæð. Þar
ofan á verður svo ljóskershúsið, U/2
—2 metrar á hæð. Byrjað verður á
vitabyggingunni síðast í maímánuði
n. k.“
Verðlagsskrár. Meðalalin í sýslum
landsins, árið 1908—'09 er þessi:
Norður-Múlasýsla og Seyðisfjörður
67 au., Suður-Múlasýsla 64 au., Aust-
ur-Skaftatellss. 54 au., Vestur-Skafta-
fellss. 52 au., Vestmannaeyjas. 47 au.,
Rangárvallas. 53 au., Árnessýsla 63
au., Gullbringu- og Kjósars. með R.-
vík 62 au., Borgarfjarðars 52 au.,
Mýrasýsla 66 au., Snætellsness- og
Hnappadalss. 58 au., Dalasýsla 58
au., Barðastrandas. 03 au., ísafjarð-
ars. og kaupst. 63 au., Strandas. 56
au., Húnavatnss. 55 au., Skagafjarð-
ars. 65 au., Eyjafjarðars. og kaupst.
58 au. og Þingeyjarsýsla 58 au.
Flóabáturinn. Brot úr bijefi (dags.
4. mars) frá skipstjóra S. P. Jónssyni
í Stavanger til Jóns Pálssonar versl-
unarstjóra:
„ . . Faxaflóagufubáturinn (er kvað
eiga að heita „Ingólfur") verður til-
búinn til íslandsferðar um eða fyrir
miðjan apríl næstk., ef alt gengur vel.
Mjer líst mæta vel á bátinn og hygg,
að hann verði gott skip. Hann er
sterklega bygður og vandaður í alla
staði. Lestarrúm hans verður á að
giska 60—70 smálestir. Á 1. farrými
er ætlast til að nægilegt rúm verði
fyrir40—45 manns og á öðru farrými
fyrir 60—70. Jeg vona, að báturinn
verði til gagns og gleði fyrir alla þá,
er væntanlega þurfa að nota hann,
°g þá eigi síður fyrir þá, er hluti
kunna að eiga í honum. Jeg hafði
ekki gert mjer hugmynd um, að hann
fjelli mjer eins vel í geð við fyrstu
sjón eins og raun varð á, og jeg er
mjög vel ánægður með hann að því
leyti sem nokkuð er hægt um hann
að segja af því aðeins að sjá hann,
en auðvitað er reynslan eftir og vona
jeg, að hún fari eftir útlitinu, því það
er að mínu áliti mjög gott. . . "
Ungmennafjelag er nýstofnað í
Laugardalshreppi. Stofnendur voru
nálægt 30, bæði konur og karlar, sem
rituðu undir sambandsskuldbinding
Ungmennafjelaganna. Fyrir stofnun
fjelagsins gekst Indriði Guðmunds-
son trjesmiður, en í stjórn eru: Böð-
var Magnússon Laugarvatni,, form.,
Páll Guðmundsson Hjálmstöðum, rit-
ari, og Ingvar Grímsson Laugardak-
hólum, gjaldkeri.
Afli. Nokkrar af fiskiskútunum hafa
komið inn og hafa þær afiað mjög vei,
alt að 10 þús. hver. Botnvörpungurinn
nýi, „Framfjelagsins", hefur ogkomið
inn með mikinn afla.
Stórviðri gerði í gærmorgun mjög
snögglega, svo að hætt er við að tjón
hafl einhverstaðar orðið af því. En
ekki stóð það yfir nema 2 klt. Bátar
margir höfðu verið á sjó af Suður-
nesjum. Sumir björguðust í fiskiskút-
ur, einn hrakti hingað inn að Skild-
inganesi, annar kom í Hafnarfjörð.
ísland erlendis.
Dáin er í Winnipeg 12. f. m. Sig-
ríðurBjörnsdóttir.konaHjálmars Gísla-
sonar frá Nesi í Loðmundarfirði. Þau
fóru vestur vorið 1903 og giftust
nokkru síðar í Winnipeg. Hún var
dóttir Björns, er áður bjó á Selstöðum
i í Seyðisfirði, yngsta barn hans, að-
eins liðlega tvítug að aldri.
Trúlofuð eru í Khöfn Jónas Guð-
laugsson, áður ritstj. „Valsins" á ísa-
firði, og Thorborg Schoyen, norsk
stúlka frá Kristjaníu.
Fari hann þá kollóttur.
Nýlega heyröi jeg tvo kjósendur tala
saman og var tal þeirra á þessa leið:
A. : (stjórnarmaður): »Ætlar þú að
kjósa Ana?«
B. : (stjórnarandstæðingur); »Já, ætli’
ekki það — það held jeg að jeg geri*.
A. : »En veistu ekki, að hann er bráð-
ónýtur maður?«
B. : »Það getur vel verið. En hann
er á móti stjórninni og það er mjer
nóg«.
A. : En ef þið stjórnarandstæðingar
sigrið við kosningarnar, þá verður
hann beinharður stjórnarmaður«.
B. : »Ja, fari hann þá kollóttur«.
X.
Eggert Claessen
yfirrjettarmálaflutningsmaður.
Pósthússtræti 17. Venjulega heima kl. 10—II
og 4—5. Talslmi 16.
Sffy Auglgsingum í „Lög-
rjettU“ tekur ritstjórinn við
eða prentsmiðjan.