Lögrétta - 01.07.1908, Blaðsíða 3
L0GRJETTA.
119
aðförum og ljeti dómstólana skera úr
þeim kæruatriðum, sem hann bar á
embættismennina, en keisari neitaði
því og hafði í hótunum. Ekkert dugði
það heldur, þó andlega stjettin tæki í
sama streng og þingið. Keisarinn fól
rússneskri hersveit að halda reglu í
Teheran og hjelt svo áleiðis þangað
með fallbyssur og her. Það er koma
hans þangað, sem skeytið lýsir.
Yjer þolum það ekki,
að Þjóðólfur 19. þ. m. nje aðrir telji
alla Borgfirðinga undantekningarlaust
mótfallna sambandslagafrumvarpinu.
Þvert á móti álítum vjer það, eins
og það er, án lítilfjörlegra og kenja-
legra breytinga, vera þá rjettarbót á
stjórnarfari Islendinga, sem þjóðin
hefur óskað eftir, en Danir eigi að
undanförnu viðurkent. Það er því að
voru áliti mjög misráðið, að leitast
við að æsa alþýðu manna tíl upp-
reisnar gegn — ekki einasta endur-
bættu, heldur endurreistu sjálfstæði
þjóðarinnar.
Akranesi 22. júní 1908.
Þorsteinn Jónsson. Sv. Guðmundsson.
Sæm. Guðmundss. Guðm. Guðmundss.
Hallgr. Guðmundss. Einar Guðmundss.
Frá fjallatindum til fiskimiða.
„Fegnskylduvinna** heitir sjer-
prentuð ritgerð úr Andvara þ. á. eftir
Hermann Jónasson alpm., nýkomin
út, vel samin ritgerð og skýrir ítar-
lega hugmynd höf. um þegnskyldu-
vinnuna, er mörgum mun áður hafa
verið óljós, eftir þeim undirtektum
að dæma, sem hún fjekk, er hann
bar hana fram á þingi fyrir nokkrum
árum.
Frá Stokkseyri. Þar hjeldu þeir
Hannes ritstjóri og Sigurður búfr. fund
á sunnudagskvöldið til þess að leita
sjer kosningafylgis. Komu þar saman
urn 40 Stokkseyrarbúar og svo nokkrir
menn af Eyrarbakka, eitthvað milli
50 og 60 alls. Engir af bændum úr
nágrenninu höfðu verið á fundinum.
Hjeðan úr Rvík voru þar, auk fund-
arboðenda, L. H. Bjarnason lagaskóla-
stjóri og Halldór Jónsson bankagjald-
keri. Atkvæðagreiðsla hafði verið eitt-
hvað á ruglingi. 43 vildu hafa ein-
hverjar breytingar á frumvarpinu, en
13 engar breytingar. Tillaga um það,
hvort fundurinn væri hlyntur frum-
varpinu fjekk 22 atkv., en ekkert á
móti. Önnur tillaga um það, hvort
fundurirm vildi styðja þau þingmanna-
efni, sem þarna buðu sig fram, fjekk
28 atkv. — Menn eru ekki búnir að
átta sig á því enn úti um sveitirnar
alment, hverjar afleiðingar breytingar
á frumvarpinu geta haft.
Óliklegt er, að Árnesingar þurfi
að kjósa þessa tvo af því, að ekki
verði völ á öðrum, þótt fleiri hafi
ekki boðið sig þar fram enn.
Trjesiníðaverksmiðja ný er tek-
in til starfa á ísafirði og heitir „Vík-
ingur“, hlutafjelagseign.
Jón Sigurðsson. ísfirðingar hjeldu
almenna skemtisamkomu á fæðingar-
degi hans, 17. f. m.
Úl' Yopnaiirði. Þar var haldinn
fjölmennur fundur, segir „Rvík", á
sunnudaginn var til að ræða um sam-
bandsmálið. Margir töluðu þar með
frumvarpi sambandslaganefndarinnar,
en enginn á móti. — Ályktun var
engin gerð.
Reykjavik.
Útskriíáðir voru í gær úr almenna
mentaskólanum:
1. Ásmundur Guðmundsson I. ágæt.
eink. 105 st.
2. Tryggvi Þórhallsson I. — 99 —
3- Árni Gíslason . . . II. — 76 —
4- Hjörtur Hjartarson Utanskólasveinar: II. — 72 —
1. Jakob Jóhannesson I. — 99 —
2. Bogi Ólafsson . . . I. — 98-
3- Jón Sigtryggsson . I. — 90 —
4- Jakob Lárusson . . I. — 89 —
5- Skúli Thoroddsen . I. — 88 —
6. Magnús Bjarnason I. — 85-
7- Sigurður Sigurðsson II. — 77 —
Bankarnir. íslandsbanki hefur
keypt af Landsbankanum banka-
vaxtabrjef fyrir >/2 millj. kr. nú ný-
lega, og er samvinna milli bankanna
góð nú í peningaharðærinu.
E. Schou bankastjóri er nú ut-
anlands til þess að reyna að útvega
íslandsbanka enskt fje. Annars hefur
sú tilraun verið gerð áður af báðum
bönkunum hjer, en ekki tekist.
Girðinganet nýtt er sett upp í
Gróðrarstöðinni í kring um jurtareit-
inn íslenska. Þættirnir lágrjettu eru
fimm. Neðri bilin tvö eru hvort um
s*g 71/2 þuml. og efri bilin 10 þuml.
Milli uppistöðuþráða er á þeirri girð-
ing 8 þuml. bil, og með þeirri gerð
kostar alinin á sölustað 23 V* e. Þetta
bil má fá þjettara og gisnara og hækkar
þá og lækkar verðið dálítið. Sýnishorn
af 12", 10", 8”, 6" og 4'' bili eru við
túnhliðið í Laufási.
Seljandinn er Leonor Pedersen í
Sæby á Jótlandi, og heitir netgirðing
þessi „Dansk Normal Indhegning".
Landlæknir fer með „Vestu" á
föstudaginn norður um land í em-
bættisferð.
Frá útlöndmn eru nýlega komnir
P. J. Thorsteinsson stórkaupmaður
og Ó. Johnsen yfirkennari frá Odense.
Fornmenjavörður var Matthías
Þórðarson cand. phil. skipaður 20. f. m.
Dr. H. Pjeturss. biður fyrir svohljóð-
andi leiðrjettingar við fyrra ferðabrjef
sitt: I st. f. „hinar sædjörfu Vestmanna-
eyjar" les hina sædjörfu Vestmanney-
inga. — I. st. f. „hin tröllháa standmynd
Scotts" les standminning.
Prestaskólinn. Embættisprófi luku
þar í síðastl viku: Brynjólfur Magn-
ússon (84 st.), Guðbrandur Björnsson
(87 st.) og Þorsteinn Briem (95 st.),
allir með 1. eink.
Bæjarstjórnin. Fundur 18. f. m.
Neitað beiðni J. Ólafssonar á Bú-
stöðum um styrk til vírgirðingar.
Kosin skólanefnd: Bæjarstjóri, Hall-
dór Jónsson bæjartulltrúi, síraM. Helga-
son, Jón Jensson bæjarfulltr. og Þór-
unn Jónassen bæjarfulltr.
Þessar brunabv. samþyktar: á húsi
Bjarna Jónssonar í Njálsgr. 8209 kr.;
Sv. J. Einarssonar í Grettisg. 25661;
Eyj. Eiríkssonar í Hafnarstr. 10473;
Halld. Þorsteinssonar í Hverfisg. 4783
og Þorst. Egilss. á Laugav. 14732 kr.
Meiðyrðaniúl hefur Einar Arnórs-
son lögfræðingur höfðað gegn ritstjóra
ísafoldar.
Úr Landvarnarstjórninni sagði
sig nú í vikunni Guðmundur Hann-
esson Iæknir. Þeir eru þá farnir það-
an þrír: Jón Jensson og Guðmund-
arnir báðir.
Norðan um land kom „Vesta" í
gær og með henni ýmsir farþegar:
B. M. Ólsen prófessor (frá Færeyj-
um; hefur dvalið þar um hríð), Guð-
mundur læknir Scheving og Sigurð-
ur Hjörleifsson ritstjóri, báðir á 25
ára stúdentaminningu, sem hjer á að
halda bráðlega.
Landveg kom hingað að norðan
tyrir nokkrum dögum Jón bóndi á
Hafsteinsstöðum í Skagafirði.
„óðinn“. Júníblaðið flytur 3 myndir
af Jónasi Hallgrímssyni skáldi, sem
fundist hafaí forngripasafninu,og fylgir
þeim grein eftir Matth. Þórðarson forn-
gripavörð; myndir af 2 tónskáldum,
Á. Thorsteinsson og Sigf, Einarssyni;
mynd af J. Thorarensen kaupmanni á
Reykjarfirði; brjef frá Þingvöllum (smá-
sögu), kvæði o. fl. smávegis.
Engin sál
kom til fundar, sem Einar skáld Hjör-
leifsson ætlaði að halda nú nýlega í
Vík í Mýrdal. Hann var gerður út
þangað hjeðan frá Reykjavík og pakk-
hús rutt til fundarhaldsins. En það
fórst fyrir af þeirri ástæðu, að eng-
inn kom áheyrandi. Einar kvað þó
hafa haft há spil á hendinni, átti að
tromfa þar út annaðhvort laufakongi
eða laufagosa flokksins: bjóða Skaft-
fellingum annaðhvort Björn Jónsson
eða sjálfan sig fyrir þingmann. Svo átti
hann að fara um sýsluna, að því er
Þjóðv. skýrir frá, og koma heim aftur
með vasana fulla af góðum loforðum
og efni í fjölda Isafoldardálka.
En hann firtist af viðtökunum í Vík
og sneri strax heim aftur, kom hingað
á laugardaginn var og segir enga
ferðasögu.
Símskeyti
frá útlöndum.
Khöfn 24. júní: Persakonungur
tekur þinghús Persa. Stórskotaor-
usta. Manndráp. Ránskapur.
„Irr-irr!“ — „Jeg bið menn ekki
að hrópa „húrra" fyrir öðrum af nefnd-
armönnunum en Skúla. — Til hinna
segi jeg bara: Irr-irr!" Þetta er haft
eftir Birni gamla Jónssyni í Skúla-
veislunni hjerna um kvöldið og hafði
hann um leið og hann sagði það
bandað út með hendinni.
Jeg hef orðið þess var, að menn
skilja ekki þetta hjer í Reykjavík,
tala um það eins og einhverja vit-
leysu hjá gamla manninum og hlæja
að því á hans kostnað.
En við sveitamennirnir skiljum
þetta vel.
„Irr-irr!“ er rtiál, sem við tölum
daglega við vissar skepnur heima hjá
okkur. Þegar Björn segir: „Irr-irr!"
þá ætlast hann auðvitað til, að ein-
hverjir hlaupi upp og segi: „Vófif!
vófif! “ og bíti í hælana á þeim, sem
hann bendir til.
Hverjum hann ætlar að gera þetta
hjer, veit jeg auðvitað ekkert um.
En getur ekki einhver, sem við
var, ráðið þá gátu?
Aðkomandi smali.
(da foi
)
börn og fullorðna, heldur áfram fram
í miðjan ágústmánuð. Nýir nemend-
ur geta fengið kenslu fyrir mjög
væga borgun.
Ingibjörg Brandsdóttir.
Uppskipun.
Fyrri part þessa mánaðar
er von á skipi með pipur
o. fl. til Vatnsveitu Reykja-
víkur.
Þeir, sem kynnu að vilja
taka að sjer uppskipun á
þessum vörum, geíi skriflegt
tilboð fyrir 8. þ. m. Upp-
lýsingar fást hjá verkfræð-
ingi K. Zimsen.
Vatnsveitunejnðin.
Sæmundur Bjarnhjeðinsson
læknir, Laugaveg 10 (viðtals-
tími 2—3 síðd.), gegnir lækn-
isstörfum mínum meðan jeg
er fjarverandi í embættiser-
indum, frá3. júlí til 3. ágúst.
(i. Björnsson.
hefur nú til sölu
Nýjan lax
úr 01vesá.
Reykingarlax kostar
40 a. pd.
Peir, sem hafa í hyggju að
sækja um kenslustörf við barna-
skóla Reykjavíkur næstkomandi
skólaár eru beðnir um að senda
umsókn sína fyrir 15. ágúst þ. á.
til borgarstjórans.
Reykjavík, 24. júní 1908.
Skólaneíndin.
vel færir í
þýsku e»« ensku,
geta fengið atvinnu 4. og 5.
júlí næstk., ef þeir gefa sig
fram í
Skrifstofudeildinni i
THOMSENS1AGASÍNI.
Þeir, sem bækur hafa að láni frá
Landsbókasafni íslands, etu ámintir
um að skila þeim á tímabilinu i.—15.
júlí næstkomandi.
Reykjavík 30. júní 1908.
Jón Jakobsson.