Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 23.03.1910, Blaðsíða 4

Lögrétta - 23.03.1910, Blaðsíða 4
60 L0GRJETTA Ludwig Rosenthal8 Antiquariat, Miinchen, Gegrttndet 1859, Hildegardsstp. 14, versendet auf Verlangen die nachstehend verzeichneten Kataloge: Nr. 69. » 70 .1 » 72. » 73. „ 74. » 75. » 76. » 78. » 79. » 82. » 88. » 90. » 92 » 96. » 97. » 100. » 101. » 103. » 104. » 105. » 107. » 108. » 109. » 110. » III. » 112. » 113. Ornamentik. Mit 6o Illustrationen. Preis Mk. 4,— Protestantische Theologie. Preis Mk.6— Von diesem Katalog sind bisjetzt n Lieferungen (Nr. i—20225. A— Reihing) erschienen, die eine umfas- sende Bibelsamlung und eine grosze Zahl Schriften der Reformatoren und ihrer Gegner enthalten. Schriften von u. iiber Erasmus von Rotterdam. Schriften von und iiber Hutten. Jansenismus. Indices librorum prohibitorum. — In- quisitio. Kirchenordnungen. Schriften von und iiber Melanchthon. Reformation franpaise. Schriften von und iiber Ignatius Loyola. Astronomie. Incunabula xylographica et chalco- graphica. Mit 102 IUustrationen. Fol. Preis Mk. 10.— 95 u. 106. Katholische Theologie in allen Sprachen, mit Ausnahme der deutschen. Genealogie und Heraldik. Stiche von Joh. El. Ridinger. Seltene und kostbare Verke. Mit 126 Illustrationen. Preis Mk. 6.— Ungarn. — Die siidslavischen Lánder. — Die Tiirkenkriege. Böhmen und Máhren. Friihe Zeitungen. (Relationen u. Flug- blátter.) Inkunabeln. — Wiegendrucke u. Bib- liographie der vor 1501 gedruckten Biicher. Mit 48 Illustrationen. Polen und Lithauen. Russland. Orientalische Kirche. Schweden, Dánemark, Norwegen. Schleswig-Holstein bis 1864. Seltene und kostbare Biicher. Mit 133 Illustrationen. Preis M. 4.— Adels-Portráts. Deutsche Sprachdenkmáler und deut- sche Literatur bis 1750. Nr. 114. Deutsche Literatur u. Ubersetzungen von der Mitte des 18. Jahrhunderts bis zur Gegenwart. » 115. Americana. » 118. Shakespeare. — Totentánze. — Em- blemenbiicher. » 119. Genealogie und Heraldik. » 120. Handschriften von 800—1500. » 121. Musik. » 122. Alte Medizin bis 1799. » 124. Musiker-, Dichter- und Schauspieler- Portráts. » 125. Spanische Literatur und Geschichte. (15. und 16. Jahrhundert.) » 126. Biicher in spanischer Sprache. (15.— 19. Jahrh.) » 127. Bibliotheca Balneologica et Hydrothe- rapeutica vetus et nova. Báderschrif- ten. Anhang: Ansichten von Kurorten und Bádern. » 128. Medizin des 19. Jahrhunderts. » 129. Árzte-Portráts. Autographen, Karika- turen, Stiche, Alte und Neue Medizin. Neueste Erwerbungen. » 130. Seltene Wiegendrucke, Handschriften, Musiker-Autographen, Erd- und Him- melsgloben usw. Herausgegeben an- lásslich des 5ojáhr. Bestehens der Firma. Preis M. 3.— » 132. Almanache, Kalender, Taschenbiicher. — Kalenderkupfer. » 133. Bavarica. Biicher, Autographen u. Ur- kunden. Ansichten, Karten und Flug- blátter. Portráts. Handzeichnungen bayerischer Kiinstler. » 134. Österreich-Ungarische Karten, Ansich- ten und Flugblátter. » 135. Raritáten. » 138. Genussmittel. Bier. Wein. Branntwein. Kaffee. Tee. Kakao. Schokolade. Koch- biicher. Tabak. Zucker. Demnáchst erscheinen: » 141. Katholische Theologie in deutscher Sprache. » 142. Deutsche Literatur ab 1750. Dt$alari iqí Jónatan Porsteinssyni heldur áfram. «1 Kaupið á Pá$kapelartrt í Kjallaradeildinni. Með „VESTU“ kom fínasta norðlenskt því þar fást allar mögulegulegar óáfengar VÍl1- og' HL-teg;- undir handa bannmönnum, og sem verður selt í pakliliúsinu í áfengar handa hinum, eins og t. a. m. 30 ára gamalt rauðvín, 20 ára gamalt cognac og 20 tegundir af whisky. m lll( með þessu verði: 28 aura í pundatali, 27 — ef tekin eru ininst 10 pd. 26 — - — — — 50 — 25 — - — er minst 1 tunna. Prentsmiðjan Gutenberg. Vín- & 01verslun cTR. cTfíorsfeinssons, ángólfstivoli\ selur allskonar HÁTlÐADRYKKI, óáíenga og áíenga, mjög ódýrt eítir gæðum. E i n k a ú t 8 a 1 a á vínum frá kgl. hirðsala C. 1j. jllíönster l Sön i Kaupmannahöjn. Jli Slói ÚTSALA Á ÁT 4NAYÖIUJ VERÐUR GEFINN Ennfremur verður 1©% AFSLÁTTUR gefinn af LEIRVÖRUM og EMAILLERUÐUM VÖRUM allskonar, svo og af ÖLLUM GLYS- VARNINGI og íleirn. Sturla Jónsson. Til Páskanna: Nýjar og vandaðar vörur: Föt og fataefni. Stígvjel, skór og galocher. Hattar og húf- ur. Regnkápur og yíirhafn- ir. Nærföt allskonar. Hálslín og slifsi. Lægsta verð eftir gæðum. Klœdskeradeildin. ALT SEU EðMUR PRRFA til Páskanna, svo sem: Slipsi. S v u n t u e f n i. Efni í peysuföt og kjóla. Skyrtur. Bolir. Millipils. Sokkaj'. Hanskar. Eíni í mötla. Regnkápur. Stígvjel. Skór. Galocher. — Ennfremur Drengja- og stúlknaföt allskonar, er vandaóast og þó ódýrast í VEFNAÐARY0RU DEILDINNI rr verða seldar með verksmiðju- verði nú næstu daga í verslun Sfurfu Sónssonar. 202 203 Þeir eiga að koma hingað undir eins og við köllum til þeirra, en annars má enginn koma inn hingað fyr en við erum farnir út«. Sveinninn hneigði sig og gekk út. »Heyrðu nú hvað jeg segi«, sagði stórmeistarinn við Gyðinginn. »Það er ósæmilegt fyrir mann í minni stöðu að tala lengi við þig, og jeg ætla ekki að eyða til þess lleiri orðum nje lengri tima en þörf krefur. Svaraðu nú með sem fæstum orðum þeim spurningum, sem jeg legg fyrir þig, og gættu þess, að segja alt satt. Ivomist jeg að þvi, að þú segir ósatt, þá læt jeg rífa úr þjer tunguna«. Gyðingurinn ætlaði að svara, en stórmeistarinn gaf honum bendingu um, að tími væri ekki enn til þess kominn. »Þegi þú, Gyðingur«, sagði hann. »í minni nærvern máttu ekki tala, nema þú sjert beint spurður. En hvað er það, sem þið Brjánn riddari frá Bósagiljum haíið saman að sælda?« ísak var í efa um, hve opinskár hann mælti vera þarna. Honum datt í hug, að ef hann segði alt eins og var, þá gæti það litið úl eins og hann væri að koma óorði á múnkaregluna. Hins vegar sá hann það, að ef hann segði ekkert, þá væri útsjeð um frels- un dótlur hans. Stórmeistarinn sá, að hann var í vandræðum, og ljet þá svo lítið að ’fara að telja kjark í hann. »Þú þarft ekkert að óttast hjer, Gyð- ingsræfill«, sagðí hann, »ef þú segir alt eins og er. Jeg spurði þig, hvað þið Brjánn riddari hefðuð saman að sælda«. »Jeg er með brjel til hans, velæru- verði herra«, stamaði ísak, »og brjefið er frá Ymi ábóta í Jörfaklaustri«. »Heyrðu til, Konráð«, sagði stór- meistarinn. »Hvað segirðu um það, að ábótinn í Jörfa og einn af riddurun- um hjerna í klaustrinu hafa Gyðing fyrir milligöngumann? — En fáðu mjer nú brjefið, Gyðingur«. ísak tók brjefið með skjálfandi hönd- um úr húfu sinni, því þar hafði liann geymt það. Um leið stje hann fram og rjetti brjefið að stórmeistaranum. »Burt, hundur!« sagði stórmeistar- inn. »Jeg snerti ekki við vantrúuðum manni öðruvísi en með sverði mínu. Konráð, taktu við brjefinu af honum og rjettu mjer það«. Ivonráð múnkur tók við brjefinu og rjetti það að stórmeistaranum. Lúkas skoðaði brjefið vandlega og fór síðan að leysa bandið, sem hnýtt var utan um það. »Hvað er þetta, æruverði faðir, — ætlarðu að brjóta upp lakkið?« sagði Konráð, en var samt auðmjúkur í málrómi. »Já«, svaraði stórmeistarinn og hleypti brúnum. »Eða, hvað hefur þú á móti því? — Stendur ekki í reglum okkar, að enginn musterisriddari megi taka við brjefi, jafnvel ekki frá föður sin- um, án þess að tilkynna það stór- meistaranum og lesa það í hans nær- veru ?« Síðan las Lúkas brjefið, og var auð- sjeð á andliti hans, að honum blöskr- aði. Þegar hann haíði lesið það yfir einu sinni, byrjaði hann á því aftur og fór þá hægar yfir það, en rjetti svo Konráði brjefið. »Það eru lagleg um- ræðuefnifyrir kristna menn til að skrif- ast á um, eða hitt þó heldur«, sagði hann, »og það jafnvel háttsetta menn í kristnum trúarfjelögum«. Svo leit hann hátíðlega til himins og mælti: »Hvenær kemur þú, herra, til þess að hreinsa þína kornhlöðu?« En Konráð múnkur tók við brjefinu og ætlaði að fara að lesa. »Lestu það hátt«, sagði stórmeistar- inn. Síðan sneri hann sjer til ísaks og mælti: »Og hlustaðu vel eftir þvi, Gyðingur, sem í brjefinu stendur, því þú verður spurður nánar um það á eftir«. Konráð munkur las nú brjefið hátt og var það svohljóðandi: »Ýmir, af guðs náð ábóti klausturs hinnar heilögu Maríu meyjar i Jörfa, óskar Brjáni frá Bósagiljum, riddara hinnar helgu Musterisreglu, góðrar heilsu, og biður Bakkus konung og írúna Venus að sæma hann sínum bestu gjöfum. £n nú er svo ástatt fyrir mjer, kæri bróðir, að jeg erfangi hjá guðlausum lögbrotsmönnum, sem ekki svífast þess, að virða mig sjálfan til lausnargjalds. Hjá þeim hef jeg frjett um ófarir Reginvalds, og þar með það, að þú hafir komist undan með Gyðingastúlkuna fögru, töfrakon- una, sem hafði heillað þig með sín- um svörtu augum. Hjartanlega gleðst jeg yfir því, að þú skyldir komast undan. En áminna vil jeg þig um það, að þú gætir þín vel fyrir þessari nýju töfradís frá Endor, því jeg hef fregnað, að stórmeistai'i ykkar, sem ekki kvað hafa neinn smekk fyrir rjóðum kinnum nje fögrum augum, sje nú á leið til ykkar frá Norðmandíi til þess að hefta gleðskap ykkar og hegna ykkur fyrir yfirtroðslur laga og fyrirmæla reglu ykkar. Því bið jeg þig hjartanlega, að þú gætir þín sem best. Og þar sem faðir stúlkunnar, Gyðingurinn ríki, ísak frá Jórvík, hef- ur beðið mig um meðmælabrjef til þín, þá gef jeg honum það fúslega og ræð þjer til þess og bið þig um það, að þú takir við lausnargjaldi fyrir jung- frúna, enda mun hann ekki horfa í að borga þjer svo mikið, að þú getir fyrir það gjald hæglega fengið þjer fimtíu óspiltar meyjar, og vænti jeg þess þá, að fá hlutdeild í þeim gæð- um, er við næst hittumst eins og sann- ir bræður og njótum saman nokkurra yndisstunda við glas af góðu víni. Kveð jeg þig svo með þeirri ósk, að sú fagra stund renni sem fyrst upp. Ritað að morgni dags hjer i ræn- ingjabælinu. Ýmir, Pr. S. M. Jorvolciensis. Eftirskrift. Gullfesti þína heí jeg mist og hangir hún nú líklega um háls einhvers skógarræningjans, er þá not- ar hljóðpípuna, sem við hana var fest, til þess að kalla saman hunda sína«.

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.