Lögrétta - 17.01.1912, Síða 4
16
LOGRJETTA
Þilskipaábyrgðarfje-
lagið Tið Faxaflóa heldur aö-
alfund á Hótcl Reykjavík þriðjud.
6. febr. kl. 5 e. h.
Ársreikningar framlagðir. Skjrsla
gefin um hag fjelagsins. Kosinn 1
maður í stjórnina og 2 endurskoð-
Jeg undirskrifaður hef nú selt á fót skrifstofn fyrir
almenning, og verður hún fyrst um sinn í Austurstræti 3
(í húsi Hannesar Þorsteinssonnr). Tilgangurinn með þess-
ari skrifstofu er að veita almenningi iögfræðislegar leið-
beiningar, semja sáttakærur og rjettarstefnur, skrifa alls-
konar samninga, innheimta skuhlir fyrir kaupmenn og
aðra, flytja mál, mæta við fógeta- og uppboðsgerðir á
fasteignum og yfir höfuð að takast á hendur öll venjuleg
störf málaflutningsmanna, að undanteknum málaílutningi
fyrir yfirdómi.
Ennfremur tekur skrifstofan að sjer kaup, söiu og
raakaskifti á fasteignum hjer i bænum og úti um land,
svo og lántöknr i bönkunum hjer og opinberum sjóðum.
Ómakslaun fyrir ofangreind störf verða miklu lægri
hjá skrifstofunni en kostur hefur verið á áðar fyrir slík störf
Skrifstofan verður opin alla virka daga kl. 1—3 e. h.
og venjulega kl. 5—8 e. h.
Jón Sigurðsson
unarmenn.
Tryggvi fxunnarsgoN.
ígfjelagið vió Faxaflóa held
ur aðalfunð á „Hótel Reykjavík"
Þriðjudaginn 30. janúar kl. 5 síðd.
Ársreikningar fram lagðir, kosinn 1
maður í stjórnina og tveir endurskoð-
unarmenn.
Tryggvi Guimarggoii.
Haukur, heimiliiblað
með myndum, VII,
bindi, nr. 25.—27. ný-
útkomið.
Efni: Hjarta-ás. frásaga eftir H. Hansen,
með myndum (niðurlag). — Skrítlur um
nafnkunna menn. — Æfintýri Sherlock
Holmes, leynilögreglusögur eftir A Conan
Doyle: Smargaða-djásnið (frmb.). — Úr
öllnm áltum: Heimsfriðurinn, með mynd:
Friðargyðjan og Carnegie. — Urslit Mar-
okkómálsins, með 2 myndum: Kongó-Svert-
ingi með apa. Svetingjakonur í Kongó.
— Stjðrnarbyltingin í Kína, með 7 mynd-
um: Kína-tröllið vaknar. Ahyggjulausir
smáborgarar. Kína (afstöðu-uppdráttur).
Ljónið mikla. standmynd í Peking. Sendi-
herra-borgaradeildin í Peking. Marmara-
skipið á Lótusvatninu. Norðurálfan og
Kína (samanburðarmynd). — Standmynd
Alexanders II keisaara, með mynd. —
Trípólis-stríðið með 2 myndum: Skopmynd
af ítölum. Tundurakeyta-flugvjel. — G»fu-
skipið „Medina“, með mynd. — Heims-
stundaklukkan í Greenwich, með mynd.
Húseignir hjer í bænum
selur enginn með jafn-góðum borgunarskilmálum sem undirskrifaður,
þar sem borga má mestan hluta kaupverðsins á 20 árum, án ábyrgðar;
auk þess eru eignirnar seldar undir virðingarverði. Þetta ættu þeir að
nota, sem ætla sjer að kaupa hús, og sjerstaklega efnaminni menn, sem
á ofangreindan hátt geta eignast fasteign með ljettu móti, en væri það
ómögulegt með vanalegum borgunarskilmálum. Bráðum stíga eignir í verði
hjer í bænum, og þá er of seint að grípa þetta ágæta tækifæri. Finnið
mig því fljótt.
Jóh. Jóhannesson,
Laugaveg 10.
ínus
fína Vanille-súkkulaði
er hið næringarmesta og bragð-
besta
hreina, úrvals Cacaoðuft.
Fínast á bragð og drýgst í notkun.
Atvinna.
Nokkrar duglegar stúlkur —
lielst vanar fiskverkun — geta
fengið atvinnu. Nánari upplýs-
ingar gefur
Ingimundur Jóniiou,
Hollsgötu 5
eða L i v e r p o o 1.
Oddup Gíslason
yfirrjettarmálaflutningsmaður,
Laufásveg 22.
Venjul. heima kl. II —12 og 4—5.
Kappglima
um silfurskjöld glímufjel. »Ár-
manns« (hin 5ta), fer fram í »Iðnó«
fimtudaginn 1. febrúar næstk.
Allir þeir, er óska að taka þátt
í þessari kappglímu, verða að vera
búuir að gefa sig fram við ritara
fjelagsins hr. stud. med. Halldór
Hansen, Norðurstíg 5, fyrir 31.
|». m. (Nánar augtyst siðar).
Reykjavík 10. jan. 1912.
Áf hinu afarlága vcrði á vörum mínum
verður geflnn eftirfarandi afsláttur:
yillri álnavöru og nærfatnaði 10-20"|o,
karlmannafatnaði 25"|,„
ieirvðru 40°|o og „galanteri“-vöru 50°|o.
KomiÖ og sannfœrist sjálf.
Yirðingarfylst.
H, S, Hanson, Laugaveg 29,
Kopar-
standlampi,
nærri nýr, fæst nú keyptur
með tækifærisverði hjá
Jóh. Jóhannessyni,
Laugaveg 19.
Neðanmáls:
Fjalla-Eyvindur.
Eftir Jóhann Sigurjónsson.
Óskast keypt.
Eikarbuffet fremur gott,
en brúkað, óskast keypt nú
þegar. Verður borgað strax
með peningum.
Jóh. Jóhannesson,
Laugaveg 19.
4—5 lierbergT ósKast til
leigu 14. maí í Miðbænum, eða
nálægt honum. Tilboð, skrifað, send-
ist ritstj. Lögrjettu.
Ijljóíjærasláttur.
Undirritaðir taka að sjer að sjá
um hljóðfæraslátt (»Fiðla«, »IÍIa-
ver«) við dansleiki hjer í bænum
í vetur.
Til viðtals kl. 7—8 síðd, í Þing-
holtsstræti 7.
P. 0. Bernburg. Jón Ivarsson.
Athygli karlmannaima
Ieiðist að því, að við sendum til
allra 3V4 mtr. 135 cmtr. breitt, svart,
dökkblátt og grádröfnótt nýtýsku
fínullarefni í falleg og sterk föt fyrir
aðeins 14 kr. 50 au. Fataefnið send-
ist burðargjaldsfrítt með eftirkröfu,
og má skila því aftur, ef það er
ekki að óskum.
Thybo Mölles Klædefabrik,
Köbenhavn.
V|elritim.
Maður, sem hefur ritvjel um
tíma, tekur að sjer að vjelrita
heima hjá sjer fyrir mjög væga
borgun, hvert heldur er á íslensku,
dönsku, ensku, þýsku eða frönsku.
Ritstj. ávísar.
Námsskeið
í
bifvjelafræði.
Hinn 1. febrúar næstkomandi
byrjar námsskeið í stýrimanna-
skólanum fyrir þá menn, sem
vilja kynnast bifvjelafræði (mótor-
fræði). Kenslan verður á dönsku
og fer að mestu leyti íram í fyrir-
lestrum um byggingu og ásig-
komulagi hinna ýmsu bifvjela,
hirðingu þeirra, viðhald o. s. frv.
Þeir, sem vilja taka þátt í náms-
skeiðinu, tilkynni það undirrituð-
um forstöðumanni stýrimanna-
skólans fyrir 31. þ. m.
Reykjavik 12. jan. 1912.
Pdll Halldórsson.
Á líðaitl. hauiti var mjer
dregin ær 1 vetrar, sem jeg á ekki,
með mínu marki, sem er: geirstýft h.,
hálftaf a. st.fj. fr. v. Rjettur eigandi
getur vitjað kindarinnar til mín, gegn
borgun fyrir áfallinn kostnað.
Ráðagerði í Ásahreppi 10. jan. 1912.
Guðm. Jónsson.
GlímufjelagiÖ „Ármann“.
yilmeimur Junður
fyrir kvennkjósendur Reykjavíkur-
bæjar verður haidinn í Bárubúð
fóstudaginn /p. þ. mán. kl. 8lþ sídd.
Konur! Athugið hvort þjer stand-
ið á kjörskrá.
Fjölmennið á fundinn!
Kosninganefnd kvenna.
2 stúlkur
röskar og duglegar geta fengið vist
á Lauganesspítalanum frá 14. maí
næstk. með því að snúa sjer til
yfirhjúkrunarkonu, fröken H. Kjær.
yillskonar net
fást riðin og bætt á
LaiiganesiiHtalaiiuin.
Eggert Claessen
yfirrjettarmálaflutningsmaður.
PósthÚ88træti 17. Venjulega heima kl. 10—11
og 4—5. Tal8imi 16.
jpy Auglýsingum i „Lög-
rjettu“ tekur ritstjórinn við
eða prentsmiðjan.
46
kom þó til þess, að biðja þig að hjálpa
mjer að taka ofan pottinn.
Halla:
Ef þú hefur góðar glóðir, þá ætla jeg
að biðja þig að baka nokkrar flatbrauðs-
kökur — til sunnudagsins, — jeg bjó til
deighnoðu i dag.
Guðfinna:
Glóðirnar «ru sæmilegar (fer).
Halla
(hlustar, h«yrir fótatak í göngunum).
K á r i
(kemur inn).
Þú vildir finna mig.
Halla:
Þakka þjer fyrir veiðina. — Hvað seg-
irðu við því, að jeg lofaði hreppstjóran-
um, að þú skyldir glíma við hann í
haust við rjettirnar?
Kári:
Það kalla jeg miklar frjettir. Hann
hefur þó ekki komið hingað í þeim er-
indagjörðum ?
Halla:
Nei, — hann átti annað erindi.
47
Kári:
Mjer er ekki móti skapi, að reyna
mig við hreppstjórann. Hvernig 'atvik-
aðist það, að þú lofaðir honum glímunni?
Halla:
Þarf jeg að skýra þjer frá því ?
K á r i:
Jeg hefði gaman af að vita það.
Halla:
Jeg ætlaði ekki að segja þjer frá því.
Hann var að rógbera þig.
K á r i:
Hvað sagði hann?
Halla:
Þú vilt, að jeg segi þjer það. — Það
er nýkominn maður sunnan af landi.
Hann sá þig við kirkju á sunnudaginn
var. Hann sagði Birni, að þú líktist
manni, sem heitir Eyvindur, strokumað-
ur og dæmdur þjófur. Þú getur nærri,
að mjer stendur á sama, þó jeg heyri
aðra eins vitleysu. — Hann þóttist meira
að segja þekkja örið á enninu á þjer.
K á r i
(lágróma):
Trúði hreppstjórinn þessu?
48
Halla:
Hann bað mig að segja þjer, að hann
færi til sýslumannsins, — og svo ábyrgð-
ist hann, að þú flýðir hjeðan í nótt!
K á r i
(hlær hátt og annarlega):
Þetta er ekki til annars en hiæja
að þvíl
Halla
(horfir á hann):
Þú ert reiður, — jeg sje það á þjer.
Kári:
Veistu hvenær þeir koma og taka
þjófinn fastann?
Halla
(hefur starað á Kára, rjettir honum hendina);
Taktu í hendina á mjer, Kári, og segðu,
að þú þurfir engan að óttast.
Kári
(fer undan í flsemingi):
Jeg get skilið, að þjer þyki þetta kyn-
legt. En maðurinn, sem sá mig, hlýtur
að hata mig frá fornri tíð — og nú ætiar
hann að hefna sín.
Halia:
Mjer stendur á sama um hann og
hreppstjórann. Segðu, að þú sjert saklaus.
49
K á r i:
Þú trúir mjer ekki?
Halla
(kuldalega):
Jeg hef engann rjett til að krefja þig
reikningsskapar.
K á r i
(innilega):
Jeg þekki engan í viðri veröld, sem
mjer væri ljúfara, að trúa fyrir mfnum
einkamálum. En í þessari sök hef jeg
engu að trua þjer fyrir. Það er, eins
og jeg hef sagt, einhver gamall haturs-
maður minn.
H a 11 a:
Þú ert saklaus?
K á r i:
Já. — Af þessari sök er jeg saklaus.
Halla:
Guði_sje lof! (lcggur hendína á hjartað). Jeg
hef verið hræddari en mjer var af vitandi.
Mig sundlaði. Hefði það verið satt, —
jeg veit ekki hvernig jeg hefði afborið
það.
Kári:
Jeg skal muna hreppstjóranum þetta.
So
Halla:
Láttu hann óskapast eins og hann vill.
Hvað varðar 'okkur um hann. Jeg er
svo óumræðilega glöð af því jeg veit þú
ert saklaus. Jeg gæti kyst þig af gleði
(röddin ljómar). Kári 1 VÍltU giftast lTljer?
Kári
(agndcfa):
Nei, Halla — það get jeg ekki.
Halla
(starir á hann, gengur skyndilega fast að honum og
starir framan í hann):
Ertu giftur?
Kári:
Nei.
Halla:
Jeg hjelt ekki augun í þjer hefðu logið
í kvöld. Þú sagðir rjett áðan, að þú
þektir engan í víðri veröld, sem þjer
væri ijúfara að trúa fyrir þfnum einka-
málum (stappar af reiði og blygðun). FarðU frá
mjer (sest, byrgir andlitið — rser).
K á r i
(fólur);
•Augun í mjer hafa ekki iogið í kvöld
(stcndur grafkyr í ógurlegri geðshrœringu — gengnr
aftur og fram um pallinn). Jeg þekki Eyvind.