Lögrétta - 31.01.1912, Qupperneq 3
L0GRJETTA.
23
var gefin 26. maí 1910; hvorki meiri
nje minni en 5500 krónur.
Það mætti virðast fult svo greini-
leg áminning til annara, að minnast
heilsuhælisins á afmælisdegi sínum,
eins og þó einhver mælist til þess í
dagblaði, að aðrir gefi eftir efnum
og ástæðum 1 kr. eða 10.
Geir Zoega er því fyrsti hvata-
maðurinn — því að þessa rausnargjöf
gaf hann á 80. afmæli sínu 26 maí
1910.
En góðra gjalda vert er það, að
blöðin minni aðra á, að feta í hans
fótspor — eftir efnum og ástæðum.
J.
Símastöð.
Lögr. er skrifað úr Seyðisfirði í
f Isafjarðarsýslu:
»Það hefur flogið fyrir, að setja
ætti á stofn símastöð hjcr í Seyðis-
firði í Isafjarðarsýslu
Það er enginn vafi á því, að
stöðin er nauðsynleg, sje hún sett
á hcppilegan stað. Það er því áríð-
andi að hrapa ekki að stöðvarstofn-
un án þess að athuga, hvar stöðin
ntundi hæfilegast sett, þar sem
um marga staði er að velja; en
stöðin á að vera þar, sem flestir geta
notið hennar, eða sem næst miðri
sveit, þegar ekkert er þar til hindr-
unar.
Jeg hef heyrt, að bóndinn að Kleif-
um í Seyðisfirði hafi með einhverju
móti náð þeim tökum á hreppsnefnd-
inni hjer, að hún mæli með stöð á
heimili hans; en Kleifar eru afskekt-
asti bær hjer í sveit, og símastöð
þar gæti alls ekki orðið okkur fjarð-
arbúum að tilætluðum notum.
Með línum þessum vildi jeg benda
símastjórn landsins á, að hrapa ekki
að stöðvarstofnun hjer í Seyðisfirði
án þess, að athugaðir sjeu aðrir staðir
en Kleifar, enda þótt bóndinn þar
hafi náð í meðmæli hreppsnefndar-
innar, sem þó nú mun vera farin
að sjá sig um hönd í því máli.
Jeg hef lítilfjörlega átt tal um
þetta við hr. Smith verkfræðing, og
Ijet hann það í ljósi við mig, að
Kleifar væru einhver óheppilegasti
staður til símastöðvar hjer við fjörð-
inn. A«.
'tferfimannafiðt.
Efni í þau er nú nýkomið, afar-haldgott. — Olíufötin
og Nærfötin alþektu og Færeyjapeysurnar
koma bráðlega í
Austurstræti 1. Asg. G. Gunnlaugsson S>‘ Co.
jVI. Tli. Blöndalil ojf Völ-
undur. 10,474 kr. 95 au. sagði
Lögr. í síðasta tbl. að M. Th. Bl.
hefði sætst upp á að borga Völ-
undi. Jóh. Jóhannesson kaupm.
segir þá upphæð ekki rjetta í Isaf.
á laugardaginn. En tölurnar í
Lögr. eru teknar eftir bókum Völ-
undarfjelagsins. Að þeim bókum
hafa allir hluthafar fjelagsins að-
gang, svo að það var fásinna að
hugsa sjer, að þær gætu orðið
nokkur leyndardómur. Lögr. er
sagt af mönnum í fjelaginu, sem
bækurnar hafa skoðað, að skuldin
borgist þannig: 6000 kr. í verð-
brjefum, 2000 kr. í peningum og
hitt í húseign hjer í bænuni, sem
virt er á 2474 kr. 95 au.
Jóh. Jóhannesson kaupmaður
gerði samningana fyrir Völundar
hönd, og segir hann í ísaf., að
málið hefði orðið erfitt og um-
fangsmikið, ef það hefði íarið fyrir
dómstólana og tvísýnt, hver sigra
mundi. En nú segist hann hafa
jafnað málið svo, að báðir máls-
partar sjeu ánægðir, eftir kring-
umstæðum. Þó verður ekki bet-
ur sjeð af greininni en hann telji
hr. M. Th. Bl. það fremur en hitt
til vansæmdar, að kunnugt verði,
að hann hafi borgað skuldina.
En Lögr. telur það, þvert á móti,
sóma hverjum manni, að borga
skuldir sinar.
til
Laust prestakall. Tjörn á Vatns-
nesi í Húnavatnsprófastsdæmi, Tjarn-
ar- og Vesturhópshóla-sóknir.
Prestssetrið Tjörn er metið í heima-
tekjum 90 kr. Eftirstöðvar jarða-
bótaláns, er tekið var 1906 í Lands-
banka, 70 kr., er falla í gjalddaga
30. sept. 1912. Veitist frá fardögum
1912. Umsóknarfrestur til 15. mars
1912.
Frá Blönduósi er skrifað: „Tíðin
hagstæð til landsins. Ekki farið að
kenna lömbum át í Svínadal eða í
Ásum eða á Skagaströndinni. Ógæftir
á sjó og fiskileysi, enda fáir sem
gefa sig að sjó. Pólitiskt logn eftir
kosningarnar. Deyfð mikil og fjör-
leysi í ungum sem gömlum. Engin
umferð nema vanalegt kaupstaðar-
flakk og svo prestarnir, sem ýmist
eru að vita um, hvort nokkrir vilji
hlýða messu hjá þeim eða þá að
húsvitja, þó ýmsum þyki það úreltur
siður; læknir situr mest heima, því
heilbrigði er góð, og ekki þarf sýslu-
maðurinn að ríða um hjerað til að
líta eftir þjófunum, því þeir passa sig
sjálfir. Þegar nú ofan á alt bætist,
að stöðin er lokuð, þá er ekki unt
að daufara geti orðið. A kvenna-
skólanum teljast 15 nemendur og á
matreiðslunámsskeiði, er haldið var
hjer þessa daga, voru IO nemendur.
Ef einhver giftir sig, þá gerir hann
það heima hjá sjer, svo enginn veit
neitt um það. . .“
Takmarkað lækningaleyfl hefur,
samkv. lögum frá sfðasta alþingi,
vetið veitt Ólafi ísleifssyni dbrm. í
Þjórsártúni.
Yfirflskiniatsmaður á Isaflrði
var skipaður 15. þ. m. Árni Gíslason.
Mokafli var sagður við ísafjarðar-
djúp um sfðastl. helgi. Sama var
sagt frá Vestmannaeyjum.
Lausn frá embætti hefur sr. Björn
Stefansson á Tjörn á Vatnsnesi feng-
ið, samkv. beiðni.
Þýsku kosningariiar. Sím-
að er frá Khöfn 27. þ. m., að
stjórnarflokkurinri fyrv. haíibeðið
ósigur við þingkosningarnar. Jafn-
aðarmenn hafi fengið 110 þing-
sæti.
Enskt lagfafruinvarp 11 m
sjúkrasamlög', sem er merki-
legt og vakið hefur mikið umtal, er
nýkomið í gegn um neðri málstof-
una. Það er innanríkisráðherrann,
Lloyd Georges, sem er höfundur þess
og barist hefur fyrir að koma því
fram. Frumvarpið skyldar alla verka-
menn, er hafa undir 160 pd. sterl. í
árstekjur, til þess að kaupa sjúk-
dómstrygging, og nær þetta til 15
miljóna manna, að sögn. Lögin úti-
loka börn, undir 16 ára aldri, og
fólk, sem komið er yfir sjötugt, því
þá taka ellistyrktarlögin við. í sam
lagssjóðinn leggur verkmaðurinn sjalf
ur fram 4/9 hluta gjaldsins (konur 3/9)
verkveitandi 3/9 og ríkið 2/9 hluta
en þar að auki leggur ríkið fram ó
keypis læknishjalp og meðöl.
Síðustu ritsmíðar Björns Jóns-
sonar fyrv. ráðherra eru greinar,
sem ísaf. er nú að flytja um mál-
fræði, mælingafræði o. fl., ogvekja
þær mikla athygli meðal annara
fróðleiksmanna í þeim vísindagrein-
um. Hann mældi herbergisgólf sitt
í Vinaminni og reyndist það, eftir
frásögn hans, 6 ferálnir. Rúmtak
íbúðarhúss síns hefur liann líka
mælt og er það tæplega tunnurúm,
eftir reikningi hans.
Til þess að sýna fram á heimsku
og smekkleysi almennings í orða-
vali, getur hann sjer til, að fletti-
sögin muni bráðum verða kölluð
»rófuskott«, og finnur hann það
með vísindalegri tilgátuspeki.
Felix Dnlin, þýski rithöfund-
urinn og skaldið, cr nýlega dáinn,
77 ára gamali. Eftir hann liggur
fjöldi merkilegra rita, bæði skaldrit
og vísindarit um forngermanska
menningu. Hann var prófessor við
háskólann í Breslau.
„ J ólaharpa64
heitir ofurlítil söngbók, sem Jónas
Jónsson þinghússvörður gefur út. Eitt
hefti af henni kemur um hver jól og
eru nú komir. þrjú hefti.
Jónas fjekk styrk af landsjóði á
síðasta þingi til þess að rita um ís-
ienskan kirkjusöng á liðnum öldum.
Þá sagði söngfróðasti maður þingsins,
að enginn mundi vera hjer á landi
jaínfróður Jónasi í sögu sönglistarinn-
ar og enginn eiga jafn fjölskrúðugt
safn í þeirri grein sem hann.
„Jólaharpan" hefur að færa gömul
og fögur kirkjulög, sett fyrir ósam-
kynja raddir og einnig vel fallin fyrir
orgel og harmóníum. Hvert lagið
er öðru fallegra í heftunum og sýnir
Jónas smekkvísi í valinu. P'urða er,
að ekki skuli vera tekið að nota
suma söngvana fyrir jólasöngva í
kirkjum hjer eins og t. d. »Nú hringd
er jólahátið inn« (Michael Haydn),
»Lofgjörð« (Beethoven) og »Upp til
himins horf þú, maður« (Gluck), öll
í öðru heftinu. í öllum heftunumeru
kórsöngvar eftir mestu snillinga söng-
listarinnar og liklega flestir með
raddsetningu þeirra sjalfra.
Þau ljóð, sem ómerkt eru undir
lögunum, munu vera eftir Jónas sjálf-
an og eru þau öll lagleg.
A kápunum eru fróðlegar upplýs-
ingar um fræg • tónskáld og söngfræð-
inga.
Þessi bók er eitt af því, sem alt
of lftill gaumur er gefin. Hvergi
minnist jeg að hafa sjeð ritað um
hana Hún hefur þó að geyma ýmis-
legt af því fegursta, sem út hefur
verið gefið á íslensku í sönglist, og
ánægja hlýtur það að verða hverj-
um, sem hljóðfæri á, að kynnasthenni.
Jónas á mestu þakkir skilið fyrir
hana.
G. M.
Bruni í Viðey.
Síðastl. sunnudagskvöld kom
upp eldur í fiskþurkhúsinu i Yið-
ey. Það var kl. 8V2, og brann
húsið að grunni á 2 kl.timum.
Einnig brunnu 2geymsluhús, sem
voru áföst við það. Um 300skp.
af fiski brunnu. Alt var vátrygt,
en eigendur biðu þó fjártjón við
brunann, að sögn.
Húsin verða reist aftur svo fljótt
sem unt er.
Húpasvoit er skrifað 22.
des.: „Hjeðan eru engar frjettir,
nema mjög góða tíð, svo elstu menn
muna varla aðra eins; hafa hjerverið
sífeldar þíður, en nú litið frost og
snjóföl, svo betra verði fyrir fólkið
að ljetta sjer upp um hátíðarnar.
Sjerstaklega mun unga fólkið nota
það til að koma saman og dansa og
leika sjer. Hið eldra situr heima,
því nú eru messuíerðirMagðar mjög
niður hjer sem víðar, og þegar svo
61
J ó n:
Þetta vissi jeg, maður lifandi.
Halla:
Setjið ykkur niður, — konurnar geta
tylt sjer á reiðtýgin. (Þau setjast).
J ó n
(tekur brennivínsflösku upp úr vasanum):
Er leyfilegt að fá|sjer hressingu?
H a 11 a :
Ekki meina jeg það.
J ón:
Ef jeK ekki ætti aðra eins díemalausa
konu og jeg á, væri jeg löngu búinn að
biðja þín (sýpur). Látið þið pytlana ganga.
H a 11 a
(við konu Jóns):
Maðurinn þinn er í góðu skapi.
Kona Jóns
(hlær):
1 dag elskar hann alt —dautt oglifandi.
1. b ó n d i:
Þakka þjer fyrir mig.
J ó n:
Je8 gleymi þjer ekki, Arngrímur (rjetiir
honum flöskuna).
er komið, verður mönnum ósjálfrátt
að spyrjn: til hvers eru prestarnir?
Ef þeir geta ekki vakið söfnuði sína
til einhvers góðs fjelagslífs, safnað
þeim saman frekar cn dreifa þeim
sundur, þá virðist umhugsunarefni,
hvort eigi ætti að breyta eitthvað til
frá því sem nú er. Og nokkuð virð
ist það hart og ósanngjart, efkirkju-
stjórn vor ætlar nú að láta prest okk-
ar taka við Skinnastaðaprestakalli í
óþökk mikils meiri hluta sóknar-
manna.
Pólitíkin er ekki nefnd á nafn síð
an um kosningar í haust. Illa tókst
okkur með þær, að við skyldum ekki
geta borið gæfu til að senda heldur
Steingrím sýslumann á þing en Bene-
dikt, og þó er áreiðanlegt, að Stein-
grímur hafði meira fylgi í kjördæm-
inu; það, að hann komst eigi að,
var aðeins því að kenna, að menn
hans sótlu eigi kjörþingin, t. d. hjer
í hrepnum sátu 10 kjósendur heima,
sem flestir voru mann Steingríms,
þar af voru tveir veikir; en menn
Benedikts smöluðu öllum sínum mönn-
um og jafnvel sagt, að einn hafi ver-
ið fluttur veikur á kjörfund. En svo
er hitt þó betra, að þó okkur Norð-
ur-Þingeyingum tækist svona illa með
þingkosninguna, þá hafa þó kosn-
ingarnar yfirleitt tekist mjög vel, og
ekki er hægt að neita því, að heil-
brigð stjórnmálaskoðun er að ryðja
sjer til rúms áftur og þjóðin að sjá
betur, hvað hún á að gera. Flestir
„Sjálfstæðis“menn eru kosnir með
mjög litlum atkvæðamun — hef eigi
heyrt um atkvæði Skúla og Þorleifs —
en margir Heimastjórnarmenn með
mjög miklum meiri hluta.
Hús handa lækninum okkar eru
hjeraðsbúar nýbúnir að byggja. Það
er lítið timburhús með steyptum
kjallara, einly.ft og kvistur á því.
Læknirinn er nú fluttur í það og geðj-
ast vel að því, enda er það vel gert,
og ósk okkar er það, að hann flytti
eigi úr því aftur, því hjeraðsbúar
eiga víst engan mann, sem öllum
þykir jafn vænt um og Guðmund
lækni.
Taugaveiki gengur á einum bæ í
Kelduhverfinu og er ein kona látin
úr henni og fjögur systkinin liggja.
Kona þessi hjet Kristjana Kristjáns-
dóttir, greind kona og vel látin".
Ilvorkl Ólafur Björnsson
ritstj., nje M. Stepliensen
verslunarm. Guðm. landlæknir
þakkar Ólafi Björnssyni fyrir uppá-
stunguna um að gefa heilsuhælinu á
Vífilsstöðum afmælisdagsgjafir.
Ólafur vill ekki eiga þann heiður
og segir verslunarmann M. Stephen-
sen betur að honum kominn; hann
sje maðurinn.
Litlu máli skiftir þetta að vísu, en
hvorugum þessara manna vil jeg eigna
þann heiður, að vera fyrsti hvata-
maður þess, að farið er að gefa
heilsuhælinu afmælisgjafir,
Fyrsti hvatamaðurinn er sá, sem
fyrstur gaf. Og fyrsta afmælisgjöfin
62
Arngrímur:
Blóðið kólnar með aldrinum, og þá er
gott að hafa hitann úr flöskunni (sýpur).
Halla
(rjettir Jóni hákarlinn):
Gjörðu svo vel.
Jón:
Jeg fæ vatn í munninn, blessuð vertu
(tekur hníf upp ur vasa sínum og sker vaenan bita).
Hvítur eins og mjólk — og ilmandi. Jeg
segi að hákarl og brennivín sje það
besta, sem guð hefur skapað — næst á
eftir konunum.
(Bændurnir staupa sig og gæða sjer á hákarlinum).
Halla
(gefur telpunum kandísmola):
Hafa litlu táturnar farið á rjett fyrri?
Bóndakonan:
Nei, þetta er í fyrsta skifti. Jeg lofaði
þeim í vor, ef þær yrðu duglegar í sumar,
skyldu þær fá að fara á rjett, og þær
hafa unnið til þess, litlu skinnin. Það
er ótrúlegt hvað þær geta gjört mikið
gagn, ekki eldri.
H a 11 a:
Þið sáuð seinasta hópinn — hann var
stór.
63
Kona Jóns:
Já, hann var stór.
Jón:
Mórauði forustusauðurinn minn var
fremstur í hópnum. Hann er annars
ekki vanur, að láta taka sig, fyr en í
síðustu göngu, nema þegar hann veit á
ilt veður.
1. b ó n d i:
Það væri ekki að undra, þó veturinn
gengi snemma í garð, eftir þetta inndælis
sumar.
2. b ó n d i:
Guð veit hvernig heimturnar verða.
Þið mumð eftir kuldakastinu, sem kom
1 vor, þegar búið var að reka á fjall.
Jeg er hræddur um eitthvað af lömbun-
um hafi króknað.
1. bóndi:
Og svo eru bölvaðir refirnir.
Jón:
Hvað eru refirnir á við mennina —
bæði suma í sveitinni og þá, sem búa
uppi á fjöllum.
2. b ó n d i:
Jeg held enginn búi uppi á fjöllum,
að minsta kosti ekki hjer um slóðir.
64
J ó n:
Svo það heldurðu. Jeg skal segja þjer,
karl minn, að það eru til fleiri útilegu-
menn en þig grunar. Jeg kenni það
eingöngu hegningarlögunum. Væri jeg
yfirvald, ljeti jeg vægðarlaust hengja alla
þjófa.
2. bó n d i:
Þá er jeg annarar skoðunar. Það er
að gjöra skepnunum of hátt undir höfði,
að dæma mann í æfilangt fangelsi, þó
hann steli tveimur — þremur kindum.
Jón:
Þú þarft alt af að vera á annari skoðun
en aðrir menn.
2. b ó n d i:
Ekki veit jeg það. En þeim, sem flýja
upp til fjalla, er það neyðarúrræði. Jeg
ímynda mjer engir útilegumenn væru
til, ef lögin væru vægari. Hvað segir
þú, Arngrímur.
Arngrímur:
Væri hugrenningum hegnt, fyltust
tjöllin af útilegumönnum,
H alla:
Það er of bjart til að tala um þjófa
65
(víð jón). Getur þú ekki sagt okkur eitt-
hvað skemtilegt.
Kona Jóns:
Segðu frá kálfinum okkar.
Jó n
(hlær) i
Já, þegar hann sá sólina í fyrsta sinní
á æfinni, datt hann á rassinn af undrun.
(Aines kemur slompaður inn). Þarna kemUl'
maður, sem kann að segja sögur.
A r n e s:
Sælt veri fólkið. Þið viljið heyra sögu.
Viljið þið koma í hnffakaup (tekur hníf upp
úr vasanum). Þið skulið fá að sjá hlýrana.
Jón:
Hver heldurðu vilji koma í hnífakaup
við þig. Sestu niður. Þú skalt fá í
staupinu, ef þú segir okkur sögu — en
hún verður að vera mergjuð.
A r n e s:
Rjettu mjer pelann (sýpur). Jeg gæti
sagt ykkur draugasögur, svo ykkur rynni
kalt vatn milli skinns og hörunds. En
þær eru bestar í rökkrinu. Blessaðar
stúlkurnar verða ekki eins styggar við