Lögrétta - 21.02.1912, Page 1
Afgreiðslu- og innheimtum.:
ARINBI. SVEINBJARNARSON.
I .ftogavfiK 41.
Talsimi 74.
Ritstjóri:
fORSTEINN GÍSLASON
Pingholtsstreti 17.
Talsimi 178.
M O.
Reykjavík 21. febrúar 1Í>1S
VII. árjf.
Nýjasta stórvirki heimsins.
Svo er járnbraut sú kölluð, sem Ameríkumenn hafa nýlega bygt
frá Flóridaskaganum og yfir á eyna Key West í Karaíbiska hafinu.
Annars er hún alment neínd Amfibium-járnbrautin. Vagnlestirnar
renna þar út á stórar gufuferjur, sem ílytja þær yfir til Havanna
á Kúbu.
Járnbraut þessi er um 35 enskar milur á lengd og lögð yfir haf.
Milli Ivey West og Flórída er röð aí kórallarifjum og eru þau stöpl-
arnir undir brautinni. Alls eru þau 47. En milli þeirra er ýmist
fylt upp, eða þá bygðar brýr, og þar á er lögð undirstaða járnbraut-
arinnar. Lengsta brúin er 2*/a ensk mila. Dýpt hafsins undir braut-
inni er mjög mismunandi, minst 1 íet, en mest 40 fet. Fyrirtækið
hefur verið mjög dýrt, sumir segja um 150 þús kr. á hverja enska
mílu til jafnaðar. Brautin var hátíðlega vigð í janúar í vetur, og var
Taft forseti þar við staddur.
Hjer á myndinni sjest: 1. brautarlestin á ferð til Key West; 2.
lengsta brúin; 3. uppfylling; 4. brautarferjan.
Stór útsala.
# Allskonar vefnaðarvara verður seld með afar- ^
^ lágu verði. Einnig f ntnaöiii*, slíó-
fatnadnr, hálslíu o. fl. ^
® ÍO—40°/o Jiísílút tm*.
®
^ Areiðanlega bezla úlsöluverð i bœnum. ^
©
§ Nturla .lóii.sson. ^
Luugaveg 1. ^
a. o. o. f. 932239.
Þjóðmenjasafnið opið sunnud., þriðjud. og
fimtud. kl. 12—2.
Lækning ók. f læknask. þrd. og fsd. 12—i.
Tannlækning ók. (í Pólthússtr. 14) 1. og 3.
md. í mán. 11—1.
Landakotsspftali opinn f. sjúkravitj. io'/»
—12 og 4—5.
íslands banki opinn 10—21/. og 5V» 7-
Landsbankinn io1/.—21/.. Bnksti. við 12 1.
Lagadeild háskolans ók. leiðbeimng 1.
og 3. ld. f mán. 7—8 e. m.
Landsbókasafnið opið hv. virkan dag kl.
12—3 og 5—8.
Heilsuhælið opið til heimsokna 12—1.
Lárus Fjeldsted,
YflrrJettarmiUf»rslumsður.
Lækjargata 2.
Heima kl. 1 1-12 og 4-5.
cFunóur í „Gbram"
verður haldinn í Goodtemplara-
húsinu næstk. laugardagskvöld
(24. fehr.) kl. 8^/2 e. h.
Mikilsvar ðandi flokksmál.
Áríðandi að sem flestir fjelags-
menn mæti.
Kínabyltingin.
Simað er frá Khöfn 16. þ. m.:
»Kínakeisari hefur nú opinber-
lega afsalað sjer völdum og Sun-
Yat-Sen hetur dregið sig i hlje.
Þjóðfundur hefur kjörið Juan-Shi-
Kai forseta og krafist jafnframt
að Nanking verði framvegis höf-
uðstaður ríkisins«.
Á undan þessu höfðu gengið
mildar viðsjár, með því að ætt-
menn keisarans ýmsir voru mjög
á móti valdaafsalinu. Juan-Shi-
Kai þykir í öllu þessu þjarki hafa
komið fram sem afburða samn-
ingamaður.
Nanking er gamall höfuðstað-
ur Kínaveldis. Peking varð það
eigi íyr en í lok 14. aldar.
Ráðaneytaskijti í jloregi.
Símað er frá Khöfn 16. þ. m.:
»Konowsráðaneytið fallið. Bratlie
falið að mynda nýtt ráðaneyti«.
Bratlie.
Bratlie er foringi hægrimanna.
Siðustu útlend blöð geia um ræðu,
sem Konow flutti nýlega i þing-
inu og vakti kur gegn honum.
Hann talaði þar málþjarksmönn-
um í vil, en um »málþjarkið« er
nú hiti mikill, eins og oft áður.
Þetta hefur að líkindum flý-tt fyrir
falli hans.
llermálaráðlieTTð Breta í
Bopiín. Símað er frá Khöfn 16.
þ. m., að Haldane, herniálaráð-
herra Breta, sje í mjög mikilvægri
stjórnmálasendiför í Berlín og, að
mjög sje talað um samdrátt milíi
Breta og Þjóðverja út af þessu.
Herman Bang.
Fregnin um lát hans hefur áð-
ur borist með símskeyti Hann
andaðist í bænum Ogden í Utah
i Bandaríkjunum 29. janúar.
Charles Dickens.
Hinn heimsfrægi enski skáld-
sagnahöfundur C. Dickens átti 100
ára afmæli 7. þ. m. og var þess
auðvitað minst með mikilli við-
höfn. Helstu sögur hans, svo sem
»Pickwick Klubburinn«, »David
Copperfield« og »OIiver T\vist« eru
þektar um allan hinn mentaða
heim. Af þessum stærri sögum
hans er að eins »01iver Twist«
þýdd á íslensku og er sú saga ein
af þeim bókum, sem Lögr. hefur
útbýtt meðal kaupenda sinna.
Aðalfuudur íifjelaitsiui
við Faxaflóa var haldinn 30.
f. m. Fundarstjóri var prófessor
Eiríkur Briem.
Formaður fjelagsins, Tr. Gunn-
arsson, skýrði frá störfum fjelags-
ins. Það hafði selt næstl. ár (1911):
Kjöt 156,000 pd., rjúpur og aðr-
ir fuglar 1550, lax og silungur
5800 pd., heilagfiski 6900 pd , isa
30,000 pd., 15,300 pd., ís 400 smá-
lestir.
Þess utan var fryst og geymd
síld, fyrir aðra, fyrir 3000 kr.
Tekjur fjelagsins á árinu voru
19,500 kr, en útgjöldin 13,500, svo
ágóðinn varð 6000 kr., og þar af
leiðandi var samþykt að greiða
hluthöfum 20°/o af inneign þeirra.
— í fyrra var greitt 15%. — Fje-
lagið á stóran varasjóð og hús-
eignir skuldlausar.
Upphaflega var ísfjelagið stofu-
að árið 1894 til að frysta og geyma
sild til fiskheitu, en síðan eru
bygð tvö önnur íshús í Beykja-
vík í sama tilgangi. Fjelagið fryst- i
ir því minna af síld en áður, fyrir
eiginn reikning,enmeira fyrir aðra.
Fftir lögum fjelagsins gekk
konsúll Jes Zimsen úr stjórninni,
en var endurkosinn, og sömu-
leiðis voru tveir endurskoðunar-
menn endurkosnir.
Þótt hlutabrjef fjelagsmanna
sjeu arðsöm eign, má telja ekki
minna vert það hagræði, sem bæj-
arbúar hafa af íshúsinu. Þar geta
þeir fengið nýtt kjöt allan vetur-
inn, og þar fá útgerðarmenn skip-
anna sildarbeitu yfir útgerðartím-
ann, þangað til nýja síldin fer að
veiðast á vorin, svo ekki er hægt
að meta til verðs þann aflaauka,
sem fæst fyrir síldarbeituna.
Ábyrg ðarfjelaif þilskipa
við Faxaíióa hjelt aðalfund 6.
þ. m. Formaður fjelagsins, Tr.
Gunnarsson, skýrði frá liag fje-
lagsins næstliðið ár (1911). í á-
byrgð fjelagsins eru 41 þilskip,
virt á 722,000 kr., en vátrygð fyrir
530.700 kr., þvi eigendur hafa í
sjálfsábyrgð lU skipanna eftir lög-
um fjelagsins.
Tekjur fjelagsins voru yfir árið
20.700 kr., en þar af gengu 7300
kr. til Samábyrgðarinnar, er tekið
hafði að sjer endurtrygging á
helming skipanna gegn algerðu
skiptapi.
Árið 1911 var happaár fyrir
fjelagið, enginn algerður skiptapi
varð, en smáskemdir urðu á 6
sldpum, sem var bætt fyrir með
2950 kr., og frá f. á. var bætt fyrir
2 skip 2000 kr.
í fastasjóð fjelagsins gengu 8700
kr. og i sjereignasjóð fjelagsmanna
4700 kr., sem nú á í sjóði 20,600
kr., eftir að búið var að skiita úr
honum 31,700 kr. íyrir strand
gufubátsins Beykjavík, sem mál
reis út af, ennþá ódæmt af hæsta-
rjetti.
Síðustu þrjú árin hefur verið
kostað svo skiftir 100,000 kr. til
viðgerðar skipanna hjá Slippfje-
laginu í Reykjavík, svo nú erskipa-
flotinn í ágætu standi.
Sú breyting var gerð á lögun-
um, að fjelagið skyldi taka þil-
skipin í ábyrgð til fiskiveiða frá
1. fehr., sem áður var 11. fehr.
Jón Jónsson skipstjóri í Mels-
húsum var endurkosinn í stjórn
fjelagsins, og endurskoðunarmenn
voru kosnir verslunarstjóri Þórð-
ur Bjarnason og Jón Laxdal. Til
að virða skípin og eftirlita þau
voru kosnir þrír menn og aðrir
þrir til vara.
Reykj avík.
Bæjarstjórnin. Fundur 15. febr.
Þessar nefndir kosnar:
Fjárhagsnefnd: Halldór Jónsson, L,
H. Bjarnason.
Fasteignanefnd: Arinbj. Sveinbjarn-
arson, Kn. Zimsen.
Fátækranefnd: Katón Magnússon,
Kr. Ó. Þorgrímsson, Pjetur G. Guð-
mundsson, Guðrún Lárusdóttir.
Byggingarnefnd: Kn. Zimsen, Þorv.
Þorvarðsson, Rögnv. Ólafsson, Sigv.
Bjarnason.
Veganefnd: Jón Þorláksson, K1
Jónsson, Kr. Ó. Þorgrímsson, Tr.
Gunnarsson.
Brunamálanefnd: Arinbj. Svein-
bjarnarson, Jón Þorláksson, Hannes
Hafliðason.
Skattanefnd: Halldór Jónsson, Kl.
Jónsson.
Heilbrigðisnefnd: Sv. Björnsson.
Stjórn Fiskimannasjóðs: Tr. Gunn-
arsson.
Vatnsnefnd: Þorv. Þorvarðsson, L.
H. Bjarnason.
Gasnefnd: Borgarstjóri, Kn. Zim-
sen, P. A. Guðmundsson, Jón Jens-
son, Kl. Jónsson.
Frestað að kjósa hafnarnefnd.
Kosnir skrifarar bæjarstjórnar: Hall-
dór Jónsson, Kn. Zimsen.
Samþ. að bæjarstjórn tæki að sjer
hreinsun salerna í bænum, svo fljótt
sem því verður við komið, og nefnd-
inni, sem haft hafði málið til athug-
unar, falið að leita samninga við þá,
er kynnu að vilja taka að sjer verkið,
og koma siðan fram með tillögur
um, hvert endurgjald húseigendur
skuli greiða.
Lagðir fram reikningar Sjúkrahúss-
fjel. Rvíkur, Biómsveigasjóðs Þ. Sv.
og Sjúkrasjóðs hins fsl. kvenfjelags.
Endurskoðendur þeirra kosair: H.
Jónssön, Jón Jensson.
Alþingiskjörskrá lögð fram og kosn-
ir til þess að taka á móti kærum og
gera tillögur um þær: H. Jónsson,
J. Jensson.
Ut af brjefi verkfræðings N. C.
Monbergs í Khöfn til borgarstjóra
dags. 25. f. m. samþ. að tilkynna
N. C. Monberg, að bæjarstjórnin taki
á móti tilboði í hafnargerðina frá
honum með þeim breytingum frá
hinni fyrirliggjandi áætlun, er hann
telur æskilegar, enda þótt þær breyt-
ingar sjeu svo verulegar, að telja
megi að hans hafnargerðarfyrirkomu*
lag sje alt annað en hið fyrirliggjandi.
Þessar brunabótavirðingar samþ.:
Hús H Hannessonar í Bankastr.
3410 kr , hús J. Sigurðssonar, Lauga-
veg 899 kr, hús frú C. Jónassen,
Þingh.str 7365 kr.
Lftiidshankiim. Það er svo að
heyra á ísaf. á langard., að henni
þyki það aðfinsluvert að Lögr.
skyldi skýra frá úrskurði stjórn-
arráðsins um ransóknarstarfið
nýja i Landsbankanum. En þó
það sje rjett, sem blaðið segir, að
nýjar ákærur sjeu komnar frá
bankástjórunum, sem stjórnarráð-
ið hefur enn eigi svarað, þá er
ransóknin, sem í upphafi var
stofnað til, á enda kljáð. Nýjar
og nýjar ransóknir er auðvitað
altaf hægt að heimta og segja svo,
að málið sje ekki til lykta leitt.
Misprentað var í síðasta blaði
nain foringjans á »Fálkanum«;
hann heitir Scheel.
Ósannindarugl flytur ísaf. á
laugard. um bæjarstjörnarkosn-
ingarnar siðustu, eftir O. N. Þor-
láksson, og þykist maður þessi
þar vera að leiðrjelta Lögr. Fn
nær ekkert af því, sem hann er
að rembast við að mótmæla og
segir að í Lögr. standi, hefur
nokkru sinni þar staðið, og er
því grein hans hull, sem engra
svara er vert.
Hljóðfæraflokkur, sem O. Jo-
hansen fiðluleikari hefur æft og
stjórnar, skemti gestum á »Hótel
ísland« nokkur kvöld í siðastl.
viku.
Josopli Lister dáimi. Lát
hans er símað frá Khöfn 16. þ. m.
Hann var einhver frægasti læknir
heimsins og má heita faðir skurð-
lækninga vorra tíma, fæddur 1827.
Dáin er nýlega á lsafirði frú
Þórunn Jónsdóttir, kona Þorvald-
ar Jónssonar áður læknis þar, en
nú bankaútbússtjóra, góð kona
og vel gefin; hafði lengi verið
heilsulaus.