Lögrétta - 08.05.1912, Síða 4
98
LÖGRJETT A
Jírni SáríKsson,
Austurstræti 6.
Nýkomið með »Skálholt« og »Sterling« geysistórt úrval af ltjóla-
og sviintutaunm, af öllu verði og litum. Þar á meðal mikið af
morgunkjólaiaui og fermiugarkjólataui.
Ennfremur: Dagtreyjutau, lífefni, tilsniðin, á 1,75 og 1,90.
SfjCjlf0 Þetta þurfa allir að skoða,
Best að koma i tíma.
Reykjavík.
Frá útlömlum eru nýkomin: E.
Glaessen yfirrjettarmálafl.m. og frú
hans, frú f*. Jónassen, Einar Her-
mannsson prentari, dr. Helgi Pjet-
urss, frú Valgerður Benediktsson,
G. Egilsen fyrv. ritstjóri, L. Kaaber
kaupm., frk. Júlíana Sveinsdóttir
málari o. fl.
Frá Winnipeg er nýkominn hing-
að Jón Finnbogason kaupmaður
og frú hans, og setjast þau hjer að.
Hr. J. F. hefur verið nokkur ár
vestra og í-ekið þar verslun, en áð-
ur hann fór vestur var hann síðast
kaupmaður á Reyðarfirði.
Nýr íslenskur málari. Frk. Júlí-
ana Sveinsdóttir, dóttir Sveins Jóns-
sonar trjesmíðameistara hjer í bæn-
um, var í vor tekin inn i »Kunst-
akademíið« í Khöfn. Hún lærir
þar listamálverk. Undirbúningsnám
hefur hún fengið í Khöfn síðastl.
þrjá vetur. Hún kom heim hing-
að með »Sterling« í fyrra dag og
dvelur lijer lieima í sumar.
Málaferli. Síðastl. mánudagvar
dæmt í yfirrjetti mál Páls Einars-
sonar borgarstjóra gegn L. H.Bjarna-
son prófessor út af meiðyrðum í
grein hjer í blaðinu síðastl. sumar.
Undirrjettardómur var staðfestur
(40 kr. sekt auk málskostnaðar).
Veðrið er stöðugt gott. Þó svalt
og þurt undanfarna daga, þar til í
gær; þá hlýnaði og rigndi lítið eitt.
MálverkaKSýning hefur Ásgr. Jóns-
son málari nú opna daglega, eins
og auglýst er á öðrum stað hjer í
blaðinu. Verður hennar nánar
getið síðar.
Skólar. Úr verslunarskólanum
eru nýútskrifuð 20, og úr kennara-
skólanum 19.
Trúlofuð eru R. N. Braun kaupm.
hjer og frk Clarie Richer frá Davos
í Sviss. Hr. R. N. Braun er xiýlega
kominn heim frá útlöndum.
Frá íjátiÉm til Mimíða.
Ilvalreki í Grindavík. Nýlega
rak í Grindavík ungan búrhval, 18
álna langan, og var hann nýr og
óskemdur, er hann rak. En eins
dæmi mun það vera hjer á landi, að
hvalur þessi hefur ekki verið hirtur,
lítur enginn við honum að sögn, og
grotnar hann svo niður í fjöruna, þar
sem hann liggur.
Árekstur á sjó. 30. f. m. varð
árekstur í Eyrarbakkaflóanum milli
fiskiskútu Duus-verslunar, Hafsteins,
og ensks botnvörpungs. Bæði skipin
skemdust töluvert.
Silfurberg er sagt fundið í ey
einni á norðanverðum Breiðafirði, sem
Hvallátur heitir.
Strand. Frakknesk fiskiskúta hafði
nýlega strandað í Herdísarvík. Menn
komust af.
Mannalát. Hjónin á Stórufellsöxl
í Borgarfjarðarsýsla eru bæði nýdáin.
Konan, Jórunn Magnúsdóttir, andað-
ist 2$. f. m., en bóndinn, Gísli Gísla-
son fyrv. sýslunefndarmaður, 5. þ. m.
Hrossasýningu á að halda á Sauð-
arkróki seint í næsta mánuði. Kostn-
að annast sýslunefnd Skagafjarðar og
Búnaðarfjelags Islands.
Úr Rangárvallasýslu er skrifað
13. apríl: „Veturinn hefur verið ein-
muna góður,— elstu menn muna ekki
annan slíkan — og heybyrgðir og
fjenaðarhöld eru því í góðu lagi. Um
bænadagana gerði dálítinn snjó, og
var svo í viku hæg landátt með
frosti, en á fimtudaginn var kom
hláka og hefur síðan verið sunnanátt
og hlýtt veður.
Engin almenn fyrirtæki eru nú á
prjónum hjer um sveitir, en hinsveg-
ar starfa menn allmikið að jarðabót-
um, og allmargir bændur hafa feng-
ið sjer ýms búnaðarverkfæri, svo sem
sláttuvjelar, plóga herfi o. fl. Mönn-
um er nú farið að skiljast það, að
bættar aðferðir við jarðræktina og
bætt meðferð á fjenaði eru undir-
staða búnaðarframfaranna, og þá fyrst
standa búin á föstum grundvelli, þeg-
ar heyfengurinn er mestallur af rækt-
uðu landi og allar skepnur eru fóðr-
aðar svo vel að þær geri fult gagn".
Spurt um Rúðuferðir. Lögr. er
skrifað: „Ætlar dr. Guðm. Finn
bogason ekkert að skrifa um Frakk-
landsför sína í fyrra, annað en þessa
pistla, sem hann setti í Ingólff
Margir Bókmentafjelagsmenn hafa
vænst þess, að hann Ijeti Skírni
flytja ferðasögu, þar sem hann mætti
á hátíðinni sem fulltrúi Bókmentafje-
lagsins, en sú von sýnist ætla að
verða til skammar. Mætti ekki
spyrjast fyrir um þetta í Lögrjettu?"
Heimastjórn írlands.
Frumvarp Asquiths-stjórnarinnar
um heimastjórn írlands er r.ú komið
í gegn um fyrstu umræður í neðri
málstofu enska þingsins. Með frum-
varpinu urðu 360 atkv., en 266 á
móti.
Lögr. hefur áður skýrt frá aðalat-
riðunum í frumvarpinu. Þó hafa
nokkrar breytingar orðið á því síð-
an. í neðri málstofu írlands eiga að
verða 164 þingmenn, þar af 59 frá
Ulster. í efri málstofunni sitja 40,
og verða þeir í fyrstu tilnefndir af
ensku stjórninni, en svo víkja þeir
smátt og smátt eftir reglum, sem
þar um eru settar, og skipar þá
írska stjórnin aðra í þeirra stað.
Stjórnarformaður írlands getur hindr-
að framgang írskra laga, ef ríkis-
stjórnin heimtar, eða þá frestað því,
að þau komi 1 framkvæmd. írland
á að eiga framvegis 42 fulltrúa í rík-
isþinginu í London.
Stjórn írlands annast landstjóri með
stjórnarráð sjer við hlið. Sameigin-
leg mál verða utanríkismál, hermál
og almenn skattamál.
Tillag rlkissjóðs til írlands á að
verða fyrsta árið 550,000 pd. sterl.,
en lækkarum 50,000 pd. sterl, þar til
það er komið niður í 200,000 pd. st.
Mótstaðan móti heimastjórninni er
enn ákvöf í Ulster.
Eldgos í Panama. Eldfjallið
Chiriqui, sem er á takmörkum Pan-
ama og Costarica, tók að gjósa 5. f.
m. og hjelt svo áfram um hríð, dag
eftir dag. Mest var gosið 10. apríl.
Þá eyddust gersamlega heil Indíána-
þorp við rætur fjallsins af hraun-
straumum. Fjöldi manna misti lífið.
Forsetayal í Randaríkjunum er
nú fyrir dyrum. Taft og Roose-
velt eru báðir í kjöri. Roosevelt er
í fyrirlestraleiðangri og sækir hart
fram, en þó er haldið að Taft vei’ði
drýgri.
Henry Brisson, forseti franska
fulltrúaþingsins, andaðist 14. f. m.,
76 ára gamall, fæddur 31. júlí 1835.
H. Amunilsen. Stórþingið
norska samþykti 16. f. m. 136,365
kr. fjárveitingu til norðurheimskauts-
farar R. Amundsens. Af þessu eru
36,365 kr. skuld, sem ógoldin var
fyrir viðgerð á skipinu „Fram".
A ug'lýsing’.
Nefnd sú, er í marsmánuði síðast-
liðnum gekst fyrir samskotum til
eftirlátins skylduliðs druknaðra manna
af þilskipinu „Geir" og öðrum fiski-
skipum hjer við Faxaflóa á þessu
yfirstandandi útgerðartímabili, hefur
á fundi sínum 2. þ. m. ályktað, að
innkalla samskotalista þá, er útbýtt
hefur verið, og eru móttakendur
þeirra góðfúslega beðnir að afhenda
lista þessa, ásamt samskotum, til
herra konsúls Ásgeirs Sigurðssonar
í Reykjavík eða herra kaupmanns
Aug. Flygenrings í Hafnarfirði dag-
ana frá 20. til 31. þ. m.
Fyrir hönd og í umboði sam-
skotanefndarinnar.
Hafnarfirði hinn 6. maí 1912.
Magnús Jóiisson,
p. t. formaður nefndarinnar.
frá 1. okt. n. k,
við Flensborg;arskólanii.
Kenslugreinar einkum stærð-
fræði og eðlisfræði. Hæfileiki til
að kenna teiknun, leikfimi og
skólaiðnað kemur og til greina.
Kenslustundir alt að 30 á víku.
Kenslutími sjö mánuðir á ári.
Arslaun, 1200 krónur, greiðast
með 100 kr. á mánuði hverjum.
Umsóknir sjeu kornnar til for-
stöðunefndar skólans fyrir 1. ág.
næstk.
Görðum 1. maí 1912.
Jens Pdlsson,
p. t. nefndar-formaður.
j'lafnbreyting á jörð.
Jeg undirskrifaður hef breytt nafni
á eignarjörð minni Tóvegg í Keldu-
hverfi og nefni hana hjer eftir
Brautarholt, og bið jeg aðra
að taka upp þetta nafn á þessari jörð.
Brautarholti 1 Kelduhverfi 1 jan. 1912.
Benedikt Sigurgeirsson.
Öllum þeim, er sýndu hluttekningu við jarð-
arför Vilhjálms Bjarnarsonar vottum við al-
úðar þakkir.
FjölskyIdan á Rauðará.
Hjer með tilkynnist vandamönnum og vin-
um, að minn elskulegi eiginmaður, trjesmiður
Guðmundur Magnússon frá Úlfljótsvatni, and-
aðist á heimili sinu 3. maí síðastliðinn.
Jarðarför hans fer fram á laugardaginn,
18. þ. m., og hefst kl. II f. h., frá heimili
hins látna við Hverfisgötu 30 B.
Reykjavík 7. maí 1912.
Ingveldur J. Pjetursdóttir.
jVIálverkasýning
Ásgp. Jónssonap er dagl.
opin frá kl. 11—6 í Vinaminni.
Tvö lierbergi til leigu á Klappar-
stíg 20. Útsýn yfir höfnina og Vest-
urbæinn. Upplýsingar á Lindar-
götu 8 B.
Unglingsstúlka, vönduð og stilt,
óskast í sumar að líta eftir börn-
um. Upplýsingar á Laugaveg 47.
Athygli karlmamianna
leiðist að því, að við sendum til
allra 3V4 mtr- 13 5 cmtr. breitt, svart,
dökkblátt og grádröfnótt nýtýsku
fínullarefni 1 falleg og sterk föt fyrir
aðeins 14 kr. 50 au. Fataefnið send-
ist burðargjaldsfrítt með eftirkröfu,
og má skila því aftur, ef það er
ekki að óskum.
Thybo Mölles Klædefabrik,
Köbenhavn.
Oddup Gíslason
yfirrjettarmálaflutningsmaður,
Laufásveg 22.
Venjul. heima kl. 11—12 og 4—5.
Eggert Claessen
yflrrjettarmálaflutnlng8maður.
Pósthússtræti 17. Venjulega heima kl. 10—11
og 4—5. Talsiml 16.
Barnapróf.
Börn þau á skólaskyldum aldri, sem notið hafa heima-
kensln á þessn skálaári, verða að koma til prófs í barna-
skólahúsinu mánudaginn 13. þ. m. kl. 8. f. h. — Ef þeir,
sem kent hafa börnunum, óska að prófa börnin sjálfir,
verða þeir að koma ásamt börnunum.
Reykjavík, 7. maí 1912.
Páll Binarsson.
Sirius Gonsum Súkkulaði
er áreiðanlega nr. 1.
Oæiið yðar fyrir efiirlíhin<»iun.
Allir þeir gjaldendur bœjarins, sem enn eiga dgoldin
gjöid til bœjarsjóðs, eru ámintir um að greiða þau tafar-
laust. Gjalddagi var 1. april.
tficejarcjjaló/íarinn.
Bolinders
í báta
eru bestir og traustastir allra mótora, og liafa orðið
hlutskarpastir keppinautar á öllum sýningum, þar sem
þeir hafa verið sýndir.
Bygging þeirra og samansetning er mjög einföld, —
meðferð öll því vandaminni og auðveldari. — Þeir eyða
minni olíu en nokkrir aðrir mótorar, og má nota til þeirra
jarðolíu, óhreinsaða steinolíu eða algenga steinoliu, eftir
vild. Þessir mótorar eru tilbúnir ýmist með breytilegum
skrúfublöðum (skiftbar propel), sem er venjulegast í fiski-
bátum, eða með breytilegum möndulsnúningi.
Verksmiðjan býr einnig til mótora til notkunar á
landi með liagfeldasta fyrirkomulagi.
Upplýsingar, verðlistar o. s. frv. fást hjá oss og hjá
umboðsmönnum vorum.
Jimbur- og kola-verslunin „Rcykjavík“,
einkasali fypip Island.
Umboðsmaður vor fyrir Vestfirði er:
herra Karl Olgeirsson faktor á ísafirði.
Prentsmiðjan Gutenberg.