Lögrétta - 15.05.1912, Qupperneq 1
Afgreiðslu- og innheimtum.:
ARINBJ. SVEINBJARNARSON.
I ífvutravf'i' -4-1.
Taisimi 74
Rits t j ó ri:
f’ORSTEINN GÍSLASON
Pingholtsstræti 17.
Talsími 178.
M 26.
Reykjnvík 15. maí 1913.
VII.
Til vinstri handar á myndinni sjest hús White-Star línunnar í London
og blaktir yfir því flagg fjelagsins f hálfri stöng, því myndin er tekin
skömmu eftir að þangað frjettist um „Titanic"-slysið. Hægra megin efst
sjest inn í skrifstofu fjelagsins, þegar fólk er að troðast þar inn og spyrja
fregna af slysinu, en fyrir neðan sjest fólksþyrpingin úti fyrir húsinu á götunni.
cxerðamenit!
Þegar þið komið til Reykjavíkur og þurfið á Faínadi eða
Veíiiaðarvöru að halda, þá lítið inn í
119' Austurstræti 1. '9H
íJar er mikið úrval af: Karlmanna- og unglinga-fatnaði, Ferða-
jökknrn, Stormfötuni og llöttum, mjög þægil. á ferðalögum.
Begnkápnr, Olíukápur, (síðkápur), allar stærðir.
Olíuföt, handa konum og körlum.
Ullarpeysur. Nærföt, úr ull, bóniull og ljerefti.
Af Vefiiaðarvörn má nefna: Alklæði og dömuklæði, 11. tegundir.
Reiðfatatau, viðurkent ágætt; Morgunkjóia- og Dagtreyju-tau,
Tvisttau, Flonell og Ljercft o. m. íl.
Þið sparið tíma og peninga við að versla í
AUSTURS T R Æ T I 1.
Virðingarfylst.
Ásg. G. Gunnlaugsson # Co.
Wii i Staiaff til sfili.
t*ar eð jeg hef afráðið að taka að mjer slöðu, er mjer
hefur boðist erlendis, hætli jegverslunum mínum á Hofs-
ós og Sauðárkrók, og eru húseignir mínar á báðum þess-
um stöðum, ásamt flskhúsum á Selvík og fleiri stöðum á
Skaganum, lil sölu, sem og verslunaráhöld, bátar og
bryggjur.
Sláturhús eru á Sauðárkrók og Hofsós.
011 húsin eru í ágætu standi.
Nánari upplýsingar gefnar þeim er þess óska.
Sauðárkrók 1. mai 1912.
T j. Popp.
I. O. O. F. 93539-
Þjóðmenjasafnið opið sunnud., þriðjud. og
fimtud. kl. 12-— 2.
Lækning ók. ( læknask. þrd. og fsd. 12—1.
Tannlækning ók. (( Pólthússtr. 14) T. og 3.
md. í mán. 11—1.
Landakotsspítali opinn f. sjákravitj. io‘/»
— 12 og 4—5.
Islands banki opinn io—21/. og 51/.—7-
Landsbankinn io1/.—21/.. Bnksti. við 12—1.
Lagadeild háskólans ók. leiðbeining 1.
og 3. Id. í mán. 7—8 e. m.
Landsbókasafnið opið hv. virkan dag kl.
12—3 og 5—8.
Heilsuhælið opið til heimsókna 12—1.
Lárus Fjeldsted*
Y flprjettarmálafwrslumaður.
Lækjargata 2.
Heima kl. 1 I —12 og 4—7.
Bækur,
innlendar og erlendar, pappír og allskyos
ritföng katipa allir í
Bókavsrsl. Sigfúsar Eymundssonar.
Jitanic-slysið.
Yfirheyrslurnar í Ameríku út af
slysinu hafa farið fram í Washing-
ton og er það nefnd, skipuð af Sena-
tinu, sem annast þær. Síðustu fregn-
ir í útlendum blöðum segja, að Is-
may línuforstjóri hafi verið yfirheyrð-
ur, ætlað síðan aftur til New-York,
en verið bannað það af nefndinni.
Um annan mann, einn af yfirmönn-
unum frá Titanic, er það sagt, að er
honum hafði verið stefnt til þess að
mæta fyrir nefndinni, ljet hann á sjer
skilja, að hann hefði það að engu,
en færi ferða sinna heim til Englands,
þegar sjer sýndist. Nefndin ljet þá
taka hann og flytja til Washington.
Farþegar á skipinu „Bremen", sem
fór um þar sem „Titanic" strandaði
skömmu eftir að slysið vildi til, segj-
ast hafa sjeð mörg lík á floti. Sund-
beltin hjeldu þeim uppi. Meðal lík-
anna sáu þeir konu, sem hjelt barni
í fanginu, og mann og konu í faðm-
lögum. Eitt skip hafði bjargað 225
líkum.
Gufuskipið „Californian" hafði verið
fast í ís hjer um bil 20 mílur frá
„Titanic", þegar slysið vildi til. Kl.
io1/^ á sunnudagskvöldið hafði það
lent inn í ísbreiðu og þegar stöðvað
vjelarnar. Það hreyfði sig svo ekki
fyr en í dögun daginn eftir, og fyrst,
er leið á morguninn, frjettist þangað
um slysið. Það er haft eftir skip-
stjóranum, að ef hann hefði vitað
um slysið undir eins, hefði hann get-
að bjargað ölluin.
Einn af þeim, sem af komust og
yfirheyrður hefur verið, er 2. stýri-
maður af „Titanic". Hann segir, að
daginn, sem skipið fórst, hafi það
þrisvar fengið loftskeyta-aðvaranir um,
að ís væri í nánd. Hann hafði verið
á stjórnpalli um daginn, og er hann
vjek þaðan og annar tók við, kveðst
hann hafa aðvarað hann. Kl. 8 um
kvöldið hafði skipstjóri verið uppi á
stjórnpalli, talað um að kalt væri og
ís sjálfsagt nálægur. Þó var ferðin
eigi minkuð. Kl. 9 20 hafði skip-
stjóri farið ofan og beðið varðmann-
inn að gera sjer þegar aðvart, ef
nokkuð kæmi fyrir, sem honum þætti
ísjár vert. Kl. IO hafði I. stýri-
maður komið upp á stjórnpallinn, og
var hann þar, er slysið vildi til, reyndi
að vinda við skipinu til hliðar, er að
jakanum kom, og varð það til þess,
að skipið neri hliðinni í jakabrúnina
um leið og það skreið fram hjá, og
risti hún það á hol, eins og áður
hefur verið frá sagt. 1. stýrimaður
hjet Mardoch. Það er sagt, að hann
hafi skotið sig, og mun hann hafa
gefið sjer sök á slysinu.
Um skipstjórann hefur það verið
borið, að hann hafi staðið á stjórn-
pallinum þar til sjór tók þar upp og
ekki tekið á sig björgunarbelti. En
er sjór fjell upp á stjórnpallinn, stökk
hann yfir borð. Áður hrópaði hann
þaðan til skipsmanna: „Þið hafið gert
skyldu ykkar. Jeg heimta ekki meira
af ykkur. Nú má hver um sig reyna
að bjarga lífi sínu".
Einhverjir af skipsmönnum á „Tita-
nic" hafa borið það, að kviknað hafi
í kolarúmi þar, og hafi sá eldur eigi
orðið slöktur fyr en það var tæmt.
Þetta var gert daginn fyrir - árekstur-
inn. En er sjór og íshröngl komst
inn í skipið, Ijetu veggir auða kola-
rúmsins undan, af því að ekkert var
þar inni fyrir, er styrkti mótstöðuna.
1 Englandi er látið illa yfir Sen-
atsnefndar-yfirheyrslunum. Þaðer sagt,
að ásakanirnar, sem fram hafa verið
bornar gegn Ismay línustjóra sje
ástæðulausar. 2. þ. m. er hann kom-
inn aftur til New-York og er veikur,
undir læknis hendi.
<Jarós/íjaífiinn.
Skemdir ausianf‘jalls.
Þeir Einar Jónsson alþm. á Vestri-
Geldingalæk og Jón Einarsson bóndi
í Gunnarsholti á Rangárvöllum eru
hjer staddir og hefur Lögr. fengið
hjá þeim lýsingu á slysum, sem orð-
ið hafa þar eystra af jarðskjálftanutn
6. þ. m.
Þeir segja, að á 7 heimilum búi
fólk í tjöldum. Á nokkrum fleiri eru
kýr úti vegna þess, að fjós hafa
hrunið.
Þessi 7 býli eru: Næfurholt, Síl-
hagi, Bolholt, Kot, Dagverðarnes,
Gunnarsholt og Foss.
A öllum þessum bæjum eru bað-
stofur ýmist hrundar, eða þá svo
skektar og skemdar, að fólk þorir
ekki að hafast við í þeim. Sama
hyggja þeir vera um Haukadal, að
þar sje ekki búið í húsum. í Gunn-
arsholti eru 12 hús hrunin.
Mjög mikið hefur og hrunið á þess-
um bæjum: Galtalæk, Leirubakka,
Vatnagarði, Kaldbak, Þingskálum,
Heiði, Eystri-Geldingalæk, Reyðar-
vatni, Minna-Hofi, Stokkalæk, Keld-
um, Þorleifsstöðum, Rauðnefsstöðum.
Inn á milli eru þó bæir, sem ekki
hreyfðist einn steinn í, þótt hús sjeu
þar ekki vænni en á öðrum bæjum,
þar sem hrundi. Er það þá undir-
staðan, sem þar kemur til greina.
Milli Eystri- og Vestri-Geldingalækja
er ekki nema lítill spölur, svo að
túnin ná saman. A Vestri-Geldinga-
læk hrundi þó ekkert, en mikið á
hinum, eins og áður segir. Vestri-
Geldingalækur stendur á Klöpp, en
hinn bærinn á hraunjaðri.
Slys á mönnum hafa ekki orðið
nema í Næfurholti. Þar varð kona
Ófeigs bónda Jónssonar undir sperru-
kjálka og lærbrotnaði, eins og áður
er sagt, en barnið, sem rotaðist, var
ungbarn, sem hún hjelt á.
Slys á gripum hafa orðið þau, að
kýr fórst í Næfurholti og nautgripur
á Heiði. í Næfurholti fórst og hund-
ur undir húsunum og tveir kettir.
Bærinn þar kvað vera alveg í klessu.
Jarðsprunga mikil hefur komið ná
lægt Næfurholti, bæði breið og djúp.
Sógðu frásögumenn Lögr., að farið
hefði verið yfir hana á jarðbrú, en
það talin glæfraför. Vörður á sönd-
um þar eystra hafa alstaðar haldið
sjer, sögðu þeir, þótt grjótveggir
hryndu við bæi.
Timburhús hafa lítt eða ekki skemst
og eigi heldur steinsteypuveggir.
Þeir fóru á stað að austan á laug-
ardag. Til þess tíma höfðu á hverju
dægri fundist einhverjar jarðhreyf-
ingar þar eystra.
í gær átti Lögr. símtal við Björg-
vin sýslumann á Efra-Hvoli. Hann
sagði, að hreyfingin hefði fundist
austur í Álftaver, en eigi lengra aust-
ur á bóginn. í Fljótshlíð höfðu
orðið nokkrar skemdir á húsum, eink-
um í miðri sveitinni. í Tungu hafði
baðstofa hrunið. Undir Vestur-Eyja-
fjöllum hafði hristingurinn verið mik-
ill, hrunið víða úr hömrum, og eitt-
hvað skemst af útihúsum í Eyvind-
arholti og Syðstumörk. En lang-
mest var hreyfingin upp í sýslunni
meðfrani fjallrrótunum.
Aukasýslufundur var boðaður í
Rangárvallasýslu næstkomandi föstu-
dag til þess að taka ákvarðanir um,
hvað gera skyldi útaf slysunum.
Sjálfsagt er, að hlaupið verði drengi-
Iega undir bagga með þeim, sem
fyrir tjóni hafa orðið og styrktar
þurfa til þess að bæta úr því.
K. Aiuuiidgcu ætlar að koma
heim til Kristjaníu í haust og halda
þar fyrirlestur um suðurför sína í
byrjun septembermánaðar. Svo ætl-
ar hann að flytja fyrirlestra víðar, í
Berlín 10. október, og ef til vill í
Khöfn.
BÍÓ. Þar verða engar sýningar í
kvöld, vegna fráfalls konungsins.
Reykjavík.
líæjavstjórnin. Fundur 18. apríl.
Samþykt að taka tilboði Sveins J.
Einarssonar um salernahreinsun fyrir
9 aura, þ. e. um kr..4,70 árlega fyrir
hvert salerni. Eftirfarandi gjaldskrá
var samþykt fyrir eigendur salerna:
Fyrir salerni notuð af 4—10 mönn-
um greiðist á ári 5 kr, fyrir salerni
notuð af 3 mönnum eða færri 3 kr.
50 au., fyrir salerni notuð af 11 —15
j mönnum 7 kr. 50 au. Bæjarstjórn
getur þó veitt undanþágu fyrir þau
salerni, er standa á túnum eigenda.
Gjaldið heimtast fyrsta sinn 1. okt.
þ. á. fyrir missirið frá 1. júlí til 31.
des. Hreinsun fer fram vikulega.
Samþ. að fela umsjón baðhússins
Kr. Ó. Þorgrímssyni bæjarfulltrúa til
næsta nýárs fyrir 200 kr. þóknun
pr. a. (eða 8/i2 hluta af þeirri upp-
hæð).
Erindi frá kennurum barnaskólans
un launahækkun svarað neitandi.
Fundur 20. apríl. Samþ. með 13.
atkv. að taka tilboði dönsku og ís-
lensku bankanna um lán til hafnar-
gerðar. Tilboð frá Englandi fjekk
2 atkv. Dönsku bankarnir 4, Privat-
bankinn, Landmandsbankinn, Han-
delsbankinn og Kbh, Laane- og
Disconto banki, lána allir 800 þús.
kr. og ísl. bankarnir hvor um sig 200
þús. kr. Jafnframt lýsti bæjarstjórn-
in yfir því, að hún kýs heldur að
taka lánið með g6°/o af ákvæðis-
verði og endurborgun al pari, heldur
en með 97% og endurborgun með
103%.
Fundur 2. maí. Samþ. að leigja
H. P. Duus-verslun hluta af Stóra-
selstúni, en felt að leigja henni Eiðs-
granda og lóðarspildu við Melstaðar-
bletti. Leigan sje 200 kr. á ári fyrstu
10 árin.
Kosnir í nefnd til að íhuga erindi
frá frú M. Zoega um breyting á á-
kvæðum lögreglusamþ. um lokun
veitingahúsa: KI. Jónsson, Þorl., H.
Hafliðas.
Rætt um skilmála íyrir útboði á
hafnarbyggingunni og þeir samþyktir.
Þessar brunab.v. samþ.: Hús frú
C. Jónassen við Þingh.str. 10,017 kr.;
Tr. Arnas. við Njálsg. 3994 kr.;
fiskgeymsluhús h/f Alliance við Mýr-
arg. 6300 kr., fiskþvottahús sama
fjel. 4890 kr.
L. Kaaber kaupm. er nýorðinn
konsúll Belgja hjer á landi í stað
Gunnars Einarssonar.
Dr. G. Finnbogason hefur fengið
frakkneska heiðursmerkið Officier d’
Academie.
Danskir leikarar, hinir sömu sem
hjer voru í fyrra, Fr. Boesen og fje-
lagar hans, koma hingað aftur í júnf.
Hafa leigt leikhúsið hjer frá miðjum
júnímánuði og eitthvað fram eftir;
koma kring um land, og ætla að
leika á Seyðisfirði, Akureyri og Isa-
firði áður þeir koma hingað.
Djónaband. 10. þ. m. giftust hjcr
í bænum Árni Benediktsson versl-
unarmaður og frk. Kristrún Hall-
grímsson.
Grraliani White slasast. 8. apríl
í vor fjell niður loftfar, sem hann var
í ásamt tveimur farþegum, og meidd-
ust allir mikið, G. W. var mesti
flugmaður Englands.
Danskt og Enskt skip rekast á.
Danska gufuskipið „Arabien", eign
Austur-Asfufjelagsins, rakst seint í
apríl á enskt gufuskip „Cambric" ná-
lægt Honkong í Kína og skemdust
bæði nokkuð, en danska skipið þó
mcira.