Lögrétta - 15.05.1912, Page 2
100
LÖGRJETTA
Morg’un-
kj ólatauin
góðu á 0,45
aldrei meira úrval.
Verslunin
Björn Kristjdnsson.
7ore|jelagið í kröggum.
Formannaskifti.
Fregnir höfðu borist hingað um
það í síðastl. viku, að hr. Th. E.
Tulinius væri farinn frá formensku
Thorefjelagsins og jafnframt, að fje-
lagið ætti örðugt uppdráttar. Lög-
hald hafði verið lagt á „Perwie" um
tíma áður en hún lagði á stað hing-
að síðast. Skipasendingar fjelagsins
hingað í vor hafa og verið mjög
fjarri rjettu lagi.
Frá Khöfn var símað n. þ. m.:
„Að því er dagblöðin segja, hefur
Thorefjelagið fengið skuldgreiðslu-
frest (moratorium) hjá hinum stærri
skuldheimtumönnum. Tulinius fer
frá formenskunni eftir samkomulagi,
en við tekur Hendriksen, sá er áður
stóð fyrir íslands ferðum Sameinaða
fjelagsins. Búist er við að sam-
kepnin við Sam. fjelagið minki".
Hendriksen sá, er nú hefur tekið
við formensku í Thorefjelaginu, er
hjer ýmsum kunnur frá því að hann
var í þjónustu Sam. fjel. Nú er
hann verslunarfjelagi Dines Peter-
sens kaupmanns í Khöfn.
Það er nú sagt, að Thorefjelagið
vilji losna frá samningnum um ferð-
irnar hingað, og fær alþing í sumar
þá það mál til meðferðar og má bú-
ast við, að það verði að hugsa fyrir
nýju fyrirkomulagi á ferðunum.
3talir og Cyrkir.
Árás ítala á Dardannellavígi Tyrkja,
sem sagt var nýlega frá hjer í blað-
inu, vakti mikla athygli og blaða-
umtal. Dardanellasundið er dyr að
Marmarahafinu, og eiga Tyrkir kast-
ala báðumegin sundsins. Yfir 20
ítölsk herskip voru þar úti fyrir.
Þetta var rjett eftir miðjan apríl.
ítalir segja, að hugsun sín hafi verið,
að ginna flota Tyrkja til útrásar. Svo
hafi verið byrjað að skjóta frá tveimur
virkjunum og hafi þeir þá svarað með
skothríð frá skipunum, er stóð yfir
2 kl.st. En Tyrkir segja svo frá á-
rásinni, að 18. apríl hafi 24 ítölsk
herskip sjest nálægt Lemnosey. Um
morguninn kom herskip og tundur-
bátur til Samos, og var skotið á her-
mannaskála þar í landi. Annað her-
skip með tundurbát kom til Rhodos,
tók þar tyrkneskt skip, sem fyrir var,
og skar sundur frjettaþráðinn. Síðar
um daginn komu fram 8 herskip úti
fyrir Dardanellasundinu og kl. 11
hófst skothríðin. ítalir skutu 15 skot-
um á Oraníukastala, 8 á Koumkale
og 12 á Seddil-Bar. Þar fjell I
maður og annar særðist, en í hinum
vígjunum varð enginn mannskaði, og
eigi heldur á skipum ítala. Varð
svo ekki meira úr árásinni og skip
Itala fjarlægðust aftur.
En almenna hræðslu vakti þetta,
Sjölin
alkunnu,
aldrei meir úrval,
Cachemirsjöl og frönsk sjöl
af ýmsu verði.
Verslunin
Björn Krisljánsson.
og fólk tók að flýja frá ströndunum.
Hugðu menn að ítalir ætluðu að setja
þarna her á land. En þeir hafa mót-
mælt því, að sú hafi verið hugsunin,
og segjast engan landher hafa flutt
á skipum sínum, er þarna voru. Stjórn j
Tyrkja ljet nú það boð út ganga, að
Dardanellasundi væri fyrst um sinn
lokað fyrir öllum skipaumferðum og
kvaðst neydd til þess tiltækis vegna
árásar ítala. Það samgönguhaft skap
aði, sem nærri má geta, þegar mikil
vandræði. Höfnin í Konstantínópel
fyltist brátt af skipum, er ekki kom-
ust leiðar sinnar, og eins næstu hafnir
sunnan við Dardanellasundið. Út
af þessu fóru aðrir að blanda sjer í
málið, Englendingar, Rússar, Austur-
ríkismenn o. fl. Þó stóð lengi svo,
að Tyrkir hjeldu sundinu lokuðu. En
síðustu útlend blöð segja ákveðið, að
samgöngur um það fari aftur að hefj-
ast.
Árás ítala á Dardanellavígin þykir
ekki vel skiljanleg. Það er sagt, að
ef þeir hefðu hugsað sjer að brjótast
með herskip til Konstantínópel, þá
hefði það auðvitað verið gerlegt. En
það hefði kostað þá mörg af her-
skipum þeirra, að brjótast í gegnum
sundið. En með landher er þeim
talinn sigurinn mjög tvísýnn. Á
sjónum hafa þeir alt ráð Tyrkja í
hendi sjer. Eyjar Tyrkja mega heita
varnarlausir gegn vel búnum herskip-
um, því skotvopnaútbúnaður í köst-
ulum Tyrkja þar er svo gamaldags,
að sagt er, að hann ætti fremur
heima í söfnum en í hernaði ná á
tímum. Sumir geta til, að árásin sje
gerð í samráði við Rússa, en þó
hefur ekkert fram komið, er styrki
það. Lfklegast þykir, að fyrir ítöl-
um hafi vakað, að blása með þessu
að óeirðum á Balkanskaganum, gefa
þeim þjóðum, sem þar eiga í höggi
við Tyrki, undir fótinn, og knýja stór-
veldin til þess að ganga í milli og
fá Tyrki til þess að kaupa sjer frið
með afsali Tripólis og Kyrenaika.
En þótt aldrei nei.na Tyrkjastjórn
væri fáanleg til þessa, segja menn
að Arabar þar syðra mundu engu
síður eftir en áður halda uppi ófriði
gegn ítölum.
Þing Tyrkja kom saman rjett um
það leyti, sem ítölsku herskipin lágu
þar úti fyrir. í þingsetningarræðu
soldáns var það skýrt tekið fram, að
friðurinn skyldi ekki saminn öðru
vísi en svo, að Tyrkir hjeldu yfir-
ráðum yfir Trípólis.
“Times" frá 3. þ. m. segir, að
Tyrkjastjórn hafi þá ákveðið að opna
sundið að nýju til almennra umferða,
en áskilur sjer rjett til þess að loka
því aftur, ef nauðsyn krefji.
H.ína. Þar hefur verið kyrt sfð-
ustu vikurnar. En alt virðist þó
vera þar mjög í óvissu enn um það,
hvernig nýja lýðveldinu reiði af. Mon-
gólar hafa látið ófriðlega, og það hef-
ur verið talað um, að úr Mongólíu
yrði myndað sjerstakt lýðveldi.
Þjóðsamkoman, eða þingið, sem
saman var kaliað í Nanking í vor,
samþykti stjórnarskrá handa lýðveld-
inu og er hún í 56 greinum. Lýð-
veldinu er skift í 18 hjeruð. Æsta
valdið er hjá þjóðinni. Allir skulu
jafnir fyrir lögunum. Kosningarrjett-
ur skal vera almennur og herþjón-
ustuskylda almenn. Yfir höfuð er
stjórnarskráin sniðin eftir fyrirkomu-
lagi vesturþjóðanna.
Dr. Sun-Yat-Sen átti að verða fyrsti
yfirráðherra lýðveldisins, er Yuan-Shi-
Kai tók forsetaembættið. Sun-Yat-
Sen tók Ifka við yfirráðherraembætt-
inu, en afsalaði sjer því aftur eftir
stutta stund, kvaðst sjá, að hann
væri ekki vel fallinn til þess að gegna
því. Hann ráðgerði jafnframt að tak-
ast ferð á hendur um alt ríkið til
þess að vinna hugmyndum lýðveldis-
manna fylgi, og kvaðst meira mundi
gagna málinu með því en hinu. Börn
hans eru nú komin frá Amerfku heim
til hans í Kfna.
Rádherra fór utan með „Botnfu"
10. þ. m. Var í Leith í morgun.
Tvisttau,
tvíbreið,
0,50 — 0,60 — 0,65
0,70 — 0,80,
mest úrval í bænum.
Verslunin
Björn Kristjánsson.
Ofriður í IVIexikó. Þar hefur
alt verið í uppnámi nú undanfarið,
og það svo, að við hefur legið, að
stjórn Bandaríkjanna tæki fram í, til
þess að skakka leikinn. Seint í apríl
hafði Bandaríkjastjórn 10 þús. her-
manna við landamærin, og var sá
her albúinn til þess að halda inn í
Mexikó, ef þurfa þætti, enda hafði
stjórninni í Mexikó verið tilkynt, að
þetta stæði til. En hún mótmælti
og kvað Bandaríkin engan rjett hafa
til þess, að blanda sjer þar í innan-
lands-óeirðir; sagðist taka að sjer
ábyrgð á lífi og eignum útlendinga
að svo miklu leyti, sem hægt væri
að kretjast þess, en neitaði hins veg-
ar, að hægt væri að heimta af sjer
slíka ábyrgð í þeim hjeruðum, þar
sem uppreisnarliðið hefði yfirhönd.
Uppreisn í Marokkó. 18.
f. m. varð mikið uppþot í Fez,
höfuðborginni í Marokkó. Innlendir
herflokkar og borgarar í bænum rjeð-
ust á setulið Frakka þar og á höll
soldáns, Mulay Hafids. Nokkurt
mannfall varð þar, áður uppþotið
yrði sefað. Svo var ráðist á Gyð-
inga þar í borginni og voru um 50
drepnir, en yfir 30 særðir. Það er
sagt, að uppþot þetta hafi verið gert
með allmiklum undirbúningi og sje
samsæri myndað meðal ættahöfðingj-
anna víðsvegar um landið gegn yfir-
ráðum Frakka.
H.ríteyjar>þingfmenn tekn-
ir fastir. Rjett fyrir mánaðamótin
síðustu tók enskt herskip þingmenn
frá Krítey, sem voru á leið þaðan til
Aþenu og ætluðu að taka sæti þar
á þinginu samkvæmt umboði kjós-
enda sinna, fasta, og er þeim sfðan
haldið í gæslu. Þetta vakti uppþot
á Krítey, en í Aþenu hefur því verið
tekið með stillingu.
Stórslys. Gufuskipið „Texas"
eyðilagðist af sprengivjel skamt frá
Smyrna 30. f. m. Af 139 mönnum,
sem á skipinu voru, fórust 68, en
aðrir meiddust og særðust. Farþeg-
ar voru flestir Armeningar og Grikkir.
Skipið var eign amerísks fjelags, sem
heldur þarna uppi samgöngum.
Riiigköbing- f Jörður í Dan-
mörku. Árið 1910 var grafinn
skurður úr Ringköbing firði á Jót-
landi yfir í hafið. Kostnaðurinn var
nokkur hundruð þúsunda kr. og
breidd skarðsins upphaflega 50 mtr.
En hafið hefur nú vfkkað skurðinn
svo, að hann er sagður orðinn 300
mtr. Þetta veldur aftur því, að um
stórflóð flæðir svo mikið inn í fjörð-
inn, að jarðir eru að eyðileggjast við
hann af þeim flóðum. Til að bæta
úr þessu fer nú stjórnin danska fram
á fjárveitingu hjá þinginu og er á-
ætlað að 1 milj. kr. þurfi til þess að
koma lagi á alt. Verkfræðingar
Dana flestir höfðu verið móti því í
fyrstu, að skurðurinn væri gerður,
og nú vilja margir Iáta fylla hann
upp, en ekki gera við hann, og er
þetta orðið allákaft þrætumál í þing-
inu. Því mótstöðumenn I. C. Crist-
ensens halda því fram, að hann eigi
sök á þvf, að skurðurinn var gerður,
hafi barið fram f þinginu fjárveitingu
til þess fyrir Jótana. En hann ber
þetta af sjer, en vill hins vegar láta
veita fje til viðgerðar skurðinum.
ísland erlendis.
Fjalla-Eyvindur. Eins og áður
hefur verið skýrt frá hjer í blaðinu,
er hann sýndur í fyrsta sinni á Dag-
marleikhúsinu í Khöfn nú í kvöid.
Norska leikkonan frú Johanne Dyb-
wad leikur þar Höllu. Hún var kom-
in til Khafnar snemma í apríl. Þá
átti tíðindamaður frá „Politiken" við-
tal við hana um þá leiki, sem hún
ætlaði að eiga þátt í í Khöfn þetta
vor. Þar á meðal var „Fjalla-Ey-
vindur". — „Þekkið þjer „Fjalla-Ey-
vind?" — spurði hún blaðamanninn —
„það er hrífandi leikur. Það er skáld-
skapur og æfintýraljómi yfir þeim
leik".
Mannalát. Lögberg frá 18. f. m.
segir þessi mannalát hjá íslendingum
vestra: 1. f. m. andaðist Benedikt
Sigurðsson frá Heiðarseli í N.-Múla-
sýslu, 82 ára gamall, en fluttist vest-
ur 1889.
Sama dag andaðist Tómas Krist-
jánsson, ættaður úr Dalasýslu, fædd-
ur 1818, en fluttist vestur 1876.
19. mars andaðist Ólafur Ólafsson,
ættaður úr Bolungarvík, 72 ára, en
fluttist vestur 1893.
29. jan. andaðist Níels Níelsson,
áður á Hallbjarnarstöðum á Tjörnesi,
nfræður að aldri, en fluttist vestur
1875.
Síra Jónas Jónasson. Fjórar
þýddar sögur eftir hann eru nýkomnar
út á dönsku, þýddar af frú M. Löbner
Jörgensen, er líka hefur þýtt „Borgir"
Jóns Trausta, eins og Lögr. hefuráður
getið um. Sögur J. J., sem þýddar
hafa verið, eru: „Brot úr æfisögu"
(úr Iðunni), „Eiðurinr.", „Sultur" og
„Gletni lífsins". Skáldið Jóh. Jör-
gensen hefur ritað formála fyrirbók-
inni og mælir þar fram með sögun-
um. Þeim er hrósnð í dönskum blöð-
um, þar sem Lögr. hefur sjeð á þær
minst, meðal annars í ritdómi í „Riget"
eftir Albert Gnudtzmann.
Samskot eru að safnast hjá Vest-
ur-íslendingum handa ekkjum og
börnum þeirra, sem hjer hafa druknað
í vor, og er mælt fram með þeim í
Lögbergi frá 25. f. m.
Jón Sigurðsson í Ameríku. Það
eru ltkindi til þess, eftir því sem ráða
má af Lögb. frá 25. f. m., að lík-
neski Jóns Sigurðssonar, er Vestur-
íslendingar fengu í haust, sem leið,
verði valinn staður í skemtigarði bæj-
arins Gimli í Nýja-Islandi. Eru þar
færðar ýmsar ástæður, sem virðast
gildar og góðar, fyrir því, að minnis-
merkið ætti að vera þar fremur en
annarstaðar.
Próf. Srb. Sveinbjörnsson tón-
Skáld, sem verið hefur í Winnipeg
og víðar í Canada um hríð, í miklu
gengi meðal Vestur-íslendinga fyrir
samsöngva, er hann hefur haldið þar,
er að kveðja þá og halda heimleiðis
aftur seint í apríl.
Vestur-íslenskir gestir nokkrir
eru væntanlegir hingað í vor, er Lögr.
skrifað frá Winnipeg; þar á meðal
síra Rögnvaldur Pjetursson.
Stóra norræna Minafjelagið
hefur síðastl. ár haft í tekjur alls
11 milj. 738,261 kr. Þar af eru 2
milj. 67 þús. kr. eftirstöðvar frá árinu
1910, en 9 milj. hefur fjelagið haft
í tekjur á árinu af símum sínum, 116
þús. kr. hefur það haft í rentur og
svo eru 532 þús. kr., sem heita: ýmis-
legar tekjur.
Gjöldin hafa alls verið 3 milj. 393,-
941 kr., þar af 2 milj. 74 þús. kr.
starfslaun. Til úthlutunar koma þá
8 milj. 344,320 kr. A síðastl. ára-
tug hefur þó upphæðin tvisvar verið
enn hærri, en það var á árunum 1904
°g I9°5- Þá var hún nær 10 milj.
Hluthafar fá i8°/o, en það sama
hafa þeir fengið árlega síðastl. 4 ár.
Aður var það stundum nokkru
hærra, 1904 24°/o og 1905 20%.
Samtals er nú, með þessum i8°/o,
skift milli hluthafa 4 milj. 860 þús. kr.
2*/a milj. er geymd næsta ári. Hitt
er lagt í varasjóð, nema hvað 45 þús.
er skift milli 7 manna, sem eru í
stjórn fjelagsins. Varasjóður er nú
42 milj., en hlutafjárhæðin er 27 milj.
Kjólatau,
feikna úrval.
Eitthvað fyrir alla.
Verslunin
Björn Kristjánsson.
Melstaðavprestakall. Um það
sækja sr. Árni Jónsson á Skútustöð-
um, Jónmundur Halldórsson á Barði,
sr. Björn Stefánsson og Jóh. Briem
kand theol.
Prestakall veitt. Tjörn á Vatns-
nesi er veitt sr. Sig. Jóhannessyni
aðstoðarpresti þar.
Verkfall kvenna í Hafnarflrði.
Lögr. hefúr áður sagt frá upptökum
þess, en eigi lokum. Því lauk svo,
að „kvenfólkið hafði sitt fram að
mestu eða öllu leyti", segir „Kvbl.“.
Samningar höfðu komist á 11. f. m.
„Kvbl." segir, að um iookonursjeu
við fiskvinnu í Hafnarfirði og hafi
þær allar verið í samtökunum.
I landsdóm vorn kosnir nýlega
af bæjarstjórn ísafjarðar: Sig. Jóns-
son kennari og O. F. Davíðsson
verslunarstjóri.
Til Noregs segir „Vestri" að farið
hafi nýlega tveir fiskimenn af ísafirði,
Ingólfur Jónsson og Ólafur Jónsson,
ráðnir til 3—6 mánaða af kaupmanni
í Haugasundi „til þess að kenna þeim
þar að verka Labradorfisk".
Bifbátur fórst á ísafjarðardjúpi
rjett fyrir síðustu helgi, eign Ásg.
Guðbjartssonar á ísafirði. Báturinn
rakst á fiskiskútu og brotnaði. Mönn-
um bjargað, en báturinn sökk.
Silfurbergið í Hvallátri. Lögr.
er sagt, að fregnin í síðasta tbl. um
silfurbergsfund þar muni vera mark-
leysa og flugufregn. Lögr. tók fregn-
ina eftir „Þjóðviljanum", en úrLögr.
er hún síðan komin í önnur blöð.
Steinbítur á útl. markaði.
Danskt blað, „Riget", frá 21. apríl,
talar um að steinbíturinn hafi alt til
þess litla eftirtekt vakið á fisksölu-
markaðinum erlendis, en segir, að
nú sje ekki ólíklegt, að þetta fari að
breytast. Stjórn danska fiskiveiða-
fjelagsins gerir nú tilraunir til þess
að koma honum inn á sölumarkað-
inn, og blaðið hefur það eftir ritara
fjelagsins, að von sje um, að þetta
muni takast.
Alþing kvatt saman. Með
opnu konugsbrjefi frá 6 þ. m., sem
birt hefur verið í Lögbirtingablaðinu,
er alþing kvatt saman til aukafundar
15. júlí sumar, og má eiga setu 6
vikur.
Hý uppgötvun. Dönsk blöð
hafa skýrt frá því, að H. J. Hanno-
ver prófessor í Khöfn hafi fundið ráð
til þess að láta venjulega rafmagns-
geyma taka við 4—5 sinnum meira
afli t.n áður og varðveita það. Hann
gerir þetta, segja blöðin, með því,
að nota í þá sjerstaka tegund af
blýi, sem drekkur í sig vökva um
óteljandi smáholur, sem ekki sjást
nema í smásjá. Sótt hefur verið um
einkaleyfi fyrir uppgötvuninni.
Flúnel
einl. og röndótt,
0,20 — 0,25 — 0,30 — 0,32
0,34 — °-36 — 0,40 — 0,42
0,45 — 0,48 — 0,52
pau bestu, er til landsins flytjast.
Verslunin
Björn Kristjánsson.