Lögrétta - 27.11.1912, Page 3
L0GRJETTA
225
Lögrjetta kemur út á hverjum mið-
vikudegi og auk þess aukabiöö viö og við,
minst 60 blöð als á ári. Verð: 4 kr. árg.
á íslandi, erlendis 5 kr. Gjaiddagi 1. júlí.
fyrir hvern verkfæran mann til
vegabóta, og allstaðar gengur eitt-
hvað af þessu til að gera nýja vegi.
Ef Reykvíkingar verja engu af árs-
tekjum bæjarfjelagsins beint til vega-
bóta eða tilsvarandi mannvirkja, þá
leggja þeir minna á sig fyrir eftir-
komendurna en allir aðrir landsmenn,
og það er ekki rjett.
Það verða víst flestir sammála um,
að fjárhagsstjórn síðustu 4 ára má
ekki halda áfram óbreyttri, og er þá
að athuga hverjar leiðir sjeu til lag-
færingar. Tíminn leyfir mjer ekki
að tæma það efni í kvöld, og skal
jeg því aðeins drepa stuttlega á fá
atriði.
Glöggir reikningar
eru fyrsta skilyrðið fyrir því að fjár-
hagsstjórnin geti verið í lagi. Reikn-
ingsfærsla bæjarins hefur undanfarin
ár verið óglögg að því leyti, að
ýms stór útgjöld til sjerstakra verka
hafa ekki vetið tekin upp í sjálfa
bæjarsjóðsreikningana, svo sem megn-
ið af byggingarkostnaði vatnsveit-
unnar og gasstöðvarinnar. Hins veg-
ar eru þó nokkur af útgjöldunum ti!
þessara verka tekin inn í reikningana.
Meiningin er þá líklega að gera sjer-
stök reikningskil fyrir þeim útgjöld-
um, sem ekki eru talin í bæjarreikn-
ingunum. Um vatnsveitukostnaðinn
virðist þetta hafa mistekist; fyrir
hana hafa verið gerðir upp tveir
reikningar, og kallar annar þeirra sig
reikning yfir byggingarkostnað vatns-
veitunnar 31. desbr. 1910, en hinn
er nefndur jafnaðarreikningur vatns-
veitunnar, en 1 báðum þessum reikn-
ingum eru talin útgjöld, sem einnig
eru talin í bæjarsjóðsreikningnum
fyrir 1910, og lítur út fyrir að all-
erfitt sje að finna hver hin tvítalda
upphæð er. Bæjarsjóðsreikningar
1910 hafa verið endurskoðaðir og
úrskurðaðir af bæjarstjórn, en vatns-
veitureikningana hefur annar endur-
skoðandinn neitað að endurskoða og
bæjarstjórnin er ekki búin að úr-
skurða þá enn í dag, þótt sum af
útgjöldunum sjeu frá árinu 1908.
Reikninga yfir byggingarkostnað gas-
stöðvarinnar man jeg ekki til að jeg
hafi sjeð — nema þær fáu upphæð-
ir sem standa í bæjarreikningnum —
og var þó víst byrjað á henni árið
1909. Það er svo sem sjálfsagt, að
reikningana þarf að prenta, enda hef-
ur verið gert svo síðustu árin, en
sem dæmi upp á að þessir prentuðu
reikningur eru ekki að öllu nógu
glöggir skal jeg nefna það, að al-
staðar er vöxtum og afborgunum
slengt saman í eina upphæð, og munu
þó allir skilja að greina þarf það
tvent í sundur, ef reikningarnir eiga
að sýna rjetta niðurstöðu fjárhags-
stjórnarinnar. Ef reikningarnir ekki
sýna breytingarnar á fjárhagnum,
fer hæglega, svo að enginn veit fyr
en í ógöngur er komið. (Niðurl.).
„Sögur |rá Ska|tárelði“.
Athugasemdir við ritdóm í »Sunnanfara«.
Ekki gekk jeg að því gruflandi, að
Sögur frá Skaftáreldi mundu koma fyrir
augu sögufróðra manna. Nú hefur einn
af allra-sögufróðustu mönnum, sem nú
eru uppi, dr. Jón Þorkelsson, látið uppi
dóm sinn um bókina f Sunnanfara, og
kann jeg honum miklar þakkir fyrir lof-
samleg ummæli, er þar standa innan
um. Jeg met þau mjög mikils.
En við aðfinslur hans langar mig til
að gera eftirfarandi athugasemdir — og
afsakanir.
Það er rjett, að það stendur í æfisögu
sr. Jóns Steingrímssonar, að „eldmessan"
hafi verið 4. sd. eftir Trinitatis (3: 13-
júlí). En samt tel jeg það rangt. Síra
Jóni ber hjer ekki saman við sjálfan sig.
í báðum eldritunum stendur, að hún
hafi verið 5. sd. e. Tr., 20. júlí, og eru
þar tilfærðar dagsetningar bæði undan
og eftir. Fyrra eldritið er undirskrifað
á Kirkjubæjarklaustri af sr. Jóni og Sig-
Samsöngur i dómkirkjunni
föstud. 29. þ. m. — á aldarafmæli
Pjeturs Gruðjohnsens.
en er hann var að stíga á bak, fæld-
ist hesturinn og dró prófast eitthvað
í ístaðinu. En byltan var svo mikil,
að prófastur viðbeinsbrotnaði og rif-
brotnaði á 3 rifjum.
Síðustu fregnir segja hann á góð-
um batavegi.
Aðgöngumiðar í bókaverslun ísafoldar og Sigf.
Eymundssonar.
Sjá götuauglýsing'ar.
Oarlsberg- brugghúsin
mæla með
Garlsberg skattefri
alkóhóllitlum, ekstraktríkum, bragðgóðum, haldgóðum.
Garlsberj* skattefri porter
hinni extraktríkustu af öllum portertegundum.
Carlsberg sódayatn
er áreiðanlega besta sódavatn.
Hvar svör flnnast. Hr. Vigfús
Guðmundsson í Engey hefur beðið
„Lögr.“ að geta þess, að svör frá
sjer gegn greinum „E. G." í 1. og
2. tbl. Lögr. þ. á. sje í ísafold 11
tb). og Þjóðviljanum 24.—25 , 26 ,
27.-28. og 36.—37. tbl. 1912.
Sómuleiðis sje í Ingólfi 31. og 32.
tbl. þ. á., svar við grein þeirri eftir
„E. G,“ sem var í 33. tbl. Lögrjettu.
Lögr. hafði neitað hr. V. G. um
rúm fyrir fyrstu greinina, sem hjer
er nefnd, taldi ýmislegt í henni svo
fjarri rjettu lagi.
S. e. Kraul8
Forsendelseshus
(útsendingahús)
Horsens
sendir ókeypis öllum
skrautverðskrá sína.
— Talsími 801.—
Skrifið eftir!!!
Prima gráu kjólavergarni 0,50. —
Röndóttu kjólavergarni o,|jo—0,63. —
Ekta bláu níðsterku kjóla-cheviot 0,70.
— Góðu, fallegu, heimaofnu kjólaklæði
með allskonar litum. 0,75 — Röndóttum,
fallegum vetrarkjólum 0,80. — Ekta
bláu kamgarns-cheviot 1,00. — Svört-
um og mislitum kjólaefnum af öllum
litum 0,85—1,00—1,15—1,35.
2 áln. breið góð karlmannsfata-
efni 2,00—2,35—3,00. — Sterkt drengja-
fataefni 1,00—1,13. — Níðsterkt tau í
skólaföt, grátt 1,35. — Ekta blátt sterkt
drengja-cheviot 1,15. Okkar alþekta
níðsterka ofurhuga-cheviot fínt 2,00 —
gróft 2,35 — prima 2,65. — Níðsterkt
ofurhugatau til slits 2,65. — Ekta blátt
þykt pilsa-cheviot 1,15. — Fallegt, gott,
svart klæði 2,00. — Ekta blátt kam-
garns-serges til fata frá 2,00. — Grá
og grænröndótt efni í hversdagspils 1,00
—1,15. — Þykk kápu- og frakka efni
2,00—2,35—2,75. — Svart kápuplyss og
allavega litt. Okkar alkunna „Jydsk
Jagtklub-serges" í karlmanns- og kven-
föt 3,15—4,00—5,00. — Góð hestateppi
4,00—5,00. Falleg ferðateppi 5,00—
6,50. — Hlý ullarteppi 3,50—4,00—5,00.
í skiftum fyrir vörur eru teknir
hreinir þrjónaðtr ullarklúlar d 60 aur.
kílóið, og ull d 1,00 til 1,70 kilóið.
Jydsk Kjoleklædehus,
Köbmagergade 46, Köbenhavn K.
urði Olafssyni klausturhaldara 24. ágúst
1783 = rúmum mánuði eftir þennan at-
burð. Við það síðara hefur sr. Jón lokið
23, nóv. 1788, 5 árum eftir eldinn, og er
mjög til þess vandað. (Sjá Safn til sögu
ísl. IV. 1, bls. 22 og 66). Sömu dag-
setningu hefur Magnús Stephensen, sem
þar var á ferð um sama leyti ári síðar,
í riti sfnu: „Kort Beskrivelse over den
nye Vulcans Ildsprudning" o. s. frv. bls.
23 (sbr. ennfremur Andvara XIX bls. 79).
Hjer standa þrjú heimildarrit gegn einu,
og við þau hef jeg haldið mjer.
Jeg held að þessi kafli æfisögunnar sje
ekki skrifaður fyr en 1789 eða síðar. Að
minsta kosti á eftir sfðara eldritinu. Sr.
Jón talar þar lítið um sjálfan eldinn, og
nokkru síðar telur hann upp rit sín og
þar á meðal eldritið. Þá var sr. Jón
mjög farinn að heilsu og skrifaði stund-
um í rúminu, svo að skekkjan getur
verið meira en afsakanleg. Fáeinar
skekkjur svipaðar hef jeg fundið í ritum
sr. Jóns, en ekki sett þær á mig. Sum-
ar eru prentaðar athugasemdalaust.
Þetta er það atriðið, sem mjer fanst
máli skifta og kom mjer til að skrita
þessar línur. Aðrar aðfinslur sögulegs
eðlis finnast mér óverulegar.
Um vöxt sr. Jóns Steingrfmssonar hef-
ur hvorugur okkar rjett fyrir sér. Hann
er heldur hár hjá mér, en lár hjá dr.
Jóni. Hann segisl sjálfur hafa verið
meðalmaður á hæð (Æfisagan kap. 54).
Líklega hefur hann leynt nokkuð hæð-
inni vegna holda, þvf að hann hafði
vegin um 200 pund.
Vel kann svo að vera, að jeg hafi gert
aldur Snjólfs sterka helst til lítið teygj-
anlegan. Fæðingarár hans veit jeg ekki
enn fyrir víst, en sögufróður maður hefur
fundið það fyrir mig, að Páll sonur hans
sje fæddur um 1731. Pó hef eg grun
um, að Finnur sonur hans, sem dó í
Móðuharðindunum, hafi verið eldri, því
að hann bar föðurnafn hans. Snjólfur
er þá að minsta kosti fæddur fyrir 1710.
Ekki skal jeg þrátta um hindurvitna-
trú manna á 18. öld. En um trú sr. Jóns
Steingrímssonar í þessu efni þarf í eng-
ar grafgötur að leita. Hún lýsir sér í
ritum hans. Sama má segja um sr. Sæ-
mund Magnússon Hólm, sem upp var
alinn 1 Meðallanpinu laust fyrir Skaftár-
eldinn. Fleiri sannanir hafa lærðir og
mætir menn frá þeim tfma eftir sig látið.
Um eignarheimild Kirkjubæjarklaust-
urs á Brandalandi fór jeg eftir síðara
eldriti sr. Jóns (Safn IV, 1, bls. 11) en
athugaði það ekki nánar.
Um Hafursey er það að segja, að
Markús Loftsson á Hjörleifshöfða hetur
þá sögu í Jarðeldariti sínu og ber Sig-
urð Stefánsson sýslumann fyrir henni,
að í Kötluhlaupinu 1660 hafi tveir menn
verið staddir í Hafursey. „Þessir menn
sögðu, að vatnið hefði orðið svo djúpt
fyrir norðan Hafursey, að það rynni
nokkrum sinnum fram úr svo kölluðu
Klofagili. af stýflunni, sem varð milli
Skálartjalls og Höfðabrekkufjalls". (Rit
um jarðelda á íslandi, bls. 29 — sbr.
Þorv. Thoroddsen: Ferð um V.-Skafta-
fellssýslu, Andvara XIX bls. 63). Þessa
sögu hef jeg enga ástæðu til að rengja.
Veit ekki heldur, hvort hér er um eins-
dæmi að ræða. Náttúrufræðingarnir um
það, hvort þetta geti satt verið, og hvers
vegna Álftaverið hefur þá ekki sópast
burtu. Hæsti hnúkur Hafurseyjar er
1871 fet yfir sjó (Thoroddsen).
„Miðmunda" hef jeg heyrt nefnt milli
allra eykta.
Prentvilla er það, þar sem Asar i
Skaftártungu eru nefndir Ás. Einnig
er það prentvilla, að Hvammur í Norð-
urárdal er á bls 287 settur með litlu h-i.
Þessar prentvillur bið jeg menn að af-
saka. Um listagildi bókaiinnar læt jeg
hvern mann hafa dóm sinn í friði.
G. M.
ísland erlendis.
Sigfns Blöndal bókavörður í
Khöfn ritar í Berlingatíðindi nýlega
grein um íslenskt mentalíf í Khöfn
fyr og síðar, segir frá störfum ís-
lenskra fræðimanna og bókmenta-
manna þar og áhrifum þeirra á ís-
lenskt mentalíf.
»Austri« og »Yrestri«, strand-
bátarnir hjeðan, voru seldir norsku
gufuskipafjelagi, „Stavangir Damp-
skipsselskab", og kvað eiga að verða
í strandferðum við Noreg. Verðið
var 185 þús. fyrir hvorn þeirra.
Jóliann Sigurjónsson skáld
kvæntist Khöfn 3. þ m. ekkjufrú
Ingeborg Tidemann, f. Blom.
Ráðlierra er væntanlegur heim
með „Botníu" 5 desember.
Til Hjaltlands eru nýfarnir hjeð-
an tveir ungir menn úr Mosfellssveit,
Björnstjerne Björnsson frá Gröf og
Árni Gíslason frá Miðdal. Ætla að
vera þar í vist eins árs tíma.
Slys á ferð í myrkri. Baldur
Benediktsson í Þverárkoti í Mosfells-
sveit var, nú rjett nýlega, á ferð
heim til sín hjeðan úr Rvík með
vagnhest, en lenti í myrkri og misti
af rjettum vegi. Vagninn valt og
Baldur varð undir honum og gat
ekki hreyft sig þaðan. Hesturinn
hafði einhvern veginn losnað frá
vagninum, en taumurinn var flæktur
við vagninn og stóð því hesturinn
þar bundinn. Leið svo nóttin og
fram á næsta dag; þá bar þar mann
að, sem hjálpaði. Hafði þá Baldur
legið þarna undir vagninum 7—8
kl.st. að sögn. Læknis var þegar
vitjað, en sagt er, að Baldur hafi
verið furðu lítið meiddur.
Skipstrand. 18. þ. m. strandaði
þýskt botnvörpuskip úti fyrir Öræf-
um. 11 menn, þar á meðal skip*
stjóri, komust af, en 1 druknaði.
Skipið hjet „EIsfleth«, frá Bremer-
haven, eign útgerðarfjel J. Wieting.
Síra Jens Fálsson prófastur varð
fyrir leiðu slysi síðastl. miðvikudags-
kvöld. Hann var að leggja á stað
heim til sín frá Hafnarfirði, ríðand
o
.1)
IH*
ca
o
1-0
00
o
s
3
ro
'3
3
T3
C
3
b/3
<u
rt :0
CL3
EEE3
'O
C
3
<u
:0
>
oS
T3
'O
cð
s
w
•a
'Oj
CL.
Oh
03
a
o
H
CÖ
03
C—.
cd
o
to
O
o_
ctS
O
ir>
J4
o
JO
S *c73
cd
Cuo
o
>
tn
s
E
rX
’53
OD
cd
ö
00
o
6
Vh
ct
bjo
c
‘bi
b£
<u
03
c
o
1-0
Tt*
c
E
o
c
3
4-»
-O
Einkasala á steinolíu. Ut af
fundarsamþykt Fiskifjelags íslands, sem
prentuð er í síðasta tbl. og ákveður, að fje-
lagið sæki um einkasölurjett á steinoííu
samkv. lögum frá síðata alþingi, spurðist
Lögr. fyrir um málið hjá varaforseta fjelags-
ins, Tryggva Gunnarssyni, en hann hefur
frá fyrstu latið sjer mjög ant um að hrinda
malinu áfram.
Hann kvaðst hafa góða von um að fje-
laginu tækist fljótlega að hafa saman það
fje, sem þyrfti, því undirtektir væru alstaðar
góðar og víða væri byrjað að safna hlutafje.
Hlutafjárupp
hæðina hefði
fjelagið hugs-
að sjer 280
þús. kr. Hann
gerði ráð fyr-
ir, að selja
mætti hverja
tunnu að
minnsta kosti
5 kr. lægri en
hún kostaði
hjer nú, og þó
fengju hluthaf-
ar góðan arð að fje sínu. Hver vjelarbátur
þyrfti á ári um 40 tunnur, og yrði þá sparn-
aðurinn hjá hverjum þeirra um 200 kr. á
ári. Ætla mætti að hver eigandi vjelabáta
gæti lagt fram í hlutum að minsta kosti
það, sem sparaðist við olíuverðmuninn á
fyrsta árinu. En auðvitað væri gert ráð
fyrir að einstakir menn legðu fram miklu
meira. Gróðafjelag yrði þetta auðvitað.
En stórgróðrafjelag ætti það ekki að verða,
heldur ætti að líta fyrst og fremst á hitt,
að steinolían yrði sem ódýrust.
Hann kvað Fiskifjelagið hafa leitaðfyrirsjer
um olíu kaup í Ameríku og ljet vel yfir.
3
tn ,X4
< H
O
s
3
>
■S)
Innkaupin i
Edinborg
auka gleði —
minka sorg.
Cocolith,
sem er best innanhúss i stað panels
og þolir vatn og eld,
útvegar með verksmiðjuverði að
viðbættu flutningsgjaldi
G. E. J. Guðmundsson
bryggiusm. í Reykjavík.
Aðalumboðsmaður fyrir sölu
á Cocolith til íslands
Hálslin,
afarmikið úrval, nýkomið.
Síuría Sónsson.
Septápr
og
stórt úrval nýkomið.
Síuría Sónsson.
Undirrifaóur tekur að sjer mál-
færslu- og innheimtu-störf. Til við-
tals kl. 6—71/2 e. m. á Grettisgötu
20 B. Talsími 322.
Marínó Hafstein.
Prentsmiðjan Gute-nberg.