Lögrétta - 02.04.1913, Side 3
LOGRJETTA
55
Nýungar I
NýkomiÖ I
Árni Eiríksson,
Austurstræti 6.
Með E/S »Botniu« komu nýjar birgðir af allskonar
vefnaðarvöru og prjónavörum.
Feiknamikið lírval !
Bezt að koma í tima, til þess að ná í það, sem fal-
legast, er á undan öllum öðrum.
Muniö að líta inn í
Austurstræti 6.
F jölt>reyttar I F'alleg’ar!
Hlutavelíu
hefur hljóðfærasveit sú, er herra
P. Bernburg stýrir, í hyggju að
halda 12. og 13. þ. m. Ættu
bæði kaupmenn og aðrir eigi að
láta sitt eftir liggja að styðja
þessa hlutaveltu.
Gjöfum er veitt móttaka í
Grjótagötu 7 (uppi).
Ágóðanum verður varið til
hljóðfærakaupa.
Aðalfundur Steinars
er í Bárubúð uppi föstudaginn
4 þ. m. kl. 5. síðdegis. Áríð-
andi að hluthafar mæti.
Stjórnin.
Slys i pýska sjólidinu.
Snemma í mars vildi það slys til,
að þýska herskipið „York" rakst á
torpedóbát í myrkri skamt fyrir vest-
an Helgoland og sökk hann þegar í
stað. Á torpedóbátnum voru milli
80 og 90 manns og fórust flestir þeirra,
eða yfir 70. Heræfingar stóðu yfir
þarna, þegar slysið vildi til, en storm-
ur var mikill og hafið ókyrt. Þeir,
sem af komust, stukku fyrir borð
undir eins. En eftir 2 mínútur frá
því að áreksturinn átti sjer stað er
sagt að skipið væri sokkið, og hafði
það sogað mennina með sjer niður
í hvirfilinn um leið og það sökk, og
því björguðust svo fáir. Herskipið
kastaði ljósi yfir svæðið svo fljótt
sem því varð við komið, en þá var
alt horfið nema fáir menn, sem hjeldu
sjer uppi á sundi og varð bjargað.
Reykjavík.
ísaf.-málin. Sig. Hjörleifsson
hefur nú stefnt þeim Birni Kristjáns-
syni bankastjóra og Árna Jóhanns-
syni bankaritara fyrir sömu sakir og
Ólafi Björnssyni ritstjóra. B. Kr.
hafði skriflega lofað framlagi til þess
að launa S. H. við ísaf. og a öðru
skjali hafði Á. Jóh. o. fl. lofað því
sama. — Svo er nú sagt, að þeir
B. Kr. og A. J. hafi einnig stefnt
Sig. Hj., en ekki hefur Lögr. heyrt
fyrir hvað honum er stefnt.
Nýr bræðingur kvað nú vera á
hlóðunum hjá þeim L. H. Bjarnason
og Birni Kristjánssyni bankastjóra og
sitja þeir nú hvor hjá öðrum, eink-
um í rökkrunum, til þess að bera
sig saman um blöndunina, að sögn.
Sambandið mun vera myndað með
því skilyrði frá beggja hálfu, að þeir
verji hvor annan frá því, að lenda
í ráðherrasætinu við næstu skifti,
hvenær sem þau verða, og ráð vera
fyrir því gert, að til þess þurfi þeir
að halda á öllum sínum lipurleik,
einkum L. H. B , — þess vegna þörf
á nýjum smyrslum. L. H. B. mun
hafa hótað Birni afsetningu, ef hann
eigi lofaði að láta sig vera lausan,
og getur hann líka vitnað til margra
fyrri ummæla sinna þar að lútandi,
og B. Kr. þá verið jafnharður á móti
og áskilið, að ekki yrði lagt að sjer
til þess að taka við tigninni.
Laukurinn í þessum nýja bræðingi
er auðvitað Lárus. Björn kvað
leggja til svínafeitina, en grútar-
ílátin eru þeir Bjarni og Bene-
dikt. Þeir kvað hafa viljað fá mör
hjá Skúla, en sagt að kvenfólkinu
þar þyki svo vond lauklyktin, að
það vilji ekkert við þennan nýja
bræðing eiga. Gróa.
Hafnargerðin. Það er nú byrjað
að leggja járnbraut frá Öskjuhlíð til
Grandans. Önnur á að koma aust-
an við bæinn, frá Öskjuhlíð að Arn-
arhóli. Þessar brautir á að nota til
grjótflutninga og eiga gufuvagnar
með 25 h. a. að draga grjótvagnana.
Til grjótsprenginganna er ráðinn Her-
mann Daníelsson. Sagt er, að um
IOO erfiðismenn hafi nú varið ráðnir
við hafnarvinnuna.
Nýtt leilírit hefur Einar Hjör-
leifsson samið í vetur og nýlega les-
ið hjer upp fyrir leikendunum í Leik-
fjelagi Rvíkur. Það heitir „Ljen-
harður“, eftir Ljenharði fógeta, sem
er höfuðmaður leiksins, að sögn.
Ekki er sagt að sýna eigi þetta ieik-
rit fyr en á næsta vetri.
Veðrið. Fram yfir miðja vikuna
sem leið var hjer alt þakið snjó og
hafði um tíma verið bjart veður og
frost. Én á fimtud. var skifti um
og kom þíðviðri, svo að snjóinn hef-
ur nú mjög tekið upp. Föstudag til
mánudags var besta veður og sól-
bráð. í gærmorgun snjóaði aftur
um stund. í nótt sem leið hefur
frosið lítið eitt. í dag bjart og kyrt
veður.
Yflrsetukveniiapróf. Yfirsetu-
kvennaskólinn byrjaði hjer síðastl.
haust og hafa nú, í gær, 12 stúlkur
lokið þar prófi. Af þeim fjekk ein
ágætiseink. (Petra Guðmundsdóttir,
úr ísafjarðarsýslu), 3 fyrstu eink. og
8 aðra eink. Prófið stóð í 3 daga.
Kennari skólans er landlæknir. Próf-
Siöí
margar fallegar tegundir nýkomnar.
Par á meðal hin góðkunnu
assim irsjö l.
Ennfremur feiknin öll af annari
V ef naðar vöru.
Verð og gæði alkunn.
Verslunin Jjörn Xristjánsson.
Stórtjón í Bandaríkjuiium.
Símað er frá Khöfn 28. f. in. að
fellibylur hafa geysað um Mið-Banda-
rfkin og valdið eldsvoðum og vatna-
gangi. Um 1000 mans hafi farist,
en 250 þús. húsviltir. Eignatjón
feikilegt.
Ráðaueytaskifti á Frakk-
landi. Símskeyti frá Khöfn í síð-
astl. viku sagði Bríandsráðaneytið
fallið á kosningalögunum.
Mjólk.
Þeir, sem kynnu að vilja selja Laugarnesspítala, um eitt ár
frá 1. júni næstk. að telja, mjólk þá, er spítalinn þarlnast, flutta heim
á spítalann á hverjum morgni, sendi tilboð sín um besta verð til
ráðsmanns spítalans fyrir 20. þ. m.
Þess skal getið að spítalinn brúkar hjerumbil 1000 ptt. ný-
mjólk og 500 pt. undanrennu mánaðarlega.
Adrínópel. Símskeyti frá Khöfn
27. f. m. sagði það til viðbótar
fregninni í síðasta tbl. um töku borg-
arinnar, að Tyrkir hefðu sjálfir sprengt
í loft upp vopnabúr sín og opinber-
ar byggingar; margar þúsundir af
íbúum borgarinnar hefðu mist lífið,
en hinir flúið í allar áttir.
55
DAN
U
Frá 1. maí næstkomandi verð-
ur tekið við iðgjöldum til lífsá-
byrgðarfjelagsins »Dan« heima
hjá undirrituðum í Miðstræti 6
frá kl. 12—2 hvern virkan dag.
Á öðrum tima dags tjáir ekki
að koma.
Reykjavík 27. mars 1913.
A. Y. Tulinius,
aðalumboðsmaður lífsáb.fjel. „Dan“
á íslandi.
Oddur Gíslason
yrirrjettarmálaflutningsmaður,
Laufásveg 22.
Venjul. heima kl. 11—12 og 4—5.
Nýr fermingarhjóll til sölu í
Þingholtsstræti 3.
dómari er skipaður til 6 ára prófessor
Sæm. Bjarnhjeðinsson.
Aflabrögð. Botnvörpuskipin afla
nú vel. „Admírállinn" og Skalla-
grímur" nýkomnir inn, annar eftir
14, hinn eftir 10 daga útivist, báðir
með góðan afla. Sagt er að skút-
j'læstu harðinðin.
Eftir G. Björnsson. Sjer-
prentun úr Lögrjettu. Fæst
hjá bóksölum. Verð: 40 au.
Mannskaðar á íslandi.
Eftir sama höfund. Verð:
15 aurar.
urnar sjeu nú einnig farnir að afla
vel.
í Grindavík eru nú hlutir sagðir
um 200; stöðugar ógæftir banna þar
sjósókn, en fiskur nógur þar úti fyrir
nú.
l)áin er hjer sfðastl. nótt Ragn-
heiður Þorsteinsdóttir Helgasonar
prests í Reykholti og Þórunnar Páls-
dóttur frá Krossavík, ekkja eftir Skúla
lækni Thorarensen, 80 ára gömul.
Hún andaðist hjer hjá tengdasyni
sínum, Magnúsi Helgasyni kennara-
skólastjóra.
»Fálkinn« tók síðastl. laugardag
2 útl. botnvörpunga við Vestmanna-
eyjar, fulla af fiski að sögn, er var
gerður upptækur, auk sektar.
Kosningarjettur konunga. Þeg-
ar kjósendalisti var saminn í Róma-
borg í vetur, spurði nefndin, sem
listann samdi, Victor Emanúel kon-
ung, hvort hann ætti ekki rjett á því,
að teljast meðal kjósendanna og,
hvort hann vildi ekki hafa nafn sitt
á listanum. Konungur svaraði, að
fara skyldi í þessu eftir því, sem
lögin mæltu fyrir. Var hann svo
settur á kosningalistann. En þegar
það varð kunnugt, að svo hefði verið
gert, reis upp áköf þræta um það í
blöðunum, hvort konungurinn hefði
að rjettu lagi kosningarjett eða ekki.
Allir helstu lagamennirnir tóku þar
til máls með eða móti. Til þess að
fá þrætuna útkljáða tók svo ritstjóri
einn, sem var kjósandi í sama kjör-
dæmi, sig til og kærði yfir því að
konungur væri tekinn á listann.
Dómnefndin tók kæruna til greina
og kvað upp þann úrskúrð, að kon-
ungurinn væri sjálfstæður liður í lög-
gjöfinni og gæti því ekki jafnframt
verið hluti í öðrum lið hennar (þing-
inu). Því skyldi hann takast út af
kjósendalistanum.
Sambandsmálid. Greinin, sem
birtist nú um það hjer í blaðinu, er
eftir bónda hjer nærlendis, greindan
mann og merkan. En málið hefur
verið of lítið rætt. Niðurl. greinar
hans kemur í næsta tbl.
jtorðan úr fljótum.
Fjörlega rituð grein, en fautalega«
„Norðurlands"grein yðar, Erlend-
ur sælll Eftirtekta vert, ef satt er,
að „Norðurl." skyldi klykkja út með
slíkum svanasöng. Engu líkara en
ólund og bræði heillar mannsæfi
hafi safnast fyrir í yður — svo fauta-
lega og ógætilega skrifið þjer. Og
þó getum vjer trúað því, að þjer
hefðuð oft og mörgum sinnum áður
leyst frá skjóðunni og svalað skapi
yðar, í tíma og ótíma. Minna hefði
þó mátt gagn gera gömlum, gildum,
einlægum og ráðsettum kirkjuvini.
En það er líka til mikils að vinna
fyrir yður: aðskilnaður ríkis og kirkju,
og svo — en líklega er það auka-
atriði — að ófrægja biskup landsins,
prestastjettina og Hólafundarmenn,
en einkum prestinn okkar.
En haldið þjer ekki, að þjer spillið
málstað yðar með þessu, Erlendur?
Hvernig stendur á því, að æfinlega,
þegar þjer ritið um þetta þýðingar-
mikla malefni — fríkirkjumálið — þá
gerið þjer það í hita og setjið það
í samband við persónulega hagsmuni
yðar eða parsónulega óvild?
Það skal játað, að mannkynssagan
sýnir oss það með ljósum dæmum,
að upp hafa vakist góðir menn á
ýmsum tímum til þess að ryðja braut
bestu og þýðingarmestu málum mann-
lífsins. Þeir hafa sjeð það, sem fjöld-
inn sá ekki, og mistök og rangsleitni
heilla alda og kynslóða hafa legið
eins og farg á sálum þeirra. Þessir
menn hafa rutt brautir, — en hvað
hefur það kostað þá?
Finst yður — í alvöru og einlægni
— að þjer sjeuð einn af þeim mönn-
um, að þjer sjeuð kallaður til þess,
að koma fríkirkjuhugsjóninni í fram-
kvæmd?
Minnist þess, að mennirnir, sem
kallaðir voru til þess að verða braut-
ryðjendur góðu málefnanna — ei-
lífðarmálefnanna — voru ekki aðeins
yfirburðamenn, heldur einnig góðir
menn. Þeir voru einlægustu, fórn-
fúsustu og hreinlífustu menn sinnar
tíðar; þeir voru þvingaðir afkærleika
Krists.
Getur yður dottið í hug, að nokk-
ur, sem þekkir yður, líti svo á, að
þjer sjeuð þannig skapi farinn — eins
og þjer látið?
Fyrst mætti líta á fórnirnar yðar.
Jú, viti menn. Þjer skrifið ádeilu-
greinar í blöðin; sparkið í alt og
alla: þjóðkirkjuna og biskupinn,
prestastefnuna og prestana. Heima
á bóli yðar knjesetjið þjer þetta alt
— og eruð státinn.
En ekki ganga neinar sögur
af því, hvað þjer gerið mikið gagn
kirkjumálunum heima í sókn yðar.
Til eru menn, sem gætu trúað því,
að þjer væruð fúsari til þess að koma
af stað svarra og sundrungu, óþægð
og illindum, en að styrkja prestinn
yðar, sem er klerkur góður og sæmd-
armaður í hvívetna, til að leiða yður og
aðra á vegu guðsríkis.
Og hugrekkið yðar. Þá er það
ekki smáræði. Talað hefur það ver-
ið, að yður hafi sjerstaklega verið
boðið á prestastefnuna á Hólum.
Tækifærið tilvalið þar að sýna hug-
rekki yðar og mótmæla kröftuglega
öldungnum, sem erindið flutti um
fríkirkjumálið. En þangað komuð
þjer ekki — og er eftirtekta vert. Af
því yður er sjerstaklega í nöp við
prestinn okkar, mundi máske mega
Th. Thorsteinsson & Co.
Karlmannafataverslun
Hafnarstræti 4
Th.
Th
hefur fengið stærra og betra úrval en nokkru sinni fyr af
öllum. þeim vörum, er karlmenn og drengir
með þuría til klæðnadar.
Munið
Th. Thorsteinsson & Co.
Fataverslun Hafnarstræti 4.
yíths. Verslun þessi Jlytur i byrjun næsta mánaðar á Ijornið yiusturstrœti 12.