Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 03.09.1913, Blaðsíða 3

Lögrétta - 03.09.1913, Blaðsíða 3
L0GRJETTA 149 Utgerðarmenn! Gerið ekki innkaup á Netagarni fyr en þið haflð athug-að verð og gæði á þvi PT* í AUSTURSTRÆTI 1. -*| Miklar byrgðir í september af 4 og 5 þættu. Ásg. G. Gunnlaugsson & Co. aukaþing, og vill ekki víkja. Hann hafði, segja fregnirnar, búist um til varnar í landstjórahöllinni og bjóst þar við árás frá Glynn. Glynn hefur hervarðliðið á sínu bandi, en Sulzer lögregluliðið. Embætismennirnir fylgja sumir Sulzer, en aðrir Glynn. Sulzer er fylgismaður Wilsons for- seta, er sett hefur sjer það mark meðal annars, að afnema þá spill- ingu, sem orðin er landlæg í stjórn- arfarinu þar vestra víða. Þetta hefur svo William Sulzer tekið að sjer að framkvæma í New York-ríkinu. En er Tammany-mennirnir þóttust verða þess vísari, að eitthvað mætti hafa hendur í hári hans út af meðferð kosningafjárins, fóru þeir til hansog buðu honum, að breiða yfir það, ef hann kæmi á þeirra band og færi eftir þeirra ráðum. En þessu neit- aði hann, og þá hófst stríðið gegn honum. Það er haldið, að sannast muni á hann fjármisbrúkunin, svo að hann muni verða að fara frá. En það þykir illa sitja á Tammanymönnun- um að vera ákærendur í slíku máli. 3sl. gnjuskipajjelagið og Sam. gujuskipajjel. að bjóða okkur byrginn, eins og það gerir með skeytinu, reyni að kæfa innlenda gufuskipafjelagið í fæðingunni, eða skapa því torfærur, til þess að koma í veg fyrir sam- kepni um þá atvinnugrein, sem það hefur rekið hjer sjálft, — þetta er ekki annað en það, sem að sjálf- sögðu mátti búast við. Það er byrj- un, sem að sjálfsögðu má gera ráð fyrir að framhald verði á. Með því er sýnt, að Sam. gufuskipafjelagið, sem ferðirnar hefur haft, telur þær nokkurs virði. Annars ljeti það sjer ekki ant um að bægja burtu sam- kepni um þær. Og um mótstöðu frá þess hálfu gegn innlenda gufu- skipatjelaginu er það eitt að segja, að hún ætti að verða til þess, að því fastar fylktum við okkur til stuðnings því. Skeytið frá Sam. fjelaginu, sem hjer er um að ræða, hefur líka haft þau áhrif innan þingsins. Og um áhrif þess utan þings verður sama að segja. A því er enginn efi. Stofnun ísl. gufuskipafjelagsins hefur fengið svo alment fylgi í land- inu og er þegar svo vel á veg kom- in, að hún má ekki fyrir nokkurn mun að engu verða úr þessu. Það væri þjóðarsmán, ef svo færi. Og þetta skeyti frá Sam. fjel. hlýtur að verða til þess að hluttak- an í ísl. gufuskipafjel. fái nýjan byr. Sfmskeyti, sem ráðherra fjekk í fyrradag frá stjórn Sam. gufuskipafje- lagsins í Khöfn, og afhenti samgöngu- málanefnd þingsins, vakti ekki litla athygli meðal þingmanna. Skeytið er tilkynning frá fjelaginu um það, að ef alþingi veiti nokkurn styrk til íslenska gufuskipafjelagsins, eða taki fyrir landsjóðs hönd hluti f því, þá taki Sam. gufuskipafjelagið aftur tilboð það um strandferðir 1914—15, sem það hefur þegar gert. Skeytið er í meira lagi hrottalegt, og ber ekki vott um mikinn kunn- ugleik á því hjá stjórn Sam. fjel., hver áhrif það muni hafa, ef það er ætlun hennar að aftra með því hlut- töku í ísl. gufuskipafjelaginu. En hreint og beint er skeytið, og gott að hafa fengið svo skíra tilkynning frá fjelaginu áður en þingi sleit. Samkepni frá ísl. gufuskipafjel. getur reyndar ekki komið til greina á ár- inu 1914, og eigi heldur að miklu leyti 1915, svo að stofnun þess þyrfti engin áhrif að hafa á strandferða- samninga Sam. gufuskipafjel. þann tíma. Hjer er því aðeins um það að ræða, að Sam. fjel. vill hnekkja stofnun ísl. gufuskipafjelagsins. Það er auðvitað ekki nema eðli- legt, að Sam. gufuskipafjelagið vilji sjá um sinn hag, vilji vera sem ein- ráðast um samgöngurnar hjer við land og vilji kyrkja í byrjun þá sam- kepni, sem væntanleg er frá inn- lendu gufuskipafjelagi. Það hugsar auðvitað fyrst og fremst um sína hagsmuni. Það tekur auðvitað ekki að sjer ferðir* hingað til lands nje kring um landið til annars en þess, að græða á þeim. Það tekur þær að sjer í sína þágu, en ekki okkar, nema þá að þetta hvorttveggja geti farið saman. Samningar við það, eða hvert annað útlent fjelag sem vera vildi, eru eins og hver annar kaupskapur, þar sem hvor málsaðili um sig hugsar um sinn hag og reynir að ná sem bestum kjörum fyrir sig á hins kostnað. Að Sam. gufuskipafjelagið reyni Reykjavík. Jarðarför Stgr. Thorsteinsson- ar rektors fór fram frá dómkirkj- unni síðastl. laugardag. Ræðu við húskveðjuna flutti Haraldur Níelsson prófessor, en kvæði var sungið eftir Guðm. Guðmundsson skáld, og er þetta 1. erindið: „Hljóð og fögur, harmi lostin, hneigir listagyðjan þjer; yfir skæru augun brostin engilmild hún hallar sjer. Eins og ljóð til ljóssins sala líður stilt í kvöldsins ró, himinkveðja hljóðra dala, hugum ljúfa skáldið dó". í kirkjunni talaði síra Jóhann Þor- kelsson dómkirkjuprestur. Þar var og útbýtt „Minningarljóðum um Stgr. Thorsteinsson", kvæðaflokki eftir Guðm. Guðmundsson, og er fyrsta kvæðið prentað með mynd Steingríms á öðrum stað hjer í blað- inu. Lærisveinar Stgr. Th. lögðu silfur- sveig á kistu hans. Sig. Júl. Jóliannesson læknir frá Ameríku er nú á ferð uppi um Borgarfjörð, en fer heimleiðis aftur 8. þ. m. »Papa André« heitir mynd, sem nú að undanförnu hefur verið sýnd á „Gamla Bio" og er ítalskur sorg- arleikur, vel leikinn. Myndi verður sýnd þar aftur næstk. föstudagskvöld, í síðasta sinn. Eggert Stefánsson söngmaðnr söng hjer, eins og til stóð, síðastl. laugardag í Bárubúð, með aðstoð frú Astu Einarsson. Söngskráin var fjölbreytt og lögin flest hvert öðru betur sungin, enda hafa kennarar Eggerts látið mikið af sönghæfileik- um hans. Meðal þess, sem honum þótti best takast með, var „Don Ott- anios Arie" úr „Don Juan", eftir Mozart, og „BIomster-Arie" úr „Car- men", eftir Bizet. Ennfremur „Söv- nen“ eftir Kjerulf o. fl. Af íslensk- um lögum söng hann 2 eftir Árna Thorsteinsson, „Áfram" og „Kirkju- hvol", 2 eftir Sigf. Einarsson, „Sofn- ar lóa" og „Gígjan", og 1 eftir Sigv. Stefánsson lækni, „Á Sprengisandi". Voru þau öll vel sungin. Yfirleitt var ágætlega látið yfir söngnum. Eggert syngur aftur á sama stað annað kvöld. Hvað liggur eftir Lárus H. Bjarnason? Ekki hefur neinn leyst úr þeirri spurningu enn, og hefur fyrirspyrjandi mælst til, að hún yrði endurtekin. M Ijalláta til fiskiiik Dáinn er 27. f. m. Guðmundur Sigurbjörnsson á Þorkelshóli í Húna- vatnssýslu, nálægt 70 ára að aldri, einn merkasti bóndi þar um slóðir. Verður hans nánar getið sfðar. Barnaskólinn á ísaflrði. Þar er nýráðinn kennari Baldur Sveinsson kand. Skip brann nýlega úti fyrir Ól- afsvík, mótorkútter, sem „Ágúst" hjet og Brillouin fyrv. Frakka-kon- súll átti. Skipverjar höfðu með naumindum bjargast til lands. Skipum hlekkist á. „Prosperó" hefur legið í lamasessi rjett fyrir utan Akureyri nú í nokkra daga. Hafði rekist þar upp í sand, er hún var að fara út, og voru vörur bornar úr henni til þess að ná henni á flot aftur. Talið, að hún sje ekki skemd að mun. Annað skip, „Norðby", frá Duus- verslun hjer, er var á leið út með fisk, rakst upp í sand á Seyðisfirði, en er ekki heldur talið skemt að mun. Björgunarskipið „Geir" er nú á leið austur og norður. ísl. gufuskipafjelagið. Símað var hingað frá Hólmavík t gærkvöld, að hlutasöfnun væri byrjuð þar að nýju og komnar 600 kr., en á Ó- spakseyri 500 kr., og sama var sfmað frá Borðeyri, og þar komn- ar að nýju ioo kr. Eins er hjer í bænum, að hlutasöfnunin er að fá nýjan byr. — Það er skeytið frá Sam. fjelaginu, sem hjálpar til. SRáldlaunin. Þeir E. Hjör- leifsson, Guðm. Magnússon og Þorst. Erlingsson eru óánægðir yfir þeim breytingum, sem neðri deild gerði á skáldastyrkjunum, að færa þá alla á fyrra ár fjárhagstímabilsins, og auk þess að lækka styrkinn um 400 kr. hjá þeim hverjum um sig á fjár- hagstímabilinu. Hafa þeir ritað al- þingi og óskað, að styrkirnir yrðu látnir standa með sama fyrirkomu- lagi og sömu upphæðum og áður og færa ástæður fyrir því, að þeir geti ekki að öðrum kosti fengist við skáldritagerð. Segjast þeir fremur hafa búist við því, að styrkurinn yrði aukinn, en að höggvið yrði af honum. ísland erlendis. Karl Kiichler hefur nýlega ritað grein um Færeyjar og ísland í þýska tímaritið „Natur" og fylgja þar mynd- ir. Greinin heitir „Zwei nordische Zauberwelten" (tveir norrænir töfra- heimar). Doktorsritgerð Guðm. Finn- bogasonar kemur út á frönsku í október í haust í Bibliotheque de philosophió contemporaine, er gefið er út af F. Alcan í París. A. Cour- mont sjer um útgáfuna. Alþing’i. XI. Aðflutningsbannið. G. Egg. og Valtýr flytja svohljóð- andi þingsályktunartillögu: Neðri deild alþingis ályktar að skora á stjórnina, að láta fara fram leynilega atkvæðagreiðslu allra al- þingiskjósenda á landinu um það, hvort nema skuli úr gildi lög nr. 44, 30. júlí 1909 um aðflutnings bann á áfengi. Atkvæðagreiðsla þessi fari fram fyrir 1. júlí 1914. Stjórnarskráin er komin til efri deildar. Við 3. umr. í n. d. voru gerðar ýmsar til- raunir til að breyta fyrirkomulagi efri deildar, en niðurstaðan varð hin sama og áður, að hún skyldi vera skipuð 6 hlutfallskosnum þingmönn- um og 8, er sameinað þing kýs úr flokki þingmanna, sem kosnir eru óbundnum kosningum. Frumvarpið samþ. í heild sinni með 20 atkv. gegn 5 (J. Ó!., M. K., Kr. J., Sk. Th. og Valtýr). Pingsályktnnartillögu um strönduð skip flytur Þorl. Jóns- son, að neðri deild skori á lands- stjórnina, að gera ráðstafanir til þess, að útlend strönduð skip liggi ekki óseld á strandstaðnum árum saman. Itosningar. Gæslustjóra Landsbankans, f stað Jóns Ólafssonar, kaus e. d. í gær Jón Gunnarsson samábyrgðarstjóra með 7 atkv., Jón Laxdal fjekk 5 atkvæði. Endurskoðunarmann landsreikn- inganna kaus e. d. sama dag Eirík prófessor Briem, í stað L. H. B og endurskoðunarmaður Söfnunarsjóðsins var Júlíus amtmaður Havsteen end- urkosinn. Iíosning borgarstjóra. Frv. L. H. B. um að borgarstjóri Reykjavíkur væri kosinn af kjósend- um bæjarins var felt í efri deild á mánudaginn með 8: 5. Með frv. voru: Hák. Kr., J Jónat., Jós. Bj., Júl. Hav., og Sig. Egg., en á móti: Bj. Þorl., Ein. J„ Eir. Br., Guðj. G., Guðm. Bj., Sig. Stef., Stgr. J„ Þór. J. Lög frá alþingi. 12. Um bæjanöfn. Nöfnum á býlum, utan kaupstaða og kauptúna, þeim er jarðabók telur, má enginn breyta, nema að fengnu leyfi stjórnarráðsins. — Stjórnarráðið gefur út leyfisbrjef til upptöku nýrra nafna og kostar leyfisbrjefið 25 kr. er renna í lands- sjóð. Ekkert býli utan kaupstaða, kauptúna og sjóþorpa, má nafnlaust vera, og sje um ný býli að ræða skulu nöfn þeirra þinglesin. 13. Um umboð þjóðjarða. Hreppstjórar skulu, hver í sínum hreppi, hafa umráð yfir öllum þjóð- jörðum, öðrum en þeim, er standa undir umsjón sýslumanna. Hreppstjóri hefur byggingarráð á þjóðjörðum þeim, er hann hefur um- ráð yfir. Þó skal bygging þeirra þvf að eins fullgild, að sýslumaður hafi ritað samþykki sitt á bygging- arbrjefið. Þjóðjarðir skulu að jafnaði bygð- ar æfilangt. Eftirgjald þeirra (land- skuld og kúgildaleigur), svo og lóð- argjald og rekaleiga, skal ákveðið í peningum, og gjalddagi 31. desem- ber ár hvert. Ef lóðarblettur eða önnur jarðarnot eru ltigð lengur en leiguliði getur sjálfur notað þau, skal ávalt ákveðinn tími tilnefndur, eigi lengri en 50 ár, nema um bygg- ingarlóðir sje að ræða, og er slíkur leigusamningur eigi fullgildur, nema samþykki landsstjórnarinnar komi til 14. Um ábyrgðarfjelög. 1. g. Auk hinnar dönsku lífsá- byrgðarstofnunar rfkisins, liins al- menna brunabótafjelags kaupstaðanna í Danmörku og ábyrgðarfjelaga, sem stofnuð eru samkvæmt sjerstökum lögum, mega ekki aðrir reka hjer á landi ábyrgðarstarfsemi en hlutafje- lög, innlend eða útlend, eða fjelög með gagnkvæmri ábyrgð eða fjelög, sem rekið hafa ábyrgðarstarfsemi hjer á landi í full 2 ár, er lög þessi öðlast gildi, enda fullnægi þau öll skilyrðum þeim, sem hjer fara á eftir. Það er ábyrgðarstarfsemi sam- kvæmt lögum þessum, að taka að sjer gegn iðgjöldum um lífsábyrgðir og vátryggingar, hverju nafni sem nefnast. Starfsemin telst því aðeins rekin hjer á landi, að framboðin sjeu á einhvern hátt af ábyrgðarfje- lags hálfu viðskiiti innanlands, en ekki þó hjerlendir menn leiti til á- byrgðarfjelaga í öðrum löndum, sem ekki hafa erindisreka hjer í landi, og fái ábyrgðir hjá þeim. 2. gr. Nú vill útlent ábyrgðarfje- lag reka starfsemi hjer á landi, og skal það þá hafa aðalumboðsmann, einn eða fleiri, búsettan hjer, þann er stjórnarráðið löggildir. Aður en slík löggilding er gefin skal fjelagið afhenda stjórnarráðinu yfirlýsing um, að það hafi varnarþing hjer á landi á þeim stað, þar sem aðalumboðs- maður, sá er í hlut á, er búsettur, f öllum þeim málum, sem rfsa kunna út af ábyrgðum, sem fjelagið tekst á hendur gagnvart hjer búsettum mönnum, eða stofnunum hjer á landi. Ábyrgðarskfrteini skulu vera á ís- lensku, og skal þar tekið fram, hvar varnarþing sje. Að því er til sjóvá- tryggingar kemur, skal það þó vera á valdi þess, sem ábyrgðar leitar, hvort hann vill fá ábyrgðarskírteini á íslensku eða á útlendu máli. Nú vill erlent ábyrgarf jelag eigi .gjalda það fje, sem það hefur verið skyldað til með íslenskum dómi, og skal þá stjórn íslands sjá um, að þeim dómi verði fullnægt. Kostnað tekur hún úr landssjóði, en gjalda skal dómhafi hann aftur, þá er hann hefur fengið leiðrjetting mala sinna. Undirumboðsmenn getur aðalum- boðsmaður sett út um landið, þar sem honum sýnist, en hann ábyrg- ist gagnvart vatryggendum fyrir fyrir hönd fjelags sfns allar gjörðir undirumboðsmanns, er snerta starf- semi fjelagsins hjer á landi. Til- kynna skal hann stjórnarráðinu, hverjir sjeu undir umboðsmenn. 3. gr. Öll ábyrgðarfjelög, er starfa hjer á landi, skulu háð eftirliti stjórn- arráðsins um það, að ekki sjeu sett nein ákvæði f abyrgðarskfrteini þeirra, sem koma í bága við gildandi lög. 4. gr. Verði ábyrgðarfjelag, er starfar hjer í landi samkvæmt 2 gr., uppvfst að þvf, að hafa f verulegum atriðum vanrækt að uppfylla skuld- bindingar sfnar og skyldur, hefur fjelagið fyrirgert rjetti sfnum til þess að taka að sjer nýjar ábyrgðir hjer landi, eftir nánari ákvörðun stjórnar- raðsins í hvert skifti. 5. gr. Sjerhverju ábyrgðarfjelagi, er starfar hjer á landi, er skylt að senda stjórnarráðinu á ári hverju fyrir aprillok skýrslu um starfsemi fje- lagsins undanfarið ár f því formi, sem stjórnarráðið akveður, sbr. lög nr. 20, 3. okt. 1903. 6. gr. Brot gegn 1. gr. þessara laga varða sektum frá 500—5000 krónum, sem renna í landssjóð. Mal út at slíkum brotum skulu rekin sem almenn lögreglumál. 7. gr. Lög þessi öðlast gildi I. janúar 1914. Marconísanibönd í enska ríkinn. Neðri málstofan enska samþykti 8. ág. með 210 atkv. gegn 138 samn- inga stjórnarinnar við Marconífjelag- ið um loftskeytasambönd, er nái yfir alt enska ríkið, og hefur áður verið sagt frá þeim hjer í blaðinu. Sumir vildu að stjórnin sjalf ljeti vinna verkið, og var allmikil deila um það, enn hitt varð ofan á. Óeirðir í Ulster. Um miðjan ágúst urðu götubardagar f London- derry og var einkum hörð árás gerð á verksmiðju eina, þar sem kaþólskir menn vinna. Fjórir lögregluþjónar voru særðir með skammbyssuskotum og aðrir með steinkasti. Borgmeíst- arinn bað um herliðshjalp til þess að stilla til friðar. Kuldi í Mið-Evrópu. Rjett fyrir miðjan ágúst varð alt að því 3ja st. næturfrost í Baiheimi í Austurriki og víðar var óvenjulegur kuldi. Harð- ar haglskúrir fylgdu, og skemdi þetta mjög gróður.

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.