Lögrétta - 15.10.1913, Page 4
176
L0GRJETTA
Kamelíufrúin
verður leikin annað kvöld,
fimtudag 16. okt. kl. 872
í sídasta; HÍnn.
mosagróður og fjallablóma og svo
dálítið stargresi, lyng og víðir; eng-
inn á. Svo kemur maður fyrst í
Fossfjörð. Margar ár með smáfoss-
um mynda aðalána, sem mesti foss-
inn er í. —
Dalurinn upp af firðinum er stutt-
ur og breiður, og er í honum tals-
verður skógur og 2 bæir vel hýstir.
Austur af Fossfirði er Reykjarfjörður,
þar eru 2 bæir og I hver. Aust-
ur af Reykjarfirði er Trostansfjörður,
þar er i bær, en meiri skógur en í
Reykjarfirði. Og austast er Geir-
þjófsfjörður. Þar er mestur skógur
og 3 bæir.
En vestan við Fossfjörð er Otrar-
dalur; þar var lengi prestssetur. En
nú er það á Bíldudal, sem er við
vík, og er hún fimti og vestasti
Suðurfjörðurinn.
Bídudalur er laglegur kaupstaður,
en stendur neðan við skriður og urðir
og örðugt er þar að rækta nema
lengra frá. Eru, minnir mig, 300—
400 manns þar. Ekki fjölgar þar;
var líka kvartað um atvinnuleysi, eins
og svo víða í kaupstöðum vorum.
VIII.
Arnarfjar ðardalir.
Frá Bíldudal fór jeg vestur í Sel-
árdal og sá því alla Arnarfjarðar-
dali. Sveit þessi er einkennileg og
tilkomumikil. Bæirnir eru í 6 dölum,
sem ganga suður í fjöllin, og eru
feiknahamrar á milli þeirra og kring-
um þá. Sauðfje fer oft upp í hamra
þessa, þvf þar eru víða gróðurtopp-
ar. Er afarhættulegt að ná því þar.
Og lá mjer við sundli, þegar þeir
sýndu mjer hengiflugin þar sem fólk-
ið verður að klifra eftir fjenu. En
þar eru ágætir klettamenn líkt og
undir Eyjafjöllum. En Arnarfjarð-
arhamrarnir eru þó ennþá hærri en
Eyjafjallahamrarnir. Flestir eru bæ-
irnir í Selárdal, einir 7, en í 3 hinum
dölunum 3—$ bæir í hverjum, og í
2 dölunum 1 bær f hverjum. Veiði-
stöð er í Selárdal og fjekk prestur
meðal annars 800 steinbíta í vertolla.
Nú gjaldast ekki nema 80 steinbftar,
énda er veiði sú minna stunduð, því
þorskúrinn borgar sig betur, þótt
mínkað hafi þar sem annarstaðar sfðan
botnvörpungarnir komu. Sögðu þó
Rauðasandsmenn, að nógur væri stein-
bíturinn ennþá þarna kringum vestur-
skaga sýslunnar. — Brattir og tæpir
þóttu mjer vegirnir við Arnarfjörð,
eins og víðar í sýslunni. En furðan-
lega mikið hefur þó verið gert við
þá, er þó langt á milli bæja og fólkið
fátt. Allmikill menningarbragur er
annars að koma þarna og víðar f
sýslunni. Húsakynni eru altaf að batna;
5 steinhús, 2 hlaðin, en 3 steypt, eru
nýbygð í Dalahreppi. Híbýlaprýði
er þar líka í framför. Á einum bæn-
um sá jeg 8 myndir stórar og falleg-
ar í einni lítilli stofu; þar var Rrists-
mynd með blóðugt hjarta þyrnikrans-
að, logaði upp úr því og úr loganum
reis kross; þar var Maríumynd með
blómkransað hjarta, Mósesarmynd,
Adams- og Evu-myndir 3, og ein enn.
Svipaða myndaprýði hef jeg sjeð á
mörgum betri bæjum í sveitum, en
sjaldan svona merkilega. Það er lær-
dómsríkt að taka vel eftir því, hvernig
tnenn prýða heimili sín. Myndir hafa
meiri áhrif á menning þeirra en marg-
Ur hyggur.
Hinumegin við Arnarfjörð eru líkir
dalir, en smærri og hamrarnir minni,
einkum þegar inn með firðínum dreg-
ur. í austri, bak við Arnarfjörð og
Suðurfirði, eru 4 stórir, fallegir hnúkar,
sem „Hornatær” nefnast. En í aust-
norðri er Rafnseyri. Allfagur er þessi
sjónarhringur Jóns Sigurðssonar.
(Niðurl.)
Gjafir til Heilsuhælisins.
1. Frá Sigurði Júlíusi Jóhannes-
syni lækni 81 kr. 95 a. og var það á-
góði af fyrirlestri þeim, er hann hjelt
hjer.
2. Frá Einari Jochumssyni 80 kr.,
og er það heitfje, sem hann hjet
Heilsuhælinu í vor, sem leið, ef
„Ljósið" hans seldist vel. Sjest þar
enn sem fyr, að gott er að heita á
hælið.
3. Frá Stórkaupmanni Tönnes
Wathne í Stavanger 200 kr. með
þeim ummælum, að verja skuli til
hjálpar einhverjum fátækum sjúkling-
um. Mun yfirstjórn hælisins úthluta
þessu fje eftir tillögum læknisins þar.
Fyrir þessar fallegu gjafir kann
jeg gefendum bestu þakkir.
G. Bjórnsson.
Reykjavík.
Bílferðir. Hr. Sveinn Oddsson,
eigandi annars bílsins, sem hjer er
í förum, biður þess getið, að það,
sem segir um ógætilegt ferðalag á
bílum í síðasta tbl., geti ekki átt
við sinn bíl. Hann hafi aldrei farið
á 15 mínútum milli Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar.
Læbningastofa háskólans er nú
í prestaskólahúsinu gamla í Austur-
stræti og þar ókeypis læknishjálp
veitt öllum, sem hennar Ieita, á viss-
um tímum, eins og auglýst var í
sfðasta tbl. Lögr. Einn af læknun-
um hefur vakið máls á því við Lögr.,
að hún skyldi hvetja menn til þess
að nota þessa ókeypis læknishjálp
meira en gert hefur verið. Hann
sagði, að hún væri alt of lítið notuð,
og hlyti það að stafa af athugaleysi
almennings. Geti sjúklingar ekki
komið, mega þeir gera boð þangað
eftir lækni, sagði hann, og verður
því sint, og læknishjálpin eins fyrir
það látin í tje ókeypis.
Tíðin hefur verið ágæt um all-
langan tíma að undanförnu, stilt veð-
ur, bjart og hlýtt.
Brjef frá Páli Melsteð til Jóns
Sigurðsson eru nýkomin, frá Fræða-
fjelaginu í Khöfn, 133 bls., fróðleg
og skemtileg bók.
Fyrirspurn. Hvernig stendur á
því að stjórnarráðið birtir aldrei neitt
af þeim fróðlegu skýrslum, sem jeg
þykist nú vita að viðskiftaráðanaut-
urinn okkar gefi því altaf öðru hvoru
um starfsemi sínaf Mjer sýnist að
þær og annar slfkur fróðleikur gæti
vel átt heima f auðu dálkunum í
Lögbirtingablaðinu. Dalakarl.
Lögr. vísar þessari fyrirspurn til
stjórnarráðsins.
Hvað Lárns hefnr geft. X-ið,
sem í næstsíðasta tbl. Lögr. telur
upp fjárfeng L. H. B. úr landssjóði,
auk embættislauna, gleymir úr að
minsta kosti 2500 kr. Styrkurinn
til laganámsins var veittur í tvö ár,
2,500 kr. hvort árið. Ofan á þetta
bætist svo bankaráðsbitlingurinn, sem
honum var veittur á þingi í sumar og
nemur á næstu 3 árum eitthvað nálægt
5000 kr.' Y.
»Flora« kom norðan um land í
morgun full af vörum og með yfir
200 farþega, þar á meðal voru Jón
Þorláksson landsverkfr., V. Knudsen
verslunarm., Ó. G. Eyjólfsson skóla-
stj., 0. Björnsson prentsmiðjueigandi
frá Akureyri, frú Smith. frá Noregi,
móðir Smiths símastjóra.
»Kamelíufrúin« var leikin hjer í
tvö kvöld um sfðastl. helgi. Aðal-
hlutverkin höfðu frú Stefanía Guð-
mundsdóttir og Jens Waage, og Ijeku
bæði vel. Hr. J. W. ætlar nú að
leika í vetur og er það mikill ávinn-
ingur fyrir leiksviðið.
Sveinn Oddsson, sem hingað kom
f sumar frá Ameríku, fer vestur aftur
á morgun, en kemur næsta vor með
5 nýja bíla að minsta kosti.
Hey frá Noregi er nú flutt hing-
að til bæjarins, og er sagt, að tölu-
vert liggi á Akureyri af norsku heyi,
sem hingað á að fara.
Alþingistíðindin. Af þeim er
komið út 3. hefti af umr. í n. d. og
var sent út með síðasta pósti.
Háskólinn. í guðfræðisdeild eru
nú 11 stúdentar, fimm eru nýir,
Þorsteinn Kristjánsson, Kjartan Jóns-
son, Sigurgeir Sigurðsson, Ragnar
Hjörleifsson og Halldór Gunnlaugs-
son.
í lagadeild eru 16 stúdentar, 2
nýir, Kjartan og Ólafur Thors.
í Iæknadeild eru 26 stúdentar, 6
nýir, Tryggvi Hjörleifsson, Kristján
Arinbjarnarson, Gunnar A. Jóhann-
esson, Karl Magnússon, Kristmundur
Guðjónsson og Jón Bjarnason.
í heimspekisdeild 2 stúdentar,
1 nýr, Geir Einarsson.
Ókomnir eru 3 nýir stúdentar,
sem víst er um að stunda ætla nám
við háskólann, 2 guðfr. og 1 lækn-
isfræðingur.
Mentaskólinn. Þar eru nú nem-
endur 140.
Heimspekisdeild háskólans. Af
því að fleiri en stúdentar háskólans
hafa að undanförnu sótt ýmsa fyrir-
lestra í heimspekisdeildinni, skal hjer
tekið fram, hvað þar er kent á hinu
nýbyrjaða námsskeiði, frá 1. okt. til
15. febr.
Prófessör dr. phil. B. M. Ólsen:
1. Heldur áfram fyrirlestrum sínum
um bókmentasögu íslendinga þriðju-
daga og laugardaga kl. 5—6. — 2.
Æfingar út af Eddukvæðum (eða
skáldakvæðum, ef nemendur kynnu
að óska þess heldur) fimtudaga kl.
5—6 og laugardaga kl. 6—7. — 3.
Fyrir takmarkaða tölu nemenda: æf-
ingar í lestri íslenskra rita í sundur-
lausu máli með sjerstöku tilliti til
íslenskrar málfræði, 1—2 stundir á
viku, eftir samkomulagi.
Prófessor dr. phil. Ágúst H.
Bjarnason: 1. Fyrirlestrar og yfir-
heyrsla í forspjallsvísindum mánu-
daga, þriðjudaga, fimtudaga og
föstudaga kl. 4—5 síðd. — 2. Við-
ræður um helstu viðfangsefni heim-
spekinnar fyrir takmarkaða tölu stú-
denta á laugardögum kl. 5—6 síðd.
(Russel: Problems of Philosophy lögð
til grundvallar). — 3. Fyrirlestrar
fyrir almenning um heimsmynd vís-
indanna á miðvikudagskvöldum kl.
7-8-
cyijjtí! Díýtt! DTýtf!
Svissnesku blúsurnar
úr silki og ull eru aftur bomnar í
Brauns verslun, Rvík.
^áíryyyié eigur yéar
(Rús, Rúsgöyn oy vörur) í örunaöotafjaí.
„&!etieraí“,
stofnsett 1885.
Aðaluruboðsmaður fyrir ísland: Sig. Thoroddsen adjunkt, Frí-
kirkjuveg 3. Heima ki. 3—5. Sími 227.
Umboðsmaður fyrir Norður-ísafjarðarsýslu: Jón Hróbjartsson
verslunarstjóri.
Umboðsmaður fyrir Vestmannaeyjar: Jóhann Þ. Jósefsson kaup-
maður.
Duglegir umboðsmenn óskast á Eyrarbakka, Akranesi, Þingeyri,
Stykkishólmi og víðar.
Námsskeið í bifvjelafræði.
Hinn 15. nóvember byrjar námsskeið í bifvjelafræði við stýrimanna-
skólann í Reykjavík, er stendur yfir í minst 4 vikur. Kenslan fer fram í
fyrirlestrum og verklegri tilsögn.
Þeir, sem óska að ganga á námsskeiðið, gefi sig fram við undirritað-
an forstöðumann stýrimannaskólans fyrir nefndan dag..
Dócent Jón Jónsson: 1. Heldur
áfram fyrirlestrum um sögu íslands
(tímabilið 1262—1550) þriðjudaga
og laugardaga kl. 7—8 síðd. — 2.
Heldur áfram fyrirlestrum um sögu-
og fornfræðaiðkanir íslendinga eftir
siðaskiftin fimtudaga kl. 7—8 síðd.
Reykjavík 14. október 1913.
Ir*áll Halldórsson.
„Siim Consum Ghocolade
Island -erlendis.
er áreiðanlega nr. 1.
Úr ensknra blöðnm. „The Daily
Mirror", hið alkunna myndablað í
Lundúnum, hafði hjer mann síðastl.
sumar, sem ferðaðist um og tók
myndir handa því. Lögr. hefur sjeð
nokkrar þeirra. Ein er af gíg frá
Heklugosinu í sumar. Önnur frá
Geysi. Þriðja af Gullfossi. Hestar
eru sýndir undir heybandi og mjalta-
kona á hestsbaki. Ásta málari er
sýnd uppi í stiga að mála nafnspjald
á húsi. Kvenfólk er sýnt við fisk-
verkun. Fuglaveiðar eru sýndar, mað-
ur í sigi í bjargi og fuglaungarnir,
sem eftir er sótst, í hreiðri. Kven-
fólk er sýnt við þvott í laugunum o.
s. frv. Stuttar skýringar fylgja mynd-
unum í blaðinu. — Við og við eru
í ýmsum enskum blöðum smáfrjettir
hjeðan um fiskiveiðar og verslun, —
og svo botnvörpungaströndin. Frá
flaggmálinu 12. júní í sumar hefur
líka verið sagt þar. Fuglafræðing-
urinn enski, Edmund Selous, sem
ferðaðist hjer í fyrra sumar, hefur
aftur verið hjer f sumar sem leið og
ritað um það meðal annars í „The
Saturday Rewiew" frá 20. sept.
„Gestur eineygði“. Khafnarblað-
ið „Riget" frá 22. sept. flytur mjög
lofsamlegan ritdóm um síðustu sögu
Gunnars Gunnarssonar, sem út kom
í haust hjá Gyldendals bókaverslun
og heitir „Gestur eineygði". Greinar-
höf. segir, að sagan sje „mikilfeng-
legt verk, skrifað af skáldi". Þar
sjeu Bett fram „stór örlög í stórfeldri
náttúru, málið hreint, og næm tilfinn-
ing". Hann hvetur menn til að lesa
bókina og lesa hana vel. Hann sjer
hinn „lifandi kristindóm" uppmálaðan,
þar sem Gestur eineygði er, og lofar
mikið, hve höf. takist vel að koma
fram þeirri hugsun. Honum þykir
bókin frumleg, en telur hana helst
fara í líka átt og rit Selmu Lagerlöf.
Knuð Berlin pröfcssor hefur í
»Ugens Tilskuer* frá 19. sept. ritað
langa grein um hið nýútkomna rit
Einars prófessors Arnórssonar um
Rjettarstöðu íslands, sem Þjóðvina-
fjelagið hefur gefið út í sumar. Bein-
Gætið þess að vörumerki okkar sje á pakkanum.
ist hann þar einnig að ritum Jóns
Sigurðssonar um sama efni og Iætur
ekki lítið yfir framgöngu sinni gegn
ýmsum kenningum J. S., er áður hafi
verið taldar óhrekjanlegar, en hann
kveðst fyrstur manna hafa fundið
höggstað á. í blaðinu »Hovedstaden«
hafa þeir K. B. og Holger Wiehe
átt í deilum um íslensk mál, og tek-
ur H. W. þar, eins og jafnan, mál-
stað ísland. En ekki hefur Lögr.
sjeð þær greinar. í »Köbenhavn«
hefur K. B. einnig ritað um mála-
afstöðuna hjer á alþingi. Þar legg-
ur hann af sjer eina fyndni, sem
hittir allvel. Hann er að tala um
fánamálið og segir, að í einu tilfelli
hafi íslendingar aldrei ímugust á
»dannebrog«, og það sje þegar þeim
sjeu boðnir »dannebrogs«-krossar.
Þeir Skúli og Lárus, sem ekki vilji
sjá »dannebrogs«flagg ástöngíland-
inu, gangi báðir með »dannebrogs«-
krossa á brjóstunum.
Nærfatnaður,
mikið og gott úrval.
Sturla Jónsson.
Oddur Gíslason
yfirrjettarmálaflutnlngsmaður,
Laufásveg 22.
Venjul. heima kl. 11—12 og 4—5.
góða og- ódýra
nýliomiÖ.
Sturla tSónsson.
S. C. Xraul8 A
Forsendelseshus V ,y/
(útsendingahús)
Horsons
sendir ókoypis öllum
skrautverðskrá sína.
'X'alsími 801.
Forfulg't,
eller en spændende Kamp paa Liv
og Död, 226 Sider, 50 Öre. Sola:
Som man saar — Kr. 1,25 ib. i Pragt-
bind; en af den berömte Forfatters
mest læste Böger. Begge Böger sen-
des portofrit mod Indsendelse af 2
Kr. pr. Postanvisning. Samtidig med-
fölger ny udkommen Bogfortegnelse
over ca 200 nye Böger. Önskes Kata-
log over Hygiene, Sygepleje og Bar-
berartikler, jnedsendes den gratis.
A.Brandi,Prinsessegade,KbhvD C.
afarmikið úrval,
langódýrastir.
Sfurla c7onsson.
verður haldinn á „Hótel Reykjavík"
mánud. 20. þ. m. kl. 9 síðd.
Venjuleg mál á dagskrá.
Fjelagsstjórnin.
mikið úrval.
Sfurla clcnsson.
Massagelæknlr
Guðniundur PJetursson.
Iloinia kl. 6—7 0. m.
Spítalastíg 9 (niðri). Sími 391,