Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 21.01.1914, Blaðsíða 1

Lögrétta - 21.01.1914, Blaðsíða 1
Afgreiöslu- og innheimtum.: fORARINN B. ÞORLÁKSSON. Veltueundi 1. Talilmi 369. LOGRJETTA Rits tjðri: PORSTEINN fitSLA80N Plngholtiitrati 1T. Taliimi 171. M Reykjavik 31. janúar 1914. IX. árgf. «1. Ii. S. Estrnp, fæddur 16. apríl 1825, dáinn 23. des. 1913. Lirus Fjeldsted, Y'flFPjettarmAlafœrslumaOur. Lækjargata 2. Helma kl. 11-12 og 4 7, Bœkur, Innlendar og erlendar, pappír og allskyns ritföng kaupa allir í Bókaversl. Sigfúsar Eymundssonar. €imskipajjelag íslanis stojnað. Stofnfundur fjelagsins hófst, eins og ráð hafði verið fyrir gert, laug- ardaginn 17. þ. m. Hann varsett- ur í Iðnaðarmannahúsinu kl. 12 um daginn af Jóni Gunnarssvni samábyrgðarstjóra, sem er einn úr bráðabyrgðastjórninni, en for- maður hennar, Thor Jensen fram- kvæmdastjóri, er nú erlendis. — Gat J. G. þess, að landstjórninni hefði verið boðið að hafa fulltrúa á fundinum, og eins hefði um- boðsmanni Vestur-Islendinga, hr. J. Bíldfell, verið boðið á fund- inn. Fundarstjóri var kosinn Halldór Danielsson yfirdómari, en skrif- arar Björn Pálsson lögfræðingur og Magnús Einarsson dýralæknir. Fyrir hönd bráðabirgðastjórn- arinnar talaði fyrst Sveinn Björns- son lögfræðingur, sagði sögu fje- lagsmyndunarinnar og lýsti starf- semi bráðabirgðastjórnarinnar. Hann sagði, að hjer innanlands hefðu menn skrifað sig fyrir 340 þús. kr. hlutatöku í fyrirtækinu, og mestöll sú upphæð væri inn komin, eða 322 þús. kr. Væri fje það nú í bönkunum hjer á vöxt- um. Kostnaður við undirbún- ingsstarfið hefði alls numið 3840 kr„ þar af pappír og prentun rúml. 2000 kr„ en hitt væri fyrir skrifstofuhald, símtöl, auglýsing- ar o. s. frv. Bráðabirgðastjórnin sjálf hefði ekkert tekið fyrir sitt starf. Hann kvað bráðabirgða- stjórninni hafa boðist tilboð um útlent fje til fyrirtækisins, frá K.- höfn, Hamborg og Englandi, sum- part skilyi’ðum bundið, en sum- part án skilyrða. En ekki hefði bráðab.stj. tekið þeim tilboðum. Upplýsingar um gerð á skipum og uppdrætti af skipum hefði hún fengið hjá »Bureau Veritas« i Khöfn. Tilboða um smíði á skip- unum hefði svo verið leitað hjá 28 skipasmiðafjelögum, og hefðu tilboðin átt að vei'a komin til Khafnar viku af janúar. Nokkur hefðu þá veiið komin þangað, en önnur hefðu komið síðar, og væru tilboðin væntanleg hingað 26. janúar. Þar næst flutti Jón J. Bíldfell fundinum kveðju frá Vestur-ís- lendingum. Sagði hann, að sam- kvæmt síðasta skeyti, sem sjer hefði borist að vestan, væru feng- in þar loforð fyrir 160 þús. kr. til fyrirtækisins. En víst taldi hann, að þátttakan þaðan yrði áður lyki miklu meiri; frjettir hefðu enn eigi verið komnar úr nærri öllum bygðum íslendinga vestra um hluttökuna, og einnig mundi meira koma frá Winni- peg en fram væri komið enn. Söfnuninni hefði verið öðruvísi hagað þar vestra en hjer. Um leið og menn skiúfuðu sig fyrir hluttöku þar, skyldu þeir borga l/4 upphæðarinnar, en hitt á 18 mánaða fresti. Vestur-íslendiúg- ar væru enn ekki fjelagar i ísl. eimskipafjelaginu. Ýms atriði i lagafrumv. bráðab.stj. hefðu þar vestra ekki þótt aðgengileg, og væri hann hingað kominn til þess að semja um þau. Kvaðst síðar mundu gera fundinum nánari grein fyrir þessu. Fundarstjói'i lagði til, að menn þökkuðu bráðab.stj. starf hennai’, og var það gert með eindregnu lófaklappi. Einn af bráðabirgða- stjórnarmönnunum, Eggert Claes- sen málafl.m., var sjúkur og gat ekki sótt fundinn. En tveir eru fjarverandi, formaðurinn og Jón Björnsson kaupmaður, báðir er- lendis. Má geta þess, að bráða- birgðastjórnin hefur starfað með mikilli alúð og ósjerplægni að framgangi fyrirtækisins, og ekki sist þó þeir málafl.mennirnir E. Claessen og Sv. Björnsson. Var svo Eimskipafjelag íslands stofnað með fundarsamþykt, og síðan tekið að ræða um lög þess. Breytingatillögur við frumvarp bráðab.stj. höfðu verið prentaðar og höfðu fundarmenn fengið þær til athugunar tveim dögum fyrir fundinn. Ákvað fundarstjói’i, að um lögin skyldu fara fram tvær umi’æður og, að fyrir aðra um- ræðu skyldi prenta frumvarpið eins og það iiti út með þeim breytingum, er gei’ðar yrðu á því við atkvæðagreiðslur um hverja einstaka grein eftir fyrstu um- ræðu. Með þvi að fundarhúsið reynd- ist lítið, var fundurinn fluttur kl. 4 um daginn yfir í Frikirkjuna. Þar var honum svo haldið áfram til kl. 8 um kvöldið, og aftur frá kl. 9. til kl. IV* um nóttina. Var þá fyrri umræðu um lögin lokið. En framhaldsfundur er boðaður á morgun, kl. 12, og var laga- frumvarpið frá tyrri umræðunni til prentað i gærmorgun, og aug- lýst af fundarstjóra, að breytingar- tillögum við það yrði að skila á skrifstofu fjelagsins fyrir kl. 7 í gærkvöld. Mestar umræður urðu um það, hver skilyrði skyldu sett fyi’ir því, að fjelagsfundir yrðu lög- mætir, og svo, hvernig atkvæða- rjettinum skyldi fyrir komið á fjelagsfundum. Vildi umboðsmað- ur Vestur-Islendinga, að fundir yrðu því aðeins lögmætir taldir, að eigendur að hlutabi’jefum, er næmu 51°/o af seldum hlutum, eða umboðsmenn þeirra, mættu til fundar. En bráðabirgðastj. óttaðist, að með því lagi gæti orðið erfitt, þegar frá liði, að ná saman lögmætum fundi, og vildi ekki setja önnur skilyrði fyrir lögmæti funda en þau, að fund- irnir yrðu nægilega auglýstir. Meiri ágreiningur var þó um hitt, hvernig fyrir skyldi komið atkvæðarjettinum á Qelagsfund- um, einkum vegna þess, að land- sjóður verður svo stór hluthafi í fjelaginu og með atkvæði hans fer aðeins einn maður, og svo vegna þess, að Vestur-íslendingar, sem hluti eiga, geta auðvitað ekki margir sótt fjelagsfundi, og vilja því geta falið einum rnanni, er þeir velja, að fara með atkv. sín á fundunum. Ósjeð er enn, hvernig fram úr þessu verði ráð- ið, og var ekkert samkomulag orðið um það við fyrri umræðu laganna. En almenna undii’stað- an er sú, að hver hlutur (25 kr.) haíi 1 atkv. Bráðab.stj. vill svo gera þá takmörkun á atkv.rjett- inum, að enginn einn maður geti á fundum farið með fleiri atkv. en 500, fyrir utan umboðsmenn landsjóðs og Vestur-lslendinga, en að sjerstök takmörkunará- kvæði yrðu svo sett um atkvæða- rjett þeirra tveggja. Umboðsmann landsjóðs vildi hún láta hafa að- eins 4000 atkv., en hlutafje land- sjóðs er ráðgert að verði 400 þús. kr„ eða 16000 hlutir, og færði þær ástæður fyrir því, að 300 þús. kr. af framlagi landsjóðs yrði varið til strandferðanna, er fjelagið tæki að sjer í landsins þágu fremur en í þágu fyrirtæk- isins, og væri því rjett, að um- boðsmaður landsjóðs fengi að- eins atkvæðisrjett fyrir þær 100 þús. kr„ er þar væru framyfir, en þær gefa 4000 atkv. — Um atkvæðatölu umboðsmanns Vest- ur-íslendinga hafði orðið það sam- komulag milli hans og bráðab.stj., að »hún skyldi vera jafnmikill hluti af samanlagðri tölu allra atkvæða umboðsmannsins fyrir sjálfan sig og aðra eins og aðgöngumiðar hafa verið afhentir að fundinum fyrir mikinn hluta af atkvæðis- bæru hlutafje annai’a en Vestur- íslendinga«. Sje ráðgert, að hluta- fje Vestur-íslendinga verði 200 þús. kr„ þá yrði óskei’t atkvæða- tala þeii’ra, eða umboðsmanns þeirra, 8000. — En um fyrir- komulag á þessu þarf samkomu- lag milli þriggja málsaðila: hlut- hafanna hjer, stjórnarinnar og umboðsmanns Vestur-íslendinga. Og það samkomulag fjekst ekki við fyrri umræðu málsins. Bráðab.- stjórninni var svo falið af fundin- um, að flnna vegi út úr þessu og öðrum ágreiningi og leggja uppástungur fyrir framhaldsfund- inn, við 2. umræðu málsins, og mátti hún bæta við sig 2 eða 3 mönnum. Ýmsar breytingar við frumv. voru bornar fram af bráðab.- stjórninni og umboðsmanni Vest- ur-íslendinga í sameiningu, og voru þær samþyktar. Ein af br.till. bi’áðab.stj., sem samþykt var, heimilar, að auka hlutafjeð upp i 800 þús. kr. (var 600 þús. í frumv.) og, ef land- sjóður tekur hina í’áðgerðu hluti í fjelaginu, þá upp í 1200 þús. kr. 750 aðgöngumiðar höfðu verið afhentir að fundinum og var at- kvæðatala þeirra, að sögn, rúm 7000, en hlutirnir, sem keyptir hafa verið, eru rúm 13000, svo að mikið vantar á, að hluthafar hafi alment gert sjer far um að nota þar atkvæðisrjett sinn, eða fá öðrum umboð til þess. Grein Valdemars Rördams um sjálfstæðismál vort. i. Danska skáldið Valdemar Rör- dam hefur ritað grein um sjálf- stæðismál vort í Kaupmanna- hafnarblaðið Hovedstaden 19. og 20. des. siðastl. Þó að ekki sjeu likindi til þess, að í þessari gi’ein komi fram skoðanir þeirra manna, sem mestu ráða nú í Danmöi’k um stjórnmál, þá getur hún samt haft áhrif, bæði hjer á landi og í Danmörk. Fyi’ir því virðist oss rjett að gera hana að umtalsefni hjer í blaðinu. Fyrst er þá að skýra frá aðal- efninu i því, sem hr. Rördam hefur sagt. Það er fánamálið, sem hefur komið höf. til þess að rita þessa grein. Hann telur það lagabrot, að danska stjórnin skuli hafa látið konungsúrskurðinn frá 22. nóv. við gangast. Og hann fer mjög höi’ðum orðum um það, að þeir menn, sem sjerstaklega sje falið að vera verðir ríkisins og þjóðarinnar, skuli hafa gert sig seka i öðru eins. Um þetta er fyi’sti kafli grein- arinnar. Annar kaflinn er um sjálf- kvæðisrjett (Selvbestemmelsesret) íslands. Höf. er þeim sammála, sem neita þvi hvorutveggju: að Island sé sjálfstætt ríki, og að það eigi nokkura rikisrjettar-heimtingu á að verða það. Hann lítur svo á, að þar sem íslendingar hafi hafn- að tilboði Dana frá 1908 — sem annars hafi vei’ið fráleitlega vil- halt íslendingum — þá verði þeir, bæði samkvæmt lögum og og öllum borgaralegum siðferðis- í’eglum, að sætta sig við það fyr- irkomulag, sem nú sje, þangað til Dönum þyki hentugt að breyta kjörunum, annaðhvort af eigin hvöt eða eftir kurteisum tilmæl- um. Og allir skynsamir menn muni vera sammála um það, að ísland geti ekki, eins og það nú er, orðið sjálfstætt riki til fram- búðar. En hann er alveg ósammála þeim mönnum, sem halda því fram, að Island eigi ekki heimt- ing á að verða sjálfstætt ríki, af því að þjóðin sje svo lítil. Hann varar Dani við slíkri rökfærslu. íslendingar sjeu þjóð út af fyrir sig, og hlutfallið milli mannfjöld- ans á Islandi og i Danmörk sje svipað eins og milli mannfjöld- ans í Danmörk og á Þýskalandi. Rjett þjóðanna til þess að ráð- stafa sjer sjálfar verði menn að virða, ef þær krefjist þess, hvort sem þjóðin sje stór eða lítil og hvað sem líði öllum lögum eða landvinningum, og það jafnvel þótt þjóðin sje bersýnilega að stofna sjer út i voða eða vitleysu. Á þvi verði hlutaðeigandi þjóð — í þessu máli íslendingar — að bera ábyrgðina ein, og engir aðrir. í þriðja kaflanum ber höf. saman meðferð Dana á íslandi og meðferð Prússa á Suður-Jót- landi. Honum veitir, eins og nærri má geta, ljett að gera þann samanburð Dönum í vil, enda hefur enginn íslendingur, oss vit- anlega, haldið því fram, að með þjóð vora sje farið líkt því, sem farið er með Suður-Jóta. Þegar hann hefur sýnt fram á aðfar- irnar i Suður-Jótlandi, bendir hann á það, að íslendingar hafi íslenska lýðskóla, almennan mentaskóla og háskóla, íslenska kennara, presta, hreppstjóra, sýslu- menn og dómara, islenskt lög- gjafarþing, íslenskan ráðherra. Aldrei hafi smáþjóð verið veitt jafn-mikil sjálfstjórn nje verið sýnd önnur eins sæmd i ríkis- sambandi við stærri þjóð. Á ís- landi sje ekki nokkur fulltrúi hins danska ríkisvalds. íslend- ingar hafl jafnvel fengið sjerstök rjettindi við háskóla Dana, og þeir hafi verið undanþegnir sam- eiginlegum hervörnum og risnu- kostnaði. Jafnvel strandvarnir íslands hafi Danir einir kostað. Þeir hafi stöðugt, fet fyrir fet, lát- ið þokast fyrir sívaxandi kröfum íslendinga, fyrst löglega, og að lokum ólöglega (í fánamálinu). En íslendingar hafi endurgold- ið það alt með vanþakklæti. Samt eigi Danir ekki að láta hjer staðar numið. Hvenær sem íslendingar láti ótvírætt uppi óskir um rikis-fullveldi, þá eigi Danir að verða við þeim kröf- um. En það verði að gera á lög- legan hátt, eftir ályktun konungs, ríkisþings, alþingis og umboðs- stjórnar. Þar á móti megi Danir ekki láta svíkja út úr sjer (frasnige) fleiri tilslakanir, hvorki með röngum þýðingum nje konungs- úrskurðum, sem enginn (danskur maður) taki að sjer ábyrgð á. Fjórði kaflinn er um það, hvað Danir eigi nú til bragðs að taka í viðureigninni við okkur. Þeir verði að krefjast þess sem allra fyrst, stjórnarvaldaleiðina, að Islcndingar svari með þjóðar- atkvæði þeirri spurningu, hvort þeir vilji eftirleiðis standa í rik- issambandi við Danmörk, eða hvort þeir vilji það ekki. Til þess að svarið sje gilt, verði 3/4 greiddra atkvæða að verði öðru- hvoru megin. Játi íslendingar spurningunni, þá verði Danir að setja sin skil- yrði. Og skilyrðin eru þessi: Varakonungur eða jarl á ís- landi, sem konungur skipi, geti verið viðstaddur umræður al- þingis, hafi frestandi neitunarvald fyrir konungs hönd og gefi skýrslu í ríkisráðinu jafnframt ráðherra íslands. Sameiginlegur fæðingja- rjettur. ísland taki þátt f sam- eiginlegum hervörnum. Danir hjálpi landbúnaði íslands til þess að taka framförum. Rikiseiningin sje táknuð með dannebrog sem sameiginlegum gunnfána og versl- unarfána. Þjóðleg sjálfstjórn ís- lands táknuð með sjei’stökum íslenskum landsfána. Nafn ís- lands tekið upp í titil konungs og skjaldarmei’ki þess í skjaldar- merki rikisins. Deilur um sam- eiginleg mál sjeu útkljáðar af kon-

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.