Lögrétta - 21.02.1914, Síða 3
LOGRJETTA
37
útsala Stór útsala
byrjar í dag, laugardaginn 21. þ m.
Alls konar vefnaðaryara. rPill>iiiiiii fatnaður. Vetrarírakkar og jakkar.
Regnkápur (Waterproof) fyrir konur og karla. Hol^lín. Sliísi og slaufur.
Skófatuaður alis konar o. 111. fl. selst með afarlágu verði.
10-40°lo afsláttur. Stnrla Jónsson.
Frá Bandaríkjum Suður-Afríku.
Eins og aður hefur verið um getið,
var í vetur verkfall mikið þar
syðra, og miðstöð þess í Jóhann-
esborg. Deilan varð svo hörð,
að stjórnin tók til hervaldsins
gegn verkfallsmönnum og bældi
svo niður það uppþot, sem úr
þessu ætlaði að verða. 10 for-
ingjar verkfallsmanna, sem verið
höfðu í fangelsi, voru svo fluttir
úl úr landinu án dóms og laga,
og sendir með skipi til Englands.
Var farið leynt með þessa ráða-
gerð stjórnarinnar, þangað til
mennirnir voru komnir á stað,
og sjálfum var þeim ekki sagt
frá, hvað við þá ætti að gera,
fyr en skipið var komið með þá
nokkuð frá landi. Þá var þeim
sagt, að þeir ætlu að flytjast heim
til Englands, en bátur væri til-
búinn, sem færi til lands og tæki
af þeim brjef til kunningja þeirra
þar, ef þeir vildu skrifa og skýra
frá, hvað af þeim yrði. En ekki
hefur þessi aðferð mælst sem best
fyrir, með þvi að mennirnir eigi
auðvitað rjett á því, að mál þeirra
komi fyrir dómstóla Bandaríkja
Suður-Afríku, en stjórnin hefur
gengið fram hjá þeim, og gerir
mennina útlæga eftir sínum eigin
dómi.
Yfirráðherrann þarna syðra er
Louis Botha, hinn frægi yfirfor-
ingi Búa frá fyrri árum. Enn er
hann maður á besta aldri, að eins
fimtugur. Hann hefur gengið
mjög hart fram gegn verkfalls-
mönnum, en þeir, eða forsprakk-
ar þeirra, munu einkum vera
Englendingar.
Flóð í Brasilíu. Seint i janúar
komu þar svo mikil flóð í árnar
af snjó, er fallið hafði og þá
þiðnaði, að heil þorp fóru á flot
og fjöldi manna beið bana.
Uppþot á Hai'ti. Seint í janúar
varð þar mikið uppþót og flj'ði
forseti lýðveldisins burt á þýsku
skipi.
Dóttursonarsonur Alb. Thorvaldsens
kom í vetur frá ltalíu til Khafnar.
Hann heitir Aurelio Giorni og
hefur nýlega tekið söngvarapróf.
Hann er 18 ára gamall, og kom
til Khafnar til þess að syngja þar
opinberlega. Hann hefur útlit
Norðurlandabúa, segja dönsku
blöðin, er hár vexti og ljós yfir-
litum. Ættartala hans frá Thor-
valdsen er þessi: Thorvaldsen
eignaðist dóttur í Róm með í-
talskri konu. Þessi dóttir hans
giftist síðan dönskum manni í
Róm, sem Poulsen hjet og var
fulltrúi Danmerkur við Páfahirð-
ina. Að honum látnum giftist
hún itölskum grasafræðingi, sem
hjet Pietro Giorni, og átti með
honum son, sem er kunnur lands-
lagsmálari og kvæntur amerískri
söngkonu af þýskum ættum, sem
heilir Linda Giorni. Þeirra son-
ur er þessi ungi söngmaður. —
Hann kvað vera mjóg efnilegur í
sinni ment.
Leo Mechelin, frægur finskur
stjórnmálamaður, er nýlega dáinn,
75 ára gamall. Hann var um eitt
skeið yfirráðherra Finna og hjelt
fost fram rjettindum þeirra gegn
Bússum.
Island erlendis.
Heim frá Ameriku. Þess var get-
ið í Lögr. nýlega, að næsta sumar
væri Stefán Bjömsson ritstj. „Lög-
bergs" í Winnipeg væntanlegur heim
hingað, og nú er sagt, að hann
muni sækja um Kolfreyjustað. Hann
er fæddur þar, og uppalinn í Fá-
skrúðsfirði, dóttursonur síra Stefáns
Jónssonar, sem prestur var á Kol-
freyjustað næst á undan síra Jónasi
Hallgrímssyni. Hefur Stefán ritstj.
nú verið io ár vestra og er sagður
orðinn vel efnaður. Af prestaskól-
anum hjer útskrifaðist hann 1903.
Vestra hefur hann getið sjer góðan
orðstír. Hefur hann hneigst þar að
kirkjumálastefnu síra Jóns Bjarna-
sonar. En hann kvað langa heim,
á fornar stöðvar, og hefur hann trú
á því, að búnað megi reka hjer
heima með góðum árangri. Án efa
væri það heppilegt fyrir hvert presta-
kall sem er hjer heima, að fá prest
með þeirri þekkingu og reynslu, sem
dvölin vestan hafs hlýtur að gefa.
„Gestur eineygði“, skáldsaga Gunn-
ars Gunnarssonar, er að koma út í
þýðingu á finsku hjá bókaversl. Otava
í Helsingfors, í þýðingu eftir mag.
Eivo Mela. — Þessi skáldsaga G. G.
fær hvervetna í dönskum og norskum
blöðum hið mesta lof.
Skemtikvöld hjá íslendingum í
Khöfn. „Hovedstaden” frá 26. jan.
segir frá því, að íslendingar í Khöfn
hafi haldið kvöldskemtun til ágóða
fyrir ekkjur og börn Færeyinga
þeirra, er fórust í sjó um sfðastl
áramót. Blaðið prentar kvæði, sem
Jónas Guðlaugsson flutti við það
tækifæri. Jóhann S'gurjónsson sagði
þar æfintýri, Eggert Stefánsson söng
og þeir Eggert og Þórarinn Guð-
mundssynir ljeku á hljóðfæri o. s
frv. Blaðið lætur vel yfir samkom-
unni og segir, að hún hafi gefið at
sjer laglega upphæð handa þeim,
sem styrkja átti með henni.
Frá Khöfn er skrifað: „Við höfð
um stúdentafund lijer í kvöld og
ræddum þar breytingar á kenslu og
fyrirkomulagi Mentaskólans. Voru
nær því allir einhuga um, að nauð-
syn bæri til að skiúa mentadeildinni
í fleiri deildir, er legðu hver um sig
meiri stund á sjerfræði en sú, sem
nú er. Vildu menn að því leyti
fylgja dæmi enskra og danskra skóla.
— Sömul. var rætt og samþykt að
minnast 300 ára afmælis Hallgríms
Pjeturssonar þann 23. febr. Var
helst talað um, að haldin yrði ís-
lensk guðsþjónusta hjer kl. 6,
og svo fyrirlestur með hátíðahaldi
seinna um kvöldið. Búist við þátt-
töku flestra eða allra lslendinga hjer.
Charles Mauritzen kaupm. i Leith
hefur tekið hluti í ísl. Eimskipafje-
laginu fyrir 3000 kr.
„Grípið lijófimi!“ Það er
rjett að hvetja þjóðina til þess
að hafa sem best eftirlit með
starfsmönnum sínum og að sýna
fram á það opinberlega, ef þeir
gerast um of ásælnir við sam-
eiginlegan sjóð þjóðarinnar. En
viðkunnanlegast er, að slikar
hvatningar og bendingar komi
frá mönnum, sem ekki eru sjálfir
sekir um það sarna, sem þeir
tala um, að leiðrjetta þurfi. Því
sje svo, þá er hætt við að mörg-
um renni í hug gamla sagan
með upphrópuninni: »Grípið
þjófinn!« En það var einmitt
þjófurinn sjálfur, sem æpti, og
ginti múginn á þann hátt svo,
að allir hlupu og hver hjelt um
annan, að þar væri sá seki. En
svo labbaði þjófsi sjálfur óáreitt-
ur heim með þýfið i vasanum. —
Lögr. datt þetta í hug út af grein,
sem nýl. kom út í einu blaðinu
hjer í bænum.
Reykjavík.
Leiðrjetting. Ummæli Lögrjettu í
dag um að ísafold hafi stungið undir
stól yfirlýsing Snæbjarnar í Her-
egilsey, þeirri er blaðið birtir — eru
með öllu staðlaus. Sömuleiðis er það
ósatt, að hr. Jónas Snæbjörnsson
hafi beðið ísafold fyrir hana. — Um
þessa yfirlýsing hafði jeg enga hug-
mynd fyr en í dag milli kl. 12 og
1, er maður sá, sem Snjæbjörn hafði
beðið að koma henni á framfæri,
afhenti mjer hana. Við hann sagði
jeg, að jeg mundi að sjálfsögðu
taka yfirlýsinguna í næsta blað og
veit jeg, að hann kannast við þetta,
ef reynt verður. — Af þessu má
öllum vera ljóst, að dylgjur Lögr.
í garð ísafoldar út af þessu, eru
ástæðulausar.
Rvík 18. febr. 1914.
Ólafur Bjórnsson.
Lögr. kemur ekki til hugar, að
rengja frásögn hr. Ó. B. um þetta,
enda er henni málið óviðkomandi.
Skipstrand á Skerjafirði. í siðastl.
viku fór enskur botnvörpungur,
„Minora" frá Grimsby, upp á sker
í miðju Skerjafjarmynni. „Geir* náði
honum út og var gert svo við hann,
að hann fór út aftur til veiða.
Læknapróf við háskólann. Fyrri hl.
þess hafa tekið nýlega Helgi Skúla-
son frá Odda og Þórh. Jóhannesson,
baðir með 1. eink.
Almenn rökfræði heitir nýútkomin
bók eftir Ag. Bjarnason prófessor.
Leikhúsið. Þar er nú farið að leika
„Æfintýri á gönguför“. Ljenharður
fógeti var alls leikinn 18 sinnum.
Botnia fór til Austfjarða og út-
landa á mánud.kvöld. Til Aust-
fjarða fóru meðal annara Jónas Gísla-
son á Fögrumýri f Fáskrúðsfirði, Vig-
fús Sigurðsson Grænlandsfari og Sig.
Baldvinsson skrifari. Til útlanda
meðal annara Jón Jónsson docent, og
dvelur f Khöfn við sögurannsóknir
fram á næsta sumar.
Bæjarstjórnin. Nýkosnu fulltrúarnir
tóku þar sæti fyrra fimtudag. Fóru
svo fram venjul. nefndakosningar. í
fjárhagsnefnd voru kosnir Sighv. Bj.
og J. Þorl.; í fasteignanefnd Arinbj.
Sveinbj. og K. Zimsen; í fatækra-
nefnd G. Lárusd., H. Hafl., Sig. J.
og P. Guðm.; í bygginganefnd K. Z.
og Þorv. Þorv., og utan bæjarstj*
Rögnv. ól. og Sigv. Bjarnason; f
veganefnd J. Þorl, Tr. G., Jóh. Jóh.
og M H ; f brunamálan. A. Sv., H.
Hafl. og J. Þorl; í skattanefnd Sighv.
Bj. og Sv. B; f heilbrigðisnefnd Sv.
B ; í vatnsnefnd Þ. Þ. og Jóh. Jóh.;
í gasnefnd B. Bjarnhj.d , K. Magn.,
^S. S>K jj: fX. J^\fK J^fif\.
mÆmMÆMík
ÁRNI EIRÍKSSON,
Austurstræti 6.
Bæjarins besta yerslun með:
Hreinlœtisvörur,
Vefnadarvörur
til allsk. fatasaums og
hannyrða
Prjónavörur.
Nærföt fyrir unga og
gamla. Sokkaplögg og
vetlinga og peysur.
Og fjölda margt fleira.
flest sem þarf til þvotta
og ræstingar.
Glisvarningur.
Leikföng og smávörur,
hentugir til gjafa.
Skákþing-ið
hefur staðið yfir þessa dagana, byrjaði 10. þ. m. Var teflt um mar-
maraskákborðið góða er próf. Fiske gaf og teflt var um í fyrra,
ásamt »Staunton«-mönnum.
Eins og meðfylgjandi tafla sýnir fóru leikar svo að Pjetur
Zophóníasson hjelt borðinu.
N S f n: j 12. Þorlákur Ófeigsson . i 11. Stefán Ólafsson . . . | 10. Stefán Kristinsson . . 9. Pjetur Zóphóníasson. 8. Magnús Magnússon . J 7. Magnús Guðbrandss. 6. Kristinn Auðunsson . 5. Haraldur Sigurðsson 4. Guðm. Breiðfjörð . . j 3. Erlendur Jóhanness.. 2. Brynjólfur N. Jónsson 1. Benedikt Sæmundss. Vinn- ingar.
1. Benedikt Sæmundss. »IIIIIIOOOO I 7
2. Brynjólfur N. Jónsson o»iioiiiooY*i 61/»
3. Erlendur Jóhanness.. OOÍOOO I ‘/í 0 0 0 0 i‘/»
4. Guðm. Breiðfjörð . . OOI »0010000 0 2
5. Haraldur Sigurðsson 0111 »110010 I 7
6 Kristinn Auðunsson . OOIIO»OlOOO I 4
7. Magnús Guðbrandss. 0 0 0 0 0 V 0 0 0 2 */»
1 8. Magnús Magnússon . io'/alioosooo 0 31/*
9. Pjetur Zóphóníasson. IIIIIIII»OI 1 IO
10. Stefán Kristinsson . . 1 1 1 1 0 1 v» 1 1 » 0 0 7*/»
| 11. Stefán Olafsson . . . I */a 1 1 1 1 I I O I » I 9 V»
12. Þorlákur Ófeigsson . OOIIOOIIOIO » 5
P. G. og K. Z., í hafnarnefnd Tr G.
og Sv. B., og utan bæjarstj. Ásg.
Sig. konsúll og J. Ól. skipstj. í
stjórn Fiskimannasjóð^ins var kos-
inn Tr. Gunnarsson. — Borgarstjór-
inn er sjálfkjörinn f nefndirnar.
Fjórðungarmót. Vestfirðingar hjer
í Rvík hafa samkomu á manudags-
kvöld, Norðlingar á þriðjudagskvöld
og Rangvellingar og Árnesingar 28.
þ. m.
Gjaldkeramálið. Því verður ekki
áfrýjað til hæsta rjettar, og hefur
nú hr. Halldór Jónsson greitt til
Landsbankans það fje, sem yfirdóm-
urinn taldi honum bera að greiða
þangað.
Heinrich Edward Brockhaus, einn
af kunnustu bóksölum Þýskalands,
er nýlega dáinn, 84 ára gamall.
Brockhaus-bókaverslunin er yfir
100 ára gömul og stofnuð af afa
þessa manns, er dó 1823. Síðan
stýrði sonur hans bókaverslun-
inni til 1874, en þá tók sonur
hans við, sá er nú fjell frá. Þessi
bókaverslun hefur meðal annars
gefið út hina alkunnu fjölfræðis-
orðabók, sem kend er við Brock-
haus.
Með R. Scott í suðurför hans
var að eins einn útlendingur.
Það var Norðmaður, Tiyggve
Gran að natni, og var veðurfræð-
ingur. Hann var einn af þeim,
sem fundu þá Scott og fjelaga
hans örenda. Tr. Gran var í
vetur í Iíhöfn og hjelt þar fyrir-
lestur um suðurförina.
Svarta höndin, hið alræmda bófa-
fjelag í New-York, hefur ekki
látið til sín heyra um all-langan
tima, þar til nú i vetur. Rikur
Kaliforníubúi, Clark að nafni,
hvarf í New-York, og nokkru
síðar Qekk lögreglustjórnin í Los
Angelos tilkynning um, að Clark
yrði skilað aftur gegn 300 þús.
kr. lausnargjaldi, og var tilboðið
undirskrifað »Svarta höndin«. —
Lögreglustjórnin var beðin um,
að annast milligöngu í málinu
við ættingja Clarks. Kona hans
svaraði samstundis, að hún skyldi
þegar greiða lausnargjaldið.
Vegna þrengsia verður enri að
bíða til miðvikudags framhalds-
svar hr. Jóh. Jóh. um veðdeild-
arlögin.
Prentsmiðjan Gutenberg.