Lögrétta - 21.02.1914, Page 4
38
L0GRJETTA
«*» «*« «*« 4*4 «v« «f» «*» «f« «f« «f« «f» «f» «f» «f» «f» «f» «f» «f»
fc0í£0it0ii03503£03£03i03fc03€0í€03E03fc03503»03fc°3»03»03
«»f «*» «»» «*► «4» «4* «*► «** «*► «*► «*► «*► «4» *4* *4* «4* «4» «4*
Útsalan
hjá Jóni Björnssyni & Co.
Bankastræti 8
varir að eins fáa daga eimþá.
Góðar og gagnlegar
yeíiiaðarvörur
fást þar fyrir lágt verð.
4*4 ««* 4*4 «f 4 «»4 4*4 4*4 4*4 4*4 4*4 4*4 4*4 4*4 4*4 4*4 4*4 4*4 4*4
t0it0ít0it0it0ít0ít0it0,J*03*0ít0it0it0i*04404404*f04*0^
*4* *4* *4* *4* *4» *4* *4* *4* «4* *4* *4* *4* *4* «4* *4* *4* *4* *4*
Sjómenn!
Sjóföt — Nærföt — Peysur
kaupið þið best og- ódýrast
í Austurstræti I.
Margra ára reynsla fengin.
Ásg. G. Gunnlaugsson & Co.
4*4 4*4 4*4 4*4 4*4 4*4 4*4 4*4 4*4 4*4 4*4 4*4 4*4 4*4 4*4 4*4 «?' i 4*4
t0it0it03t03to3to3to3to3to$*o3to3to3to3to3to3^o3»o*»o*
*4» *4» *4* *4» *4* *4» *4» *4* *4* *4* *4* *4* *4* *4* *4* *4* *4* *4*
V. B. K.
TVi'í er útsalan mikla bráðum á enda.
Best verður því að trygga sjer vandaðar og ódýrar
vefnaðarvörur
með því að kaupa þær
þessa dagana bjá
Versl. Björn Kristjánsson.
BÚNAÐARFJEL. (SLANDS.
Ársíundur
Búnaðarfjelags íslands verður
haldinn í Iðnaðarmannahúsinu í
Reykjavík laugardaginn 16. mai
þ. á. og byrjar kl. 5 síðdegis. Þar
verður skýrt frá fjárhag fjelags-
ins, framkvæmdum þess og fyrir-
ætlunum, rædd búnaðarmálefni
og bornar upp tillögur, er fund-
urinn óskar að búnaðarþingið
taki til greina.
Rvík 9. febr. 1914.
Ghiðiuundur Helgason.
jjútiaðarnámsskeii)
verður haldið i Hjarðarholti í Döl-
um 30. mars til 4. apr. i vetur.
Nemendur gefi sig fram við Olaf
próf. ólafsson í Hjarðarholti.
Búnaðarfjelag íslands.
jldjólknrskólinn
á Hvítárvölluin.
Kensluskeiðið næsta, 1914—
1915, stendur yfir frá 15. okt. til
14. maí. Námsmeyjar greiða fyrir
fæði 16 kr. 50 au. um mánuð-
inn. Þær, sem nokkuð langt eru
að, fá ferðastyrk. Umsóknir sjeu
sendar Búnaðarijelagi íslands, (og
þarf þeim að fylgja læknisvottorð
um heilsufar.
Námsskeið fyrir eflirlitsmenn
nautgriparæktarfjelaga verður
haldið í Reykjavík 1. nóv. til 15.
des. 1914. Meðal annars verður
veitt tilsögn í að gera berkla-
veikisrannsóknir á kúm og að
bólusetja sauðfje við bráðapest.
Nemendur fá 30 kr. námsstyrk,
og þeir, sem nokkuð langt eru að,
fá ferðastyrk að auki, ef þeir eru
ráðnir eftirlitsmenn hjá einhverju
nautgriparæktarfjelagi. Þarf þá
umsókninni að fylgja vottorð um
það. Umsóknir sjeu sendar Bún-
aðarfjelagi íslands.
Slátrunarnám.
Eftir samningi við Búnaðarfje-
lag íslands tekur Sláturfjelag
Suðurlands 4 menn til kenslu í
sláturstörfum haustið 1914. Aðal-
námstíminn verður frá 15. sept.
til 15. nóv. Þó geta 1 eða 2 menn
fengið kenslu í 21/* mánuð, frá
1. sept. Kostir sömu og áður.
Umsóknir sjeu sendar Búnaðar-
fjelaginu fyrir lok maímánaðar.
Hafi umsækjandi ekki áður sótt
slátrunarnámsskeiðið, þarf í um-
sókninni að geta aldurs hans, og
vottorð að fylgja um það, að
hann sje vel vinnufær. Þeir
verða látnir ganga fyrir, sem eru
ráðnir til sláturstarfa framvegis
eða hata áður verið við slátrun-
arnám.
Mtar iaift.
Jarðirnar Korpúlfs-
staðir í Kjósarsýslu og
IPlelitIii.ivík í Gullbr.-
sýslu eru til kaups nú þeg-
ar. — Góð jörð, helst
við sjó, á Suðvesturlandi,
óskast til kaups. Semja ber
við Boga Brynjólfs-
son yfirrjettarmálaflutn-
ingsmann, Hótel fsland, Að-
alstræti 5, Reykjavík.
M IjðJIÉduiD til Sskiiniða.
Úr Suður-Múlasýslu er skrifað
6. jan.: „ . . . Árið 1913 hygg jeg
vera hið besta, sem komið hefur á
Austurlandi í langan tíma, og í raun
og veru hið besta síðan land bygð-
ist, þegar á alt er litið, — tíðarfarið,
fjárhöldin, grasvöxt og nýting, versl-
un og heilsufar manna, — fagnaðar-
ár, yfirleitt mótlætislaust, og gróðaár
fyrir Austfirði. — Norðanátt og
norðanstormar hafa nú verið við og
við síðan um jól. Nú lítill snjór og
nægir hagar, og skot minni komin
í hlöðurnar en venja hefur verið til
um þetta leyti".
Úr Rangárvallasýslu er skrifað
28. jan.: 1 „ . . . Veturinn lagðist
snemma á með gaddi og snjókomu,
svo að taka varð lömb á gjöf 2—3
vikur af vetri, og hross voru sum-
staðar tekin litlu síðar. Gekk svo
ekki á öðru en einlægum snjókom-
um og blotum á víxl fram undir
nýár. Voru stundum allgóðar hlákur
2—3 daga, en enduðu æfinlega með
slyddu og snjó af útsuðri, svo að
oft var verra að ná til jarðar, þegar
loksins upp stytti, en áður var. En
sfðan um nýár hefur verið fádæma
blíða, svona um miðjan vetur, ýmist
þurt eða litlar úðaskúrir, og ekki
ýmað á polli á nóttum, þar til fyrir
2 dögum, og er nú útsynnisjelja-
gangur, hægur þó. Heilsufar alment
gott. Hettusótt hefur þó gert vart
við sig á einstöku bæ, en verið væg.
11. þ. m. dó í Hvammi í Holtum
Einar Guðmundsson smiður, hálf
bróðir Þórðar í Hala. Hann var
fæddur 1833 að Kvíárholti í Holt-
um og hafði alið allan aldur sinn
hjer utan nokkur sumur, sem hann
var kaupamaður í Norðurlandi. Hann
var alla æfi fátækur; bjó jafnan í
kofa einhverstaðar frá bæ. Seinast
var hann 10—12 ár einsamall í kofa
í Sumarliðabæjarhögum, og lifði á
smíðum og góðsemi fólks mest á
síðkastið. Kallaði hann þar „Brúna-
læk“. Var hann þar þangað til
fyrir 2 árum rúmum, en fór þá að
Hvammi. Var hann þá orðinn far-
inn mjög að heilsu, einkum fóta-
veiki; var það eðlileg afleiðing þess,
að hann varð lengst af að bera alt
að sjer, bæði mat og eldivið. Síð-
an hefur hann lengst um verið í
rúminu. — Einar heitinn var allein-
kennilegur maður. Hann var óvana-
lega ómannblendinn og einelskur.
Dulur var hann og fátalaður, en gat
þó verið gamansamur og skrítinn í
viðræðu, því hann var vel greindur
og fróðleiksgjarn, og í einu orði sagt:
vel að sjer, las og skrifaði betur en
margir hinna yngri manna nú gera.
Hann var og vel hagmæltur, þó lít-
ið bæri á. Smiður var hann talinn
góður, var þó ólærður — Smíðaði
einkum líkkistur. Sagði hann svo
sjálfur, að í Marteinstungu-kirkju-
garði einum væru 200 líkkistur eftir
sig smíðaðar. Einari var „flest vel
gefið", og sannaðist því á honum,
eins og ýmsum fleirum, að „sitt er
hvað gæfa og gervileiki".
Úr Borgarfirði. í tilefni af Borg-
firska brjefinu og grein Bjarnar úr
Gröf finn jeg ástæðu til að biðja
Lögr. fyrir eftirfarandi leiðrjetting til
B. B. G.
A fundi, er haldinn var að Hvítár-
völlum um mánaðamótin ágúst og
september, mættu allir fulltrúar úr
deildum S. F. S. — Eitt af því, sem
á fundi þessum var gert, var það,
að deildarstjórarnir tilkyntu, hve
mörgu yrði slátrað úr sínum deild-
um, og var það samtals um 22000
fjár. Eftir þessari fjártölu var svo
farið, þegar hverri deild voru ákveðn-
ir sláturdagar í sláturhúsinu í Borg-
arnesi í haust. — Fjártöluna var
Hirti Snorrasyni falið að tilkynna
stjórn fjelagsins, og efa jeg ekki, að
hann hafi gert það. — Nú er slátur-
tfð afstaðin og hefur þá alls verið
slátrað liðugum 20000 í Borgarnesi,
eða tæpum 2000 minna en áætlað
var á Hvítárvallafundinum og tilkynt
stjórn fjelagsins. Og orsök þess, að
minna var slátrað, var, sumpart að
minsta kosti, drátturinn, sem varð á
slátruninni. — Borgfirsku deildarstjór-
arnir eru sýknir af þessu tunnumáli,
og hefði B. B., G. átt að geta þess,
að það, að þessu sinni að minsta
kosti, væru þeir austan fjalls, sem
sökin lendir á, ef hún er hjá öðrum
en stjórninni sjálfri. Kunnugur.
Úr Nesjum í Hornafirði er skrif-
að 28. des. „ . . . Heyskapur gekk
hjer vel sfðastl. sumar fram til 20.
ág. Ur því fór heldur að þyngja,
þó ekki væri mikið um stórrigning-
ar. Mun heyfengur hafa orðið f
góðu meðallagi. Það, sem af er
vetri, hefur tfð verið einmuna
góð. Fjártaka mun hafa verið með
mesta móti hjer á Höfn í haust,
enda verð á sláturfje óvanalega hátt.
— Prestslausir erum við hjer enn.
Því kemur ekki Þórður presturf
Þykir kynlegt, þegar búið er að
veita embætti, að þeim, sem veitt
er, skuli þolast að draga á langinn
mánuðum og missirum saman að
komast þangað, sem þeim er stað-
urinn fyrir búinn. Tvær messur
höfum við fengið f vetur. Síra Gísli
Kjartansson messaði bæði skfftin.
Þykir hann klerkur góður.
Girðingafjelag var stofnað hjer í
sveit síðastl. vor, og 2000 kr. lán
tekið úr landssjóði til samgirðinga.
En þá var eftir þyngsti böggullinn,
að fá á hentugum tíma girðingaefn-
ið á Hcrnafjörð, því allir, sem þekkja
til samgangnanna á sjónum, vita, að
Skaftfellingar eru þar olnbogabörn.
Fjelagsmenn þorðu ekki að reiða sig
á hinar fáu og óvissu strandferðir.
Sneru menn sjer þá til kaupmanns-
ins, sem þektur er að dugnaði og
hagsýni, með pöntun á girðingar-
staurum, því hann gerði mönnum
góðar vonir um, að hann fengi vöru-
skip sitt í fyrra lagi. Skipið kom f
júní, og með staurana. Voru þá liðn-
ar 32 vikur frá síðustu vöruskips-
ferð áður til verslunarinnar. Af
þessu geta menn sjeð, hve hag-
kvæmar eru skipaferðir á Horna-
fjörð. Líka gerði kaupmaðurinn góð-
ar vonir um, að fjelagsmenn mundu
fá staurana með heldur lægra verði
en menn höfðu áður átt að venjast,
þar sem um stóra pöntun var að
ræða. Fólu menn honum því alla
framkvæmd í þessu efni. Svo kem-
ur haust, og þá komu reikn-
ingarnir og var verð stauranna sem
hjer segir: Þeir sverari kr. 1,10, en
þeir grennri kr. 0,80. — „Dönskum
þá í brúnir brá. Bíta ekkert vopn-
ið má frekar en trjeð. Þá gljúpnar
geð. Galdrakraftur fylgdi með“. —
Getur nokkur gefið upp myndar-
legra stauraverð?
Það sýnist hyggilegra alþýðu, að
leggja færra upp í hendur kaup-
mannanna en alment gertist.
Nesjamadur.
Úr Borgarflrði er skrifað 15.
febr.: „ . . . Nýbúið að skoða hjá
mönnum heybirgðir. Veit aðeins um
Andakílshrepp, að hann stendur sig
vel. Veturinn harður, fje á gjöf frá
því rjett með vetri, að hálfum mán-
uði frátöldum".
Af Fljótsdalshjeraði er skrifað
30. des.: „Árið 1913 má heita með
bestu árum hjer, að minsta kosti á
20. öldinni. En ekki líkaði mjer
þingið í sumar, sem leið. Bændum
og búaliðum fer ekki að lítast á, ef
mörg þing verða háð á líkum
grundvelli og þetta þing, að skiftast
í smáflokka, vera í sífeldum hrossa-
kaupum, og reyna að ríða hvern
þann mann niður, sem með völdin
fer. Að stæra sig af þvf, að strfða
stjórninni og gera sjer alt far um
að fella stjórnarfrumvörp, jafnvel að
lftt rannsökuðu máli, er blátt áfram
strákslegt. Og ekki lfkar okkur það,
að sjá ausið út fje á báða bóga í
ónauðsynleg fyrirtæki og til bitlinga
handa landsómögum. Slíkt iná þjóðin
ekki lengur þola, og gerir það ekki
heldur. Þeir, sem neyta brauðs síns
í sveita síns andlitis, eins og jeg og
fleiri, þola tkki þann óþarfa fjáraust-
ur. Þingmenn þeir, sem fyrir honum
beitast, eiga ekki að eiga afturkvæmt
á þing. ..."
• Úr Vopnaflrði er skrifað 26. jan.:
........Nú lætur vel í ári fyrir
landbóndann hjer um slóðir, síðasta
sumar eitthvert það besta sem menn
muna eftir, heybirgðir því góðar og
og miklar; verslunin hagstæð, að
minsta kosti hvað ísl. vöruna snertir,
og svo veturinn mildur og snjóljettur
sem af er. Mjög Iftið búið að gefa
hrossum og fullorðnu fje. Skepnu-
höld líka góð. Hvað heilsufar manna
snertir, þá hefur blóðkrrppusótt gert
töluvert vart við sig hjer um tíma
og sömui. kvefpest, en hettusóttin
ókomin enn. — Mönnum er farið
að lengja eftir að sjá skip, því síð-
ustu 4 mánuði hefur ekkert skip
komið hingar frá útlöndum; má geta
nærri að farið er mjög að ganga á
vörubirgðir kaupmanna og yrði nú
ísinn á undan Vestu, sem á að koma
eftir fáa daga, þá gæti farið illa
fyrir mönnum hjer, nfl. styst í þeirra
líkamlegu vellíðan; en þó að loft-
vogin sje nú að falla, er samt von-
andi að Vesta verði á undan og
sigri í þvf kapphlaupi.
Þeir, sem tala um pólitfk hjer um
slóðir, virðast flestir sáróánægðir yfir
árásunum, sem gerðar voru á ráð-
herra á síðasta þingi, telja enga á-
stæðu til að eyða neinum tíma á
næsta þingi til rifrildis um völdin og
treysta Hannesi Hafstein til að halda
best um stjórnartaumana fyrst um
sinn. — Hjer virðist mönnum
lfka vel, hverjir kosnir voru í stjórn
Eimskipafjel. ísl., treysta hinum ungu
og áhugasömu mönnum til alls hins
besta, enda mætti ekki þessi tilraun,
til að setja öfluga stoð undir sjálf-
stæði fslands, fara í handaskolum.
Ef engir hnekkir koma fyrir menn
út um landið, þykir mjer ekki ólík-
legt að margur yrði til að skrifa sig
fyrir hlutabrjefum aftur í vor, ef for-
göngumenn hjeldu því máli vel vak-
andi og hefðu hlutabrjefin á boð-
stólum".
2 monn urðu úti 3. þ. m. milli
Keflavíkur og Stafaness. Voru á leið
að Stafnesi fótgangandi.
Brydes verslun í Borgarnesi
hefur Gísli Jónsson, sem þar hefur
verið verslunarstjóri nokkur ár, keypt,
og ætlar að fara að reka hana á
eigin spýtur.
c7jCtirðir ocj glucjgar.
Euvindur Arnason.
á Seltjarnarnesi, með grasi og mann-
virkjum, ágætlega fallin til fiskverk-
unar, fæst til leigu frá 1 mars
næstkomandi, hvort heldur öll í einu
lagi eða fiskverkunarreitir og fisk-
verkunartæki sjer. Þeir, sem kynnu
að hafa hug á að leigja jörðina, eru
beðnir að senda skrifleg tilboð til
hafnsögnmanns Odds Jónssonar í
Ráðagerði, íyrir lok þessa mán-
aðar.
Kaupandi
að hestum og nautgripum til
slátrunar, skinnum og mörgum
öðrum landsafurðum.
Virðingarfylst,
A. Hansen,
Laugarveg 76.
yfy Auglýsingum i „Lög-
rjettu(< tekur afgreiðslan við
eða prentsmiðjan.