Lögrétta

Issue

Lögrétta - 19.07.1916, Page 2

Lögrétta - 19.07.1916, Page 2
124 LÖGRJETTA Matth. Jochumsson: j o ð m æ 1 i. Úrval. Valið hefur í samráði við höfundinn Guðm. Finnbogason dr. phil. Stór bók og eiguleg. Kostar kr. 3.50. Innbundin kr. 4.50. Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar. Criillsmidix1. Góðir og reglusamir gullsmiðir geta fengið atvinnu við gullsmíði um lengri tíma, ef um semur, nú strax, eða frá i. október. Semjið sem fyrst við Jón Sigmimdsson guiismið Laugavegi 8, Reykjavík. Sími: 383. Kennarastarfi laus viS barnaskólann í Mjóafirði eystra. Kenslutími 4—5 mánuðir. Dagleg kensla 5 tímar. Kaup 15 kr. á viku. Annan kennara vantar 9—12 vikur; launakjör sömu. „ ^ , Fræðslunefndm. LÖGRJRTTA ktmur úI í hvtrjum mit- vikuitgi og auk þtss aukablöt vif og vit, miust 60 blöt alls á iri. Vtrí 5 kr. árg. i lslandi, trltndis kr. 7.50. Gjalddagi l. júli, um alstaðar sem þær geta komiS því viS landsspítalanum til stuðnings. Það er rjettilega tekið fram í á- varpinu, að starfsvið kvenna hefur sjerstaklega verið bundið við mann- kærleiksstörfin. Því hefði mjer þótt vel til fallið að þessum spítalasjóði yrði breytt í líknarsjóð handa fátæk- um sjúklingum spítalans á sínum tíma. Þá væri vel minst stjórnmála- rjettinda okkar, ef við gætum unnið að fljótri framkvæmd spítalabygging- arinnar og þar að auki stofnað álit- legan sjóð handa fátækum sjúkling- um spítalans.* Guðrún Björnsdóttir. Þversummenn á biðilsbuxum. Eftir því sem nær dregur kosn- ingunum 5. ágúst, fara blöðin að verða ákafari í því að hæla listum skjólstæðinga sinna og kasta hnút- um að hinum blöðunum og þeirra mönniun. Þetta er nú venjulegt og ekkert um það að tala. En það sem nú er nýtt í aðferðinni er smjaðrið og fagurgalinn fyrir einum sjerstök- um hluta kjósendanna, sem „Landið“ setur upp núna í 30. tbl. Þar koma þversum-höfðingjarnir albrynjaðir fram á vigvöllinn. En búningurinn er mýkri viðkomu en venjulegt er. Þeir eru allir komnir í sínar fínustu póli- tisku biðilsbuxur. Og það er svo sem ekki skömm að þeim, enda eru þær líka ætlaðar konunum til augnayndis. Þeir fara heldur ekki fruntalega að þessum nýju kjósendum. Þeim er svo sem kunnugt, að „bestu“ konurnar hafi alt af hallast að þeim. Þeir eru engir viðvaningar, karlarnir, hafa lengi skotrað til þeirra hýrum aug- um, til þess að eiga víst liðsinnið á sínum pólitisku örlagastundum, og þykjast hafa orðið þess vísir, að þess- um „bestu" lítist bærilega á sig. Því verða þær nú þeirra Þorgerður Hölgabrúðir, sem þeir knjekrjúpa og fórna öllum sínum heitustu bænum. Þeim finst undarlegt, ef þær kæmu ekki hlaupandi til að þakka þeim núna fyrir liðveisluna frá upphafi, t. d. 1911, þegar allir þeir, sem greiddu atkvæði móti stjórnarskránni og frumvarpinu um jafnrjetti íslenskra kvenna til æðri mentastofnana, náms- styrks og embætta, voru úr Sjálfstæð- isflokkinum, sem nú kallar sig No. 1 með því nafni, en aðrir kalla þvers- ummenn. Eða 1914, þegar þeir gerðu sitt ítrasta til að koma í veg fyrir að við fengjum nokkra stjórnarskrár- breytingu, eða fána, með því að setja sig þversum fyrir allar þær leiðir, sem þar að lágu. Ekki er furða, þótt þeim þyki undarlega við bregða, ef konurnar halda ekki dauðahaldi í þá og láta þá „njóta þess nú“. En það eru ekki einungis þvers- um-höfðingjarnir á fyrstu síðu íLand- inu, sem knjefalla konunum og full- vissa þær um fyrverandi ástir sínar. Óbreyttu liðsmennirnir koma líka fram, og þeir eru enn þá tungumýkri: „Elskurnar mínar góðu, hjálpið þið B-listanum okkar,“ segja þeir. „í öll- um bænum farið þið ekki að eins og hún frú Bríeh sem fór að fylgja Heimastjórnarmönnum þegar þeir tóku ráðin af okkur og komu stjórn- arskránni og fánamálinu fram. Við eigum, sem betur fer, margar víð- sýnni konur en hana, sem setja sig þversum fyrir allar framfarir með okkur. Munið það, að ef þið gerið það allar, þá getur ekkert vald komið nokkru framfaramáli áfram. Við höf- um svo sem alt af v i 1 j a ð hafa ykk- ur með okkur, þótt við höfum auð- vitað álitið, að við værum enn þá bet- ur fallnir til þversum-forustunnar, af því við erum enn þá þyngri á met- um en þið.“------ Og giftu bændakonurnar fara ekki varhluta heldur af tilbeiðslunni: * Grein þessi barst Lögr. snemma í maí í vor, en birtingin hefur af vangá dregist, svo að sumt í grein- inni er orðið á eftir tímanum, eins og sjá má á síðustu skilagrein samskota- nefndar spítalasjóðsins. En aðalefni greinarinnar er það ekki. — Ritstj. „Blessaðar, fylgið þið mönnunum ykkar. Munið að maðurinn er konunn- ar höfuð, eins og við erum höfuð mannanna ykkar. Nei, varist að skapa ykkur sjálfstæða skoðun. Mennirnir ykkar geta hugsað fyrir ykkur og Landið okkar getur sagt þeim hvað þeir eigi að hugsa. Þá er velferð okkar allra borgið.“ — Nei, ekki er óliklegt, að konum gangist hugur við slíkum blíðmælum. K o n a. „Flóra“ hertekin. Laugardagskvöldið 7. þ. m. fór „Flóra“ hjeðan áleiðis til Siglufjarð- ar, sunnan um land, kom við i Vest- mannaeyjum og fór þaðan sunnu- dagskvöldið 8. þ. m. Með henni var eitthvað nálægt 300 manns, flest verkafólk til Siglufjarðar og margt af því kvenfólk, Frjettist svo ekki til ferða hennar fyr en 14. þ. m. Þá kem- ur fregn um, að enskt herskip hafi tekið hana x hafi og flutt til Lerwick. Var hún komin þangað 13. þ. m. Meðal farþega var Guðm. Björnson landlæknir og ætlaði í eftirlitsferð til Norðurlands og Austurlands. Kom nú einnig skeyti frá honum til stjórn- arráðsins um skiptökuna og kvaðst hann reyna að fá skipið til að flytja farþegana til landsins aftur. En síðan hafa komið fregnir um, að þetta er ófáanlegt, og fer „Flora“ frá Ler- wick til Noregs, þegar hún losnar, og hefur komið hingað skeyti til af- greiðslumanns hennar um, að hún leggi á stað frá Bergen í næstu ferð hingað 24. þ. m. í gærkvöld var hún þó, að sögn, ófarin frá Lerwick. Hvort farþegahópurinn fer með henni til Noregs, er ófrjett, eða hvað um hann verður. Stjórnarráðið hefur skýrt utanríkisstjórninni dönsku frá málavöxtum í því skyni að krafist verði skaðabóta af ensku stjórninni, og einnig hefur hún falið fulltrúa sínum í Englandi, Birni Sigurðssyni, sömu málaleitanir. En um árangur af því er ófrjett enn. Hjer standa menn undrandi yfir öðru eins ofbeldistiltæki og þessu, að taka skip í strandferð hjer við land, með fjölda fólks, sem er á leið milli hafna innanlands, og flytja það til Englands. Og þetta er gert rjett eftir, að stjórnin hjer hefur opinberlega til- kynt, að samkomulag væri komið á milli íslands og Bretlands til þess að gera samgöngur og viðskifti trygg- ari en áður. Ekki bætir þetta álit manna á því samkomulagi. Annars er á öðrum stað hjer í blaðinu grein um málið eftir Lárus Fjeldsted lög- fræðing, og sýnir, hve mjög mönnum gremst hjer þetta tiltæki. Virðist svo sem enska herskipið hefði vel mátt fyl&)a „Flóru“ til hafnar og láta hana skila af sjer farþegunum, en taka hana síðan, ef þess þótti þörf, þar sem hún var, að háum sektum við lögðum, skyld til að koma við í enskri höfn á útleið. Hrakningur fólksins er illur og at- vinnutap þess mikið. Flest af þvi var á 3. farrými og að eins útbúið með nesti á leiðinni til Siglufjarðar. Fylli- lega rjettmæt virðist tillaga, sem fram hefur komið frá greinarhöfundi í „Vísi“, að landstjórnin bæti fólkinu tjón það, sem það hefur orðið fyrir, en krefjist svo bóta af ensku stjórn- inni, og fáist þær ekki, sem ólíklegt er að fyrir geti komið, þá beri land- sjóður tjónið. Ekki hefur heyrst, hvort vörur hafi verið teknar úr skipinu í Lerwick, en í því hafði verið bæði lýsi og saltfisk- ur, sem ætla má, að tekið hafi verið. En hvað á að gera? Valtýr Stefánsson spyr svo í rit- dómi í Eimreiðinni um grein mína „Nautgriparækt", er birtist í Búnað- arritinu, 28. árgangi, og hann bætir svo við: „Það virðist svo, sem höf- undi (þ. e. mjer) sje það eigi fylli- lega ljóst.“ Við þessu vil jeg segja höfundi og öðrum þetta: Þegar jeg afhenti forseta Búnaðarfjelagsins skýrslur Nautgriparæktarfjelaganna, bauðst jeg til að tína úr þeim þær kúaættir, er bestar væru, og gera þetta fyrir ekkert, ef jeg að eins fengi heimild til að krefja formann og eft- irlitsmenn fjelaganna um þær upplýs- ingar, er jeg þyrfti til viðbótar við það, er í skýrslunum væri. Þessu svar- áði forseti svo, og mun jeg ekki verða svo gamall að jeg muni það ekki: „Mun sjá nú, í hvaða fjelagi er best meðalkýr, og það víst nóg í þetta skifti.“ Þar með var það mál þá út- rætt. Um veturinn snemma ritaði jeg svo forseta og sýndi fram á a ð nauðsyn- legt væri að tína úr bestu ættirnar og koma á samkepni milli kúabúa. Bauðst jeg til að rökræða þetta í brjefi síðar og óskaði eftir að það yrði rætt á búnaðarþingi 1915. Þessu brjefi mínu svarar forseti ekki fyr en löngu síðar, og þá með því að senda mjer sjerprentun úr grein Sig. Sig- urðssonar, sem þá var verið að prenta I Búnaðarritinu, segja mjer, að hann hafi nú tekið þetta upp í grein sína, úr minni, og spyrja mig, hvort jeg sje ekki ánægður með það. Því svaraði jeg ekki og fanst það ekki svara vert. En nú er þó búið að fela mjer að rekja ættir bestu kúnna, og er jeg nú að því i frítímum mínum, og vona að það geti birtst einhvern tíma að vetri. Af þessu vona jeg að höfundur tjeðs ritdóms og aðrir sjái hvað mjer var ljóst í þessu efni og hvaðan nýj- ungarnar í grein S. S. eru komnar Klett 12. júlí 1916. PállZóphóníasson. Trygð viðskifti? Mjer þótti mjög vænt um þegar jeg í vor fjekk að vita að landstjórn- in væri að semja um tryggari fram- t'ðarviðskifti við Breta. Það var þá sem sje fyrir löngu orð- ið fyrirsjáanlegt, að Bretar mundu leggja mikil höft á alla verslun vora og samgöngur út á við, sem lama hlytu viðskiftalíf vort og gera oss stórtjón, ef ekki væri að gert í tíma. Jeg hef ávalt litið svo á, að eðli- legt væri að bandaþjóðirnar gerðu öflugar ráðstafanir til þess að koma i veg fyrir að afurðir vorar kæmust á markað miðveldanna, hvort heldur beina leið eða gegnum milliliði, því eins og nú stendur á, verður ekki með sanngirni ætlast til að nokkur hern- aðarþjóð horfi aðgerðalaus á að af- urðir, er að gagni mega koma í ófriðn- um, komist í hendur mótherjanna. Slíkar ráðastafanir eru að vísu skerðing á frjálsri verslun hlutlausra þjóða (þar sem ekki er um „kontra- bande“ að ræða), en þær afsakast af nauðsyn hernaðarþjóðanna, sem nú berjst fyrir tilveru sinni. Þó er þetta því að eins afsakanlegt, að ekki sje beitt ástæðulausu ofbeldi við hinar hlutlausu þjóðir. Eftir að málaleitanir stjórnarinnar höfðu haft þann árangur, að við- skiftasamningur var á kominn milli Breta og vor, taldi jeg málinu að því leyti borgið, að vjer mundum ekki að ástæðulausu verða beittir ofbeldi af Breta hálfu, sjerstaklega þar sem samningurinn mun bera það ótvírætt með sjer, að stjórn vor hefur gengið mjög Iangt til þess að þóknast Bret- um> °§f jafnvel selt þeim sjálfdæmi að sumra áliti. Stjórn vor hefur og þrásinnis látið það í ljós, að úr þessu væru viðskifti vor sæmilega trygð. Það kom mjer því úr hörðustu átt, þegar sú fregn barst hingað að „Flora“ væri hertekin hjer uppi í lsndsteinum, á siglingu milli hafna innanlands og með fleiri hundruð ís- lenskra farþega, og að þeir með her- valdi hefðu verið færðir til Lerwick. Þótt svo kunni að hafa verið, að „Flora“ hafi haft meðferðis eitthvað af vörum, sem Bretar vildu athuga, þá afsakar það ekki þetta tiltæki; það var hægurinn á að taka skipið síðar, er það fór frá landinu, eftir að far- þegarnir höfðu yfirgefið skipið. Jeg get ekki skilið þetta atferli. Jeg get ekki skilið að bretska stjórnin hafi lagt það fyrir varðskip sín hjer við land, að þau skyldu beita slíku of- beldi að ástæðulausu. Jeg get ekki skilið að umboðsmaður Breta hjer____ sem þekti málavöxtu — eigi nokkurn þátt í þessari svívirðingu, enda hef jeg heyrt, að hann hafi þegar látið gremju sína í ljósi yfir þessu tiltæki. Hin eina hugsanlega skýring á málinu er sú, að skipstjórnarmaður sá, er tók „Flóru“, hafi ekki verið starfi sínu vaxinn, hafi að ósekju og af ásettu ráði móðgað oss og um leið kastað skugga á álit sinnar eigin þjóð- ar. Gagnvart oss hefur hann sýnt fyr- irlitningu og ómannúð, þar sem hann hefur fótumtroðið þjóðsæmd vora með því að hrekja mörg hundruö ís- lenska borgara — á ferð milli hafna innanlands — til útlendrar hafnar, alt að nauðsynjalausu og ósekju, og auk þess beinlínis stofnað lífi þeirra í hættu með þessu athæfi, 0g Breta hef- ur hann gert hlægilega gagnvart öðr- um þjóðum með þessari „hernaðar- ráðstöfun“. Þetta má ekki þolast; stjórn vor verður að mótmæla slíku framferði og krefjast afsökunar á því (og skaðabóta); en ekki nóg með það, vjer verðum að krefjast þess að Bret- ar rannsaki málið fyrir herrjetti og refsi þeim manni eða mönnum, sem hjer eiga sök á, til þess að sýna í verki vanþóknun sína á þessu tiltæki. Jeg hef aldrei dregið dul á að mjer er hlýtt til Breta, en einmitt þess vegna er mjer þetta mál sjerstaklega viðkvæmt, þar sem jeg ávalt hef ætl- að þeim hið besta í vorn garð, en jeg get ekki samrýmt þetta álit mitt við það, sem hjer hefur fram komið, ef við svo búið á að standa. Jeg hlýt þvi að ganga út frá að Bretum sje ljúft að fullnægja kröfum vorum í þessu máli. Því að eins geta þeir átt von á aö halda samúð vorri, að þeir láti ekki sæmd vora liggja óbætta hjá garði. Reykjavik, 15. júli 1916. Lárus Fjeldsted. Frjettir. Frjettapistill úr Skagafirði. Eins og kunnugt er, var siðastliðið sumar með meiri grasleysissumrum, sem hjer koma, og heyfengur því alment með mikið minna móti, þrátt fyrir það, þó nýtingin væri góð. En svo var veturinn góður, alt til miðsvetrar. Eigi að síður var búið að gefa sauð- fjenaði mikið hey á þeim tíma í flest- um plássum hjer. En hross voru ljett á fóðrum til janúarloka. En þá byrj- uðu líka, að kalla mátti, harðindi, sem hjeldust að miklu leyti þangað til seint i mai, þó allra verst væru þau yfir marz og apríl. Eldri menn hjer segjast varla muna jafnstöðugar stór- hríðar og snjókomur. Svo það er ekki furðanlegt neitt við það, þó hey væru orðin litil hjá almenningi, þegar loks- ins að batinn kom. Það væri mikið meiri ástæða til að furða sig á þvi, hvað menn entu heyin lengi. Þvi um miðjan jxennan mánuð (júní) var ám gefin hálf gjöf í Stíflu, sem liggur fram af Fljótum í Skagafjarðarsýslu, og ekki allfáir menn, bæði í Skaga- firði og Húnavatnssýslu, sem fyrna hey, enda þó að það sje með minsta móti, sem ekki er óeðlilegt, jxvi jxeir, sem betur máttu, hjálpuðu hinum. Með kornmatargjöf, sem víða varð mikil, komust skepnur svo vel af, að víða hafa skepnuhöld sjaldan verið betri en nú. Sem vænta má, er það þó ekki alstaðar svo, því fyr er nú gott en ágætt, t. d. lambadauði sumstaðar nokkur, sem mest hefur þó stafað frá hættum, þar sem svo seint leysti snjóa. Jeg hef nokkuð kynt mjer skepnuhöld, bæði um Skagafjörð og Húnavatnssýslu, og hvergi heyrt get- ið um annað en fremur góða afkomu, og mikið betri eftir Jafnlangsöm harðindi en hægt var að búast við, enda tíðin verið mjög mild og hag- stæð síðan um hana skifti. Jeg var á Suðurlandi frá því um miðjan mars og fram til mailoka, og heyrði þang- að margar tröllasöguna sagða um harðindin á Norðurlandi, horfelli og niðurskurð o. s. frv. Það yrði of langt mál hjer, að skrifa þær allar, enda óþarft, þar sem flest annað var ósatt en jxað, að hörð væri tíð þar nyrðra. En til sönnunar því, hvað lýgin á hægt með að ferðast, ekki síður þó illa viðri, þá ætla jeg að setja hjer eina söguna, sem suður kom um hrakfarirnar á Norðurlandi. Hún var einhver sú veigamesta, og töluvert margþætt. Magnús bóndi á Frosta- stöðum átti að hafa látið skjóta 40 hross á sumardaginn fyrsta, 0g bóndi i nágrenni við MagnÚS, ekki nafn- greindur, átti að hafa skorið 80 ær sama dag. Þegar svo að Skagfirðing- ar heyrðu þetta, að fjárflesti bóndi sýslunnar væri farinn að slátra svona greinilega, fóru hver um annan að fága upp byssur og brýna hnífa, og bjuggust við að þurfa á því að halda næstu daga. Samtimis kom fregn úr Húnavatnssýslu uin það, að einn bóndi á Ásum, Eysteinn í Meðal- heimi, hefði skorið alt sitt fje, 150 talsins, og að faðir hans, Björn frá Ánastööum, hefði skotið 7 hross; það var nú svo sem ekki talið mikið hjá honum, varla nema til að reyna byss- una; þau fengju fljótlega að hátta fleiri hjá þeim karli. Hreppstjórinn í Vindhælishreppi átti að hafa sagt, að 2 hestar af heyi væru til á páskum í öllum þeim hreppi. Og það gilti alveg sama hvort þeir, sem fræddu hver annan um þetta, vissu, að Vind- hælishreppur er alt að 2 dagleiðum yfirferðar, eða þeir hjeldu hann fárra tima ferð. Mjög rnargar sagnir í þessa átt heyrði jeg daglega. En þetta tel jeg samt þær helstu. Það fór líkt fyr- i? mjer og þeim, sem ekki trúa hverju orði í ritningunni. Jeg vildi fara að vinsa eitthvað úr öllu þessu. En það komst jeg ekki upp með. Jeg fór eitt- hvað að spyrjast fyrir um, hvaðan þessar fellisögur væru upp runnar. Það gat jeg aldrei komist fyrir. Einn frjetti það hjá þessum, annar hjá hin- um, og þriðji hjelt að þær hefðu ílutst með símanum. En hvernig svo sem það væri, þá hlyti alt þetta að vera satt, og mikið meira. Svo veikti það ekki gildi þessara sagna, þegar suður kom, fregnin um það, að nú gæti pósturinn ekki ferðast lengur, meðan svona stæði. Hann fengi hvergi hey, að minsta kosti yfir

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.