Lögrétta - 29.11.1916, Síða 4
206
LÖGRJETTA
dentar, þá komu um 50 Sviar, um
150 Danir og 5 íslendingar, auk okk-
ar þriggja þeir Siguröur Sigtryggs-
son adjúnkt frá Vebjörgum og Páll
Jónsson stud. jur. frá Höskuldsstöð-
um, Hafði stúdentum, sem þess ósk-
uöu, verið útveguS gisting hjá privat-
fólki í Höfn næturnar sem þeir áttu
aS dvelja þar áSur en haldiö væri á
stað suSur á Mön. Byrjaöi nú ralliS
meö púnsveislu í Stúdentafjelaginu,
ræöuhöldum og söngvum, og í býti
næsta morgun fór hersingin á staS í
glaöa sólskini og hvínandi roki á
gufuskipinu, sem leigt var til farar-
innar, suður með Sjálandi. Sigurð-
arnir og jeg urðum nú samt ekki að-
alhópnum samferða á skipinu, af sjer-
stökum ástæSum uröum viS að fara
meS járnbrautinni um morguninn og
svo gerðu nokkrir fleiri, einkum úr
forstööunefndinni, því margt þurfti
aö undirbúa áöur en hópurinn kæmi.
Við vorum því við höfnina í Stege
þegar skipiS kom. Ægir haföi tollaö
drjúgum hjá sumum á leiðinni, og
bleikur var vanginn hjá þeim, en all-
flestir voru sem hetjur og allir sungu
þeir „Sjung om Studentens lykkelige
Dag“ þegar skipiS lagðist viS bryggj-
una. Þar var reistur heiSursbogi úr
trjálaufi og blómum, og borgarstjóri
var þar og hjelt ræðu til æskulýðsins,
en formaSur hinnar dönsku deildar
sambandsins, stud. polit. Kraft þakk-
aöi. Svo var gengiö út á Rödkilde,
hinn fræga lýðháskóla Frede Bojsens.
Hann er hjer um bil 25 mínútna gang
frá Stege, liggur ljómandi fallega á
brekku þar við stórt lón, sem er fyrir
aftan bæinn, og stór og fallegur lysti-
g.aröur niöur aö því, annars akrar í
kring. Alt er landiS búsældarlegt og
frjóvsamt eins og víöast hvar á
dönsku eyjunum. Bojsen tók þar móti
okkur og systir hans, þjóökunn ágæt-
iskona, frú Jutta Bojsen-Möller, sem
hefur veriö ein af forvígiskonum
danskra kvenna. Bojsen hefur nú látið
af skólastjórn og stýrir skólanum
tengdasonur hans, Vagn Möller; voru
það skólastjóri og frú hans, sem
önnuðust um fundargestina og var
ekki hægt aö gera þaö elskulegar og
betur í alla staöi. Háskólinn er stór
þyrping af húsum, haföi hermála-
stjórnin danska lánað teppi og hálm-
sængur handa yngri hópnum, en eldra
fólkið fjekk þau uppbúnu rúm, sem til
voru á skólanum. Borðað var í stóru
tjaldi við háskólann. Fyrirlestrar voru
haldnir í leikfimissalnum. Bæði borð-
tjaldiS og fyrirlestrasalurinn var
skrýtt flöggum allra þjóöanna, og
auövitaö líka ísl. flöggunum. Því
miöur sást hvergi flagg Finnlendinga
og enginn af þeirri þjóö var á fund-
inum; haföi rússneska stjórnin lagt
blátt bann fyrir aö nokkur vopnfær
Finnlendingur færi erlendis. Var
mönnum mikill söknuöur aö þessu,
því Finnlendingarnir sumir eru meö
bestu og skemtilegustu mönnunum í
sambandinu, ötulir og áhugamiklir.
Bojsen hjelt ræSu viS móttökuna,
og yfir borSum bauö Kraft alla vel-
komna og var þakkaö. meS ræöum,
einni frá hverju landi, Sig. Sigtryggs-
son talaöi fyrir íslands hönd. Um e.
m. hjelt próf. Vilhelm Andersen fyrir-
lestur um Jens Paludan Múller, son
sagnaritarans en bróöurson skáldsins,
ungan danskan visindamann, er fjell
í stríSiu 1864. Um kvöldið las hann
svo upp gleðileikinn „Den kröllede
Fritz“. Björnstjerne Björnson sagöi
það um Andersen á sínum tíma, aö
hann mundi verá mælskastur maöur
á Noröurlöndum, og gæti jeg trúaö
því aö nokkuð væri til í því, og víst
er það, að betri upplesanda er ekki
hægt aö ímynda sjer. ViS fórum seint
aö hátta, þá var komið logn og bliSa
og unga fólkiS var aö spásera út um
lystigarðinn og niöur meö lóninu og
hingaö og þangað — svo jeg held
sumir hafi ekki mikiö sofiö. Svona
leið fyrsti dagurinn, og hinir sem á
eftir komu voru hver öörum dýrö-
legri. Altaf inndælt veöur, sólskin og
blíöa, en á kvöldin lygnt og himininn
alþakinn stjörnum. Hvernig unga
fólkinu leiö þarna er hægra aö
hugsa sjer en lýsa meö orðum
Á hverjum morgni var danski
fáninn dreginn upp, þjóSsöngv-
ar allra landanna sungnir í staf-
rofsröö eftir þjóöanöfnum; viö vor-
um nú ekki margir, sem sungum þann
íslenska, en á endanum voru sumir af
hinum farnir að taka undir meö okk-
ur. Allir voru berhöfðaðir meðan
sungið var. Alt af var sungiö undan
og eftir fyrirlestrum. Jeg held oftast
hafi verið sungiö hið gamla kvæöi
Carl Ploug’s „Unge Genbyrds Liv i
ti
H
H
tí
m
ö
ö
tí
n
H
p
fc
tí
o
h
H
Q
-n05
3>
—
C/5 O
r-d?
>c/i
Ch
O
«
5S
09
©
ts
fr
E
a
KRONE g,A&ERÖL
er best.
(Fiskstrig'i) ogf
Ullarballar
fyrir kaupmenn, kaupfjelög og útgerðarmenn.
Leitið yður upplýsinga um verðið, áður en þjer festið kaup annarstaðar,
hjá
T. Bjarnason.
Simi 513. Box 157. Sámn. Tbjarnason.
Asg. G. Gunnlaugsson & Co.
Austurstræíi 1, Reykjavík,
selja:
Vefnaðarvörur. — Smávörur.
Karlmanna og unglinga ytri- og innrifatnaði.
Regnkápur. — Sjóföt. — Ferðaföt.
Prjónavörur.
Netagarn. — Línur. — Öngla. — Manilla.
Smurningsolíu.
Vandaðar vörur. Sanngjarnt verð.
Pöntunum utan af landi svarað um hæl.
ft start Uirelso
Norden“,enda er lagiðviS þaö flestum
lögum betur falliö til aö hleypa eld-
móöi í fólk. (Þaö er sama lagiö og
sungiö er á Islandi viS „Fanna skaut-
ar faldi háum“, sem þaS á illa viS).
ÞaS var dýrðlegt að sjá og heyra þeg-
ar þessir um þaö bil 400 unglingar
sungu seinasta erindið:
Unge Genbyrds Liv i Norden,
| Fortids Röst og Fremtids Syn,
i Rul fra Læberne som Torden,
i Brænd i Sjælene som Lyn!
Rejs de bange, styrk de svage,
i Flok de stærke Mand ved Mand,
Skab en ny, en evig Sage
For vort skönne Fædreland! *
Því þaS fann maður á öllu,aS sú sann-
I færing er aS læsast í brjóst æskulýös-
I ins, ekki síst á þessum tímum, aö við
| Norðurlandaþjóðir allar erum í raun-
ir.ni ein stór þjóS, aS Norður-
lönd í heild sinni frá Hornströndum
t:l Helsingfors er e i 11 1 a n d, dýrö-
legt og mikið og margbreytilegt, land
sem hefur sameiginlega menningu og
sameiginlegan andlegan arf á svo
mörgum sviðum, aS viö getum skoö-
aö okkur sem eina heild, þó pólitískur
skilnaöur haldist.
En víkjum nú aö fundarsögunni. Af
öörum dönskum ræðumönnum voru
þar rektor H. P. Hansen frá Suður-
Jótlandi, er las upp brjef frá suöur-
jótskum hermönnum í her ÞjóSverja.
Láta þeir lífiS fyrir Þýskaland þús-
undum saman, en enn fleiri eru særð-
ir og örkumlaöir, en þýska stjórnin
beitir samt samtímis óskiljanlegri
hörku og tortrygni gegn löndum
þeirra heima í Norðursljesvík, og þaö
svo, aö mörgum vitrari ÞjóSverjum
ofbýSur. Þá talaSi Klaus Berndtsen
fyrv. ráöaneytisforseti, hvöt til æsku-
lýösins og um samkomulag Noröur-
landa. Dr. Hemik Ussing vakti eitt
kvöld máls á sameiginlegu ráðgjafar-
þingi fyrir öll NorSurlönd, aS undan-
teknu Finnlandi, og uröu fjörugar
umræður um þaö efni. Frá Noregi
komu þeir prófessor Gerhard Gran
frá Kristjaníu og próf. Sem Seland
frá Þrándheimi, hjeldu báöir einkar
skemtilega fyrirlestra, Gran um Ás-
mund ólafsson Vinje, Seland um Iön-
að Norðmanna á síðustu tímum. Frá
Svíþjóö kom Dr. Karl Hildebrand,
þjóökunnur vísindamaöur og stjórn-
málamaöur, sem lengi var ritstjóri
fyrir „Stockholms Dagblad“. Hann
talaöi um heimsmenning og þjóðerni,
og var þaö enhver besti fyrirlestur-
inn. Þótti sumum hann of vingjarn-
legur ÞjóSverjum, mjer fanst hann —
og jeg held flestum — snildarlega ó-
hlutdrægur. Fyrir Islands hönd talaði
Dr. SigurSur Nordal, hjelt hann mjög
skemtilegan og vel fluttan fyrirlestur
um þá þingeysku rithöfundana okk-
ar, Þorgils Gjallanda og Guömund
FriSjónsson, og var geröur góSur
rómur að. — Einn daginn var hald-
inn opinber fundur undir beru lofti,
og kom þar alls um 1000 manna.
SagSi Frede Bojsen þar frá ýmsum
æskuminningum sínum, hjartnæmt er-
indi og fróðlegt; auk hans töluðu einn
frá hverri þjóð, jeg fyrir íslands
hönd. Tvær skemtiferSir voru farnar,
önnur á vögnum til Möens Klint, þar
eru snarbrattir krítarklettar og gnæfa
fram í sjó, háir og fallegir, en alt
vafið gróöri á milli, þjettur skógur
og kjarr. Víða fram meö veginum var
fólk, sem kastaði blómum inn i vagn-
ana til okkar. Vorum viö þar aS
sveima og klifra hálfan daginn, borö-
uðum svo á hóteli þar og komum svo
syngjandi og húrrandi um kvöldið
aftur til Rauðkeldu. Síöasta daginn
var fariS til Úlfshala, yst á Mön, á
skipum. Þar er mjög einkennilegur
skógur, meöal annars mikiS af eini-
viö. Hafði Bojsen látið aka þangaö út
heilmiklu af hressingum handa okk-
ur, út í gamlar virkisrústir þar viö
ströndina, rjett viö skógarjaöarinn,
og varð þar fagnaðarfundur þegar
síöasta hersinginn hitti á hann og
fólk hans þarna niöurfrá, að okkur
óvörum. Þaö munu fáir hafa komist
í rúmiö þá nótt fyr en einhverntíma
undir morgun. Yfir boröum gekk ekki
á ööru en ræðuhöldum og söngvum
á víxl, og þegar búiö var með hátíö-
* „Þú unga líf endurfæSingarinnar
á Noröurlöndum, raust úr fortíö vorri
og vitrun um framtíðina, bruna þú
sem þruma frá vörum vorum og læs
þíg sem elding inn í hverja sál! Reis
þá við sem hræddir eru, styrk hina
veiku, skipa hetjunum i fylking,manni
viö mann, og skapa voru fagra ættar-
landi nýja og eilífa sögu!“
legu ræöurnar, tóku prívatræöurnar
og grínræðurnar við. Skáldið Valdi-
mar Rördam las þar upp ágætt kvæöi.
ViS vorum seinast eins og ein stór
fjölskylda, fólkið sat eSa gekk í kring
í smáhópum syngjandi og skrafandi.
Og þaö sem einkendi alt þetta var
hvaö vel þaö fór fram. Yfir öllu var
elskulegur og fínn blær, enginn sást
þar drukkinn eöa líkt því, og var þó
leyft aö hafa vín um hönd, og þakka
jeg þaö mest kvenstúdentunum, sem
ekki leyfðu karlmönnunum, fjelögum
sínum, neitt þess háttar. Sum kvöld-
in var dansaö, eitt kvöldiS efldu stú-
dentar sjálfir til skemtunar með söng,
hljóöfæraslætti og upplestri.
Ársfundur Sambandsins var hald-
inn um leið. NorSmaöurinn Smitt
Ingebretsen, stofnandi Sambandsins,
lagöi niöur frammistööuna vegna
annríkis viö annað, og var hin mesta
eftirsjá aö honum. í hans staö var
formaður dönsku deildarinnar, Kraft,
kosinn. í íslensku stjórnina vorum viö
Steinþór GuSmundsson endurkosnir
og aö auk Sigurður Leví.
Og aö lokum voru menn ásáttir
um þaö, aö dýrðlegri átta daga hefð-
um við sjaldan lifað og við óskuðum
aö hittast sem flest aftur næsta sumar
í SvíþjóS.
Sigfús Blöndal.
Eftirmæli.
Ekki man jeg eftir aö jeg hafi sjeð
minst í blöSunum ágætis manns,
Magnúsar Ásbjörnssonar á Beitistöð-
um í Leirársveit, er ljetst 12. maí
síöastl. að heimili sínu. Hann var
fæddur á GrímastöSum í Andakíl ár-
iö 1839. Foreldrar hans voru hjónin
Ásbjörn Magnússon og Kristín Magn-
úsdóttir, er lengi bjuggu á Gríma-
stööum. Magnús ólst aö mestu leyti
upp hjá foreldrum sinum, en aö
nokkru hjá Teiti bónda Símonarsyni
á Hvítárósi. Árið 1868 fluttist Magn-
ús aö BeitistöSum og byrjaöi þar bú-
skap viö lítil efni. Tveim árum síöar
kvæntist hann Þórunni Sveinsdóttur
frá Beigalda í Borgarhreppi, sem lif-
ir mann sinn. Þeim hjónum varö 5
barna auðið og lifa 4 synir þeirra. —
Um dugnað Magnúsar munu Beiti-
staðir lengi minna og þá einkum þau
undrabjörg, er hann tók upp úr tún-
inu. Sætir þaö furöu, aö einn maöur
skuli hafa mátt færa slík Grettistök.
TúniS sljettaði hann alt, stækkaöi það
mikiö og girti meö skurðum og görö-
um. Hann var smiður bæöi á trje og
járn. Þótti sjerstaklega góöur rokka-
smiöur og kunni manna best aö fara
meö byssu. Magnús var hið mesta
prúðmenni, gætinn og stiltur, við-
mótsglaður og skemtinn, gáfaöur og
skáldmæltur vel, en fór mjög leynt
meö þá list sína, því hann var dulur
í skapi. Aldrei haföi hann veriö til
menta settur, en af sjálfsdáöum læröi
hann ensku og dönsku svo aö hann
mátti lesa bækur á þeim málum sjer
tii fullra nota. Hann var því víöles-
inn og fróður vel um marga hluti.
Honum fanst hann sífelt þurfa aö
auSga anda sinn og kleip hann oft
drjúgum af svefntíma sínum til að
geta lesiö. Einyrkjarnir mega helst
aldrei missa neina stund af ljósum
degi frá deglegu störfunum. Þess
vegna veröa þeir, sem hugsa eitthvað
ineira, svo oft aö eiga vingott viö
nóttina. ÞaS var oft skemtilegt og
hressandi aö tala við Magnús, einkum
var ánægjulegt aö vera meö honum
einum. Hann var mjög vel látinn og
vinsæll af sveitungum sínum og öll-
um, er þektu hann. Tryggur og góð-
ur vinur var hann þeim, er náöu því
aö veröa vinir hans. Magnús var altaf
fremur fátækur, en haföi nóg fyrir
sig og sína. Þau hjón voru mjög
gestrisin og greiöasöm og samtaka í
því að gera gott.— Haföu kæra þökk,
Magnús, fyrir öll þín störf, fyrir all-
an dugnaðinn þinn og fyrir allar stök-
urnar þínar! H. ól.
í HAUST hafa mjer veriö dregin
2 lömb meö mínu hreina marki: Blað-
stýft framan hægra; sýlt vinstra.
Rjettur eigandi gefi sig fram sem
fyrst, semji við mig um markiS og
borgi auglýsingu þessa.
Brunngili í Óspakseyrarhreppi
í Strandasýslu.
Gísli Jensson.
önskes til Leje strax, behöver
ikke at være möbleret.
Arnholtz
Iiótcl ísland.
Træffes mcllem 3 og 4.
Bæjarstjórnir —
Byggingarnefndir!
UM SKIPULAG BÆJA
eftir
GUÐM. HANNESSON.
Omissandi bók fyrir bæjarstjórnir,
bygginganefndir og framtakssama
bæjarbúa.
Fæst hjá ritara Háskólans
(kl. 1-2 og 4-5).
Verð kr. 2,50.
Ekki seld í bókaverslunum.
Eggert Claessen
yfirrjettarmálaflutningsmaður.
Pósthússtræti 17. Venjulega heima
kl. 10—11 og 4—-5. Talsími 16.
Schannongs
Monument-Atelier,
Ö. Farimagsg. 42.
Köbenhavn.
= Katalog gratis. —
Söðlasmíða-
og aktýja-vinnustofa
Grettisgötu 44 A.
Tekiö á móti pöntunum á reiötýgj-
um og aktýgjum og fl. tilheyrandi.
ASgeröir fljótt og vel af hendi leystar.
EGGERT KRISTJÁNSSON.
Prentsmiöjan Rún.