Lögrétta

Útgáva

Lögrétta - 18.04.1917, Síða 4

Lögrétta - 18.04.1917, Síða 4
7° LÖGRJETTA Með báli og brandi. Beikningur yfir tekjur og gjöld sparisjóðs Hafnar- fjarðar frá i. jan. 1916 til 31. desbr. s. á. Eftir Henryk Sienkiewicz. X. KAFLI. Ferðin gekk vel niöur ána, og bar ekkert til tíöinda, fyr en þeir Skrje- tuski komu til Khortitza, er liggur skam frá Sitsch, þar stigu þeir á land og bjuggust til næturvistar, þvi þeir vildu ekki koma til borgarinnar aö næturlagi. Veröir voru settir alt um- hverfis, en hinir lögðust niður vi'ð báliö, er kveikt hafði verið. I dag- renningu kom varömaöur einn til Skrjetuski, er haföi átt mjög erfitt meS svefn um nóttina, og sagöi hon- um, aö þaö færu menn að þeim. „Hverjir eru það?“ „Veit það ekki. Þeir eru um fimm- tíu.“ „Nú jæja, það er enginn fjöldi. Bættu skíðum á bálið.“ Á næsta augnabliki var alt liðið viðibúið og eldurinn logaði glatt. Það heyrðist greinilega fótatak er nálægðist. Spottakorn frá árbakkan- um stöðvaðist flokkurinn, og einn úr honum spurði hranalega: „Hverjir eru þeir, er á hjer á árbakkanum?" „Flverjir eru þeir sem spyrja,“ „Svarið, vesalingar, annars spyr byssa mín.“ „Vjer erum sendimenn hins göfuga fursta Jeremiasar til atamansins í Sitsch,“ svaraði varðistjórinn. Hinir námu staðar, sennilega til ráðagerðar. „Þjer getið komið nær. Enginn ger- ir árás á sendiboða og sendiboði ræðst heldur ekki á aðra.“ Fótatakið heyrðist aftur, og 30 til 40 menn komu í ljós. Á klæðaburði þeirra og andlitslögun var það auð1- sjeð, að flestir þeirra voru Tartarar. Örfáir þeirra voru Kósakkar. Skrjetuski var þá þegar sannfærð- ur um að Kmielnitski væri kominn aftur, fyrst Tartarar voru þar á slóð- um. Fremstur í flokknum stóð gamall Kósakki, risi að vexti, með villidýrs- svip á andliti; hann kom nær eldin- um og spurði: „Hver yðar er sendiboðinn?“ Hann var auðsjáanlega drukkinn og lagðá vinþefinn af honum. „Hver yðar er sendiboðinn?“ spurði hann aftur. „Hjer getur þú sjeð hann,“ svaraði Skrjetuski djarflega. „Ert þú hann?“ „Telur þú mig lagsbróðir þinn, þar eð þú þú-ar mig?“ „Vertu kurteis,ruddamennið,“ sagði varðstjórinn. „Þú átt að segja virðu- legi sendiboði.“ „Fjandinn hafi öll yðar virðuleg- heit, herjans þjónn. En hvað viljið þjer atamaninum (yfirmanninum) ?“ sagði hann, og vjek máli sinu að Skrjetuski. „Það kemur þjer ekki við. En vilj- ir þú tóra lengur, þá fylgdu oss und- ir eins á fund hans.“ „Atamaninn hefur skipað oss hjer á vörð, til þess að enginn Pólverji komist til borgarinnar,“ sagði annar Kósakki, er einnig kom nær. „Oss var skipað, ef nokkur kæmi, að flytja hann bundinn fyrir atamaninn, og því ætlum vjer að hlýða.“ „Þið bindið þó ekki þann, er fylgir ykkur þangað af frjálsum vilja?“ „Jú, það gerum vjer, oss var það fyrirskipað.“ „Veistu þá, durgurinn þinn, hvern rjett sendiboðar hafa? Veistu hver sá er, sem sendir mig?“ „Nú skulum vjer fylgja virðuleg- um sendiboða til atamansins,“ sagði sá, er fyrst hafði talað, „en vjer skul- um leiða hann þangað á skegginu, til svona.“ Hann greip i skegg Skrjetuskis, en á því augnabliki er hann snerti það, rak hann upp hljóð og fjell dauður til jarðar, hafði Skrjetuski klofið hann í herðar niður með stríðsöxi. „Sækjum fram, fellum hann,“ æpti óþjóðalýðurinn. Menn Skrjetuskis komu honum til aðstoðar og skutu þeir á Tartaralýðinn. Orustan var snörp; bálið sloknaði, svo að kol- dimt varð. Síðan var barist í návigi, og er ekki var lengur höggrúm, komu hnefar og tennur í stað sverðanna. Fjandmennirnir tóku að hopa og var flótti að bresta i liði þeirra, en þá heyrðist heróp og kom sveit mikil þeim til hjálpar. „Til bátanna,“ hrópaði Skrjetuski. Flokkur hans hlýddi þegar, en til allrar óhamingju voru bátarnir um kvöldið dregnir svo langt upp, að það tók nokkurn tíma að setja þá fram. Fjandmennirnir blóðþyrstir ruddust fram. „Skjótið!“ skipaði Skrjetuski. Skothríðin stöðvaði þá, þeir hrukku undan smeikir. Margir þeirra urðu eftir fyrir fult og alt, bröltu þeir þar í blóði sínu. Meðan reyndu hinir að setjt fram bátana, en það varð árang- urslaust. Fjandmennirnir höfðu nú áttað sig og fóru að skjóta á þá; kúlurnar skullu niður á sandinn og ána, örv- arnar þutu yfir höfðum þeirra og kvein hinna særðu blönduðust saman við vopnabrakið. Tartararnir hvöttu hverjir aðra með því að hrópa „Allah!“ og var því svarað með ópum Kósakkanna: „drepum, drep- um“. Tíðar og tíðar hljómaði rödd Skrjetuskis: „skjótið!“ Það var kominn dagur á loft og sást yfir orustuvöllinn. Landmegin voru Kósakkar með byssur við kinn- ar og íbognir Tartarar lögðu örvar á strengi. Niður við ána voru bátar tveir huldir púðurreyk. Fjöldi lá þar á vell- inum milli flokkanna,dauðir eða særð- ir. í öðrum bátnum stóð Skrjetuski berhöfðaður, ör hafð.i verið skotið í húfuna og numið hana burtu, — en djarfur og æðrulaus skipaði hann fyr- ir um vörnina. Varðstjórinn hvíslaði: „Vjer verð- um ofurliði bornir, þeir eru svo margir.“ „Vjer berjumst meðan nokkur stendur uppi,“ svaraði Skrjetuski. „Það er vilji vor,“ hrópuðu menn hans. „Skjótið." Bátarnir hurfu í reykmekkinum. Sóknarmönnunum fjölgaði altaf, komu ávalt tveir fyrir hvern einn er fjell, vóru margir þeirra vopnaðir há- skeptum spjótum eða sigðum. Sumir þeirra skutu án afláts en að-rir voru búnir til áhlaupa, ef færi gæfist. Fjór- ir bátar alskipaðir hermönnum sóttu og að baki þeim. Þegar þeir voru komnir í skotfæri, skipaði Skrjetuski 20 af mönnum sínum gegn þeim, en við það varð vörnin slæglegri land- megin. Fjandmenn þeirra landmegin virt- ust hafa beðið eftir þeim. Varðstjór- inn gekk að Skrjetuski og mælti: „Tartararnir hafa tekið rýtingana milli tanna sjer, þeir ætla að ráðast á oss.“ Þrjú hundruð Tartarar bjuggust þar til áhlaups. Höfðu þeir rýtinga milli tannanna og bjúgsverð í hendi. Nokkrir Kósakkar fylktu flokk þeirra. Það var ætlun óvinanna að sækja að þeim í senn frá báðum hliðum. Bátarnir voru komnir í skotfæri og ljetu þeir kúlurnar dynja á þeim. Eftir litla stund var helmingurinn af mönnum Skrjetuskis óvígur, hinir vörðust sem óðir væru; þeir voru sótsvartir af púðurreyk, augun blóð-- stokkin, raddirnar hásar og hendur hinna dauðþreyttu manna brunnu undan byssunum. Æðislegt öskur smaug gegn um loftið. Tartararnir ruddust fram til áhlaups. Orustan var ógurleg, þar fjell hver um annan þveran. Reykur- inn leið frá og stóðu þá enn uppi nokkrir af mönnum Skrjetuskis, hann stóð sjálfur við sigluna á öðrum bátn- um, alblóðugur, sár á enni, og ör stóð upp að skafti í vinstri öxl hon- um. Hann bar hátt upp úr þvögunni. Sverðið leiftraði í höndum hans, og við hvert högg kvað við vein og kvalaóp. Varðstjórinn og Kósakki stóðu hvor til sinnar handar og báru af honum lög og högg. Tartararnir hörfuðu skelkaðir frá mönnum þess- um, en var þegar hrundið frani af þeim er aftar stóðu. Þustu þeir þá aftur fram og fjellu fyrir höggum sverðsins. „Færum atamaninum þá lifandi,“ var kallað i flokknum. „Gefist upp!“ Skrjetuski gafst upp að eins á náð drottins, því að í sama bili fölnaði hann, riðaði við og fjell niður í bát- . Söðlasmíðaverkfæri fást keypt nú þegar. Einnig talsvert af tilbúnum virkjum og öðru verkefni til söðlasmíðis. Kaupandi getur líka fengið verkstæði leigt yfir lengri eða skemri tíma. Þeir, sem kynnu að vilja sinna tilboði þessu, snúi sjer til Crudridar Matthiasardóttur, Einarshöfn á Eyrarbakka, fyrir 1. maí næstkomandi. KBONE LAQEBÖL er best. verður háð í Reykjavík miðvikudaginn 20. júní 1917. Verðlaunagripur mótsins er „Knattspyrnubikar íslands“, gefinn af Knattspyrnufjelaginu Fram. Fjelög er ætla sjer að keppa á mótinu, gefi sig fram við formann knatt- spyrnufjelagsins Fram, Hr. Arboe Clausen, Reykjavík, eígi síðar en viku fyrir mótið. Reykjavík, 13. apríl 1917. Stjórn Knattspyrnnijelagsins Fram. Aðalfundur h.f. „Breiðafjarðarbáturinn“ verður haldinn í samkomuhúsinu hjer í Stykk- ishólmi fimtudaginn 31. maí næstk., og hefst kl. 12 á hádegi. Stykkishólmi 10. apríl 1917. Sæm. Halldórsson p. t. formaður. Tilbod óskast um byggingu á barnaskóla- húsi í Ólafsfirði í Eyjafjarðarsýslu næstkomandi sumar. Húsið á að byggjast úr steinsteypu, þar sem möl og sandur er við hendina. Lysthafendur, sem leggi til alt efni til byggingarinnar — nema aflviði, sem eru fyrirliggjandi að mestu — geri aðvart fyrir 15. maí þ. á. og leiti frekari upplýsinga. Ólafsfirði, 10. mars 1917. Hreppsnefndin. „Verið sælir, herra minn,“ sagði varðstjórinn í örvæntingu. En á næsta augnabliki fjell hann. Báturinn var þakinn áhlaupsmönnum. Orustunni var lokið. Merchandise Bought & Sold on Commission We will buy and sell merchandise for your account Goods shipped to us on concignment, we will sell at the best market price obtainable and will immediately remit the proceeds, less the expenses, or if you desire the amount left as a credit with us to buy American goods in return for exportation, we will purchase the goods out of the funds that we have in hand and remit the balance if any. All shipments which are consigned to us must conform to the laws of the U. S. and also the invoices must be made aut on consigned invoice form in accordance with the- Trea- sury and Consular regulations and all shipments both import and export must be forwardet in accordance with any other rules and regulations that may be in effect owing to the conditions now prevailing, Terms on Apþlication F. B.Vandegrift & Company Custom House Brokers hnport and Export Commission and Forwarding Agts. Marine, War, and Fire Insurance Brokers. Cable Adress ,Vangrift“ New York, A. B. C. Code, 5th Edition. 15-25 Whitehali St„ New York, U. S. A. Tekj ur: 1. peningar í sjóði frá f. á. 8214.20 2. Endurborguð lán: a. Fasteignarveðlán 15590.00 b. Sjálfskuldar- ábyrgðarlán 380.00 c. Lán gegn annari tryggingu 122198.00 ---------- 138168.00 3. Innlög i sparisjóðum 83176.37 Vextir af innlögum, lagðir við höfuðstól 5037.44 ---------- 88213.81 4. Tekið lán í íslandsbanka: a. Reikningslán 16458.81 b. Víxillán 00.00 5. Vextir: a. Af fasteignaveð- lánum 7820.81 b. Af sjálfskuldará- byrgðarlánum 33.30 c. Af víxlum 2574.86 d. Af hlutabrjefi í ís- landsbanka 120.00 16458.81 6. Ýmsar tekjur 10548.97 350.25 Samtals kr. 261954.04 Gj öld: 1. Lánað út á reikningstímabilinu: a. Gegn fasteignaveði 42200.00 b. Gegn sjálfskuldar- ábyrgð 00.00 c. Gegn annari tryggingu 136705.00 -------------------- 178905.00 2. Útborgað af innlögum sam- lagsmanna: 50553.85 3. Borgað lán í Islandsbanka: a. Reikningslán 20753.21 b. Víxil-lán 00.00 ----------20753.21 4. Kostnaður við sparisjóðinn 1405.80 5. Vextir af sparisjóðsinnlögum 5037.44 6. Til íslandsbanka, vextir og viðskiftagjald: a. Af reikningsláni 955-6o b. Af víxil-láni 00.00 -------------------- 955.60 í sjóði 31. desember 1916 4343.14 Samtals kr. 261954,04 Hafnarfirði 31. des. 1916. Aug. Flygenring. Guðm. Helgason. Sigurgeir Gíslason. Jafnaðarre ikningur sparisjóðs Hafnarfjarðar 31. desbr. 1916. Aktiva: 1. Skuldabrjef fyrir lánum: a. Fasteignaskulda- brjef 134930.00 b. Sjálfskuldar- ábyrgðarbrjef 530.00 c. Skuldabrjef fyrir lánum gegn annari tryggingu 40375.00 ---------- I7S835-00 2. Útistandandi vextir, áfallnir við lok reikningsársins 15-00 3. Fyrirfram greiddir vextir til íslandsbanka 00.00 4. Peninga- og skjalaskápur 263.00 5. Hlutabrjef í íslandsbanka 2000.00 6. í sjóði í lok reikningsársins 4343-M Samtals kr. 182456.14 P a s s i v a: 1. Inneign 645 samlagsmanna 146615.72 2. Fyrirfram greiddir vextir, sem ekki áfalla fyr én eftir lok reikningsársins 4610.86 3. Skuld til íslandsbanka: a. Reikningslán 16458.81 b. Víxil-lán 00.00 ---------- 16458.81 Varasjóður 14770.75 Samtals kr. 182456.14 Hafnarfirði hinn 31. desbr. 1916 Aug. Flygenring. Guffm. Helgason. Sigurgeir Gíslason. Reikninga þessa, bækur, verðbrjef og önnur skjöl, ásamt peningaforða sparisjóðs Hafnarfjarðar höfum við undirritaðir yfir- farið og ekkert fundið athugavert. Hafnarfirði 7. mars 1917. Ögm. Sigurðsson. Böðvar Bóðvarsson. Eggert Claessen yfirrjettarmálaflutningsmaður. Pósthússtræti 17. Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5. Talsími 16. Prentsmiðjan Rún, ínn.

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.