Lögrétta - 06.06.1917, Page 3
LÖGRJETTA
99
haldinn, og segir í fregnskeyti til
„Vísis“ frá 31. f. m. aö jafnaSarmenn
allra stórþjótSanna, sem i ófriönum
eiga, aö Bandaríkjamönnum undan-
skildum, taki þátt í fundarhaldinu.
SíSari fregn segir þó, aS forsætisráS-
herra Frakka banni aS gefa jafnaiS-
armönnum vegabrjef til þess að sækja
fundinn.
f opinb. tilk. ensku segir, aö Bar-
nes verkamannafulltrúi hafi tekiS
sæti í herráSinu í staS Hendersons, er
sendur hafi veriö af stjórninni til
Petrógrad í mikilvægum erindagerö-
um. Þar er og sagt, aS jafnaSarmaS-
urinn Ramsey-Macdonald hafi feng-
iö hjá stjórninni fararleyfi til Petro-
grad til viötals viS rússn. jafna'Sar-
menn og ráSageröa. Verkmannasam-
koma mikil haföi veriö í Hyde Park
27. f. m. og þar veriö mælt með fram-
haldi ófriðarins uns sigur fengist.
Fulltrúi frá Rússum tók þar m. a. til
máls og sagöi að Rússar væru hollir
bandamönnum og mundu halda ó-
friðnum áfram. — Balfour hefur ver-
ið á ferð um Bandaríkin, en er nú
kominn norður í Kanada.
f Krónstadt hefur orðið uppþot, og
segir í fregn frá 2. þ. m. að hermenn
og verkamenn þar vilji ekki viður-
kenna nýju rússn. stjórnina.
Fregn frá 2. þ. m. segir, að Aust-
urríkiskeisari hafi látið í ljósi í ræðu,
að hann vildi frið án landvinninga
og skaðabóta, en að þýskir íhalds-
menn sjeu óánægðir með ræðuna. —
Spánsku póstflutningaskipi hafði ver-
ið sökt af þýskum kafbáti í lok síð-
astl. mánaðar, og hafði orðið uppþot
út af þvi í Madrid með kröfum um,
að friði yrði slitið við Þýskaland.
En til þess hefur þó ekki kom-
ið. Einnig er sagt að 6 sænskum vöru-
flutningaskipum hafi verið sökt og 3
hertekin í finska flóanum.
Andbanningafjelagið.
Á fjölmennum fundi í Reykjavík
3. maí 1917 var stofnað andbann-
banningafjelag. Tilgangur þess er
að vinna að því „að lögin um að-
fiutningsbann áfengis verði sem fyrst
afnumin, svo og einnig að öðru
leyti að vinna móti hverju því, er
hnekkír persónufrelsi og almennum
mannrjettindum." það er nú hvorki
meira nje minna. þetta fjelag ætlar
sjer að taka höndum saman um alt
land og vaka yfir, að löggjafarþing
íslands gæti skyldu sinnar. Um
þetta er nú ekki margt að segja;
maður getur að eins brosað.
Um aðflutningsbann áfengis hefur
verið töluvert ritað, og álíta báðir
partar sig tala fyrir munn fjöldans.
þær greinir læt jeg afskiftalausar,
eins og jeg líka læt vera að gagn-
rýna, hvort þessi frelsishreyfing (!)
stendur í nokkru sambandi við
Bakkusarstrandið í Viðey. Mjer þyk-
ir sem þessir menn vakni heldur
seint. Hvarvoruþeir þegar atkvæða-
greiðsla um aðflutningsbann áfengis
fór fram? það er ótímabært að tala
um þetta nú, og jafnvel þó fram-
kvæmd bannlaganna hafi farið í
hinu mesta sleifarlagi, þá eigum
við ekki að gefast upp við hálfnað
verk, heldur bæta það, sem bætt
verður. Við eigum að eyða of-
drykkju í landinu, og það hlýtur að
vera mögulegt. Auðvitað helst með
kenningu og eftirdæmi, fremur
en valdboði.
í öllum skólum ætti að brýna
fyrir nemendum skaðsemi ofdrykkj-
unnar, og í prjedikunarstólunum
ekki síst. Mundi það hafa meiri
áhrif og gagnlegri en þetta fimbul-
famb upp í himnaríki, oní helvíti
og um alt, sem þar er á milli. Of-
drykkja er lands og Iýða tjón og
Það er siðferðisleg skylda hófsemd-
armanna að sýna sjálfsafneitun, til
að ioröa öðrum frá því böli, sem
af henni leiðir. Drykkjuskapar-
ástríðan fylgir ei{ici fremur fávitrum
en vitrum. þab er ajkunnugt, jeg
þarf ekki að neina dæmi. Jeg er
uppalinn á þeim tíma, þegar það þótti
ckki „maður með mönnum" ef
hann ekki drakk, og það þ’urfti
meira en meðalþrek til að halda sjer
þá frá drykkjuskap. En núna er
það að berast með straumnum að
afneita víni, svo mikill er munur-
inn frá því, sem áður var, og með-
Áskorun
r
til Islenditiga.
Það er orðið ljóst, eftir að eins hálfs þriðja árs reynslu, hversu
heillaríkar afleiðingar lögin um aðflutningsbann á áfengi hafa hér
á landi. Er öllum þó kunnugt, að lögin hafa mætt miklum and-
blæstri og gæsla þeirra verið allsendis óviðunandi.
I bæjum og þorpum landsins, þar sem eftirlitinu þó hefir verið
mest ábótavant, hafa fátækrastjórnir séð að efnahagur manna hetír
breyst mjög til batnaðar, einmitt þar sem drykkjuskapurinn hjó
áður stærstu skörðin, og siðferðisbragur á almannafæri hefir tekið
stórkostlegum stakkaskiftum. — Þetta kemur einnig heim við
reynslu í öðrum löndum, þar sem áfengisbann hefir komist á að
einhverju leyti. — Eru þá enn ótalin þau gæði, er koma fram síðar
í bættu heilsufari og vaxandi hreysti kynslóðarinnar.
Með því að það þá sýnist vera augljóst eftir þessa stuttu
reynslu, að með bannlögunum hefir verið stigið örugt spor í áttina
til bættrar siðmenningar á þessu landi, en andstæðir kraftar eru þó
sístarfandi, leyfum vér oss að beina þeirri alvarlegu áskoruu til
þjóðarinnar, að hún athugi þetta vel og láti ekki liðast neina til-
slökun eða undanhald frá því sem komið er, en leggi áherslu á að
herða eftirlitið með bannlögunum og endurbæta þau svo, samkvæmt
fenginni reynslu, að þau eigi enn hægra með að koma að full-
um notum.
Reykjavík, á hvítasunnudag 1917.
I stjórn Bannvinafélags Reykvíkinga:
Sigurður Gunnarsson, Jón Rósenkranz, Jónas Jónsson
præp. hon., formaður. læknir, ritari. irá Hriilu, gjaldkeri.
Halldór Jónasson, Jón Ásbjörnsson,
konnari. yfirdómslögmaður.
Samþykkir ofanrituðu:
Ásgrlmur Jónsson,
málari.
Einar ÞorkeJsson,
skriistoiustjóri.
Gudbr. Magnússon,
ritstjóri.
Guðm. Guðmundsson,
skáld.
Árni Eiríksson, Árni Jóhannsson.
kaupm. bankaritari.
Baldur Sveinsson, Einar H. Kvaran,
barnaskólastj., ísafirði. rithöfundur.
Friðrik Friðriksson, Geir Sigurðsson,
frkv.stjóri K. P. U. M. skipstjóri.
G. Björnson. Guðm. Hannesson,
landlæknir. prófessor í heilbr.fræði.
Guðm. Helgason, Guðmundur Lojtsson, Hannes Haflibason.
búnaðtrfél.forseti. bankaritari. »■ form. FÍBkifélags íslands.
Haraldur Árnason, Haráldur Níelsson, Indriði Einarsson,
kaupm. próf. i guðtr., þ. á, rektor báskól. skrifstofustj.
Jakob Jónsson, Jóhann Þorkelsson, Jón Aðils,
verzlunarstj. dómkirkjuprestur. héskólakennari.
Jón. Hj. Sigurðsson, Jón Ófeigsson, Jörundur Brynjólfsson,
héraðslæknir. c^nd. nmg. alpingismaður.
K. Zimsen, Kristinn Daníelsson, Ludvig Kaaber,
borgarstjóri. alþingismaður. konsúll.
Magnús Helgason, Morten Hansen, Jakob Möller,
forstöðum. kennaraskólans. skólastjóri. ritsljóri.
0. Ellingsen, Ólafur Lárusson, Ólafur Rósenkranz,
yfirdómslögm. leikfimiskennari.
Páll Halldórsson, Pétur A. Ólafsson,
stýrmannaskólastj.
Sigurður Sigurðsson,
ráðunautur.
Sigurjón Pétursson,
kaupm.
ólafur Ólafsson.
fríkirkjuprestur.
Pélur Halldórsson,
bóksali.
Sigurbj. Á. Gíslason,
cand. thool.
kaupm.
Sigurður Sívertsen,
prófessor í guðfræði.
Sveinn Björnsson,
kaupm.
yfirdómslögm.
an andbanningar hafa ekki annað
á stelnuskrá sinni en afnám bann-
laganna, vil ieg ekki t era með þeim,
heldur vil jeg benda á að þeir, sem
eru mjer sammála um þetta, ættu
sem Hestir að láta til sín heyra í
blöðunum, því „sofandi sigrar eng-
inn“, og andbanningar í Reykjavík
(þar er fjelagsstjórnin) þurfa að sjá
það svart á hvítu, að þeir hafa ekki
þjóðarviljann með sjer. En komi
þeir með tilögu, sem virðist að-
gengilegri til að útrýma drykkju-
skap, þá mætti ræða uin það.
Guðm. Magnússon,
Geithálsi.
Prjettir.
Tíðin hefur verið mjög köld frá
því um miðja síðastl. viku, sífe'd norö-
anátt og stundum hvast. Hefur þelta
mjög hnekt gróðri. í gær breyttist
veðrið og rigndi lítiö eilt.
Skipaferðir. Sterling er Iátin laus
í Svíþjóð, sagði fregn hingað í gær,
og er þá innan skamms væntanleg
hingað. — Willemoes er á leið hing-
að frá Khöfn. — Escondito og ís-
land eru á leið hingað frá Halifax og
Gullfoss kominn til Halifax frá New-
York. — Gufuskipið Valur (áður
Gustav Falk) kom frá Khöfn 30. f.
m. með vörur, mest til þeirra J. Zim
sens og Th. Thoisteinssons. Fór frá
Khöfn 19. maí. — Um fyrri helgi
kom seglskipið Ane til Hafnarfjarðar
frá Danmörk með sement. — F.óra
er komin til Bergen, segir í símsk.
hingað í gær. — Botnía, sem verið heíur
á Seyöisfirði frá því í febrúar í vetur,
hefur nú veriö leigð af landstjórninni
til strandferða, á að fara tvær ferðir
kring um land, og leggja á stað í
fyrri ferðina hjeðan 15. þ. m. —
Bisp hefur verið tekinn á leigu áfram
af landsstjórninni til ferða miili ís-
lands og Englands, fór hjeðan austur
um land til Siglufjaröar og fer það-
an út. — 3. þ. m. kom hingað timb-
urskip frá Noregi með farm til þeirra
Jóns Björnssonar & Co. í Borgar-
nesi. — Seglskip kom til Hafnarfjarð-
ar frá Spáni síðastl. sunnudag með salt-
farm til Aug. Flygenring.
Annað Kveldúlfsskipið, sem Ije'.
keypti í Ameríku og landstjórnin leigði
til vöruflutntnga þaðan, kom hingaö í
morgun. Það heitir »0!ivet«, þrí-
mastrað seglskip.
Bannlögin á fsafirði. Á alm.
kjósendafundi, sem þar var nýlega
haldinn til að ræða um bannlögin,
var samþ. svohljóðandi yfirrlýsing og
áskorun með 208 atkv. gegn 117:
»Þrált fyrir afarslælegt eftirlit telur
fundurinn bannlögin hafa gert stór-
gagn þann stutta tíma, sem þau hafa
staðið, og skorar á alþingi að efla
lögreglustjórn og löggæslu landsins
svo, að eftirlit þeirra verði fulltrygt,
og telur fundurinn heppilegasta leið
tii þess lögbundna tollgæslu, — Jafn-
framt er skorað á alþingi að bæla
svo bannlögin, að tilgangi þeirra
verði náð.«
Daginn áður en þessi fundarálykt-
un var samþ., var andbanningafjelag
stofnað á ísafiröi, og gengu í það
rúml. 100 manns.
Dáinn er hjer í bænum kvöldið
30. f. m. Jón Ásmundsson, sem lengi
hefur verið afgreiðslumaður hjá Sam-
ein. gufusk.fjelaginu, gamall og vel
kyntur borgari hjer.
Bannlögin i Ameríku. »Vísir«
segir þessa frjett frá þeim eftir »Sam-
einingunni* frá í mars: »Þann 21.
febr. síðastl. samþ. sambandsþingið f
Washinglon lög, er banna járnbraut-
arljelögum aö flytja áfengi inn f víu-
bannsríki. Einnig er bannað að senda
áfengisauglýsingar inn í vínbannsríki
í blöðum eða brjefum.
Konráð Konráðsson læknir, sem
verið hefur að undanförnu á Eyrar-
bakka, er nú sestur aö hjer í bænum.
Frá Akureyri. Fjölmennur kvenna-
fundur þar, sem haldinn var síðastl.
langard., skoraði á þingmenn kjördæm.
að útvega hjá alþingi í sumar fjár-
veiting til byggingar húsmæöraskóla
húss á Akureyri og til reksturs skól-
ans. — Dýraverndunarfjelag stofnaði
Sig. Einarsson dýralæknir á Akureyri
síðastl. sunnudag.
Stórstúkuþing Góðtemplara hófst
í gær, og er nú haldiö í Hafnarfirði.
Heimspekispróf hafa tekið hjer
við háskólann : Anna Bjarnadóttir og
Árni Sigurðsson með ág. eink, Helgi
Jónsson, Ingim. Jónsson, Lúöv. Nor-
dal, Magn. Guðmundsson og Stanley
Guðmundsson með 1. eink, Pjetur
Magnússon, Sv. Guðmundsson og Þork.
Gíslason mcð 2. eink. — 2 höfðu
áður lokið próíi.
Tjörneskolin. í 11. tölublaði
»Tímans« er þess gelið, að jeg telji
Tjörneskolin á við skotsk kol aö gæðum.
í skýrslu rninni til Stjórnarráðsins
er það tekið fram, að kolin jafnist á
við bestu brúnkol eða Ijeleg steinkol.
Nú má t. d. gera ráð fyrir, að kol
þau, er jeg rannsakaði, hafi verið úr-
vals sýnishorn og þess vegna er óvíst,
hvort kolin yfirleitt reynast eins vel.
Síðar verður rannsakað heildar sýn-
ishorn af kolunum og verður þá frem-
ur sagt með vissu um gæði þeirra
yfirleitt.
Hvernig sem Tjörneskolin kunna
að reynast, þá er víst, að sýnishorn
það, er sent var til rannsóknar, var
talsvert betra en önnur íslensk kol,
sem Rannsóknastofunni hafa borist
hingað ti', og gefur það góðar vonir
um, að T ötneskolin sjeu vel nothæf.
Þetta vildi jeg taka fram til þess
að koma í veg fyrir misskilning.
1. 6. '17.
Gisli Guðmundsson.
Ameríkuvörur. Ka ípmannaráðið
hjer hefur nýlega fengið sfmskeyti frá
New-York, sem segir mjög örðugt að
fá útflutningsleyfi þar á smjörlíki, kokó
málmvörum, gummívörum, og ke-
miskum vörum.
Sjávarútgerðin. Lögr. álti nýlega
tal við merkan sjávarútgerðarmann, og
taldi hann það nauðsynlegt, að olíu
þeirri, sem lands'jórnin hefur fengið
og fær úr þessu, ytði ekki haldið i
hærra veröi en svo, að vjelbítaútgerö-
in gæti borið sig, og ekkert þyrfti úr
henni að draga, hvað svo sem liði
innkaupsveiði á sleinolíunni. Háskaleg-
ast væri, að framleiðslan hindraðist.
Væri henni haldiö uppi, skapaði hún
landsjóðnum tekjur og almenningi
bjargræði og gjaldþol. Honum taldist
svo til, að steinolíutunnan mætti ekki
vera dýrari en 50 — 60, hæst 60 kr.,
ef ekki ætti að draga að mun úr út-
gerðinni.
Getumvið skilið? Reykjavíkurblöö-
in hafa flest á síðara fallinu gert ut-
anríkismál vor að umtalsefni og jafn-
framt endurvakiö skilnaöarhugleiö-
ingarnar. Viröast flestir, er urn málið
hafa ritaö, telja skilnaö vera tiltæki-
legan og æskilegan og færa þau rök
fyrir, aö vjer höfum auögast aö þeirri
reynslu, nú í heimsstyrjöldinni, að
Danir fái oss enga björg veitt en
jafnvel baki oss hættu, ef vjer eig-
um óskift mál með þeim, og einkum,
að vjer sjeum færir aS fara sjálfir
meö málefni vor. En höfundum
þessum hefur yfirsjest þaö, sem ger-
ir skilnaö viö Danmörku óhugsanleg-
an og óframkvæmanlegan. Ef vjer
slítum sambandi viö Danmörku,
mistum vjer hæstarjett sem æösta
dómstól, og þarf því eigi aö lýsa,
hverjar afleiöingar slíkt mundi hafa.
Páll Jónsson.
Vínbannið í Rússlandi. 1 „Hoved-
staden“ frá 25. april er símskeyti
frá Petrograd, sem segir, að bráða-
birgðastjórnin rússneska hafi sett
þessar reglur urn sölu áfengis í Rúss-
landi: Sala á alkóholdrykkjarvörum
með yfir iýý pct. af alkóhol-innihaldi,
er bönnuð í öllu Rússlandi. Útflutn-
ingur til annara landa á allskonar
ávaxtavínum er leyfður, án tillits til
alkóhol-innihaldsins. 1 vínyrkjuhjer-
uðunum er sala á hreinum vínum (na-
turvine), sem þar eru framleidd,
leyfð, ef alkóholið fer ekki yfir 12
pct. Utan vínyrkjuhjera'ðanna er sala
þessara vína að eins leyfð í borgun-
um, en þar er það á valdi bæjar-
stjórna, að banna söluna.
Vilhehn Knudsen,
prókúristi.
Þorvarður Þorvarðsson,
prentsmiðjustjóri.
Jón Helgason,
biskup.
Effgert Olaeessn
yfirrjettarmálaflutningsmaður.
Pósthisstræti 17. Venjulega hsima
kl. 10—11 og 4—5. Talsími 16.
Þórður Bjarnason,
kaupm.
Þórður Sveinsson,
geðveikralæknir.
Tryggvi ÞórhaVsson,
dócent.
Konráð R. Konráðsson
læknir
Þingholtsstræti 21.
Heima kl. 10—12 og 6—7.
Sími 575.
Hið ísl. Bókmentafjelag.
Aðalfund sinn heldur fjelagið mánud. 18. júní 1917 kl. 9 síðdegis í
Iðnaðarmannahúsinu. Verður þar:
1. Skírt frá hag fjelagsins og lagðir fram til úrskurðar og samþiktar
reikningar firir 1916.
2. Kosnir 2 endurskoðunarmenn.
3. Rætt og áliktað um önnur fjelagsmál, sem upp kunna að verða borin.
r
Björn M. Olsen, p. t. formaður.
Or ðsending'.
Allir þeir, sem enn hafa með höndum söfnunarlista frá heimboðsnefnd
Stephans G. Stephanson, eru hjer með vinsamlega beðnir að senda þá
— ásamt því fje, er þeir hafa aflað — til mín með allra fyrstu ferð. —
Kvittanir verða sendar um hæl.
P'. h. nefndarinnar
Pósthólf 324. H. Bergs,
Reykjavík. fjehirðir.