Lögrétta


Lögrétta - 22.01.1919, Side 3

Lögrétta - 22.01.1919, Side 3
LÖGRJETTA II Tvö minni. Sungin á hátíð íslendinga í Khöfn 1. des. 1918. Eftir Gunnar Gunnarsson. I. íslandsminni. J?ú eyjan vor hvíta í æginum blá, sem eldhraunum girðir friða bala, með fossunum björtu og fjöllunum há, nú flýgur klökkur muni heim til dala. Hann elskar jafnt hamar og hafbarinn drang sem heiðar og dala vænan gróður, þvi hjartað ei skiftir um heimilisfang, og höf og lönd ei skilja barn frá móður. pú liggur und snæhjúpi, klökug og köld, og Katla spýr ösku’- og bruna-dauða, en samt er nú hafin þín hamingjuöld. Sjá heillatáknið bláa-hvíta-rauða! Á landi og sjó blaktir fáni þinn frjáls, þitt fullveldistákn, vort heiðursmerki. J?au regin sem gættu vors goðhelga máls, þau gæta hans, ef stöndum trútt að verki. í dag rætist feðranna draumur um Frón! Sá draumur, sem bygði íslands strendur. Ó! Ingólfur, Hjörleifur, Arason, Jón! — sjá óháð þjóð í frjálsu landi stendur! En gleymum ei, vinir, á gleðinnar stund, að góðbróðir rjetti hönd til friðar; og erfum ei skammsýni. Skapbráð var lund og skilningurinn smár á báðar hhðar. 1 sólmóðu hillinga sögunnar öld vjer sjáum, þar frelsishetjur skarta. J>að gildir sem fyrrum að gjalda sín gjöld og ganga fram með djarft og óskelft hjarta. Yjer börn þín, ó ísland, vjer óskum þess heitt, í öllu að hlúa þínum blóma. J?jer, móðir, til handa vjer öll viljum eitt: Um aldir alda frelsi, heill og sóma! II. Jljóðarminni. Gimsteina dýrra þú gættir með sóma, goðhelga málsins og þjóðernis hreins; gott er að vita þitt gengi og blóma, gætir þú fánans og frelsins eins, íslenska þjóð! Gegnum þrautahúm ára þordjörf og eldhert þú varðir þinn rjett; leið varð oft biðin, hin langa og sára, uns lög voru tekin og grið voru sett! Skjöldur og hlíf voru lögin þjer löngum, lögvitra þjóð, svo sem smámagnans æ; strið þitt var háð undir hömrum og dröngum, við hafís og fannkyngi, jarðeld og sæ. Langt er nú síðan með bröndum þú barðist, blámóða geymir nú Sturlungaöld, langt síðan Gunnar við gluggann sinn varðist, grið sett um eilífð, með lögvernd sem skjöld! Klettelsk þú býrð þig á brattstigu fjalla, brekku að kljúfa á framtíðar-leið; ótalda áttu þar hamra og hjalla — hrævörðuð einstigi marka það skeið. — Bræður, við stöndum við brekkunnar rætur, brúnin við sjónarbaug himingnæf ris. Island á hendur og hjarta og fætur — hlífum oss ei, þá er sigurinn vis! Siníðajárn. Simi 103 IV>sth<Slf 577. Sœoskt smiðajárn, sívalt, fer trent og flatt, alla venju- lega giidleika, breiddir og þyktir heti eg fyrirliggjandi, þar a með- al skeifnajárn. Hvergi betri kaup. « Jón £>orláksson. Bankastr. 11. Fisksalan. Eins og kunnugt er, af- söluSu Englendingar sjer kauprjetti á nokkrum hluta af íslenska fiskinum frá síöastl. ári, tóku að eins þaö, sem áskiliö var i enska samningnum aö seljast skyldi meö lægra verðinu. Fiskeigendur kusu þá þriggja marma nefnd, þá Garöar Gíslason stórkaup- mann, Pjetur Ólafsson konsúl og Þor- stein Jónsson kaupm. og útgeröarm., til þess aö ráöstafa sölu á þvi sem eftir var af fiskinum, í samráöi viö útflutningsnefnd. Nú er alt þaö, sem þurt er af þeim fiski, selt Geo. Cop- land kaupmanni á 272 kr. skippundið, og sumir segja aö þaS sje sama sem 280 kr., samanborið viö verð þaö, sem fjekst eftir enska samningnum, því krafist hafi veriS af eigendum þess fiskjar, sem enska stjórnin keypti, aukakostnaður við útflutning, sem þessu nemi. ÞaS er mikið, sem selt er nú af fiski meö þessu verði og hlýtur þaö aö bæta aö stórum mun hag útgerSarmanna á sí'Sastl. ári. Inflúenzan í Danmörk. Stjórnar- ráöiS fjekk í gær símskeyti frá K,- höfn, dags. 20. þ. m., sem segir, aö heilbrigöisstjórnin þar skýri svo frá, aö nú sem stendur sje inflúenzan al- ment í rjenun í Danmörk, en hún hafi ekki fengiö nánar upplýsingar um á- standiö annarstaöar. Stúdentafjelagið. Á fundi þess í gærkveldi sagöi Siguröur Nordal pró- fessor frá stúdentalífi í Dxford á Englandi, og fýsti yfir höfuö þessum gamla og merkilega háskólabæ, en þar haföi hann dvaliö um hríö áður en hann kom heim hingaö síðastl. sum- ar. Erindið var skemtilegt og margt mjög einkennilegt, sem frá var sagt af mentalífinu þarna. — Kosinn var í alþýöufræöslunefnd Stúdentafje- lagsins í viöbót viö hina 4, sem verið liafa í henni, (J. Jak., G. Magn., G Finnb. og Matth. Þórð.), en í stað Gísla Sveinssonar sýslumanns, Árni Pálsson bókavöröur. Leikhúsið. „Ljenharöur fógeti" er enn Ieikinn og vel sóttur. Tekjuskattsskrá Rvíkur fyrir 1918 er nú komin fram, miöuö við tekjui á árinu 1917. Hæstar eru þar tekjurn- ar hjá þessum: G. Copland 300.000 kr., H. P. Duus 100.000, Eimskipa- fjel. Islands 171.000, Garðar Gíslason 250.000, Andr. Guðmundsson 200.000, C. Hobbs 100.000, Thor Jensen 300.000, Ól. Johnsen 150.000, L. E. Kaaber 150.000 og Nathan & Olsen 100.000 kr, Sextugsafmæli átti Jón Magnússon forsætisráðherra 16. þ. m. Mannalát. 10. þ. m. andaðist hjer á beimili sonar síns, Pjeturs kaupm. Thorsteinsson, frú Halla Guömunds- dóttir, og fór jarðarför hennar fram 20. þ. m. — Nýdáinn er og hjer i bænuni á heimili dóttur sinnar og tengdasonar frú Þrúöur Thorarensen, rnóöir frú Halldóru konu Magnúsar P>. Blöndal verslunarstjóra. Jaröar- förin fór fram 18. þ. m. — 10. þ. m: andaðist á heilsuhælinu á Vifilsstöö- um, eftir langvarandi vanheilsu, Egill V. Sandholt gestgjafi. — 13. þ. m. andaðist á sama staö frú Þórunn, dóttir sjera Páls Stephensen í Holti í önundarfiröi, en kona Ólafs Otte- sen leikara. Sálarrannsóknarf jelagið, sem stofn- aö var hjer í vetur, hjelt 2. fund sinn, hinn næsta eftir stofnfundinn, fimtud.kvöldiö 16. þ. m. Einar H. Kvaran flutti þar fyrirlestur um sannanir, en umræöur voru á eftir. Tilkynt var, aö fjelagsmenn væru þegar orðnir 357. Blaða-dauði. Um siöastl. áramót hættu 3 blöö hjer i Rvik aö koma út: „Landið“, „Þjóðólfur" og dag- blaöið „Frjettir“. — Á ísafirði er „Vestri" hættur aö koma út, að minsta kosti í bili, og hefur hann selt prent- smiðju sína hingað til Rvíkur, en kaupandi er Ámi Óla blaðamaður (hjá Morgunbl.) og einhverjir fleiri í fjelagi með honum. Þaö er þó sagt, að „Vestri“ muni koma á flakk aftur, enda væri þaö skaöi, ef hann fjelli niöur, og ólíklegt er aö Vestfirðingar uni því vel. Bæjarstjómin. Á fundi 16. þ. m. ar samþ. að bjóða út veiðirjettinn i lliðaánum næsta sumar bæöi í Eng- >ndi og hjer á landi og skyldu til- oö vera kornin til borgarstjóra fyrir 5- apríl--Samþ. aö selja 117 tonna eifar af dýrtíðarkolum fyrir 160 kr. onniö i 5° kg. skömtum, á 8 kr. 50 u. hvern, en engum einum þó mena n 200 lcg. — Jón Jóhannesson öku- naöur skipaöur fátækrafulltrúi í stað Jóh. Magnússonar heitins. — Brjef konr frá hjeraðslækni og í því skoraö á bæjarstj. að koma upp farsótta- siúkrahúsi handa bænum, þvi án þess mundi tæplega hægt aö fylgja fram fyrirskipunum laga um einangj'Uti smithættra sjúkdóma. I það mál vortt skipaðir í nefnd með borgarstjora Ág. Jósefsson og Þorv. Þorvarðsson. Fjelagsbókbandið er nú selt Þor- leifi Gunnarssyni bókbindara, en það hefur áður verið hlutafjelagseign og var Ingvar Þorsteinsson, sem andað- ist í vetur, forstjóri þess. Kristján konungur X. væntanlegur til íslands. Frá Khöfn er símað x6 þ. m., að búist sje við, aö konungui muni kom til íslands i júlímánuði næsta sumar. Bæjarstjómarkosning í Vesmanna- eyjum. Hún fór þar í fyrsta sinn fram 16. þ. m., þvi Vestmannaeyjar eru nú komnar í tölu kaupstaðanna. 9 menn skyldi kjósa, og komu fram 7 listar. Hæsta atkvæðatölu fjekk listi sá, sem Gísli JohnsCn konsúll var efstur á og næstur honum Páll Bjarnason ritstj „Skeggja". Kom hann aö 4 mönnum. Tveir listar aðrir komn mönnum aö og var ~Jóh. Jósefsson kaupm. efstur á báðum, en auk hans komu þeir aö 2 mönnum hvor um sig. Annar þeirra var verkamannalisti. Fjórir af listun- um komu engum að. Kosnir voru: Jóh. Jósefsson kaupm., Gísli Johnsen konsúll, Páll Bjarnason ritstj., Högni Sigurösson íshússtjóri, Magnús Guö- mundsson bóndi, Halldór Gunnlaugs- son læknir, Jón Hinriksson kaupfje- lagsstjóri, Eiríkur Ögmundsson verk- maöur og Þórarinn Árnason bóndi. Barnaskólinn í Rvík. Hús hans var, eins og kunnugt er, tekið til notkunar handa sjúklingum þegar veikin gekk hjer í vetur, en nú eru fyrir nokkru allir sjúklingarnir komnir burtu það- an. Á skólinn allur að sótthreinsast og málast áöur en kensla byrjar þar aftur, og er búist við, aö það geti ekki orðið fyr í febrúarlok. Nýja lestrarfjelagið, sem svo hefur verið nefnt, og lengi hefur starfað hjer í bænum og keypt mikið af út- lendum bókurn, á að leggjast niður nú um næstu mánaðamót, og verður þá eignum þess ráðstafað. Skólablaðið. Á öðrum stað hjer í blaðinu auglýsir Helgi Hjörvar kenn- ari, að hann sje að vekja „Skólablað- ið“ til lífs aftur og sameinast þá „Vörður“ því. Þessu er vel farið, og sjálfsagt fyrir kennara landsins að reyna að halda uppi málgagni, sem sje sambandsliður milli þeirra, haldi áhugamálum þeirra á lofti og styðji að umbótum á kjörum þeirra. Pjetur Jónsson söngvari. Mrg.bl. segir frá því, að hann syngi i vetur á hirðsöngleikhúsinu í Darmstadt í Þýskalandi og sje ráðinn þar til 3ja ára. Þýsku blöðin beri á hann mik-> iö lof fyrir söng hans, og hann hafi fengið hin vandasömustu hlutverk til meðferðar. — Úr nýkomnu frjefi frá Pjetri segir blaðið, að stjórnarbylt- ingin hafi farið mjög friðsamlega fram í Darmstadt, svo að varla geti heitið, að hann yrði hennar var. Háskólaprófi tfrestað. Samkvæmt umsókn þeirra stúdenta, sem ætla að taka embættispróf i vetur, á að fresta prófinu frá 1. febr. til 1. marts, og stafar þetta af töfum þeim, sem veik- indin hafa valdið. Frk. Guðlaug Arason mun nú hafa starfað lengur við kenslu við Barna- skólann hjer en nokkur annar kenn- ari þar, að skólastjóraum undanskild- um, og hún hefur fengið mikið lof fyrir kenslu sína. Lögr. hefur heyrt, að hún hún sæki nú til bæjarstjórnar um launaviðbót, og virðist ekki nema sanngjarnt og sjálfsagt, að hún fengi hana. Táheyrt slys. „Vísir“ segir þá frjett, að á Læk í Árnessýslu han hrútur rent sjer á höfuð manns, sem stóð hálfboginn í fjárhúskró, og veitt honum svo mikið högg, að haldið sje, að maðurinn bíði bana af. Úr Landi í Rangárvallasýslu er skrifað 7. þ. m.: „ „Nú er ekkert sjer- kgt frjetta. Inflúenzan um garð geng- in eftir að hafa drepið hjá okkur, eða í minu prestakalli, 13 manneskjur, þar n á einum mánuði (nóv.). Fólk aiment farið að ná sjer eftir veik- indin, en margur þó veikur fyrir, og þarf varlega með sig að fara. Síðan fyrir nýár harðindi hjer, 10—15 st. frost og nokkur snjór. Algerlega hag- laust hjá okkur, þar sem gras er sama og ekkert, og askan ofan á og innan um. Farið að tala um talsverðar tann- skemdir í sauðfje af völdum öskunn- ar, og má viö illu búast út af því. Um hey og fóðrun ekkert hægt em. að segja. Gömlu heyin hjá okkur eru aðalhjálpin og svo fóðurbætir. Nýju heyin undur lítil og mikið af þeim bara mosi og sina og rusl.“ Fossaf jelagið „Titan“ hefur nú keypt mikinn hluta af Skildinganess- landi hjer við Skerjafjörðinn. Kauphækkunin. Kauphækkun dag- launamanna nemur nú orðið um 200% miðað við kaup þeirra áöur en ófriðurinn hófst. Þá var tímakaupið 30 aurar, en nú 90. — Kauphækkun prentara nemur 170% og lík mun vera kauphækkun annara iðnaðarmanna. Starfsmönnum Iandsjóðs er skömtuð 60% kauphækkun, þeim sem verst eru launaðir, en sumum ekkert. Og vert er að geta þess, að t. d. póst- þjónarnir munu nú vinna fyrir 40— 45 aura kaup um kl.st. og eru því ekki hálfdrættingar á við daglauna- menn. „Vísir“. Jörundur Brynjólfsson alþm. fei hjeðan úr bænum i vor komandi og byrjar búskap í Múla í Biskupstung- um. Embætti. 9. þ. m. var ólafur Lár- usson lögmaður skipaður prófessor við lagadeild háskólans, frá 1. þ. m. að telja, í stað Jóns sál. Kristjánsson- ar. — Sjera Ásm. Guðmundsson í Stykkishólmi var 11. þ. skipaður skólastjóri á Eiðum frá I. þ. m. að telja. Lögreglustjóraembættið í Siglu- fjarðarkaupstað er auglýst laust. Árs- laun 2000 kr. úr landsjóði og 500 kr. úr bæjarsjóði Siglufj.kaupst. Um- sóknarfrestur til 15. marts. „Botnía“ fór frá Khöfn 19. þ. m. og kemur við í Færeyjum. Hæstu útsvör í Hafnarfirði hafa: Aug. Flygenring 3500 kr., JBirrel & Co. 3000, Einar Þorgilsson 4000,botn- vörpungurinn „Víðir“ 9000, botn- vörpungurinn „Ýmir“ 8000 og Book- les 5000 kr. j 1 ; Farmgjaldslækkunin. í síðasta tbi. var getið um farmgjaldslækkun hjá Eimskipafjel. íslands. Farmgjöldin hækkuðu vegna hækkaðrar stríðsvá- tryggingar þegar Bandaríkin lentu í ófriðnum, og fyrst og fremst var nú þetta aukagjald felt niður, sem nem- ur um 22 kr. á tonn, en síðan hafa farmgjöldin enn verið lækkuð um 15 —25 kr. á tonn, svo að öll lækkunin nemur 37—47 kr. á tonn, eða um 20%. Fjelagið ætlast til þess, að kaupmenn láti þessa farmgjaldslækkun koma fram í lækkuðu vöruverði, svo að hún verði á þann hátt almenningi að notum. Árnessýsla. Þar er nú settur sýslu- maður Magnús Gíslason cand. jur. frá Fáskrúðsfirði, aðstoðarmaður á 3. skrifstofu stjómarráðsins. Guðm. Kamban hefur samið leik- rit, sem „Marmor" heitir, og nýlega er komið út í Khöfn. Það gerist í New York, en þar hefur Kamban dvalið nokkur missiri. Steinsteypuskip, hið fyrsta, sem smíðað hefur verið í Englandi, átti að hlaupa af stokkunum í þessum mán- uði og heitir „Armistic“ (Vopna- hlje). Stríðslokin. Síðustu frjettir. Það er mjög lítið um símskeyta- fregnir frá útlöndum nú. Khafnar- frjett frá 18. þ. m. segir að friðarráð- stefnan hafi byrjað í París þann dag. Þeir Scheidemann ráðherra og Brock- dorff-Rautzau sendiherra sjeu þar fulltrúar Þjóðverja. Fregn, frá 16. þ. n.\ sagði, að Bretar og Bandaríkja- menn vildu láta Bolsjevikastjórnina rússneslcu eiga fulltrúa á fundinum. Khafnarfrjett, frá 16. þ. m. segir, að Liebkneckt hafi verið skotinn í Berlín, dæmdur til dauða af herrjett- ardómi, og að hersveitir stjórnarinnar gangi nú að þvi með oddi og egg, að gereyða Spartacusflokknum. Grænland. Eftir Jón Dúason. IV. í sjónum við strendur Grænlands er mikið fiski, og það er jáfnvel svo rikulegt, að skýrslur vísinda- manna um þetta efni eru á við bestu tröllasögur. En gæði hafsins eru eins og aðrar auðsuppsprettur á Grænlandi litið og illa notuð. Skrælingjar hafa fram til allra síðustu tíma nær ein- göngu lifað á selveiði og dýraveiði, en ekki sint fiskinum. Og hvað þeir geta veitt á skinnfleytunum sínum á seglgarnsdorgir og með boginn nagla fyrir öngul, er ærið lítið í saman- burði við það, sem góðir sjómenn af norrænu kyni gætu veitt með bestu nýtiðskuaðferðum og útbúnaði. Þar í milli er djúp staðfest. Við Græn- land er fiski alt árið. Rink og fleiri hafa gefið yfirlit yfir fiskitegundir og fiskigöngur við Grænland.en besta beimild um fiskveiði þar eru fiski- rannsóknirnar sem gerðar voru 1908 —1909 á hreyfiskipinu „Þjalfa" und- ir forustu Adolf Jensens. Þessar rann- sóknir áttu að eins að ná til þess fiskis sem gæti orðið skrælingjum aC gagni en ekki útlendingum, og þær voru að eins gerðar i 12 ár og að eins um sumartímann. Samkvæmt eðli leiðangursins voru veiðarfærin bæði lögð i tíma og ótíma, bæði á mið og miðleysur. En þetta rýrir ekki þá mynd, sem skýrslurnar gefa af

x

Lögrétta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.