Lögrétta


Lögrétta - 25.06.1919, Síða 3

Lögrétta - 25.06.1919, Síða 3
LÖGRJETTA 3 Um skipulag sveitabæja. Eftir Guðmund Hannesson. I. íbúðarhúsið. (Framh.) ÞaS væri sennilega hentugt, að geta geymt ull, ullarlára og önnur áhöld undir bekknum eða í honum, er menn leggja þau frá sjer.* Einfaldast er þaö auövitaö, aö skjóta aö eins slikum hlutum undir bekkinn, þegar staöiö er upp frá vinnu. Þaö er auövelt, aö halda gólfinu hreinu fyrir því. En ef þetta þætti miður fara, má smíöa bekkinn sem langan kassa, og skifta lokinu eöa setunni í jafnmarga parta á hjörutn og sæti eru. Væri þá auðgert, aö lyfta hverri setu upp og leggja ull sína og áhöld niður í kassann eða hólfiö undir sætinu. Framhliö á slíkum bekk mætti prýöa á ýmsan veg, bæði meö útskurði og málningu. En eftirlit þyrftu slíkir lokaðir bekkir, ef ekki eiga þeir aö veröa aö óþrifalegum ruslaskrínum. Nú er sá vani rótgróinn í sveitum vorum, að sitja viö vinnu sína á rúm- unum og sofa þar í hlýindunum á nóttum. Sjerstaklega mun vinnukonum þykja þaö hart aðgöngu, aö flytja á kvöldin úr hlýrri baðstofunni upp í svefnherbergi á lofti, sem vel getur veriö töluvert frost í. Ekki er þetta að neinu leyti athugavert fyrir heilbrigða, ef sængurföt eru hlý, jafnvel öllu hollara, en þeirn, sem ekki fella sig viö það, stendur þá til boða, aö setja tvö rúm í staö bekkjanna sitt hvoru megin prjónaborösins. Veröur þá að ætla piltum stóla til að sitja á. Bæö,i rúmin ættu þá að vera eins og af einfaldri en smekklegri gerð, annað hvort mjó rúm fyrir einn mann eða til þess að skjóta saman, svo aö breiddin verði eigi meiri en á legu- bekk. Þó er þaö mesti ósiður, að láta 2 sofa saman í rúmi, og ætti að leggjast sem fyrst niður. Yfirleitt er það ógeöslegt að sofa hjá öðrum, ef til vill óþrifalegum manni, en auk þess hættulegt. Lús, kláöi, berkla- veiki og yfirleitt allir næmir kvillar, breiðast afar-auðveldlega út með þessu háttalagi. í öllum nýjum húsum ætti því að miöa alt viö að einn maður svæfi í hverju rúmi. í suðausturhorni stofunnar er legubekkur, sem ætlaður er hús- bóndanum og konu hans. Hentugast er að nota ekki fjaðrir í setuna, því fjaðrasetur endast illa, ef þær eru mikið notaöar, og erfitt að gera við þær, auk þess er afartorvelt, að halda þeim hreinum. Miklu betra væri að þekja bekkinn meö góðri hrosshársdýnu,** sem mætti taka af og berja úti. í slíkar dýnur er notað h r o k k i ð hrosshár. (Taglhár er spunniö, vafið á kefli, soðið og táið aftur sundur). Þær eru mjúkar og endast vel. Slíkur legubekkur getur litið vel út, ef hann er rjett smíðaður. Yfir íegu- bekknum má koma fyrir stórum bókaskáp, ef baöstofan þykir hent- Ugur geymslustaður fyrir bækur, en það fer mjög eftir heimilisfólkinu. Framan legubekkjarins er b o r ð með nokkrum stólum, rjett við glugg- ann á suðurgafli Það er vinnuborð húsmóðurinnar, og er ætlast til, að einn af stólunum sje úr góöu efni gerður (t. d. mahogni), og að öllu hinn prýðilegasti. Þar er sæti konunnar. Undir borðinu, helst á hyllu, sem til þess er gerð, er saumavjelin. Læstar skúffur fylgja með borðinu, og skáp má setja undir það öðru hvoru megin, ef svo vill, fyrir saumadót kon- unnar og annað smávegis. Viö austurvegg vinnustofunnar -er markað fyrir vænum m ó o f n i. Hann er helst til nærri dyrum á þessum staö, en þó ekki svo, að ófært þyki, ef hurðir ganga út í stigagöng og inn í hjónahús.-Á þessum staö nýtur vel hita frá honum, ekki sist þar sem hjónin hafast við. Annars er ágætt pláss fyrir hann i horninu við reykháfinn á noi'ðurvegg stof- unnar. Á uppdrættinum er þar rnarkaö fyrir h 1 j ó ö f æ r i (harmonium eða fortepiano), því ekki er það ólíklegt, aö hljóðfæri verði á flestum bæjum, þegar fram í sækir, og komi að nokkru leyti í stað rímnakveð- skaparins. Ef nauðsyn þykir að setja upp vefstól i vinnustofuttni, veröUr ekki hjá því komist, að flytja burtu karlabekkina eða hljóðfærið, ef vefstóll- inn er ekki stærri en svo, að það nægi. Veggi vinnustofunnar má að vísu gera einfaldlega úr garði (sljetta, málaða og stofuhornin ef til vill hvelfd), en vel færi á því, ef efni leyfa, að gera þá sem snotrasta, því vinnustofan veröur hvort sem er miðbik heimilisins, ef ráð er gert fyrir því, aö hjú og húsbændur lifi þar og starfi mestan hluta dagsins. Það væri þannig hentugt, að veggir neðan til væru þiljaðir innan meö laglegu þiii úr kvistalítilli, ómálaöri, olíu- borinni furu. Á slíkum veggjum sjer lítið, þeir þurfa lxtið yiðhald og þola ágætlega ærsl og ólæti barna, en aftur hætt við, að múrveggir skemnxist íljótlega, og er þá ekki auðvelt aö gera vel viö þá. Ofan þilsins má annað- hvort kalklita veggina*** eða rnála með einföldum lit, sem myndi haldast vel ofan til, þar sem ekkei't kemur við múrinn. Skrautlegt gæti það verið, ef málarinn er þvi vaxinn, að mála áklæðis-uppdrátt á veggina, og gætu þeir þá litð út eins og þeir væru tjaldaðir áklæöum. Sjálfur grunnurimx gæti eigi að síður verið ljósleitur, svo stofan yrði síöur skuggaleg. En hversu sem þessu yrði kornið fyrir, þá er það mikils vert, aö stofan geti bæöi orðið hentug að öllu, og sem prýöilegust, að svo miklu leyti sem það ekki kexrtur í bága við afnotin og auðvelt sje aö halda öllu hreinu. Hrein- ieg og einföld, en smekkleg á hún að vera. Að öllum jafnaöi mun það best og hentugast, að gesturn sje boðið inn í baðstofuna. Þar á ætíð að vera hlýtt og notalegt á vetrum, en mestan hluta árs eru sjerstakar gestastofur kaldar og illur verustaður -fyrir kalda og blauta ferðamenn. Þeir geta þá setið við vinnuborö húsmóöurinnar hjá húsbændunum. Þá er og annar kostur, ef bóndinn vill eitthvað tala við þá, sem allir mega ekki heyra, að bjóða þeim inn í herbergi hjónanna, innar af vinnustofunni, eins og hefur verið alsiöa. En þessi tvö herbergi eru vönduð og vel um gengin, er lítil þörf á sjerstakri gestastofu, nema bærinn liggi í þjóðbraut, en hjer er ekki ráð fyrir því gert. Það mun ein- mitt hafa átt rnikinn þátt í kappi manna, að byggja sjerstakar gestastofur. að daglegu íbúðarherbergin voru svo lítilfjörleg, að menn kynokuðu sjer við, að bjóða gestum þangað. Þessi ástæða hverfur óðar en þessi her- bergi eru orðin fegursti og vistlegasti staðúrinn á öllu heimilinu, eins og þau eiga að vera. Húsbóndinn á að nxeta meira daglegt líf konu sinnar og barna og annara heimilismanna en aðvífandi gesti og umrenninga, þó full gestrisni sje sýnd. Ekki verður hjá því komist, að leggja daglega í ofninn í baðstofunni á vetrum. Hvernig sem viðrar á hún að vera heit, og ánægjulegt að koma inn í hana. Það skiftir því miklu, að ofninn sje ágætur. Venjulegir kola- ofnar henta ekki. Eldhólfiö er langt of lítið, og öskutrogið. Fyrix»þá, sem brenna mó, er sjálfsagt að kaupa vænan og vandaðan móofn, sem geti hitað alt að 100 teningstikur. í slíkum ofnum rná og venjulega sjóða vatn 0. fl., og spara þannig nokkui't eldsneyti. 5. Hjónahúsið liggur innar af baðstofu (vestan hennar). Stærðin er txm 3.5 X 4 st- Hjónarúmið er sett í suðvesturhornið, baðstofumegin, og sjest þá ekki, þó dyrnar sjeu opnar. Hjá rúminu er nxarkað fyrir litlu borði, undir suðurglugganum, sem nota má fyrir þvottaborð, ef ekki er * Frú Steinunn Frimannsdottir á Akureyri, kona Stefáns skólameistara, vakti at- hygli mína á þessu. ** Hrosshár í dýnur er unnið á sjerstakan hátt svo að það verði hrokkið, og verða þá dýnurnar mjúkar og ’stseltar. *** Þó má vekja athygli á því, aS kalklitaSa veggi er ilt aS mála síSar, því olíulitur vill illa tolla a kalkinu. Þa er ckki auSiS að þvo þa, en í staS þess er þunnum kalklit strokiS árlega á þá. um annaö aö gera. Undir austurglugga er annað borð nokkru stærra, og nokkrir stólar, sem nota má handa gestxxm, ef þeim er boðið inn í hjóna- húsið. Við norðurhliö er vænn fataskápur og litill bekkur eða sæti við ' enda hans rjett hjá ofninum í norövesturhoniinu. Ofan á fataskápinn ’ mætti ef til vill setja skáp fyrir hreint lín o. þvíl., og næöi hann þá upp undir loft. Ef unglingur er látinn sofa í herberginu, yrði að þoka bús- munurn svo til, aö rúm hans gæti staðið i suðausturhorni herbergisins. Öll innangerö hjónahússins og húsbúnaður verður að nokkru að miðast við þaö, að sofið er í herberginu. Hún þarf því að vera einföld og hrein- ’eg, getur verið snlekkleg fyrir því. Að þessu leyti eru sljettir, málaðir múrar bestir, en hvaö börnin sneidir, er æskilegt, aö veggir sjeu þiljað- ir neöan til. Getur hjer veriö um ýmsar tilbreytingar að ræða, sem ekki verður lýst hjer, bæöi á litum veggja o. fl. (Frh.) Hringhendur. Sumri hrósa hlíöin fer, hjal við rósir lætur dreyma ósa, ey, og sker, um þær ljósu nætur. Útsjón víð af heiðahnjúk heillar; íðilgrænum vellir skrýöast ■ vorsins dúk. Við skulum ríða’ úr bænurn. Fótur þyngist, þreyfxst sál; þarf að yngja bæði. Við skulum klingja’ og veifa skál, vaka’ og syngja kvæði. Varpa’ af rómi vanans klóm, vorsins hljóma finna: lækja óm við engja blóm. Engra dómum sinna. Fjalla skart og vega val vermir hjartarætur. Yndi nxart í eyðidal eiga bjartar nætur. Röðull víði risinn frá roðar hlíð og leitin. Marga prýði mæta á morgunfríða sveitin. Himinglossar glita svið. Gljúfi-afoss sjer rólar. Tíbrá hossar völlum við varxna kossa sólar. Þ. G. Höfundafundur. Af því að það snertir nokkuð ís- iand, vil jeg í fáum orðum leyfa mjer aö skýra frá höfundafundi, er haldinn var hjer um daginn í Khöfn. í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörk eru regluleg höfundafjelög; markmið þeirra er aöallega aö gæta íjárhagslegra kjara rithöfunda (helst skálda og skáldsagnaritara), bæði xnn á við og út á við. Og komu nú íulltrúar saman hjer, til aö ræða öll þau mál, er hjer að lúta. Því miður er ekkert slíkt höfundafjelag til á íslandi, og standa íslendingar sjer og fyrir utan „hinn mentaða heim“, að þessu leyti. Því var þaö tekið til bragðs, að bjóða þeim 2 íslensku bók- mentafjelögum, Hinu ísl. bókmenta- fjelagi og Fræðafjelaginu, að senda fulltrúa á fundinn, Bókmentafjelagxo fal próf. Þorvaldi Thoroddsen að nxæta fyrir sína hönd. Fræöafjelagið nxjer. Auövitað gátum við ekki haft nein áhrif, og framkoma okkar var fi-emur til málamynda í þetta sinn. Þó lögðum við lítið eitt til mála, þar sem okkur þótti helst 'þurfa, En þetta má eigi svo búið standa, Það er sjálf- sagður hlutur, að íslendingar verða framvegis að taka þátt í þeirri sam- vinnu, sem nú er hafin með öðrum norrænum frændþjóðum, og koma þar frarn jafnfætis þeim. Það verður að stofna höfundafjelag á íslandi, og það sem fyrst. Að 2 árurn liðnum á aftur að halda norrænan fund, og þá verða íslenskir höfundar og skáld að hafa sína eigin fulltrúa þar — og þar nteð segjast í bandalag tneð bræðraþjóðunum, eins í þessu sem öðru. Eins og ætíð gerist, var á þessum íundi, sem stóð í 5 daga, mikið um gleðisamkomur og samsæti af ýmsu lægi. En hvern morgun og fram yfir hádegi, voru rædd á fundum þau mál, sem hugkvæmst hafði að ræða. Aðal- umræðuefnin voru: stofnun bóka- safna santnorræna í öllum höfuðborg- unum samningamál (utn samninga milli höfunda og útgefenda) — skatt- ur af skáldritum i hvert sinn sem þau eru lánuð á bókasöfnum (5 aura skattur), sent höfundur njóti góðs af — þýðingar frá einu máli á annað — endurskoðun norrænna laga um’höf- undarrjettindi — sameiginleg mála- meöferð andspænis útlöndum. Þetta voru umræöuefnin helstu, og fóru umræöur vel fram og skipulega, en ekki verður nánar skýrt frá þeim hjer. Hjer er um stórmerkilegt mál að ræða. Vonandi er, að íslenskir höf- undar sjái snúð sinn í því, að mynda íjelag til að gæta hagsmuna sinna og starfa í fjelagi með sínum and- legu bræðrum á Norðurlöndum. 1 Vilji menn leita sjer nánari upp- lýsinga, geta menn snúið sjer til „Dansk Forfatterforening“ (Lille Kongensgade 1). 6. júní 1919. Finnur Jónsson. Þríblöðungurinn. Skjóttu geiri þín.um þangað, sem þöjfin meiri fyrir er. Sr. Sigurður Stefánsson hefur ritað nýlega grein eina um þriblöðung þennan: „andatrúna“, guöspekina og þjóökirkjuna. En það er sá „galli á gjöf Njarðarþ, að hann hefur birt hana í blaði innra trúboðsins, svo að þaö má gera ráð fyrir, að hún komi tiltöhdega fáum af hinurn „villuráf- andi sauðum“ fyrir sjónir. Þeirn mun hún þó ætluð ekki síöur en öðrum, ef veröa mætti að hún fengi snúið ein- hverjum þeirra heim i hið grösuga haglendi kirkjutrúarinnar, þar sem hirðarnir hafa týnt þeim. Höfundur greinarinnar sýnist ekki gera mikið úr árangri þeim, er spirit- istar og margir vísindamenn, álíta, að hlotist hafi af rannsóknum hinna dul- rænu fyrirbrigða. Þó hefur árangur- inn oröið aö minsta kosti til þess að sannfæra margar þúsundir manna um, að þungamiðján í kenningum trú- arbragðanna, ódauðleikatrúin, sje ekki að eins hverful hylling og hug- arburöur. Hún hefur nú fengið á sig meiri veruleikablæ í augum fylgis- manna hinna nýju stefna en alment gerðist, síðan fyrst aö trúnni tók að bnigna. Þessi ýmugustur og ónotaskapur kirkjusinna í garð spiritista, er í raun og veru hálfbroslegur. Því þegar a'ð er gáð, ættu engir að vera spiritistum og þeirn vísindamönnum, sem hafa lagt mikið kapp á að rannsaka hin dulrænu fyrirbrigði, eins þakklátir og kirkjusinnar, úr því aö árangurinn af rannsóknunum hefur orðið til þess að glæða trúna á annað líf, sem var tekin mjög að kulna, innan sjálfrar kirkj- unnar. Afleiðingin hefur orðið sú, að nvt standa klerkar og kennimenn margfalt betur að vígi í baráttunni við vantrúna, en þeir hafa staðið, síð- an á dögum frumkristninnar — el þeim er annars nokkurt áhugamál að berjast gegn vantú og deyfð' vorra tíma. Það hefur sannast á kirkjunni, að þegar neyöin var stærst, var hjálp- in næst, hinar nýju stefnuf hafa kom- ið henni til styrktar, - og mundu styrkja hana enn betur, ef hún þekti sinn vitjunartíma. Það gæti verið gott og nytsamt íyrir hina einlægu vini afturhalds- stefnunnar á trúmálasviðinu, að gera sjer sem ljósasta grein fyrir því, hvernig aðstaða þeirra mundi vera orðin, ef árangurinn af rannsóKnum dulrænna fyrirbrigða heföi orðið sá, að fækka að mun líkunum fyrir því að mennirnir ættu líf í vændum eftir dauðann. En nú hefur árangurinn oröið til þess að sannfæra mörg þús- und manna um lífið eftir dauðann og fjölga líkunum fyrir því í augum ejm þá fleiri. Það ætti því ekki að vera til of mikils mælst, að biðja þá sent vilja vera þjónar Krists og sannleik- ans, að reyna að kynna sjer dálítið árangurinn af hinni spiritistisku hreyfingu, áður en þeir kveða upp yfir henni áfellisdóminn. Að öðrum kosti geta þeir átt á hættu að syndga gegn anda sannleikans. Munum jafn- an, að huggun sú, sem spiritisminn hefur veitt mörgum þeim syrgjandi mönnum og konum nú á þessum al- vörutímum, veröur þung á metunum, þar sem kirkjan hefur oröið oft frá að hverfa — ekki getað veitt þeim nokkra hjálp nje huggun. Eitt af því helsta, sem sr. S. St. finnur spiritismanum til foráttu, er það, að sumir framliðnir menn eða „andar“ hafa ekki reynst sem sann- orðastir. Það getur þó verið nokkuð hæpið, að kveða upp þungan áfellis- dóm yfir spiritismanum fyrir þetta. Allir gætnir spiritistar hafa komist að ráun um, og kannast líka við það, að andarnir geta verið allmisjafnir, endá er við þvt að búast, þar sem mennirnir eru ærið misjafnir á meðan þeir dvelja hjerna megin grafarinnar. Þess vegna hvetja líka allir sannleiks- ieitandi spiritistar þjóna kirkjunnar aö fara nákvæmlega eftir orðum post- ulans, þar sem hann segir: „T r ú i ð ekki sjerhverjum anda, neldur reyn- i ð andana.“ En það er nú meinið, að nútíðar starfsbræður postulans fást helst til fáir til þess að r e y n a andana, — skella sumir hverjir alveg skolleyrunum við þessari áminning ritningarinnar, jafnvel þótt nú sje margfalt meiri ástæðla til þess að fara bókstaflega eftir henni, en nokkru sinni áður í sögu kirkjunnar. Annars sýnist sr. S. St. rita af minni þekkingu og sanngirni um spir- itismann en vænta mætti, en auðvitað eiga hjerlendir spiritistar nokkfa sök á því, þar sem þeir hafa ekki gefið út nema fá rit og smá, um árangur- inn, sem hlotist hefur af rannsóknum hinna dulrænu fyrirbrigða. Grein sr. S. St., ætti því að verða þeim hvöt til þess að reyna að fullnægja enn þá betur hinum spiritistisku þörtum, bæði fylgismanna sinna og andstæð- tnga.* Þá víkttr og sr. S. St. nokkuð að kenningum Guðspekinnar, og sýnist fara sumstaðar gálauslega langt í fullyrðingum sínum. Auðvitað verður að viröa honum eins og fleirum and- stæðingum þessarar stefnu þetta til vorkunnar, sökum þess, að hintr ts- lensku guðspekisnemendur hafa ekki gætað þýtt, nema örlítið brot af hinu yfirgripsntikla fræðikerfi Guðspek- innar, sem mönnum gefst kostur á að kynuast á erlendum tungum, og aðallega á ensku. Og það er ekki við því að búast, að andstæðingar guð- spekishreyfingarinnar vilji kosta svo miklu til, að kaupa hin miklu og dýru rit hinna helstu brautryðjenda Guð- spekinnar, og lenda því oit á ljeleg- um heimildum. Afleiðingin veröur sú, að þegar þeir fara að rita um Guð- spekina, fær sannleikurinn miklu verri meöferð, en hann á 'skilið. Það sem-er einna lakast í grein sr. Siguröar, og varla samboðiö presti rtje kistilegu blaði að birta, eru um- mæli hans um stofnanda Guðspekis- fjelagsins, mad. H. P. Blavatsky. Það er annars næsta furðulegt, hve lágt sumir kennimenn hjer geta lagst, þar sem þeir víla ekki fyrir sjer að hampa marghröktum og rakalausum ósann- indum um einstaka menn, að eins í jtví skyni, að reyna að stemma stigu fyrir guðspekishreyfingunni hjer á landi. Slíkt hlýtur þeim þó sjálfum að þykja neyðarúrræði, og gerðu það ekki, nema þeir fyndu að alt er um þrotið,-bæði til sókjtar og varnar. Nú i þetta sinn viljum vjer ekki eltast við þessi margendurteknu óhróðurs- ummæli kennimannanna, heldur leyfa oss að benda þeim á rit, sem gera ljósa grein fyrir, hvernig þau eru til orðin. En þau rit eru: „H. P. Bla- vatsky, by Annie Besant, a complete Ðefence of H. P. B.“, og sömuleiðis „Denkwúrdigen Erinneringen, von Dr. Franz Hartmann“. Ef þessir há- væru andstæðingar Guðspekinnar vildu hafá fyrir því, að kynna sjer þessar bækur, niundu þeir vita nnin betur deili á þessum lúalega tilbún- ingi, sem, þeir eru að halda 1 lofti, jafnframt sem þeir mundu spara oss það, að gera einhverntíma þýðingar- * Spiritistar munu hafa í hyggju að bæta eins fljótt og unt er úr bóka- skorti um þessi efni. Og nú innan skamms kemur út all-eiguleg spiritisk bók, eftir enskan prest, Tweedale að nafni, 0g er þar gefið ljóst yfirlit yfir árangurinn af rannsóknum á hinurn dulrænu fyrirbrigðum. Bók þessi heitir: „Út yfir gröf og dauða“. Höf.

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.