Lögrétta - 01.01.1923, Page 4
LÖGRJETTA
6
Lndwig G. Magnússon
Umboðs & heildsali.
Símnefni: MERKÚRÍÚS Pósthólf: 541 Talsími: 892.
Skrifstofa og sýnishornasafn Engóifssír. 4,
Reykjavik.
Útvegar kaupmönnum og kaupfjelögum um land alt alls
konar vörur frá stærstu og bestu sjerverksmiðjum og versl-
unarhúsum á Norðurlöndum, pýskalandi, Sviss, Hollandi, Belgíu,
Stóra-Bretlandi og Ameríka.
Sjerstök áhersla lögð á að útvega vörurnar beint frá
framleiðendum.
Fyrirliggjandi vörubirgðir hjer á staðnum:
Skófatnaður, karla og kvenna. Jámvörur: Hengilásar,
Hamrar, Sagir, Hespur, Hnífar, Salt- og Kolaskóflur, pjalir,
og fleira. Vefnaðarvöiur: Alpacca, Plyds, Flauel, Flónel,
Ermafóður, Millifóðurstrígi, Fataefni, Súkkulaði, Sælgæti.
Niðursuðuvörur.
J
m
a
Hvaða sápu á jeg að nota?
Fedora-sápan hefir til að bera alía pá
eiginleika, sem eiga að einkenna fyllilega
milda og góða handsápu, og hin mýkjandi
og sótthreinsandi álirif hennar hafa sann
ast að vera óbrigðult fegurðarmeðal fyrir
húðina, og varnar lýtum, eins og biettum,
hrukkum og roða í húðinni. í stað þessa
verður húðin við notkun Fedora-sápunnar
hvít og mjúk, hin óþægilega tilfinning þess,
að húðin skrælni, sem stundum kemur við
notkun annara sáputegunda, kemur alls ekki
fram við notkun þessarar sápu.
Aðalumboðsmenn:
R. KJARTANSSON & Co.
Reykjavík Sími 1004.
VIKSNG skiivinðan
mælir mcð sjer
sjálf,
segja allir sem þekkja
hana. — Fyrirllggjandi
tvær stærðir:
A skilur 66 litra á kl.st.
B skilur 120 lítra'áklst.
Fæst hjá hr. kaupm. Jóh-
ögm. Oddssyni, Lauga.
veg 63, Reykja vík og hjá
undirrituðum, sem hefir
aðalumbo' á Islandi og
fyrir Víking
Færeyjum
8kilvinduna
Sigurgeir Ebarsson, Reykjavik.
4
skilnings á íslensku þjóðlífi og þjóð-
arhögum.
Allir þeir íslendingar, sem álíta,
aS aukin samóð með íslendingum
og Dönum, sje báðum fyrir bestu,
og gleðjast yfir þeim framförum á
þessu sviði, sem sýnilegar eru hin
síðari árin, munu samhuga vilja tjá
frú Astrid Stampe-Feddersen alúð-
arþakkir fyrir hugarþel hennar til
þjóðar vorrar og áhuga á framfara-
málum vorúm, og hamingjusamra
ólifðra æfidaga. er hún nú hefir stig-
iM inn yfir sjötugsáraaldurs-þrösk-
uldinn.
Oruð blessi góða konu.
Dr. J. H.
---ft ■
Erí simfregnir
Khöfn 22. des.
Umbætur Fascista.
Síniað er frá Róm, að Musso-
lini hafi byrjað á að koma í fram-
kvæmd ýmsum stefnumálum Fas-
cista. Samgöngumálaráðherrann
hefir komið fram með ýmsar
spamaðartillögur, þar á meðal
að sagt verði upp starfa um 60
þús. sýslunarmönnum.
ítalir hafa framvegis tvens-
konar herlið, hinar venjulegu
hersveitir og Fascista-hervörðinu,
sem er 70,000 manns.
Óvíst um lán handa pjóðverjum.
Símað er frá New York, að
Piennont Morgan hafi lýst yfir
því, að hann vilji ekki veita
Þjóðverjum lán fyr en ráðið hafi
verið að fullu fram úr skaða-
bótamáliínu.
Að því er segir í fregnum frá
París hefir Poincaré forsætisráð-
herra sagt við ameríska blaða-
monn, að Frakkar munj ekki til-
leiðanlegir til að leggja neitt í
sölurnar til þess að hjálpa Þjóð-
verjum, og að þe'r muni eigi gefa
upp neitt af rjettindum þeim, er
þeim eru áskilin með finðarsamn-
ingunum í Versailles.
Frá Berlín er símað, að gengi
marksins hafi fallið stórkostlega
aftur, þegar frjett:st um framan-
greind ummæli Morgans um skil-
yrði fyrir lánveitingunni, og yfir-
lýsing Poincaré.
Eystrasalt lokað haf?
(Stórblaðið „Times“ í London
fullyrðir, að bolsjevikkar liafi í
'hyggju að efna til ráðstefnu og
eigi verkefui hennar að vera það,
að koma því í framkvæmd, að
Fystrasalt verðj framvegis lokað
fyrir herskipum annara þjóða.
Verðlaun Nansens tvöfölduð.
Símað er frá Kristjaníu, að
danskur forleggjari, Erichsen að
nafni, hafi lat fram fjárupphæð
jafn háa friðarverðlunum Nohels
og eigi hún að ganga til Nan-
sen ásamt friðárverðlaununum. —
Fa*r Nansen því helmingi liærri
upphæð en venja er til.
Nýr forseti í Póllandí
Frá Varsjá er símað, að þjóð-
þing;ð haf kjörið sendiherra Pól-
verja í I/ondon, Vojeieskowitch( 1)
tii ríkisforseta.
Khöfn 23. des.
Oéirðir í Englandi.
Símað er frá London, að smá-
vegis óeirðir haldi áfram víða í
Englandi. (Mumi óeirðir þessar
vera af hálfu atvinnuiausra
manna í þeim tilgangi að knýja
þingið til þess, að ráða bót á
atvinnuleýsinu).
Amerikumenn og skaðabœturnar.
Símað er frá New York, að
stjórn Bandaríkjanna hafi lagt
það til við Frakka og Breta, að
skipuð væri nefnd amerískra
kaupsýslumanna til þess að ákvcða
skaðabótaupphæð þá er Þjóðverjar
skuli gre'ða bandamönnum. Er
stungið upp á, að Herbert Hoover
verði formaður nefndar þessarar
Fjárlög pjóðverja.
Símað er frá Berlín, að frum-
v arp til íjárlaga ríkisins fyrir
árið 1923 haf' verið lagt fyrir
rikissjóð í gær. Tekjahallinn er
áætlaður meira en biljón mörk,
þrátt fyrir allar sparnaðartilraunir
t d. þá, að 25,000 starfsmönnum
við járnbrautirnar hefir verið sagt
upp v'nnn.
Khöfn 27. des.
Trúmálaþing í Lundi.
Símað er frá Stokkhólmi, að
guðfræðideild háskólans í Lund':
hafi byrjað undirbúning til að
halda vísindalegt trúmálaþing á
næsta ári, í sambandi við 300
ára afmæli dómkirkjunnar í Lundú
í fótspor Grikkja.
Símað er frá Sofia, að bænda-
foringinn Stambulinsky, forsætis-
ráðherra Búlgara, hafi fyrirskip-
að rannsókn á hendur 12 ráð-
herrum, og er búist við að þeir
verði dæmdir til dauða.
Dagbók.
21. des.
Dánarfregn. í gær ljetst á heimili
sínu hjer í bæ, frú Hólmfríður
Björnsdóttir Rósenkranz, kona 01-
afs Rósenkranz.
Jarðarför Helga Helgasonar tón-
skálds fór fram í gær. Húskveðju
og líkræðu flutti .Tóhann porkelsson
dómkirkjuprestur. Menn úr lúðra-
sveitinni báru líkið úr kirkju.
Jarðarför frú Kristbjargar Ein-
arsdóttur fór fram í gær að við-
stöddu fjölmenni. Sjera Tryggvi pór-
hallsson flutti húskveðju en sjera
Bjarni Jónsson ræðu í kirkjunni.
23. des.
Jarðarför Hannesar Hafstein fór
fram í gær og var afarf jölmenn,
svo að fjöldi fólks komst ekki inn
í kirkjuna. Sjera Jóhaun porkelsson
hjelt ræðu á heimili hins látna, en
í kirkjunni dr. Jón Helgason biskup.
Á undan ræðu hans var sunginn
sálraurinn: ,Á hendur fel þú honum',
o>. á eftir kveðjuljóð eftir p. ö.
Ur húsinu var kistan borin af tengda-
scnum hins látna og ýmsum nánum
vinum hans, en. inn í kirkjuna og
V úr henni af landsstjórninni, ýms-
um starfsmönnum landsins og alþing-
mönnum, en upp í kirkjugarðinn
aB bókmentamönnum og öðr-
um borgurum. — Útförin fór mjög
hátíðlega fram.
24. des.
Strandið á Reykjarfirði. í fyrri-
nótt kom öeir að norðan frá Revkj-
arfirði. Reyndist för hans þangað
árangurslaus, hafði ,,Fillefjeld“ verið
svo mikið brofið, að óhugsandi vnr
að ná því út. Skipshöfnin kom
á „öeir“ á norðan
Dánarfregn. Bogi pórðarson 6
I/ágafelli og konaj hans hafa orðið
fyrir þeirri sorg að missa son sinn
I/árus nú mjög nýlega. Ilann var
lf ára gamall.
28. des.
Dánarfregn. A jóladaginn andaðist
Ólaf'ur Jónsson bóndi á Bakka í Leir-
ársveit. Hafði hami legiö rúmfastur
nndanfarna mánuöi. Ólafur heitinn vcr
strmdarmaður í Lvívetna og vinsæll
jii.I -g ouðal sveitunga sinna.
Togaraárekstur. A aðfangadagsmorg
un rákust tveii' togarar á, Otur og
Maí, vestur á ÖnundarfirSi. Lá Maí
fyrir akkeruni en Otur var á leið út
fjörðinn og lenti hann á Maí fram-
anverðum og braut þar gat á, en
r.iölvaði sjálfan sig á stefninu, svo
sjór fjell inn. Komust þó báðir tog-
ararnir hingað. En próf hófust í mál-
ir.u í gær. Yoru 4 vitni leidd af hvorri
skipshöfn. Báru þeir það fram af
Otri, að þeir hefðu ekkert ljós sjeð
á Maí. En skipshöfnin af Maí bar
það fram, að tilskipað ljós hefði
lcgað. Róru þrír af hvoru skipi fyrir
framburðinn, og lítur því út fyrir að
báðir sjeu úr sökinni. Ber því vá-
tryggingarfjelagið kostnað allan.
29. des.
Slysfarir. pað slys vildi til í Yest-
mannaeyjum fvrir stuttu, að Ágúst
öíslason útvegsmaður fjell út a£
bryggju niður í grjót og beið bana af.
♦
Hann var maður á fimtugs aldri.
Otur og Maí, sem urðu hvor öðrum
of nærgöngulir fyrir skömmu, eru báð-
ii’ farnir hjeðan. „Hamar“ gerði ein-
hverja bráðabirgðar-viðgerð á Maí, svo
hann komst út á veiðar, og mun verða
gert við hann í Englandi í næstu ferð
hans þangað. En Otur fór í gærmorgun
beina leið þangað til viðgerðar.
ísfisksalan. Afla sinn hafa selt ný-
lega í Englandi þessir togarar: Yín-
land fyrir 1100 stpd., Skallagrímur
fyrir tæp 1400, Jón Forseti fyrir tæp
800, Apríl fyrir tæp 1400 og Egill
Sk-allagrímsson fyrir tæp 1302 stpd.
--------o--------
5öqh dq sannindi
Það er óneitanlega um margt
rætt og ritað nú á tímum, sem
not er að og nauðsynlegt. En þó
er það ermþá margt, sem þjóð
vorri væri me:ri þörf á að þekkja
og þekkja betur heldur en sumt
af því, sem þar er sagt. Það hef-
ii altaf verið svo, og vonandi að
verðí, að guð hefir gefið hverju
landi þá menn, sem útbúnir hafa
\erið mannviti, mannkærleika og
margvíslegum hæfileikum fram
yfir aðra, sem þjóðin hefir sótt
t ’ þrótt og þrek, og þar af leið-
andi margt gott og gagnlegt. Er
það þarf ekki að leita svona langt
að slíkum mönnum, sem sótt hafa
og sækja fram fyrir fjöldann í
svo feikna mörgu, sem almenningi
e:r bæði gagn og gæfa að; því að
slíkir menn eru alstaðar til, bæði
í borgum og sveitum hvers lands.
En sem oft og einatt er lítið
minst nema þá lítilsháttar í lík-
ræðum.
Það er einn maður, sem . jeg
vildi með línum þessum minnast
lítið eitt á, herra kaupm. Pjetur
Oddsson í Bolungavík. Hann hefir
nú í rúm 20 ár veitt fjölda manna
atvinnu, bæði á sjó og landi, sem
skylt er bæði að muna og minnast
á, því jeg veit að margur hjer
býr að gerðuin hans og gæðum.
Hann hefir verið hjer fyrst.i mað-
ur í framkvæmdum og þörfum
íyrirtækjum, og nú síðast en ekki
síst á næstliðnu sumri, þegar brim
brjótsbyggingin hjer var !iær því
.stöðvuð og strönduð, mun hann
haí'a stutt að því með ráð og
dáð, að verkiriu væri haldið á-
fram, eins langt og til var tekið
í f'yrstu, enda þótt þetta nauð-
synlega inannvirki hefði eflaust
getað staðið lengur en það stóð,
hefði önnur aðferð verið höfð
af þe'in, sem starfanum stýrðu.
Þá ætti hún að vera ógleyman-
leg öll sú hjálp, sem þau hjón
. hafa auðsýnt bæði einum og öðr-
um, ekkjum og einstaklingum,
'þó jeg ekki telji ein og önnur
fyrirtæki iijer, sem þau hafa
manna fyrst stutt og styrkt. Þá
hefir liann vcrið lijcr um mörg
ár sáttasemjari og bendir það
á, með öðru fleiru, hvað hann
lufir viljað vera laus við allar
þrætur og þras. En aftur á móti
hefir hann verið fróðleik og
fræðandi tökum mjög unnandl.
Þá verðiiL' nijer altaf niinnistreð
hans Ijetta og lipra lund, þrátt
fyrir alt það böl og alla þá bar-
áttu, sem hann hefir átt í, við
fcin skæðu veikindi. Og uú að
síðustu tekur dauðinn í burt, h'nn
trúa og trygga förunaut hans, V
eíginkonuna sem hefir fylgt hon-
um svo ótrauð oð ötul í dáö og
Auglýsing.
Tapast hefir úr heimahögum
81. vor rauð hryssa 3. vetra.
Mark: Oagnfj. h. og 2 stig a. v.
Finnandi vinsamlega beðinn að
gjöra unJirrítuðum aðvart.
Hjallakróki í ölvusi 26 des. 1922.
Jörgen Björnsson.
dugnaði. Það er svo margt, sem
jeg' gæti sagt þessuin hjónum
víðvíkjandi, en jeg ætlaði aðeins
að minnast á örfá atriði sem
slandn eins og u|)phlaðnar\vörð-
ui' á æfileið þeirra. Svona og
samskonar menn kunnu forfeður
okkar betur að meta, en við
gt-rum nú, því þeir virtn dáð
Of. drengskap fram yfir annað.
Bolungarvík í nóv. 1922.
Karl í koti.