Lögrétta - 02.01.1924, Page 3
LÖGRJETTA
3
Frá Færeyjum.
Erfiðir tímar.
Færeyingar hafa ekki síður en
a'ðrar þjóðir orðið varir við þreng-
ingar áranna, sem liðin ern frá
stríðslokum. Árferðið þar hefir ver
ið upp og niður og verslunin óhag-
stæð, eins og annarsstaðar. Er
það fslendingum skiljanlegra en
öðrum, því aðal ótflutningsvara
þeirra er fiskur.
En auk þessa hafa Færeyjingar
orj^ið fyrir þjóðartjóni, annars eðl-
is. Eing og kunnugt er, rjeðust
þeir í það að stofna Eimskipafje-
lag á stríðsárunum. Fjelagið var
stofnað á líkan hátt og Eimskipa-
fielagið hjer; — öll þjóðin lagði
þar fram krafta sína, og ríkir og
fátækir lögðu sinn skerf til fyrir-
tækisins. En það mátti segja, að
ógæfan elti þetta fyrirtæki á rönd-
um. Færeyingar sömdu um smiði
á skipi við sænska skipasmíðastöð.
Var byrjað á smíði skipsins og
fjelagið hafði greitt mestan hluta
andvirðis þess. En þá varð skipa-
smíðastöðin gjaldþrota, og fjelag-
ið misti mestan hluta af stofnfje
sínu. Biðu fjölmargir menn stór-
felt eignatjón við þetta, og þjóðin
í heild sinni mikinn hnekki.
Samt sem áður ljetu Færeyingar
ekki ihugfallast. Þeir festu fyrir
nokkru kaup á skipi, og byrjaði
það ferðir milli Khafnar og Fær-
evja. En nú er það komið á dag-
inn, að þetta fyrirtæki hefir mis-
heppnast. Nýja skipið hefir öfl-
rigan keppinaut þar sem er Sam-
einaða fjelagið, og nú er svo kom-
ið, að fjelagið sjer sjer ekki fært
að halda áfram, og skipið er aug-
lýst til sölu.
Ofan á þetta hefir nú bætst, að
fiskiveiðarnar við Færeyjar hafa
brugðist í ár. Er almennur bjarg-
arskortur yfirvofandi í ýmsum
bygðarlögum.
„Politiken“ átti um síðustu mán
aðamót tal um þetta efni við Sam-
uelsen, fólksþingsmann þeirra
Færeyinga og segist honum svo
frá:
— Yður er kunnugt, að Færey-
ingar reka miklar fiskiveiðar, en
þó hafa allir íbúarnir ekki at-
vmnu ‘af þeim. Margir hafa eng-
an tíma afgangs frá búskapnum,
og aðrir eru ekki fúsir á að fara
í langar sjóferðir, þegar aldurmn
færist yfir þá, eða þeir hafa eign
ast; konu og börn. peir eru marg-
ir, sem, iír því þeir eru orðnir
þrítugir, fá sjer jarðarskika og
máske eina kú; og mikið er undir
því komið að þeir geti sjálfir sjeð
um þetta. Eru þeir tregir til að
fara að heiman. En fisk verða
þeir að hafa, því fiskurinn er
þeim það sama eins og Dönum
ket eða flesk. Þess vegna eru þeir
margir, sem stunda útróðra á smá-
bátum á heimamiðum við eyjarn-
ar. Hjá kaupmanninum fá þeir að
láni bensín og olíu til mótoranna,
auk beitu. færa og öngla. Því á
heimamiðunum eru ekki notuð net
eða nætur, heldur önglar. Stund-
um áður hefir orðið ágætur arður
að þessum veiðum, og fá kaup-
niennirnir þá skuldina greidda og
bóndinn nægt búsílag til vetrarins.
En nú hafa veiðarnar á heimamið-
unum brugðist 3 ár í röð. — Jeg
hefi einmitt nýlega fengið skeyti
um, að í ár fáist ekki heldur bein
úr sjó. Víða verður veturinn kom-
andi því erfiður og raunalegur
hjá Færeyingum. Margir munu
ekki hafa til hnífs eða skeiðar —
jeg veit nokkur dæmi þess, að
sulturinn hefir þegar haldið inn-
reið sína á heimilin.
-------x--------
Erl. simfrengir
Khöfn 24. des.-
Frá Þýskalandi.
Frá Berlín er símað, að búist
sje við nýju byltingaruppþoti frá
hálfu þjóðernissinna i Múnchen
og þess vegna sje Hittler undir
ströngu eftirliti í fangelsinu og
vörður haldinn um Ludendorf, öll
brjef til hans og frá honum
rannsökuð.
1 stað Hafensteins er Sehacht,
áður formaður gjaldeyrisnefndar-
innar, orðinn forstjóri ríkisbank-
ans. —
Rússland og Bandaríkin.
I Frá Moskva er símað, að Tschit-
seherin lýsi því yfir, að skýrslur
líughes utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna um undirróður frá bolsje-
i vikka hálfu í Bandaríkjunum sjeu
fals.kar, en frá Washington er
j símað, að sannanir sjeu til fyrir
því, að þær sjeu rjettar. Hefir
jþetta orðið til þess, að Lodge öld-
í ungadeildarmaður, formaður utan-
j ríkismálanefndarinnar hefir látið
liefja gagngerða rannsókn á und-
irróðri bolsjevikka.
Stórveldin á biðilsbuxunum.
Símað er frá París, að eftir
að horfur sjeu orðnar á því að
Bretar viðurlcenni sovjetstjórnina,
sje það talið sjálfsagt, að Frakk-
ar flýti sjer að viðurkenna rúss-
nesku stjórnina áður, svo að
trygging fáist fyrir því, að stjórn-
in viðurkenni gömlu ríkisskuld-
irnar frá því fyrir stríðið.
Khöfn, 27. des.
Venizeloz fer heim.
Símað er frá París, að Veni-
zelos, sem lengi hefir verið frá-
bitinn því, að konungshjónin
grísku voru hrakin úr landi, og
því neitað að koma heim til
Grikklands aftur, hafi loks látið
undan áskorunum þeim, sem hann
hefir fengið um að koma, og fari
nú til Grikklands til þess að
hjálpa landinu. út úr ógöngum
þeim, sem það er í nú.
Bannhneyxli í Bandaríkjunum.
Símað er frá Washington, að
hjá vínsmyglaraflokki, sem lög-
reglan tók fastan nýlega hafi
fundist skrár með nöfnum 1400
þjóðkunnara borgara og þing-
manna (sem munu hafa verið
viðskiftavinir smyglaranna). Hefir
þetta komið öllu í uppnám og
er búist við, að flett verði ofan af
stórfeldu bannlagabrotahneyxli.
samnings milli Frakklands og
Tjekkoslóvakíu um, að samband
það hjeldist, sem nú er milli þjóð-
anna.
Japanska ríkisstjóranum sýnt
banatilræði.
Símað er frá Tokíó, að ríkis-
erfingjanum japanska, sem nú er
ríkisstjóri, hafi verið sýnt bana-
- tilræði, er hann var að koma frá
þingsetningarathöfn. Tilræðið mis-
tókst.
Sameining kfrkjufjelaga.
Símað er frá London, að erki-
biskupinn af Kantaraborg bafi
1 gert það opinskátt, að hann hafi
síðustu þrjú árin átt samninga við
páfann, með milligöngumönnum af
beggja hálfu, um sameining róm-
versk-kaþólsku og anglikönsku
kirkjunnar. Ennfremur hafa yfir-
menn annara kirkjufjelaga verið
beðnir að ráðgast við yfirmenn
anglikönsku kirkjunnar um, að
kvrkjufjelögin gerðu sitt ítrasta
ti' að koma aftur á samlyndi inn-
an kirkju Krists. Sænska og
grísk-kaþólska kirkjan hafa tjáð
sig fylgjandi þessari ráðagerð.
Khöfn 29. des. 1923.
FralcJcland og Bússland.
Frá París er símað, að utanríkis-
ráðherra Tjekkoslóvaka leggi til, að
Frakkar taki upp stjórnmálavið-
skifti við Rússa.
Eiffel verkfrœðingur dáinn.
Frá París er símað, að Eiffel verk
fræðingur, sá er reisti Eiffelturn-
inn í París, sje látinn, 91 árs aS
aidri.
Enski verkamannaflokkurinn og
stjórnarskiftin.
Símað er frá London, að Rnmsay
Macdonald formaður flokksins vísi
á bug öllum bandalagshugsunum við
aðra flokka og lýsi yfir því, að ef
verkamannastjórn verði mynduð
muni hún vilja stjórna ríkinu í
samræmi við stefnuskrá flokksins
aS öllu leyti.
Kröfur Bayernbúa.
SímaS er frá Múnchen, aS stjórn-
in í Bayern hafi gert það að till.
sinni viS alríkisstjórnina, að stjórn-
arskráin, sem gerð var á þjóðfund-
inum í Weimar (núverandi stjóm-
arskrá þýska lýðveldisins) sje end-
urskoðuð og gerð að sambandsríkja-
stjórnarskrá. „Yolkspartei“ óskar
að Baýern fái nýja stjórnarskrá
bygSa á kristilegum og þjóðernis-
legum grundvelli.
Alríkiö og Thixringen.
SímaS er frá Berlín, að stjórnin
bafi gert út fulltrúa til Weimar til
þess að athuga ráðsmensku stjóórn-
arinnar í Thúringen og framkvæmd-
ir hennar á alríkislögum.
I
-x-------
hefir verið skjalavörður í utan-
ríkisráðuneytinu í Kaupmanna-
höfn.
---------o--------
Undir vofuskaríi.
I.
Vakir á feigðarfjöllum
forneskjan köld um nætur.
Svipirnir bleikir í sortans hyl
sveima þjer hljótt við fætur.
Jöklanna krapakuldi
kinn iþína sáran bítur.
Skýjanna myrki skuggaher
Skarðinu yfir þýtur.
I
Gapir það geigvænt milli
gnæfandi hamrasnaga.
Hugskoti þínu opnast í
örflevg, hin gamla saga. —
Ýfir þig falla fjötrar,
fæturnir missa þróttinn.
Hjarta þitt skelfur, hvítnar kinn,
kremur þig bleikur óttinn.
II.
Svipastu ei um sortann,
sjón þín er tál og reykur!
Vita skalt þú að Vofuskarð
varð ekki sumum leikur.
Láttu þig ekki leiðslu
lokka til draumafcynna.
Hikirðu, þá er helför vís!
Hugsaðu’ um eitt: Að vinna!
Hann er að erfðum, óttinn,
afl þitt sem knýr í dróma:
Minning um för hins feigamanns
fljettast í töfrahljóma.
Kvöld eitt í voðaveðri
vörn honum þraut og styrkur.
Bautasteinn hans um aldir er
ofviðradun og myrkur.
III.
Röfckrið og þokan þyngist,
þýtur í hamrasnögum.
Hug þínum skaltu halda frá
húmaldar kjmjasögum.
Gættu þess vel að gljúfrið
gleypir þann skjótt, sem hrapar.
— Framtíðin sjer þín sigurspor,
— svipinn þinn, ef iþú tapar.
Jón Magnússon.
--------o--------
fiuErt stefnir.
Hvað er í efni, hvert er að stefna ?
Háski er á trúarsviði búinn;
veldur hruni heilaspuni,
heiðinn grautur sálarflautir,
sem fóður andans óru landi
ýmsir bjóða, er þykjast fróðir.
Halda þeir lengi í háu gengi
hallir á sandi reistar standi.
Kliöfn 28. des.
Skaðabœturnar.
Símað ei' frá París, að skaða-
bótanefnd Bandamanna hafi ski o;-
að tvær nefndir sjerfróðra manna
til þess að rannsaka gjaidþol
Þjóðverja. Eru í nefndinni þrír
opinberir fulltrúar, frá Englandi,
Frakklandi og Belgíu, og þrír
aðrir, sem taka þátt í nefndar
störfum, en ekki sem opinberir
fulltrúar, frá Bandaríkjunum
Frakkland og Tjekkóslovakía.
Dr. Benes utanríkisráðherra
Tjekkoslóvaka hefir verið að
semja við Poincaré um einsiök
atriði stjórnmála- og viðskifta-
Senðiherraskifti.
J. E. Böggild sendiherra skipaðúr
ræðismaður í Montreal.
Fr. le Sage de Fontenay skipaður
sendiherra á íslandi.
Frá dönsku sendisveitinni hjer
barst blaðinu í gær svohljóðandi
tilkynning: Það er opinberlega
tilkynt, að herra J. E. Böggild,
sem fram að þessu hefir verið
sendiherra Dana á íslandi, hafi
verið skipaður aðalræðismaður í
Montreal í Canada.
Danskur sendiherra á íslandi
(hefir verið skipaður Frank le
Sage de Fontenay, sem undanfarið
Best er villu að varast illa,
vel þess gætum, hvað sem mætir,
rangnefnd speki ritning hrekja
reynt hefir þrátt, en vantað máttinn;
lærdómshrokinn hlýtur að þofca
hans fyrir orði, sem að forðum
fræddi lýð um fegri tíðir
og framhald lífs ofar heimi kífsins.
Jeg sje í anda sali standa
sólu ofar í skýja rofi,
þar sem vísdóms ljósin lýsa,
og lifandi sálir á englamáli
lofa hinn góða lausnarann þjóða,
er leysti oss nauðum frá og dauða.
þar fær blekking þrifist ekki;
þar er sannleiksdjúpið kannað.
Guðl. Guðmundsson.
HafnarfjarSarfundurinn.
Eins og til stóð, var fundur hald-
inn í fyrrakvöld í Ilafnarfirði til
þess að ræða um undanþágu þá frá
fiskiveiðalöggjöfinni, sem Hafnfirð-
ingar vilja fá framgengt og áður
hefir verið talað um hjer í blaðinu.
-- Þingmaður kjördæmisins, hr.
Aaug. Flygenring var kosinn fund-
arstjóri og einnig hafði hann fram-
sögu í málinu. Ráðherrarnir báðir
voru á fundinum og töluðu. Er af-
staða stjórnarinnar til málsins sú
að henni þykir ógerningur að verða
við óskum Hafnfirðinga um veit-
ingu undanþágu frá fiskiveiðalög-
gjöfinni með bráðabirgðalögum. þar
sem þing á nú að koma saman innan
skams, og gæti þá hitt fremur komið
1-1 mála, að flýta samkomu þingsins
^ egna þessa máls, ef margir þing-
menn æsktu þess.
Frá Hafnfirðinga hálfu töluðu,
auk frummælanda, Ólafur Davíðs-
s n útgerðarmaður og Davíð Krist-
jánsson bæjarfulltrúi, og einnig tal-
aði Jón alþm. Baldvinsson í sömu
átt og þeir.
Fundurinn íór vel fram, en eng-
i samþykt var gerð.
------o------
DAGBÓK.
23. des.
Myndarleg minningargjöf barst EUi-
heimilinu í gær, þar sem erfingjar
índriða Jónassonar frá Ytriey á
Skagaströnd, gáfu heimilinu 600 kr.
úr dánarbúi hans til minningar um
hinn látna.
28. des.
Hallur Hallsson tannlæknir ætlar
að opna tannlækningastofu hjer í
bænum upp úr nýárinu.
Togaramir. Maí fór til Englands á
aðfangadaginn. Egill Skallagrímsson,
Walpole og pórólfur komu frá Eng-
landi. pýskur togari kom inn á ann-
an jóladag með bilað spil.
Heidelberg, stúdentaleikurinn þýski,
var sýndur í fyrrakvöld og í gær-
kvöldi fyrir troðfullu húsi áhorfenda.
Um þennan leik stendur mikill ljómi
síðan Stúdentafjelagið Ijek hann
skömmu eftir aldamótin. Sýningin
tókst vel og fólki þótti mjög skemti-
legt að horfa á leikinn. Yerður hann
sýndur aftur í kvöld. I leiknum taka
að þessu sinni þátt 30—40 stúdentar.
Eiga þeir mikinn þátt í, að leikurinn
fær hinn rjetta, skemtilega blæ. Hafa
þeir lagt á sig mikla fyrirhöfn, án
alls endurgjalds, en Stúdentagarður-
inn .fær af hverri leiksýningu sem
svarar kaupi þeirra. Lýsir sjer í þessu
sem öðru áhugi stúdenta fyrir stofn-
un garðsins.
Borgarstjóri K. Zimsen var einn
roeðal farþega á Gullfossi. Fer hann
í þarfir bæjarstjórnarinnar út í
samningaumleitunum við brunabóta-
fjelög erlend. Guðm. Ásbjörnsson
kaupm. er settur borgarstjóri meðan
K. Zimsen er utanlands.
Heiðursmerki. 1. des. síðastl. urSu
stórriddarar af Fálfcaorðunni: Vil-
hjálmur Stefánsson norðurfari, Geir
Zoega rektor og Sveinbjörn Svein-
björnsson tónskáld. En riddarakross
fengu sjera Friðrik Friðriksson,
Bjarni Sæmundsson fiskifræðingur,
Halldór Hermannsson bókavörður, Jó-
hannes Nordal íshússtjóri, Friðrik
Bjarnason hreppstjóri á Mýrum í
Dýrafirði, Brynjólfur Einarsson bóndi
á Sóleyjarbakka, Ólafur Finnsson
bóndi á Fellsenda og Hallgrímur
Hallgrímsson bóndi á Rifkelsstöðum.
29. des.
Trúlofun sína hafa nýlega opinberað
Níels Carlsson kaupmaður og Krist-
jana p. Árnadóttir (timburkaupmanns
Jónssonar).