Lögrétta - 05.01.1924, Page 3
LÖGRJETTA
og 160 konur og skilin að lögum
73 karlmenn og 103 konur.
í öllum flokkum er munurinn
á tölu karla og kvenna lítill,
nema í ekkjuflokknura, þar er
tala ekkjumanna aðeins % af tölu
ekknanna. Eru þær 2,217 fleiri en
ekkjumennimir og vantar lítið á,
að þar sje fólginn allur munur á
tölu kvenna og karla, en kann var
2,346. Hagstofan hyggur, að hinn
mikli munur á tölu ekkna og
ekkjumanna stafi bæði af því, að
konur sjeu langlífari en karlmenn
og að þær giftist yngri.
Fæðingarstaður. Af þeim 94,690
manns, sem töldust heimilsfastir
hjer á landi við manntalið 1. des.
1920, voru 93,764 fæddir hjer á
lendi, 710 voru fæddir í öðrum
löndum, en um 216 var óuppvíst
hvar þeir voru fæddir. En líkindi
segir hagstofan vera til þess, að
þeir muni flestir fæddir hjer á
landi. Af þessurn 710 voru 352
feddir í Danmörku, 155 í Noregi.
3C í Færeyjnm og 20 í Svíþjóð.
50 í Kanada, 41 í Þvskalandi, 33
í Bretlandi. En 29 sem þá voru
eftir skiftast niður á ýms lönd.
Af fæðingarstöðum þeirra, sem
fæddir eru innanlands, má fá
vitneskju um flutningana innan-
lands, og sýnir eftirfarandi yfir-
lit það:
íbúar. fædd. mism.
Reykjavík. 17679 7864 9815
Aðr. kaupst. 11377 6143 5234
Yersl.staðir 11389 7177 4212
Sveitir.... 54245 72580 -r- 18335
)
. . l
A síðasta dálkinum sjest aðal-
niðurstaðan af flutningunum milli
sveitanna og bæjanna, hvað hvort
um sig hefir unnið eða tapað, hve
marga aðflutta bæirnir hafa dreg-
ið til sín umfram burtflutta og
hve marga sveitirnar hafa mist
umfram innflutta.
--------o------
MirtJ D| saiiflisii.
Um ekkert er mönnum tíðrædd-
ara nó á dögum en fjárhagsvaad-
ræðin. Flestir eru sammála um að
á því meini sje aðallækningin:
sparnaður. En þegar til fram-
kvæmdanna kemur þá fer oft iit
unj þúfur með heilræði þetta. —-
Enda má oft spyrja sem svo:
Ilver er hinn rjetti sparnaður?
•Teg hefi frjett að afráðið sje,
að á næsta hausti skuli stofna
nýja deild — undirbúningsdeild
■— við verslunarskólann hjer í
hænu-m og sje þá um leið fyrir-
hugað að bæta við nýjum kenslu-
greinum í skólanum. Ófrávíkjan-
lega hefir þetta í för með sjer
aukinu kostnað við skólahaldið og
fer að því leyti ekki í sparnaðar-
áttina. Hiusvegar dylst það ekki
að hjer er nm að ræða þarfa um-
hót á skólanum er miðar að því,
«ð gera skólanu talsvert fullkomn-
ari en nú er. og er það vel farið.
Flestir munu samdóma um það.
að nauðsyn beri til að þeir menn
er gera ætla versTun að lífsstarfi
sínu, með hvaða fyrirkomulagi
sem er. geti fengið sem bestan
mentunarundirbúuing undir þetta
starf sitt. En eins og ástæður eru
h.ier í landi. verður þessu tak-
marki ekki náð nema með all-
ríflegum opinberum styrk, en þá
verður það fyrst og fremst skylda
þeirra, er slíkum 'styrkveitingum
ráða — stjórnar og alþingis —
ac gæta þess, að engu fje sje hjer
að óþörfu á glæ kastað, eu að fjár-
veitingiu geti komið að sem mest-
um og bestum notum.
Um nökkur uudanfarin ár hefir
alþingi veitt fje til tveggja versl-
unarskóla, sem sje bæði til Versl-
unarskóla íslands, sem stofnaður
var upp úr kvoldskóla verslunar-
manna hjer í bæ fyrir fullum 18
árum síðan af kaupmannafjelagi
og verslimarmannafjelagi Reykja-
AÚkiu', en sem verslunarráð lands-
ins hefir nú tekið að sjer.umsjón
á. svo og til samvinnuskólans, sem
stofnaður var löngu síðar hjer í
bæ, af samvinnufjelögunum eða
sambandi þeirra. Er styrkurinn tír
ríkissjóði jafnhár til beggja skól-
anna, sem stendur 6000 krónur
á ári til hvors um sig.
Jeg fæ ekki sjeð að hjer sje
verið að þræða sparnaðarbrautiua
og mjer er það heldur ekki l.jóst,
að noklutr bót sje að því, frá
mentasjónarmiði skoðað, að hafa
þussa fjárveitingu tvískifta, Þar
á móti skilst mjer ekki betur, en
að það hlyti að korna að miklu
meiri notum, að fjárupphæðin er
rikissjóður leggur fram, gangi
oskift til annars skólans, eða með
öðrum orðum, að það sje bæði til
sparnaðar og einnig til bóta, að
•styrkja heldur einn verslunarskóla
t el en tvo illa.
En þá er á það að líta, hvort
nokkur nauðsyn sje á, að hafa
hjer tvo verslunarskóla, eða hvort
námsgreinar þær, sem kendar eru
í hvorum skólanum um sig, sjeu
svo sundurleitar eða frábrugðnar,
að þær geti ekki sameinast undir
sama þaki, hvort sem nemandinn
ætlar síðar að leggja fyrir sig
kaupme.nsku eða slíka almenna
verslunarþjónustu eða ganga 'í
þjónustu kaupfjelaga eða gerast
samvinnuverslunarmaður.
Skyldunámsgreinar þær, sem
kendar eru í Verslunarskólanum
eru nú sem stendur þessar: ís-
lenska, danska., enska, reikningur,
bókfærsla, álagsreikningur og
köntökurant, landafræði, þjóðmeg-
unarfræði, verslunarlöggjöf, skrift
og vjelritun. Flestar námsgreinar
þessar munu einnig ltendar í Sam-
vinnuskólanum, þótt skyldukensla
sje þar víst minni. Þar munu einn-
ig haldnir fyriflestrar um sam-
vinnufræði og máske fleira, sem
ekki er lögð sjerstök áhersla á í
Yerslunarskólanum. En hvers-
vegna skyldi kensla í öllum þess-
um námsgreinum ekki geta farið
fram í sama skólanum? parf að
brúka gjörólíka aðferð við kenslu
f. d. í íslensku og öðrum málum,
svo og í reikningi, bókfærslu,
verslunarlöggjöf o. s. frv., eftir
því, hvort nemendur hugsa sjer að
gerast kaupfjelags- og samvinnu-
menn eða ekki. Því fer fjarri.
Þekkingin er öllum jafn nauðsyn-
leg, og menningin má síst af öllú
vorða cinhliða
Fjárhagshliðin á þessu verslun-
arskólamáli er einnig svo mikilvæg,
að fram lijá lienui verður elcki
gengið. Og það er eigi mörgum
blöðum um það að fletta, að kostn-
aðurinn við tvo verslunarskóla, í
staðinn fyrir einn, er svo vfir
gnæfandi, í samanburði við nauð-
synina og gagnið, að þegar á
þessa lilið málsins er horft, hlýtur
svarið hjá hverjum hugsandi
manni, er vit. hefir á málinu, og
lítur á það hlutdrægnislaust og
frá almennu sjónarmiði, að verða
það, að sameining beggja skól-
ar-na sje sjálfsögð.
Það verður heldur ekki í fljótu
bragði sjeð, hvað ætti að geta ver-
ið því til fyrirstöðu, að þeir, sem
að báðum skólunum standa, geti í
bróðerni komið sjer saman um sam
eining þeirra, á þeim grundvelli,
er allir hlutaðeigendur megi vel
við una. En fari svo ólíklega, að
þeir geti það ekki, verðnr þing og
stjóm á einhvern hátt að taka í
taumana.
Verslunarmaður
Erl. slmfregnir
* '
Khöfn 31. des.
Frakkar og Tjekkóslóvakía.
Símað er frá Róm, að samning-
ar Frakka við Tjekkóslóvakíu sjeu
at‘ ítölum taldir ný tilraun til að
einangra Þýskaland, sem jafn-
framt felist í ógnum í garð ítala,
því að með þeim sjeu aukin áhrif
Frakk í „Litla bandalaginu“. —
í breskum stjómmálaherbúðum
vekja samningar þessir einnig
ímugust og mörg bresk blöð telja
þá lilið mesta glappaskot.
Griski konungurinn rekinn frá,
Símað er frá Aþenu, að flokk-
ur lýðvefdismanna hafi hirt yfir-
lýsingu þess efnis, að gríska kon-
unginum og allri hans ætt sje
vikið frá völdum.
Vinnutíminn lengdur
í Þýskalandi.
Frá Berlín er símað, að alríkis-
stjórnin hafi birt fyrirskipun um
þa.ð, að venjulegur vinnutími skuli
vera 9 stundir á dag í öllu þýska
ríkinu. Samtímis hefir verið teldn
vpp 10 stunda vinna í Krnpps-
. verksmiðjunum,
Verkfalls-undirbúningur
j í Noregi.
| Frá Kristjaníu er símað, að
verkamenn þar sjeu í þann veginn
að segja upp vinnusamningum, er
renna út í mars og apríl. Samn-
ingar þessir taka til um 60 þúsuncl
, verkamanna.
Khöfn 2. jan.
Ummæli þýsku blaðanna.
— Berlínarblöðin lýsa svo árinu
1923, að það hafi verið mesta
hörmungarárið, sem yfir pýska-
land hefir komið á þessum þreng-
ingatímum þess. En jafnframt bú-
ast þau við, að ástandið muni ekki
versna hjeðan af, m. a. vegna þess,
að fast gengi marksins sem nú sje
náð, hafi aukið traust á efnahag
landsins. Jafnaðarmannaflokkur-
inn er að undirbúa mikla mót-
stöðu gegn hermálastefnu stjórn-
arinnar og krefst þess, að ríkis
dagurinn sje lcallaður saman.
Parísarblöðin ánægð.
Blöðin í París lýsa ánægju sinni
yfir þeirri ósk, að bundinn sje
endir á deiluna við Þjóðverja, og
eru ástæðurnar fyrir þeirri ánægju
sumpart leiði, sem menn eru bún-
ir að fá á deilum Fraklca og Þjóð-
verja og sumpart hræðsla við
óholl áhrif á gengi franska frank-
ans af þessttm útistöðum Frakka,
og ennfremur vaxandi óánægja
milli þeirra og Englendinga.
Frá Indlandi.
Reutersfrjettastofa tilkynnir,' að
ráðstefna indverskra þjóðernis-
sinna liafi krafist þess, að inynduð
verði stjórn með áhyrgð í Ind-
Verslunarskóli Islands.
Sökum þess, að ætla má, að væntanlegum nemendum Verslunar-
skóla Islands muni sumum hverjum, reynast örðugt að afla sjer
þeirrar undirbúningsmentnnar, sem ráð var fyrir gert í auglýsingu
skólans, dags. 20. júní sl. ár, en skólanefnd hins vegar telur afar-
nauðsynlegt, að krefjast fullkomnari undirbúningsmentunar en vcr-
ið hefir hingað til, þá er nú svo ákveðið, með samiþykki Verslunar-
ráðs fslands, að sett verði á stofn næsta haust undirbúningsdeild í
skólanum með sörnu inntökuskilyrðum og verið hafa undanfarið í
neðri deild.
Gert er ráð fyrir, að í deild þessari verði kendar þessar náms-
greinir: íslenska, danska, enska, þýska, reikningur (og reiknings-
færsla), saga, landafræði og skrift.
Samkvæmt þessu fellur úr gildi áður auglýst breyting á inn-
tökuskilyrðum skólans.
Reykjavík, 1. janúar 1924.
Jón Sivertsen.
FltuinnulEysiö í REykjauík.
Hjer í bænum ríkir nú megn atvinnuskortur, og útlit er fýrir
að svo muni verða þenna vetur allan og hefir bæjarstjórninni því þótt
rjett að vara rnenn úr öðrum hjeröðum við að flytja hingað til
Reykjavíkur á þessum vetri til að léita sjer atvinnu, þar sem engin
likindi eru til að vinna verði hjer fáanleg.
Um leið og þessi aðvörttn er hjermeð birt öllum landsmönnum,
skal þess getið, að reynt verður að láta bæjarmenn njóta þeirrar
litlu vinnu, sem hjer kann að verða í vetur, og leyfi jeg mjer jafn-
framt samkvæmt ályktun bæjarstjórnarinnar að skora á alla bæjar-
búa að sameinast um þetta með því að stuðla ekki að því, að að-
komumenn setjist hjer að í vetur til að leita sjer atvinnu, og sjer-
staklega er þeirri áskorun alvarlega beint til allra þeirra manna
í Reykjavík, sem eitthvert verk láta vinna eða yfir vinnu eiga að
sjá, að láta innanbæjarmenn sitja fyrir allri þeirri atvinnu, sem þeir
þurfa að ráða fólk til í vetur.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 3. janúar 1924.
Guðm. Ásbjörnsson.
settur.
landi. Hefir ráðstefnan samið nýja
stjómarskrá. Pólitískir fangar
hafa verið látnir lausir.
Khöfn 3. jan.
Hagrnr Bandaríkjanna.
Frá New York er símað, að
Hoover verslunarráðherra hafi lát-
ið í ljós mjög mikla ánægju yfir
viðgangi og hag Bandaríkjanna á
síðastliðnu ári. — Segir hann að
þetta sje besta árið, sem yfir
Ameríku hafi komið, síðan styr-
jöldinni ljetti. Tekjur ríkisins
sagði hann að hefðu verið 4164
miljón dollara, eða 500 miljóuum
meira en í fvrra og gjöldin 3888
miljónir.
Loftfloti Rússa.
Frá Amsterdam. er símað, að
Rússar hafi keypt og borgað 300
bernaðarflugvjelar hjá flugvjela-
smiðju Foekers og pantað 500
fólksflutningsflugvjelar.
-------o-------
DAGBÓK.
3. jau.
Trúlofun sína hafa nýlega opinber-
að ungfrú Gtiðmunda GuÖmundsdóttir
og Valgarður Stefánsson frá Fagra-
skógi. —
Pór. B. porláksson málari. Honum
var, eins og fyr er frá sagt, haldið
heiðurssamsæti síðastliðið laugardags-
ktöld af kennumm Iðnskólans, og var
það haldið á kaffihúsinu >Reykjavík‘,
sem frú Margrjet Zoega hefir í vetur
stofnað í húsi sínu við Austurstræti.
Var honum í samsætinu afhent gjöf
frá Iðnskólanum, kennurum og nem-
endum, mjög vandað gullúr, og af-
henti núverandi forstjóri skólans,
Helgi Hermann, það með ræðu, en
pór. B. porláksson svaraði með ræðu
fyrir skólanum. Auk þeirra tveggja
fiuttu ræður Jón Halldórsson trje-
1 smiðnr, Guðmundur Finnbogason pró-
fessor og fleiri. Kvæði var snngið til
heiðursgestsins og er það birt á öðr-
um stað í blaðinu.
Nýr kaffibætir. Pjetur M. Bjarna-
son kaupmaður hefir sett á stofn
lijer í bænum verksmiðju, sem býr
ti! kaffibæti, og er hann nýlega far-
iun að selja þá vöru. Hann kaliar
þennan nýja kaffibætir Sóley og sel-
ur hann bæði í pokum, til notkunar
hjer á staðnum, og í smápökknm í
pappírsumbúðum með vörumerki. Áð-
ur hefir hann rekið verksmiðju, sem
brennir og malar kaffi. Fyrir hvoru-
tveggja stendur bróðursonur hans, Jón
Björnsson frá Sauðafelli.
Togararnia Frá Englandi komu í
gær: „Ari“ og „Gylfi“. peir fara
báðir á veiðar í dag.
Tuttugu og fimm ár vorn liðin í
gær síðan K. F. U. M. var stofnað
hjer. Mintist unglingadeild fjelagsins
þess og stofnendurnir í gærkvöldn en
aðaldeildin minnist afmælisins síðar.
4 jan.
Trúlofun sína hafa opinberaíi ung-
frú Lukka Árnadóttir frá Norðfirði
og Helgi Guðmundsson málari frá
Patreksfirði.
Óhagstæð tíð hefir verið á Norður-
landi undanfarið, að því er sagt var í
símtali frá Akureyri í gær. Ennfrem-
ur var sagt, að þar væri nú afla-
laust orðið. En síldarafli hefir verið
þar allmikill nndanfarið. Atvinnuleysi
kvað vera mikið á Abureyri nú.
Embætti. í Flateyjarhjeraði heftr
Katrín Thoroddsen verið skipnð lækn-
ir. Hún er fyrsta konan sem situr í
einbætti hjer á landi.
Togararnir. pessir hafa selt afla
sinn í Englandi nýlega: „Tryggvi
gamli“ fjTÍr 1650 sterlingspd, „Maí“