Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 05.01.1924, Blaðsíða 4

Lögrétta - 05.01.1924, Blaðsíða 4
4 LÖGRJET>Ta fvrir rúm 1100 og „Ausíri" fjTÍr rúm 1300 sterlingspund. Dáinn er nýlega hjer í bænum Ár- mann Jónsson bátasmiður, faðirKrist- ins Ármannssonar mentaskólakennara og þeirra systkina. Ármann var góð- kunnur mörgum Reykvíkingum, hafði dvalið hjer frá því um aldamót, en var áður á Saxhóli. Hann var sjötug- nr þegar hann ljetst og hafði legið skamma stund. Verslun Jóhönnu Olgeirsson er flutt á Laugaveg 18, við hliðina á Hljóð- færahúsinu. 5. jan. íslenskar afurðir hækka í verði. Af vöraskeyti, sem kaupþingið hjer hefir fengið nýlega, má sjá, að íslensaar afurðir hafa hækkað töluvert í verði nú um áramótin, að undantekinni síld, ecxti hefir lækkað og lýsi, sem stendur alt að því í stað. Verð á útlendum vörum hefir lítið breytst, nema á rúgmjöli, hefir það hækkað. Annars geta menn fengið upplýsingar um verð á einstökum vörutegundum hjá kaup- þinginu. í bæjarstjórn á ísafirði á að kjósa þrjá menn í dag. Hafa komið fram tveir listar, annarsvegar borgáralisti og eru á honum Sigurður Kristjánsson ritstjóri, Magnús Thorberg útgerðar- r.iaður og Magnús Magnússon kanp- maður, en hinsvegar verkamannalisti, og eru á honum Magnús Ólafsson, Jón Sigmundsson og Magnús Vagns- son skipstjóri. Dánarfregn. f gær ljetst á Landa- kotsspítala Guttormur Jónsson járn- smiður, bróðir þeirra Páls Jónssonar og Jóns læknis.Hann var gamall boTg- ari hjer í bænum, hagleiksmaður hinn mesti og prýðilega látinn af öllum. Nýtt smjör. Ólafur G. Eyjólfsson kanpmaður er nýkominn úr utanlands- för og hefir m. a. á boðstólum nýja tegund af smjöri, sem farið er að nota erlendis. pað er gert úr pálma- feiti og undanrennu. Pálmafeitin er eeld í smábögglum og smjörið síðan búið til úr henni á heimilunum, í litluxn strokkum, sem eru þar til gerð- ir. Er smjör þetta bragðgott og vel yfir því látið í ýmsum vottorðum, sem hann hefir til sýnis. Strokkana ætlar hann að hafa til sölu og munu þeir kosta 20—40 krónur. Trúlofun sína hafa nýlega opin- berað ungfrú Mikkalína Sveinsdóttir frá Hvilft í Önundarfirði og Sig- urður B. Gröndal. -------x------- Gengi eri. myntar. 4. janúar. Kaupmannahöfn: Sterlingspund ............ 24,45 Dollar ................... 5,72 Franskir frankar ......... 28,00 Belgískir frankar ....... 24,80 Svissneskir frankar ...... 99,50 Lírur .................... 24,65 Pesetar .................. 73,00 Gyllini ................. 216,00 Sænskar krónnr .......... 150,85 Norskar krónur ........... 82,00 Reykjavík: Sterlingspund ............ 30,00 Danskar krónur .......... 122,94 Sænskar krónur .......... 189,79 Norskar krónur .......... 101,70 Dollar .................... 7,21 --------x--------- Ensku kosningarnar. Dagana fyrir kosningarnar síðustu í Bretlandi taldist mönnum svo til, að um 15000 kjósendafundir væru haldn- ir á dag í Bretlandi. Frjálslyndi flokk- nrinn hafði flugvjelar á leigu til að flvtja ræðumenn sína milli fundarstað- anna. ---------X-------- Jafnaðarmaðurinn. Skáídsaga eftir Jón Björnsson. — Því ætti það ekki að geta orðið ? spurði rit- stjórinn með hægð. — Þá yrði „Dögun“ að skifta gersamlega um stefnu. Nú leit Þorbjörn upp. — Skifta um stefnu! Hvað áttu \úð! Auð- heyrt var, að ritstjórinn var meira en lítið hissa. — Jeg á við það, svaraði Þorbjöm, að jeg gæti aldrei tekið að mjer ritstjórn þess blaös, sem berst fyrir hagsmunum fárra manna, og það þeirra manna, sem eru þjóðfjelaginu hættulegir. — Hverjir eru það? — Þeir, sem raka til sín peningum á ranglátan hátt. — Fyrir hverra hagsmunum vilt þú berjast? spurði ritstjórinn með sömu hægðinni. — Þeirra, sem nú eru undirokaðir og forsmáð- ir — en gera þó alt. — Hverjir hafa svona einkennilega aðstöðu — kúgaðir og forsmáðir en afkasta þó öllu? — Það eru verkamenn þjóðarinnar, alþýðan. Ritstjórinn strauk hendinni um ennið því líkt sem hann skildi ekki til fulls þessa skýringu Þorbjamar. Síðan sagði hann og hæglætið var horfið úr röddinni: — Þú hefir skift um skoðun á síðustu árum, Þorbjöm. — Finst þjer það svo furðulegt? Þó er það ekki rjett, að jeg hafi skift um skoðun. Jeg hefi aðeins opnað augun og horft í kringum mig. — — Þú ert að lesa „Soeialdemoferaten' ‘, sje jeg er. -— Mjer finnast hin dönsku blöðin lítils virði, þegar um er að ræða hið eina nauðsynlega — umbætur þjóðfjelagsins. Ritstjórinn leit snöggvast hvössum augum á Þorbjörn. Eins og leiftur flaug það um hug hans, að þarna sæti maðurinn, sem hann hefði að mestu leyti sjeð fyrir frá barnsaldri, kostað til margra ára náms og verið faðir fram að þess- um tíma — og nú væri hann orðinn mótstöðu- maður hans, minsta kosti í skoðunum, og þá væri skamt til verkanna. Hann sagði með kulda- votti í röddinni: — Það lítur út fyrir, að þjer geðjist vel að skoðuniun jafnaðarmanna. Jeg var að líta á blaðaböggulinn, sem þú komst með heim, og sá þar ekkert annað en svæsnustu jafnaðarmanna- og kommunistablöð. Jeg get ekki neitað því, að mjer þótti það dálítið kynlegt. Jeg hugsaði, að þú veldir þjer andlegt samneyti með öðrum en þeim, sem jeg kalla skrílræðismenn. — Skoðanir jafnaðarmanna hafa opnað mjer útsýn yfir þetta meinblandna og rotna líf þjóð- anna. Og jeg veit, ritstjóri, að framtíðin er í hugsjónnm jafnaðarmanna, því að þær hug- sjónir byggjast á rjettlæti. Mjer sýnist ekki annað sigurvænlegra en að vera í samræmi við rjettlæti framtíðarinnar, sannleika framtíðar- innar. Ritstjórinn fór að ganga fram og aftur og steig óvanalega þúngt til gólfsins. — Hver hefir spúð þesSari vitleysu um rjett- lætið og sannleikann í þig, Þorbjöm? — Jeg hefi horft út um heiminn þessi síðustu 3 ár og sjeð viðleitni mannanna til þess að bæta misrjettið, sem þeir búa nú við. Eina skyn- samlega leiðin er það, sem jafnaðarmenn hafa farið. Allar aðrar hafa leitt út í ógöngur og dauða. Jeg get ekki lokað augunum fyrir þessu. Jeg get ekki sjeð, a'ð nokknun sje það unt. — Þjer finst ef til vill mikið koma til djöful- æðisins þarna austur í Rússlandi? — Já — stórhrifinn af því! Það er stór- feldasta máttarverkið, sem unnið hefir verið á síðustu öldum. Sagan getur ekki um neitt jafn dýrlegt tákn þess, hvað hægt er að gera, á að gera og verður gert, þegar þjóðirnar varpa af sjer mörg hundruð ára fjötrum, þegar alþýðan vaknar, stendur saman og tekur rjett sinn. Jeg veit, að þú viðurkennir þetta, ritstjóri, þegar þú hugsar þig vel um. — Yiðurkenni þetta, Þorbjörn! Nei — síður en svo! Jeg læt ekki hrífast af fávíslegum til- raunum nokkurra hálfbrjálaðra manna úti um heim. Til þess hefi jeg lifað of lengi og reynt of margt. pað varð ofurlítil þögn. Þá sagði ritstjórinn aftur: — Það er þá þetta, sem þú hefir lært á síð- ustu árum, Þorbjörn. — Já — og jeg tel það mikilsverðustu þekk- inguna, sem jeg hefi fengið á æfinni. — Þú ætlar ef til vill að fara að beita þessari þekkingu hjer he.ima? — Ef jeg geri nokkuð, þá verður það eitt- hvað í þá átt. Eftir því, sem jeg hefi heyrt hjeð- an að heiman og lesið í blöðunum ykkar, þá sýnist mjer ekki veita af, að eitthvað sje hreins- að til hjer í bæ. — Nú — ekki öðru vísi! Þú ætlar að stofna hjer jafnaðarmannaríkið! — Minsta kosti að vekja til umhugsunar um það. — Það virðist ekki vera þörf á því, Þorbjörn. Þeir menn eru þegar til hjer, sem eru búnir að koma því til leiðar, að verkamannastjettin er orðin ósanngjörn og gerir lítið annan en heimta. Mjer sýnist, að eitthvert göfugra verk- efni bíði þín hjer, en að afvegaleiða alþýðuna. — Öll umhót hefir í fyrstu verið nefnd af- vegaleiðing af þeim, sem ekkert sjá út úr skjald- bökuskel afturhaldsins. Ritstjórinn leit í annað sinn hvössum augum á Þorbjörn og sagði um leið: — Þú ert ef til vill að gefa í skyn, að jeg sje einn í skjaldbökuskelinni? — Mjer virðist þú tala þannig nú. Og jeg hefi sjeð á „Dögun“, að þú skrifar þannig. Jeg dæmi eftir því. Egill ætlaði að svara, og það svar átti ekki að verða nein þlíðmæli. Honum fanst Þorbjörn ekki hafa unnið til þeirra. En rjett í þessu kom Ilildur inn í skrifstofuna og brosti til þeirra beggja. Það bros lægði rótið, sem komið var á hug ritstjórans. Svar hans til Þorbjarnar kom ekki í það sinn. Ilildur vjek sjer að manni sínum með þessum orðum: — Hvað getum við gert Þorbirni til skemt- unar í kvöld, Egill? Ekki megnm við láta hon- um leiðast fyrsta daginn, sem hann er hjá okkur. Þorbjörn stóð á fætur og lagði höndina á öxl Hildar um leið og hann sagði: — Þú ætlar þó ekki áð fara að leika við mig eins og barn? Og meira að segja hvetja aðra til þess! — Mjer leiðist að sjá þig sitja hjer alvarleg- an og þögulan eins og þú værir kominn í líkhús. Ritstjórinn stóð nú líka upp. — Við tökum okkur gönguferð um bæinn og sjáum sólarlagið. Þú kemur með okkur, Hildur. Þeim kom saman um að ganga vestur Tún- götu, vestur í sólina, sagði Hildur. Veðrið var óumræðilega yndislegt, kvöldið fagurt ekki síður en morguninn. Það var eitt þeirra sumarkvölda í Reykjavík, sem tuugan á engin orð til að lýsa, enginn hugur getur gripið, sem ekki hefir fengið dýrð þess inn í sig, enginn málarapensill getur náð, en lætur þá, sem njóta þess, alt í einu finna það, að mennirnir eru meira en duft og aska, lífið alt, dauðinn ekkert. — Jeg get ekki skilið, að nokkrum bæjarbúa detti í hug að ganga til svefns í þessu veðri, sagði Þorbjörn, þegar þau höfðu gengið um stund. — Þú ert nýkominn heim, Þorbjörn, sagði ritstjórinn, bæði í gamni og alvöru. Fyrst í stað finst þjer alt fagurt hjer. Eftir nokkur kvöld gengurðu hjer um göturnar og tekur ekkert eftir sólarlaginu. — Jeg vona, að smásálarskapnum og andleys- inu hjema takist ekki að gera mig að sama clrumbinum og þeim, sem hjer ráfa liugsunar- og sjónlausir um bæinn. — Þjer liggur ekki sjerlega vel orð til okkar, sem höfum setið heima, mælti ritstjórinn bros- andi. Viltu ekki kynnast okkur ofurlítið meira, áður en þú fellir úrslitadóminn ? — Þorbjörn er ungur og heitur, skaut Hild- ur inn í. Það er hlutverk æskunnar að finna að, vekja til umhugsunar, brjóta í bág við það, sem fyrir er og finna nýtt. Og hverju orði er það sannara, sem Þorbjöm segir um ykkur leiðtogana hjerna. Þið eruð reglulegir drumbar. — Þbgar þú byrjar, kona mín, þá hætti jeg. Við þig er mjer ekki til neins að þrátta. Þau hlógu öll. Það varð úr, að þau fóru vestur fyrir íþrótta- völlinn og snður á Mela og síðan heim Suður- götuna. Þorbjörn þurfti margs að spyrja á þeirri leið. Þau mættu mörgum og hann spurði einhvers um hvern mann. Iiildur grenslaðist eft- ir því að lgkum, hvað hann varðaði um alt þetta fólk. Jeg á éf til vill eftir að vinna með því eða fyrir það. Það getur komið sjer vel að þekkja það. Saga þess er saga bæjrrins. Um leið og þau voru að fara inn í húsið, kom gamall skólabróðir Þorbjarnar í fasið á þeim. Með honum fór Þorbjörn út í bæ og kom ekki heim fvr en löngu eftir miðnætti. Egill ritstjóri gekk inn í skrifstofu sína. — Hann hafði ásett sjer um morguninn að skrifa grein í blað sitt áður en þessi dagur væri lið- inn. Og nú var annaðhvort ‘að hrökkva eða stökkva. Hann gekk um gólf um stund og setti á sig helstu atriðin, sem hann vildi minnast á. Þá varð honum lit.ið á blaðið, sem Þorbjörn hafði verið með og skilið eftir. Um leið mintist hnnn samtals þeirra áður en þeir fóru út. Hann rifj- aði það upp fyrir sjer, orð fyrir orð, einkum þó það, seni Þorbjörn hafði sagt. Hann gat ekki við það ráðið, að honum varð órótt, er hann mint- ist orða Þorbjarnar. Það var lítill vafi á því, hugsaði ritstjór- inn, að Þorbjörn hafði sýkst af þeim skoðun- um, sem nú voru að valda mikilli óhamingju og margskonar menningar-hruni í veröldinni. — Hann hafði virtst vera einlægur í tali, oegar hann ræddi um það mál áðan. Og þetta var maðurinn, sem hann hafði rekist á af tilviljun, þá lítinn dreng, umkomulausan og einstæðan, og tekið í sína vernd. Hafði hann alið snák við brjóst sitt? Eða var þetta aðeins augnabliksvilla ungs manns? Ritstjórinn gekk hratt um gólf og varð enn órórra. Hann mintíst samtals við konu sína um það leyti, sem Þorbjörn var að ljúka prófi og full- víst var, að hann mundi koma heim bráðlega. Ilann mundi, að hann hafði sagt við hana eitthvað á þá leið, að hann bygði mikið traust á Þorbirni, að hann hefði hugsað honum veg- lega og ábyrgðarmikla stöðu meðal þeirra manna, sem sameina þjóðina í göfugu, friðsömu þróunarstarfi. Hann mundi, að hann hafði látið það í ljósi, að hann hlakkaði til að fá hann heim. Nú var hann kominn — fullur starfsþors og áhuga, brenuandí af þrá til að vinna. En glat- aður samt, ef hann ætlaði að snúast % sveif með þeim mönnum, sem leiddu þjóð sína út á refil- stigu stjettarígsins og sundurlyndisins. Ritstjórinn hugsaði lengi um Þorbjörn, en settist að lokum í stól sinn, þreyttur og dapur- huga. Hann fann. að hann gat ekki byrjað á greininni í þetta sinn, og gekk til hvílu stuttu síðar. II. Viku eftir að Þorbjörn kom heim, var það einn dag, að þeir voru á gangi saman um bæ- inn, Egill ritstjóri og hann. Þeir höfðu ekki átt tal um framtíð Þorbjarnar síðan fyrsta kvöld- ið. Ritstjórinn vissi, að hann var mikið með verkamönnum bæjarins og ljet sig mál þeirra öll miklu skifta. Hann þóttist sjá, hvert stefndi. En hann leiddi það hjá sjer, þó honum líkaði stefna hans hið versta. Þeir höfðu verið að skoða höfnina og gengu síðan upp í Þingholtin. Á Grundarstígnum mættu þeir drenghnokka. Hann var svo tötra- lega klæddur og aumlegur útlits, að þeir stað- næmdust og horfðu lengi á hann. Fötin voru óhrein og hjengu í tætlum. Andlitið lýsti eymd og örbirgð — augun vorn dauf en þó einhver græðgisglampi í þeiih, kinnarnar þunnar og fölar og svipurinn allur gamalmannslegur og dauður. Ritstjórinn fjekk honum seðil úr vasa sínum og bað hann að færa mömmu sinni. Þeir gengu þegjandi um stund eftir að þeir skildu við drenginn. Loks rauf Þorhjörn þögn- ina: > — Jeg hefi sjeð tugi barna hjer í bænum síðan jeg kom heim, sem borið hafa sama ör- birgðarmerkið og þessi drengur. __ .Jeg býst við því. Það eru ekld svo fáir fátæklingar hjer í bæ.

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.