Lögrétta - 15.04.1924, Side 4
4
LÖGRJETTA
sjer, að hann hefði alls ekki fylgst
með málunum, eins og honum hefði
borið skylda til. Svipuð játning
hefði einnig komið fram seinna frá
öðrum ráðh. Framsóknarflokksins,
Kl. Jónssyni, í apríl 1923, en þar
sagði hann svo: „þegar jeg tók við
fjármálaráðherra embættinu seint
í apríl í fyrra, var mjer það ljóst,
að fjárhagurinn var mjög bágbor-
inn, en að hann væri jafnslæmur
og hann var í raun og veru, hafði
jeg enga hugmynd um þá, annars
hefði jeg vissulega ekki tekið í mál,
að takast það embætti á hendur“.
Um þetta sagði J. p.: „Hreinskiln-
in er sem sagt virðingarverð; en í
þessum ummælum liggur þungur
áfellisdómur, bæði yfir þeirri
stjómartilhögun, sem gerir það
mögulegt að slíkt geti komið fyr-
ir, og yfir þeirri stjórn, þar sem
þetta hefir komið fyrir. Hvaða
fyrirtæki geta staðist á erfiðum
tímum, ef ekki er meiri aðgætsla
höfð um fjárhaginn en svo, að
sjálfir framkvæmdarstjórarnir
vita ekki, hvað honum líður?
Ráðherrann lauk síðan ræðu
sinni á því, að það væru „ummæli
blaðsins „Tíminn“, um fjárstjórn
M. G., sem hafa knúð mig til þess-
ara andsvara. Fleira mætti segja,
en jeg vænti að þetta nægi, til að
minna ritstjóra „Tímans“, háttv.
þingm. Str. (Tr. p.) á það, að óvar-
legt er fyrir þá að kasta grjóti,
sem sjálfir hafast við í glerhúsi,
og að ef blað Framsóknarflokks-
ins vill fara að sópa fjármálagólf-
in, þá er best fyrir það að byrja
innan sinna eigin dyra“.
Eftir þetta tók fyrst til máls
fyrv. fjármálaráðh. Kl. J. og gerði
nokkrar athugasemdir við þau at-
riði í ræðu J. p., sem hann snertu.
Sagði, að tölur þær, sem hann
hefði tilgreint, væru í fullu sam-
ræmi við það, sem ríkisbókhaldið
sýndi um fjárhaginn, en hitt hefði
hann sjálfur bent á, að útkoman
gæti orðið nokkuð mismunandi,
eftir því hverjir. liðir væru reikn-
aðir með tekjuhalla og hverjir
ekki. En af því stafaði munurinn
á tölum sínum og ráðherrans J.
p., en ekki af því, að skýrsla sín
væri röng, enda hefði því ekki ver-
ið haldið fram, að því er til sín
kæmi.
pá tók til máls Tr. þórh. og
veittist að ýmsum atriðum í ræðu
ráðherrans J. p. Sagðist ekki hafa
notað fjármálastjórnarfyrirlestur
hans öðru vísi, en beint lægi við,
þannig s. s. að benda á það, að það
væri núverandi samverkamaður
hans, M. G., sem setið hefði við
fjánnálastjómina það árabil, sem
J. p. sjálfur hefði reiknað út, að
orðið hefði 9 milljón kr. tekjuhalli,
og ætti ráðherrann skilið þakklætí
sem það erindi hjelt. En það, að
J. p. væri nú farinn að bera blak
af M. G., þegar þeir væru orðnir
samverkamenn, sýndi aðeins, að
hann færi eftir gamla sálmavers-
inu: „Lætur hann lögmál byrst,
lemja og hræða, eftir það fer hann
fyrst, að friða’ og græða“. Annars
sagði hann það ekki ætlun sína, að
halda því fram, að M. G. hefði ekki
venjulega talað í sparnaðaráttina,
heldur hinu, að orð hans og gerðir
hefðu ekki ávalt fallið saman.
Sagði einnig, að stjórnin virtist
nokkuð ósamstæð í ýmsum málum.
Fjármálaráðh. J. p. sagði, að
fylsta samræmi væri milli skoðana
allra ráðherranna í öllum þeim
efnum, sem máli skiftu, og það
svo, að slíkt hefði ekki áður verið
um þær þrímenningsstjómir, sem
setið hefðu að völdum og verið
samsteypustjórnir. Og sömuleiðis
væru einstakir ráðherrar í fullu
samræmi við þær skoðanir, sem
þeir hefðu haldið fram áður en
þeir tóku við stjóm, og það, sem
sagt hefði verið í aðra átt, væru
ekki annað en ástæðulausar til-
raunir andófsins til þess, að tor-
)
Yátryggingarfjelagið London
Phoenix og Norwich Union.
IBig-XLiz* yfiz ÍOOO m i-11 inn i r Ik:róna.
Eldsvoðaábyrgð — Sjóvátrygging — Sjó og Stríðsvátryggingar
Líftryggingar — Slysatryggingar og Ellistyrkstryggingar.
Barnatryggingar.
Hár Bonus. — Lág iðgjöld.
1. Hjer með leyfi jeg mjer, virðingarfylst, að vekja athygli á vátrygg-
ingarfjelaginu London, „London Guarantee Accident Co. Ltd.“, sem
er eitt hið öflugasta vátryggingarfjelag í heiminum, stofnað 1869, og
hefir útibú í 30 löndum. Þrjú stærstu fjelög heimsina/: London Phoenix
(stofnað 1782), og Norwieh Union (stofnað 1797), hafa sameinast og
keypt upp 30 fjelög önnur.
London tryggir ódýrast og öruggast fyrir eldsvoða (öll dönsku
fjelögin endurtryggja hjá því). Fjelag þetta tryggir einnig fyrir rekst-
urstapi og hefir glervátrygging, þjófnaðarinnbrotsvátrygging, bifreiða,
bifhjóla, skylduverkamannatrygging, siysatrygging, slysa-, líf- og
sjúkratrygging, óspektatrygging og Garanti-Kapitaltrygging, vatns-
tjónsábyrgð.
Fjelag þetta hefir einnig líftryggingar og sjóvátryggingar sem
hvergi eru ódýrari.
Fjelag þetta er hið þektasta alstaðar þar sem ensk tunga er töluð,
hefir mikla útbreiðslu í Ameríku, og hefir unnið vel á hjer síðan það
byrjaði.
Vátryggið alt, sem þjer þurfið, í þessu fjelagi, vegna þess, að það
er tryggast og ódýrast. Hefir greitt í tjón yfir 15 milliarða 246 milli-
ónir króna.
2. Sjerstakar slysatryggingar í London. London borgar út fyrir
trygðan mann í fjelaginu 50 þús. kr., ef hann deyr af slysum. Við
örkuml trygða alt að 50 þús. kr. og í dagpeninga til sama, meðan
hann er óvinnufær eftir slys, alt að 2 ára tímabili, alt að 50 kr. á dag.
Fjelag þetta hefir útbú á íslandi. Stjórn útbúsins og aðalumboð
hefir
Þorvaldur Pálsson
læknir.
Umboðsmeim óslsia.st.
Tilbúinn áburður:
Chilesaltpjetur, Superfosfat, kemur til okkar seinni hluta þessa
mánaðar; einnig
sáðhafrar,
Gjörið pantanir sem fyrst. Verðið verður hvergi lægra.
Mjólkurfjelag Reykjavíkur.
liandbúnaðaryjelar
höfum við fyrirliggjandi: Plóga, Herfi, Porardælur o. fl. — Verðið
mun lægra en núverandi verksmiðjuverð. Vjelarnar eru til sýnis hjer
á staðnum.
Mj ólkurfj elag Reykj avíkur.
tryggja stjórnina út á við og reyna
að spilla samvinnu hennar inn á
við. En hvorugt myndi hepnast —
allra síst fyrir Tr. þórh. En sá
þingm. beitti aðra menn venjulega
tveimur aðferðum — annaðhvort
að ófrægja þá beinlínis eða viðra
sig upp við þá, og þætti þeim, sem
fyrir yrðu, hvorugt til málsbóta.
Annars hefði Tr. p. í pólitískri bón-
orðssögu undanfarinna ára verið sá
forsmáði biðill og hefði farið ýms-
ar hrakfarir í málamilligöngu sinni
um stjórnarmyndanir. En hann
hefði borið sig illa undan ýmsu
þessu, og gæti þar þó lært stillingu
og karlmensku af sumum flokks-
bræðrum sínum,sem talsvert hefðu
orðið fyrir slíkum hryggbrotum
líka, en afborið þau betur.
Annars snerust deilurnar um
ýms atriði, sem alkunn eru einnig
úr blöðunum og rædd þar, svo
óþarft er að rekja þau nákvæm-
lega. En áheyrendur fylgdu þess-
um skæi*um með athygli, en ann-
ars var oft undir umræðunum fátt
á þingmannabekkjunum, svo að
sumir urðu að tala fyrir því nær
tómum sal, og var þá fundi frest-
að um hríð, en umr. voru friðsam-
ar að mestu það sem eftir var.
--—
Vagnsmíði.
það voru núna í vetur í marts-
mánuði liðin rétt 20 ár frá því, að
Kristinn Jónsson trjesmiður, ætt-
áður frá Hrauni í ölfusi, hóf
kerru- og vagnasmíði hjer í Rvík.
Hann skýrir nú frá, að sá sem
fyrstur pantaði hjá honum vagn
og kerruhjól, hafi verið Sigurður
ráðunautur. Síðan hafi hann ná-
lega á hverju ári útvegað hjá sjer
kerrur og hjól fyrir ýmsa menn
víðsvegar á landinu. Annars hafi
viðskiftin verið mest við bændur
úr Ámessýslu og Rangárvalla-
sýslu. En auk þess hafa flestar eða
allar sýslur landsins aðrar skift
eitthvað við Kristinn, meira og
minna. þannig hafa menn af Aust-
fjörðum, Vestfjörðum og Horn-
ströndum fengið kerrur frá honum.
I tilefni af því, að 20 ár eru síð-
an að Kristinn hóf þetta starf, þá
tilkynti hann oddvitum sýslunefnd-
anna í Ámes- og Rangárvallasýsl-
um 3. des. 1923, að hann ætlaði
sjer að gefa sinn vagninn hvorri
sýslu, með tilheyrandi aktýgjum.
Skyldi sá hljóta gjöfina í hvorri
sýslunni fyrir sig, er sýslunefnd-
irnar teldu að hefði mesta þörf fyr
ir kerruna, og minsta getu til að
útvega sjer þetta tæki. — þessar
gjafakerrur voru af þeirri tegund,
sem ella kosta nú 356 kr. með ak-
týgjum.
Kristinn tekur það fram síðast
í brjefum sínum til sýslumannanna
þar eystra, að þetta beri að skoða
sem þakklætisvott frá sjer til þess-
ara sýslubúa fyrir viðskiftin á
undanfömum árum.
þetta rausnarlega tiltæki hans
er mjög virðingarvert, og öðrum,
er líkt stendur á fyrir, til eftir-
breytni.
Um vagna- og kerrusmíði Krist-
ins er það að öðru leyti að
segja, að hann hefir oft átt erfitt
með að ná í nsígilegt rekstursfje
til fyrirtækisins, sem legir hefir
meðfram í því, að hann hefir orð-
ið að lána mönnum vagnana til
lengri og skemri tímá. Eitt árið t.
d. lánaði hann 68 kermr. En yfir-
leitt segir Kristinn, að menn hafi
reynst skilvísir, þótt stundum hafi
orðið nokkur dráttur á greiðslunni.
Telur hann skilvísi manna við sig
vott þess, að þeir hafi verið ánægð-
ir með viðskiftin.
Kristinn var spurður þess ný-
lega, hvort vegagerð ríkissjóðs
hefði eigi skift við hann eða keypt
af honum kerrur. Svaraði hann
því, að það gæti naumast talist.
Kvaðst hann þó geta selt vagnhjól,
gerð í hans verksmiðju, með sama
verði, og ekki dýrari, en útlendu
hjólin, og ekki lakari að gerð eða
traustleika. Hefði hann stundum,
t. d. árið sem leið, getað selt sín
hjól töluvert ódýrari en hin, jafn-
vel 28 kr. lægra.
Út af þessum ummælum Krist-
ins Jónssonar er rjett að taka það
fram, að ríkissjóður ætti jafnan
að láta menn hjer, að öðru jöfnu,
sitja fyrir viðskiftum, þegar um
innlendan iðnað er að ræða. Og
þetta gildir vitanlega ekki síður
um vagna til vegagerðar en annað.
Um nýár í vetur er leið var Krist-
inn búinn að smíða í þessi 20 ár
2768 kerrur, 978 handvagna, 24
vagna fjórhjólaða og 18 mann-
flutningakerrur eða vagna.
Vagnasmiðju sína er Kristinn að
smábæta og fullkomna. í vetur ljet
hann gera miðstöðvarhitun þar og
útbúnað til að olíusjóða vagnhjól-
in. Við það verða þau endingar-
betri en ella, og munar miklu.
Skal svo eigi meira um þetta
rætt. — En heiður og þökk sje
Kristni Jónssyni vagnasmið fyrir
dugnað hans og framtakssemi í
þessu máli. Með vagnasmiðju sinni
og vagna- og kerrusmíði hefir hann
unnið bændum og búalýð þarft og
gott verk, er ekki verður metið til
fjár.
10. apríl 1924.
Kunnugur.
----o-----
Blaðaútgáfa Dana á íslandi.
ísafold er nú farin að koma út á
ný og á að sendast bændum lands-
ins. Útgefendur eru: Firmaet Nat-
han & Olsen, Brödrene Proppé, C.
Höepfner, Geo Copland, Kjöbmæn-
dene Jensen-Bjærg, Egil Jacobsen
o. s. v.
Enga hina minstu óvild til út-
lendinga, eða Dana sjerstaklega,
hvað þá heldur Danahatur, þarf til
þess, að mönnum finnist það und-
arlegt, að hópur útlendinga, mest
Dana, hjer í bænum, sje að sækj-
ast eftir því, að leggja undir sig
umráð yfir íslenskum blöðum. þótt
ekkert liggi á bak við þetta annað
en hjegómaskapur hlutaðeigandi
manna, þá er það engu að síður at-
hugavert, og aðfinslumar, sem
komið hafa fram gegn þessu í
sumum af blöðunum hjerna, eru á
fullum rökum bygðar. því verður
ekki neitað, að eignarumráðin yfir
Mbrg.bl. og hinni nýstofnuðu ísa-
fold ei-u meira í höndum útlendinga
en innlendra manna, enda hefir
líka útlendum manni tekist að
komast í formannssessinn í útgáfu-
fjelaginu, og það manni, sem eng-
inn mun telja til atkvæðamanna á
nokkru sviði, og enga þekkingu hef
ir á blaðamensku nje blaðaútgáfu.
Enginn efi er á því, að mörgum
mundi finnast það varhugavert, ef
flest eða öll blöð landsins kæmust
í hendur útlendinga, og vel við-
kunnanlegt gæti fæstum þótt það.
Ekki var laust við, að menn
hneyksluðust hjer á því í fyrra, er
Shannong's Monument-Ate-
lier, Öster-Farimagsgade 42,
Khöfn. Stærsta og góðfræg-
asta legsteinasmiðja á Norður-
löndum. Umboðsmaður á Is-
landi:
Snæbjörn Jónsson,
stjórnarráðsritari, Rvík.
danskur maður, nýkominn hingað
til landsins og gersamlega ókunn-
ugur íslenskum högum og atvinnu-
vegum, sótti um bankastjóraem-
bætti við íslandsbanka. En hitt er
engu síður efni til hneykslunar, að
J. Fenger sje falin formenska fyrir
íslenskri blaðaútgáfu, manni sem
alls ekkert hefir til að bera, sem
geri hann hæfan til þess að takast
það verk á hendur.
----o----
Dönsku kosningarnar. Kosning-
arnar til danska þjóðþingsins fóru
fram 11. apríl. Kosnir voru 55
jafnaðarmenn, 20 róttækir vinstri
menn, 44 vinstri menn og 27 hægri
menn. í nýju skeyti um þetta seg-
ir m. a., „Um leið og blaðið „Köben-
havn“ lýsir flokkaskiftingu í þing-
inu eftir kosningarnar, og telur
saman 55 jafnaðarmenn og 20 ger-
bótamenn á móti 44 vinstri mönn-
um og 28 hægri mönnum, — þjóð-
verjinn Schmidt er talinn utan
flokka — fer blaðið svofeldum orð-
um um úrslit kosninganna: „Kosn-
ingaúrslitin verða ekki þýdd nema
á einn veg, sem sje þann, að meiri
hluti kjósenda vilji láta jafnaðar-
menn fara með völdin. Afleiðing
kosninganna hlýtur að verða sú, að
Staúning myndi ráðuneyti og
vinstri menn verði andófsflokkur
framvegis“. „Socialdemokraten“ og
„Nationaltidende“ eru sammála
um, að ráðuneyti Neergaards verði
að segja af sjer og undirstrykar
„Socialdemokraten“ í því sam-
bandi, að jafnaðarmenn sjeu
stærsti þingflokkurinn. Hvað við-
víkur því, að Stauning myndi
stjórn, skrifar „Politiken“, að hver
sem taki við völdum, muni gerbóta-
flokkurinn standa fast við þá
stefnu, sem hann barðist fyrir við
kosningamar, nefnilega umbóta-
stefnu, en ekki jafnaðarstefnu.
Muni flokkurinn standa fast við þá
kröfu, að hafist sje handa til þess
að reisa við aftur fjárhag landsins.
Nefna má það í sambandi við úr-
slit kosninganna, að kommúnistar
höfðu fengið 17000 undirskriftir
undir framboðstilkynningu sína,
eins og skylt er til þess að full-
nægja ákvæðum kosningalaganna,
en við kosningarnar fengu þeir
ekki nema 6204 atkvæði.
——o------
Verkfall var hjer í bænum um
tíma 12. þ. m., við hafnarvinnu.
Verkamannafjelagið krafðist kr.
1,40 í tímakaup, í stað kr. 1,20 áð-
ur, en vinnuveitendur vildu greiða
kr. 1,30. Nokkrar skærur urðu á
hafnarbakkanum og varð lögregl-
an að skerast í leikinn. Málið er
sagt óútkljáð enn til fullnustu, en
vinnu haldið áfram með því kaupi,
sem verkamenn kröfðust.
Skipstrand. Fyrir skömmu strand
aði færeyskt skip, sem „Anna“
hjet, suður í Grindavík og fórust
allir mennimir, sem á því voru, 17
manns. 9 lík rak upp og voru þau
flutt hingað og jörðuð hjer á
föstudaginn var. Fjöldi Færeyinga
var hjer við jarðarförina og bæjar-
búar ljetu hluttekningu sína í ljósi
með því að fjölmenna einnig og
skreyta kisturnar blómsveigum.
Sjera Bjarni Jónsson talaði í kirkj-
unni, en færeyskur trúboði, Alfred
Petersen, við gröfina.
Ýmsar greinar, sem áttu að
koma í þessu blaði, s. s. frá þing-
inu, um fjárhaginn, um bókmentir
o. fl., verða að bíða næsta blaðs
vegna þrengsla.
Prentsmiðjan Acta.