Lögrétta - 16.09.1924, Blaðsíða 3
LÖGRJETTA
8
STRANDWOLD & DÚASON
SÍMNEFNI: DÚASON. ADMIRALGADE 21.
KÖBENHAVN K.
Selja í umboðssölu allar íslenskar afurðir
fyrir hæsta verð. Útyega allar erleudar vörur.
að draga úr áhrifum greinarinn-
ar. Gerir hann þetta að vissu leyti
á skáldlega vísu, en útkoman verð-
ur nokkuð brosleg. Að hann talar
um Júdasarbrag á grein minni,
stafar víst af því, að í sambandi
við sjálfan sig dettur honum
meistarinn í hug, eins og Sölva
Helgasyni forðum.
þótt grein mín kæmi í Tíman-
um, sem reyndar aldrei var mín
meining, vænti jeg að enginn taki
þar fyrir minna mark á henni,
enda var hún allri pólitík óviðkom-
andi. Annars ætti Garðar að fara
að sjá það, að verslunarmál og
stjórnmál eru svo óskyld mál, að
vígi hans í sjerstökum stjómmála-
flokki verður honum ekki einhlítt
í verslunarsökum, þótt hann hing-
að til hafi haldið þar dauðahaldi
og burstað sig óspart upp úr
pólitík.
Að hinu leytinu virðist aðal-
stjórnmálaflokkum landsins það í
alla staði ósámboðið, að sameina
sig svo verslunarmálum sem nú
er. Öll atvinnumál og framleiðsla
eiga heimtingu á stjórnarfarsleg-
um stuðningi,án tillits til þess,hver
í hlut á, og giftusamlegra mundi
hinum nýja íhaldsflokki að hafa
ekki fjelag við neinn sjerstakan
atvinnuflokk og blöð sín óháð. Að
í aðalstj órnmálablöðunum kenni t.
d. áhrifa frá öðrum eins manni og
Garðari, virðist sjerhverri lands-
stjórn ósamboðið og óheillavæn-
legt.
Jeg vænti að lokum, að Garðar
sýni þolinmæði, þótt svo iengi
hafi dregist með svar mitt, sem
stafar af fjarlægðinni', og því, að
annað þarfara er að starfa, sem
situr í fyrirrúmi.
Flögu 30. ág. 1924.
Magnús Stefánsson.
---o----
Heilbrigðismál.
Frh. II.
B. Hjá pjóðverjum.
I. Mánaðarnámsskeið fyrir mæður,
haldið á hinu stóra bamasjúkrahúsi
Augusta Victoria í Berlín, 4 sinnum á
ári. Fyrirlestur 4 sinnum ó viku, l1/3
klukkustund í einu.
1. Skýrt fyrir mæðrum, hverja þýð-
ingu ungbarnadauði hefir fyrir þjóð-
ina í lieild sinni og fyrir hvern ein-
stakling, sýnt fram á, hvernig afstýra
má ungbamadauða. -Brýnt fyrir rnæðr-
unum að eiga hlut að því, að sem flest
ar mæður sæki slík námsskeið eða leiti
sjer á annan hátt nauðsynlegrar
fræðslu í þessum efnum.
2. Lýsing á nýfæddu barni, þörfum
þess og hverníg þeim verður best full-
nægt. Sýnd með tölum hæfileg fram-
för barna. Heilbrigðiseinkenni. þyngd
barna (tölur, töflur).
3. Almenn heilsufræðisleg grundvall-
aratxlði. Smitleysiskenningin(aseptik)
útlistuð.
4. Hirðing ungbarna. Laug. þrif al-
ment; skift á barni og undir því (að-
ferðin sýnd); barnaduft; klæðnaður;
bai’nsrýjurnar; rúm barna; herbergið
sem þau eru í (lýst hvernig æskilegast
sje), sýnt hvei’nig á að halda á barni,
taka það upp, ganga með það; skýrt
hvenær má fara að æfa það á að
standa, ganga með, ganga áfram.
5. Skýi't hvemig farið er að venja
börn snemma á hreinlæti, venja þaú á
reglulegar máltiðir o. s. frv.
6. Ilirðing ungbarna alment. Skýrt
fyrir mæðrunum i hverju hún er frá-
brugðin hirðing á eldri börnum.
7. Kent hvernig fara ber með börn
sem fædd eru fyrir tíma.
8. Næring ungbama. Skýrt fyrir
mæðrunum hversu afai’mikla þýðingu
það hafi að hafa börn á brjósti, —
hversu mikill munur sje ó dauðatölu
pelabama og brjóstbarna, og að brjóst-
börnunum sje síður kvillasamt en pela
börnunum. þetta er sýnt með tölum og
töfium. Hverju sætir það, að konui'
þykjast ekki geta iiaft börn sín ó
brjósti. — Vantar mjólk í konur? Hvað
getur valdið því, að mæður geta ekki
með nokkru móti haft böm sín á
brjósti þá sjaldan það kemur fyrir?
Sýnt hvernig leggja skuli barn á
brjóst.
9. Hirðing konubrjósta, og ýmislegt
nánar um það, hvernig börn em lögð
á brjóst, holubrjóst, litlar geirvörtur o.
s. frv. (alt sýnt).
10. Börn vanin af brjósti. Ilvenær?
hvernig? og margt fleira um þessi
efni.
11. Peli gefinn ásamt brjóstinu þeg-
ar svo ber undir (móðirin í vinnu-
stundum fjarri heimili sinu o. fl.
þessh.).
12. Aukamatur fyrir ungbarnið.
13. Barnfóstrui’. Börn lögð á brjóst
annara kvenna en mæðra, —- hverjar
sjerstakar ástæður geta verið til þess.
þetta skýrt frá sjónarmiði siðfræðinn-
ar (móðurástin, sem barnið fer á mis
við að einliverju eða rniklu leyti) og
írá læknisfræðilegu sjónai’miði.
14. Gerfifæðsla ungbarna. Meðferð
kúamjóikur (i mjólkursölubúðum og
í heimahúsum (geymsla o. fl.). þrif á
kúm, fjósi, mjaltakonum, mjólkurílát-
_um o. s. frv. Soxhlet suðuáliald sýnt og
hvernig það er notað. Pelinn. Totur.
Hvernig peli er gefinn. Blöndun mjólk
ur og hve mikið er gcfið i einu. Einföld-
ustu mjólkurblöndur. Hugtökin mál og
vog skýið. — Hvað kemst barnið af
með minsta fæðu?
Hálfsmánaðar.
II. Námsskeið i ungbarnahii’ðingu
og hjúkrun ungbarna. Haldin út um
sveitirnar af umferðakenslukonu, sem
er útlærð hjúkrunarkona og lokið hef-
ir sjerstöku nómsprófi í ungbarna-
hjúki’un; kent síðari hluta dags að af-
lokinni vinnu, nokkrar kl.stundir á
kvöldi. (Tekið úr Zeitschr. f. Sáug-
lingsschutz, III. 3. h.).
1. Rúm ungbarnsins og klæðnaður.
a. rúmið, lýst rúmstæðinu, t. d.
körfubarnarúmi, — og hverju einasta
plaggi fyrir sig, lýst ýmislegum gerð-
um á undii’dýnum og koddum, sýnt
að þetta má búa til hvorttveggja svo
að segja á hverju einasta heimili án
tilfinnanlegs kostnaðai'. Sýnt fram á
skaðræði af þungum fiðursængum;
brýnt fyrir mæðrunum og námsmeyj-
unum hve nauðsynlegt sje að halda
rúmfatnaði barna vel hreinum og
viðra hann helst daglega.
b. Klæðnaður ungbarna; lýst hverri
spjör og sýnt hverskonar efni sje hent-
ugast i livert plagg; sýnt fram á að
reifar eru óhæfir.
Æfingar: námsmeyjarnar látnar búa
um rúm fyrir ungbörn; látnar sniða
efni í dýnur og búa þær til að öllu
leyti.
2. Laugin. Lýst nauðsyn á daglegum
laugum, sýnt hvað til þurfi og hvern-
ig og með hverju þurka skuli barns-
kroppinn á eftir. Hitinn ó laugarvatn-
inu. Skaðlegt að þvo munn barnsins
innan.
Æfing: búið til laugar, barn laugað,
þurkað, klætt. —
3. Skift á barni. Lýst vandlega hör-
undinu og starfsemi þess, sjerstaklega
lýst barnshörundi; minst á stráduft
og fituábruði, hvenær hafa skuli, og
hverskonar og hvernig nota.
Æfingar: námskonurnar lótnar
sýsla alt þetta fyrir augum kennarans,
og svo klæða barnið.
4. Almenn hirðing á ungbarni. Nauð-
syn á að vei’ja bai’nið ofkælingu, —
snöggum umskiftum hita og kulda.
Hitaflöskui’. Naflahirðing og umbúð-
ir. Hirðing ó augum.
Æfingar: búið um nafla á barni,
sniðin ungbarnaföt öll.
5. Næi’ing ungbarna. Brjóstamjólkin,
yfirburðir hennar yfir pelann, í fyrsta
lagi fyrir barnið og í öðru lagi fyrir
móðurina. Lýst hve miklu meii'a mót-
stöðuafl brjóstbörn hafa gegn öllum
sjúkdómum heldur en pelabörn. Lýst
ýmsum varúðarreglum fyrir vanfær-
ar konur. Hirðing ó brjóstum.
Æfingar: endruteknar allar fyrri æf-
ingar: búið upp rúm, barn laugað,
klætt o. s. frv.
6. Næring ungbarna (framh.). Hve
oft þai’f barn að fá að drekka? Bam
viktað (kend aðferðin). Brýnt fyrir
námsmeyjunum að halda ríkt á reglu-
bundnum máltíðum. Á hverju á kona
að nærast sem hefir barn á brjósti?
Æfingar. Viktun ungbarna. Sniðin
og saurnuð ungbarnaföt.
7. Gerfifæða. Sýnt fram á, hversu öll
gerfifæða getur valdið sjúkdómum og
dauða þeirra ungbarna, sem eru svo
óheppin að geta ekki notið móður-
mjólkui’innar. í stað móðurmjólkur
(þegar hún ekki fæst) má nota dýra-
mjólk, kúa-, geita-, kapla.
Æfingar: sýnishorn af mjólk ýmis-
lega tilhafðri, úr þessum skepnum, og
konumjólk; mismunur á konu- og
skepnumjólk, fitumagn o. f 1., kent að
þekkja góða mjólk, hreina, með hæfi-
legu fitumagni. Mjólk hituð og blönd-
uð.
8. Gerfifæða (frh.). Enn æfingar í
blöndun mjólkur, sagt og sýnt hvað
láta á í blandið, og hve mikið af
hverju. Sýnt Soxhlets-áhald, peli, tota.
Æfingar: sýnd og skýrð aðferðin til
að nota Saxhlets-áhald, Námsmeyjar
látnar búa til barnsmjólk með áhaldi
þessu, látnar blanda mjólkina sjálfar
o. s. frv. Kend þrif á barnspela og totu,
sýnt hvernig þetta er geymt (milli þess
sem það er notað).
9. Gertifæða enn (frh.). Barnið fer
að fá ábæti, — fasta fæðu (ávaxta-
safa, gi'ænmeti, bygggrjónaseyði o. fl.
þessh., grauta). Barn vanið af brjósti.
Æfingar: tilbúningur á ýmiskonar
grænmetisfæðu fyrir ungbörn, ávaxta-
safa og mauki og þessh., tilbúningur
á bygggrjónaseyði o. s. frv. Fyrri æf-
ingar allar endurteknar, barn laugað,
klætt, viktað o. s. frv.
10. Fæða bams á 2. ári; saminn mat-
arseðill fyrir daginn, mai’gvíslega sam-
settíir. Brýnt fyrir nemendum skað-
semi áfengis, kaffis, tes o. þessh. Hvað
á barn að þyngjast á 2 fyrstu aldurs-
árunum?
Æfingar: nemendur látnir sjóða
hafragraut og ýmsa aðra grauta. End-
urteknar allar fyrri æfingar.
11. Vöxtur barns á 2 fyrstu aldurs-
árunum. Melting; tanntaka; „prettur-
inn“ (pretta-totan).Bólusetning. Ámint
um að gera lækni aðvart ef eitthvað
ber út af. Meðferð á barninu þangað
til læknir kemur til. Harðlifi barna og
hægðaleysi, niðurgangur, sagt fyrir
um hvað gera skuli þegar þetta kem-
ur fyrir.
Æfingar: hvernig eru lagðir á kald-
ir bakstrar, heitir bakstrar? Endur-
teknar allar fyrri æfingar.
12. Vöxtur barns á 2 fyrstu árunum
(frh.). Jiarf að ganga um gólf með
börn, kveða við þau, hampa þeim,
rugga þeim? Áhrif ljelegra híbýla á
heilsu bamsins. — Nauðsynin á því
að venja börn þegar frá fyrstu tíð á
regiulegar máltíðir, reglulegar hægðir
o. s. frv. („að segja til“). Fyrsta leik-
fangið.
Æfingar: endurteknar allar fyrri æf-
ingar, þangað til hver einasti nem-
andi er búinn að ná leikni í hverju
einasta handtaki við alt, sem kent hef-
ir verið. Búið til eitthvert einfalt og
óbrotið leikfang. —
Fleiri „tíma-töflur“ eru til yfir
kenslutilhögun í þessum efnum, en
flestar svipaðar þessum. Frh.
Gamall læknir.
----o----
Garðyrkjusýning.
Garðyrkj ufj elag landsins gekst
fyrir því, að haldin var garðyrkju-
sýning í Reykjavík dagana 30. og
31. ágúst. Bæjarstjóm styrkti sýn-
inguna með því að lána húsrúm
fyrir hana endurgjaldslaust í
B arnaskólanum.
Sýnendur voru alls 36, af þeim
voru 33 úr Reykjavík, 1 úr Mos-
fellssveit, frá Reykjum, og 2 úr
Khöfn, er sýndu hjer verkfæri
ýmiskonar og áhöld, voru það
Köbenhavns Havefröforsyning og
hlutafjelagið L. Dahnfeldt & Theo-
dor Jensen.
Sýnendatalan skiftist þannig:
6 sýndu verkfæri, 25 sýndu blóm-
jurtir, 14 sýndu matjurtir og 1
komtegund (bygg), er hjer hafðl
vaxið í sumar. Af þessum 46 sýndu
10 í fleiri en einum flokki.
Mesta athygli vakti blómasýn-
ingin, enda var þar mjög mikið úr-
val garðblóma. Menn dáðust einna
mest að antirrhinum, leokoj, aster,
lúpinum og ekki síst klukkublómi
(campanula medium), er nú, á
öðru ári, var mjög stórvaxið, al-
þakið bláum blómum. það var auð-
sjeð á öllu, að blómræktin hafði
lánast vel í sumar og að fallegir
garðar eru hjer í bænum miklu
fleiri og fjölskrúðugri en almenn-
ingur veit um.
Meðal matjurtanna bar mest á
blómkálinu. Stór og myndarleg
höfuð frá 6 sýnendum. Gróðrar-
stöðin í Reykjavík sýndi, auk
blómkáls, gott safn af kartöfluaf-
brigðum og rófum. Frá Reykjum
í Mosfellssveit voru margar teg-
undir matjurta. það er hitinn í
jarðveginum, sem hjálpar þar upp
á sakimar. þaðan voru grænar
ertur fullvaxnar og hnúðkál,
Wienerglas, blátt (yfirjarðar kál-
rabi) um D/4 kg. að þyngd; auk
þess steinseljurætur og pastinak-
lands og Englendingar til Frakklands o. fl.
0. fl., eins og alkunnugt er.
En alt þetta sýnir nú það, að þessi
mentamannaskifti milli þjóðanna eru eng-
anveginn við það bundin, að skólaskortur
sje hjá þeirri þjóðinni, sem burt sendir
mennina, eða að mentun hennar sje að öllu
ómerkari eða máttarminni en hinna.
Skiftin eru ekki til þess, að ein þjóðin
geti sparað sjer skólahald á kostnað ann-
arar, og lagst í öskustó aðgerðaleysisins,
heldur til þess að halda vakandi frjósömu
samstarfi þjóðanna í menningunni og gefa
einstaklingum færi á aukinni útsýn ann-
arsvegar — og hinsvegar til þess að halda
við heilbrigðri kepni milli skólanna á því
eða þeim sviðum, sem þeir geta eða vilja
helst starfa hver um sig. Að því er til ís-
lands kemur sjerstaklega, mundi þetta að
sjálfsögðu koma fram á þann hátt, að
hjeðan yrði að senda menn til margvíslegs
náms að öllu leyti, sem ekki væri kostur
að halda hjer neitt uppi í fyrirsjáanlegri
framtíð, og að senda menn til aukinnar
reynslu í ýmsum öðrum greinum, sem þó
eru hjer til, eftir því sem efni leyfa, og
eins og tíðkast með öðrum þjóðum, þó
stærri sjeu. Hinsvegar ætti það líka að
koma fram þannig, að háskólinn hjer yrði
efldur svo, að hann gæti öðlast forustu í
sinni sjergrein gagnvart öðrum skólum er-
lendis. Og sú sjergrein á auðvitað að vera
íslensk þjóðfræði — en það er grein, sem
víða snertir meira eða minna öll germönsk
fræði eða norræn. Allir þeir útlendingar,
sem vilja verða vel að sjer í þeim, þurfa
oftast einhverja þekkingu íslenskra þjóð-
fræða. þá þekkingu á hvergi að vera betra
að fá en á íslandi sjálfu. Reynslan sýnir
það líka, að ýmsir erlendir stúdentar hafa
þegar leitað hingað í þessum efnum (einir
10—12 frá 5 þjóðum) og mundi verða enn-
þá meira, ef viðkomandi deild yrði komið
í betra horf en nú er. íslenski háskólinn
þarf því alls ekki að vera einungis þiggj-
andi, heldur einnig gefandi.
I þessu sambandi þarf ekki að rekja nán-
ar sklpulag íslenskra utanferða í einstökum
um atriðum, en ætlunin að koma að því
seinna sj erstaklega. Hjer má þó geta þess,
að fyrir stúdentum vel flestum vakti það
eftir stofnun háskólans og einkum kring-
um 1918, að skipulagsbundnar utanferðir
gætu haldist, bæði meðal stúdenta og
kandídata, þannig, að sem flestir gætu
jafnframt heimanámi sínu, stundað nám á
góðum stöðum erlendis, með framlagi af
opinberu fje (og með stúdentaskiftum).
En stúdentar hafa ávalt verið þeirrar
skoðunar, að þeir ættu sanngirniskröfu til
slíks fjár, til uppbótar fyrir Garðstyrkinn.
þessu varð þó ekki þannig fyrir komið, því
bæði háskóla- og mentaskólakennarar voru
andvígir utanförum stúdenta af ýmsum
ástæðum,- og var því utanfararstyrkurinn
gerður að kandídatastyrk eingöngu og tal-
ið, að hann kæmi þá að betri notum. Verð-
ur það ekki rökrætt meira á þessum stað.
Hjer hefir aðeins átt að benda á það,
að utanferðirnar og heimaskólarnir þurfa
á engan hátt að rekast neitt á. Utanferð-
irnar einar geta, úr því sem orðið er, ekki
komið í skólanna (eða í þessu tilfelli, há-
skólans) stað eða útilokað nauðsyn hans.
Spurningin er því eftir sem áður sú, hvern-
ig háskólanum verði haganlegast fyrir
komið. Og hana verður því að athuga sjer-
staklega og svara henni, án þess að af-
staðan til utanferðanna eða erlendra
áhrifa og sambanda komi þar frekar við
sögu en þegar hefir verið rakið. Hvoru-
tveggja þarf að haldast í hendur. ,
því verður heldur ekki andmælt með
sanngirni, að utanfarir og erlend áhrif
hafi haft margvíslegt og frjósamt gildi
fyrir íslenska menningu. þó tala menn,
eins og að líkindum lætur, nokkuð af yfir-
borðsskoðun um þessi efni, því nákvæm
söguleg eða menningarsálfræðileg rann-
sókn á þessu hefir ekki enn verið reynd að
ráði. En það er þó eftirtektarvert um þessi
aðkomuáhrif, að þegar til lengdar ljet gátu
þau aldrei rofið til fulls það innlenda þró-
unarsamband, sem fyrir var í þjóðlífinu,
— þau voru feld inn í þá menningu, sem
til var. Tilgangur samskiftanna við erlent
menningarlíf var ekki eyðing þess inn-
lenda, heldur efling þess og endurnýj-
ung á gömlum grundvelli í nýjum anda.
því íslensk menning hefir lifað á því
ekki síst, að hún var íhaldssöm menning,
án þess að vera afturhaldssöm, einangrun-
argjörn eða þröngsýn, bæði að því er snert-
ir innlenda og erlendra nýbreytni (sbr.
um þetta Isl. endurreisn bls. 10—11).
þetta kemur líka fram í skóla- og menta-
málunum, ekki einungis um þróunina inn-
anlands, eins og fyr segir, heldur líka um
afstöðu utanferðanna. þeim var ekki ætlað
að veikja sambandið sem fyrir var
heima, heldur styrkja það. þrátt fyrir all-
ar utanfarir og erlend áhrif, — sem vafa-
laust hafa oft orðið einstaklingunum góð-
ur skóli, — náði þessi erlenda skólamenn-
ing aldrei þeim tökum á Islendingum, sem
hún náði á öðrum Norðurlandaþjóðum.
þeir höfðu vald á henni, en hún ekki vald
á þeim. þess vegna gerðist það merkilega
fyrirbrigði, að mitt í öldufalli hins öflug-
asta heimsmáls, latínunnar, hófu menn á
íslandi að rita á norrænu máli. þess-
vegna varð ritöld Islendinga þjóðleg öld
og sjálfstæð, en ekki latneskur útvöxtur.
þess vegna gat hún líka orðið starfandi
kraftur í lífsbaráttu eftirkomendanna,
máttur til að halda lífi þeirra logandi og
von þeirra vakandi. þess vegna hefir hún
líka getað orðið yngingarlaug öðrum þjóð-
um. Mönnum getur að vísu stundum hætt
við því,eins og skiljanlegt er,að láta tilfinn-
ingarnar einar ráða nokkuð dómum sínum
í þessum efnum, og er ekki alt á marga
fiska,sem menn bera þá oft á borð. En auð-
vitað eiga þó tilfinningamar sinn rjett á
sjer líka í þessu sambandi. En hvað svo
sem þeim líður, geta menn að öðru leyti