Lögrétta - 11.11.1924, Qupperneq 1
Innlieinita og afgreiðsla
í Veltusundi 3
Sími 178.
Útgefandi og ritstjóri
Þorsteinn Oíslason
Þingholtsstræti 17.
XIX. ár.
Lögrjetta.
Kaupendur Lögrjettu, sem ekki
hafa enn greitt andvirði blaðsins,
eru vinsamlega mintir á, að gera
það sem fyrst, ekki síst þeir, sem
skulda fyrir fiei ri ár.
Lögr. liefir áður gefið skilvísum
kaupendum kaupbætir l'imta hvert
ár, og hafa það þá verið verð-
mætar og góðar bækur. Nú verð-
ur hún 20 ára í lok næsta árs,
og rnega þá skuldlausir kaupend-
ur hennar vænta kaupbætis, er
þeir borga næsta árgang. Verður
það nánar auglýst á sínum tíma.
Innan skams mun byrja í blað-
iuu mjög góð saga.
Umvtia vsrolá.
Ihaldsstjórnin enska.
Símfregnirnar segja nú, að nýja
enska íhaldsstjórnin sje um það
bil fullmynduð. Forsætisráðherra
er Stanley Baldwin, leiðtogi
flokksins, sá sem var forsætisráð-
herra á undan Mac Donald. Hann
er fæddur 1867, stundaði háskóla-
nám í Cambridge, hefir verið þing-
maður frá 1908 og í fjármálaráðu-
neytinu var hann 1917. Hann er
stóreignam.,náskyldur skáldinu R.
Kipling. — Utanríkisráðherra er
Austin Chamberlain, f. 1863, son-
ur Joseph Chamberlain, hins
kunnasta stjórnmálamanns á
sinni tíð. Hann varð þingmaður
1892 og hefir oft áður átt sæti í
ráðuneyti, og fengist þar við fjár-
mál, flotamál, póstmál og Ind-
landsmál, en dró sig út úr þeim
störfum 1917. En 1918 tók hann
aftur sæti í samsteypustjórninni
og 1919 varð hann fjármálaráð-
herra. Hann hefir undanfarið ver-
ið annar aðalleiðtogi íhaldsmanna
í neðri málstofunni, ásamt Bald-
win. — Fjármálaráðherra er Win-
ston Churchill, f. 1874, sonur
Randolp Ch. lávarðar, alkunnugs
stjórnmálamanns, eins af sonum
hins sjöunda hertoga af Malbo-
rough.Að loknum háskólaárum sín
um gekk hann í herinn, en þingm.
varð hann 1895 og taldist til
íhaldsflokksins, en hefir löngum
þótt nokkuð óstöðugur í flokks-
fylgi, en dugnaðarmaður, mælskur
og harðsnúinn. 1904 gekk hann í
frjálslynda flokkinn og var í hon-
um til skamms tíma. Á síðkastið
hefir hann verið utanflokka, en
einn aðaltalsmaður þess, að ný
flokkaskipan kæmist á, þannig að
einungis væru til tveir flokkar,
jafnaðarmenn og andstæðingar
þeirra. Bauð hann sig um skeið
fram sem óháðan jafnaðarstefnu
andstæðing. Hann hefir átt sæti í
ráðuneytum ýmsum frá því 1905,
þá varð hann aðstoðarráðherra
nýlendumála hjá Campell Banner-
mann, síðan innanríkisráðherra
hjá Asquith 1910, síðan flotamála-
ráðherra frá 1911, en fór frá á
stríðsárunum (1915) eftir deilurn
ar um Dardanella-málin, en 1917
fór hann aftur í stjómina, og var
hergagnaráðherra hjá Lloyd Ge-
orge og árið eftir varð hann her-
málaráðherra. Hann hefir einnig
skrifað allmikið, var lengi við
blaðamensku, einkum annálaður
stríðs-frjettaritari, hefir einnig
skrifað ferðabækur, skáldsögu og
svo stóra æfisögu föður síns. —
Lord-kanslari er Curzon jarl, f.
1859. Hann var utanríkisráðherra
í síðasta íhaldsráðuneytinu, en er
Reykjavík. þriðjudaginn 11. uóv. 1924.
annars kunnastur fyrir afskifti
sín af Indlandsmálum. Hann varð
aðstoðar-ráðherra Indlandsmála
1891, og varakonungur á Indlandi
1899—1905. Áður hafði hann ver-
ið utanríkisráðherra frá 1895—
98. Frá því 1910 varð hann leið-
togi íhaldsmanna í lávarðadeild-
inni. Hann hefir einnig verið
kanslari háskólans í Oxford. Hann
hefir fengist allmikið við ritstörf
og skrifað bækur um Asíu-mál og |
önnur stjórnmál og um skólamál. j
Hann varð jarl 1911. — Indlands- j
ráðherra er Birkenhead lávarður
(áður Fr. Edwin Smith), f. 1872.
Hann er lögfræðingur og hefir
skrifað fræg rit um þjóðarjett o.
fl. efni. Hann varð þingmaður
1906, lögfræði-ráðherra og sak-
sóknari ríkisins (attourney-gene-
ral) 1915—19, og síðan lord-kansl-
ari. Hann var m. a. all-umsvifa-
mikill í írsku deilunum 1914, og
andstæður heimastjóminni. Hann
er sagður meðal bestu ræðu-
manna.. — Annara ráðherra er
ekki getið í hinni nýju stjórn, enda
eru þetta helstu embættin. Um
hina helstu fráfarandi ráðherra
var grein hjer í blaðinu, þegar þeir
tóku við stjórninni.
Niels Bohr.
Lögrj. hefir nokkrum sinnum
áður sagt frá ýmsum nýjum upp-
götvunum eða kenningum í nátt-
úruvísindum, þeim, sem sæmilega
auðskýrðar eru öllum almenningi.
M. a. hefir verið vikið að rann-
sóknum eðlisfræðinganna Ein-
steins og Bohr’s, hvors á sínu
sviði. — Niels Bohr er prófessor í
stærðfræðil. eðlisfræði í Kaup-
mannahöfn (f. 1885), en hafði
áður starfað m. a. í Manchester
hjá Rutherford. Hann varð heims-
frægur maður fyrir athuganir sín-
ar um byggingu atomsins aðal-
lega. — Nýlega hefir prófessorinn
í fyrirlestri skýrt frá nýjum rann-
sóknum, sem hann hafi gert um
eðli ljóssins og orkunnar, og hafa
þær vakið mikla athygli, þó ekki
sje talið svo, sem kenningar hans
sieu fullprófaðar ennþá.
Meginkenningarnar um eðli
ljóssins, eru emissions-kenningin
svonefnda, sú, að ljósið stafi frá
sjálflýsandi smáögnum, og Ijós-
áhrifin komi fram þegar þessar
agnir komi við nethimnu augans.
þessi skoðun stafar frá Newton.
önnur kenningin er bylgju-kenn-
ingin svonefnda, og stafar hún frá
lluygens. En samkvæmt henni er
ljósið bylgjuhreyfing í æternum,
ljósvakanum. Almennasta skoðun-
m var þó sú, sem Maxwell setti
íram 1873, að ljósið væri að vísu
bylgjuhreyfing, en ekki „mekan-
isk“, heldur rafsegulmagnsöldur.
1905 kom svo Einstein fram með
sína skoðun, sem að sumu leyti
nálgaðist aftur kenningu New-
tons, því hann álítur Ijósið vera
rafmagnskendar smáagnir. En
Bohr telur ljósið aðeins bylgju-
hreyfingar. Rannsóknir hans á
þessu efni hafa einnig orðið til
þess að vekja hjá honum nýja
kenningu um eðli orkunnar (ener-
gien), þar sem hann telur nú, að
orkumagnið geti bæði aukist og
minkað, orkan sje bæði að skapast
og að deyja. En annars er sú skoð-
un ríkjandi, kend við Rob. Mayer,
að orkumagnið sje óbreytilegt í
heiminum, þó orkumyndimar geti
skiftst á. Á þessari áðurnefndu
skoðun er líka Einstein. (Um ork-
una geta menn t. d. lesið nokkuð í
Sálarfræði dr. Á. H. B.). Ef þess-
ar skoðanir Bohr’s ná fótfestu,
bylta þær til allri efnjs-heims-
mynd vísindanna.
Síðustu símfregnir.
Frá Madrid er símað, að lýð-
veldissinnar hafi gert þar uppreisn
gegn de Rivera stjóminni og hafi
slegið í blóðuga bardaga. — I
Italíu er sagt að andstæðingum
fascismans vaxi stöðugt fylgi. Hef
ir Mussolini bannað alla stjórn-
málafundi fyrst um sinn. — Frá
Vínarborg er símað, að ráðuneyti
prelátans Seipel hafi beiðst lausn-
ar vegna verkfalla út af launa-
kröfum. Segir stjórnin, að launa-
hækkanirnar, sem fram á sje far-
ið, muni hafa það í för með sjer, að
tillögur hennar til fjárhagsbóta
ríkisins verði árangurslausar. —
Frá París er símað, að Millerand
fyrrum forseti hafi stofnað nýjan
stjórnmálaflokk, sem nefndur sje
samband þjóðlegra lýðveldissinna,
og er andvígur Herriot-stjórn-
inni, enda sambræðsla úr hinum
gömlu andstöðuflokkum hans. —
Ýms stórfljót í Vestur-Evrópu
eru í miklum vexti, svo sem Rín,
Signa og fleiri ár í Frakklandi,
þýskalandi og Belgíu. Hafa mikl-
ar skemdir orðið, einkum á Rínar-
bökkum.
_ .. O--;-
(16.—22. júlí 1924).
Eftir Gunnar Árnason frá Skútu-
stöðum.
------- Niðurl.
Kl. l01/> viðhafnarmikil guðs-
þjónusta í dómkirkjunni. Gled-
ítsch biskup prjedikaði og lagði út
af Jóh. 1. 29: Sjá guðslambið, er
ber synd heimsins. — Var sú ræða
að nokkru hliðstæð og þó gagn-
stæð tölu Marstrander kvöldið
áður. — Að vísu þarf einn að
drotna, en hitt er engu síður nauð-
synlegt, að einhver beri byrðam-
ar. Sá herrann er mestur, sem er
allra þjónn. Og til þjónustu eru
allir kallaðir. Undan þeirri skyldu
ættu menn síst að færast, því hún
er æðsta dygðin. —
Eftir messu gengu Finnarnir,
Svíarnir og Danimir, sínir að
hverju sjúkrahúsinu í Niðarósi og
sungu þar eina klst. fyrir fram-
an.
En mestum hluta dagsins var
varið til að skoða ýmsa staði í ná-
grenninu, t. d. Leirfossinn, smá-
foss einn fyrir ofan bæinn — og
svo Munkholmen, þar m. a.
Griffenfeldt var hafður í haldi.
Sjást þess nú engin merki, meira
að segja búið að brjóta rúðuna,
sem hann reit vísuna á. En fangels
ið stendur enn, þó mikið breytt og
viðgert.
Kl. 8 e., h. hófst altarisgöngu-
guðsþjónusta í dómkirkjunni.
Ole C. Iversen dómprófastur í
Björgvin, hjelt ræðuna.
Komið allir! — við borð drottins
er aldrei of þröngt skipað og það-
an er engum vísað. Hver sem þú
ert — ungur eða gamall, auðugur
eða fátækur, sæll eða vansæll —
jöfn er þörf þín fyrir að neyta af
því, og þú munt mettur verða.
Komið allir — heldur ekki hið
ytra bolar nokkrum frá — mjer
liggur við að segja — komdu líka,
hvernig sem þú ert. Drottinn býð-
ur þjer ekki síður þó þú sjert synd
ugri en hinir, hann kallar á þig, þó
þú eigir bágt — jafnvel ómögulegt
með að trúa á helgi, hvað þá lífs-
gildi þessarar máltíðar.---------
Láttu því ekkert aftra þjer. í
þegar jeg var í fyrsta skifti til
altaris, fyrir tilmæli vinar míns,
svona rjett til að vera með honum,
beit jeg í oblátuna, þegar prestur-
inn sagði: „þetta er líkami
Krists“, og hugsaði — það er það
ekki. Fyrst löngu síðar komst jeg
að raun um, að þessi kvöldmáltíð
er stærsti leyndardómur lífsins —
að á þessari stundu kemur Krist-
ur til vor — vjer getum ekki skil-
ið hvernig, aðeins kropið og hvísl-
að: Drottinn minn og Guð minn.
Hafir þú ekki reynt það, þá bið
að þú megir finna það — kom, og
þjer mun veitast það, nú eða síð-
ar. —
Dómprófasturinn sleit máli sínu,
gekk með þrem kennimönnum öðr-
um fyrir altari og þeir tóku brauð-
ið og kaleikinn, gerðu þakkir og
gáfu mönnum — nálega 6 hundruð
stúdentum, sem einn af öðrum
krupu við grátumar.
Bænarmál þeirrar stundar mun
ferskt í minni, þegar öll önnur orð
þessara daga eru blásin burt.
Og hver mun gleyma þeim guðs
friði og helgi þeirri, er þá hvíldi
yfir dómkirkjunni í Niðarósi?
En hver og einn fjekk blessun
eftir trú sinni.
Mánudaginn 21. júlí.
Kl. 10 biblíutími.
Kl. II1/4 hófst fyrirlestur, sem
hinn kunni prófessor Gustav
Aulén (Svíþjóð) hjelt og nefndist:
Heilög álmenn kirkja.
— Kirkjan er heilög, því yfir
henni er himininn opinn, hún er
laus við mannlega þröngsýni,.hún
er borin uppi af kærleikanum, er
öllu trúir og vonar alt.
Kirkjan er almenn, hún er hin
rúmgóðu híbýli, þar sem allir eiga
heima — hún er alstaðar þar sem
andi Guðs og kærleikur Krists
ríkir. Hinar sjerstöku kirkjudeild-
ir, eru ekki kirkjan hver fyrir þig,
en þær eru starfsmeðul hennar,
svo að segja líkami hennar, en sál
hennar — það er andi Guðs. Hvort
tveggja heyrir saman. Hlutverk
kirkjunnar er að vera hjálparmeð-
al anda Guðs til þess að frelsa
mannssálirnar. Kirkjan er ímynd
föðurhandar Guðs. Grundvöllur
hennar er Kristur, hún starfar í
þessum heimi, en hún er ekki af
þessum heimi. Kirkjan er aðeins
ein — eining hennar er engu
sterkari þó ytri siðir einstakra
deilda verði samrýmdir — alt er
undir því komið, að andinn sje al-
staðar sá sami, því andinn einn
kemur á lifandi samfjelagi. það er
allra köllun að láta uppbyggjast,
sem lifandi steinar í þessari einu
heilögu, almennu kirkju. En á
þessum niðurrifs- og upplausnar-
tímum er það huggun vor, að vjer
reisum ekki kirkjuna, heldur er
það Guð, sem skapar hana.--------
Miðdegisverðurinn var nokkurs-
konar kveðjumáltíð. Docent Boh-
lin þakkaði fyrir Svía hönd, sjera
Koch fyrir Dani, phil. mag. Greta
Langenskiold fyrir Finna, jeg fyr-
ir okkur Islendingana.
Prófessor S. Michelet þakkaði
borgarstjórn Niðaróss gestrisnina
og eins Fjellbu forráðamanninum.
Oddviti bæjarstjórnar, Bryn
bankastjóri, og Fjellbu svöruðu.
Síðdegis hjeldu margir heim-
leiðis og vorum við Páll og Tómas
meðal þeirra. þó var ekki mótinu
að fullu lokið — en því var slitið
seint um kvöldið eftir ræðu, sem
sjera Erling Grönland hjelt í dóm-
kirkjunni um samfjelag heilagra.
---O-----
59. tbl.
Sparnaðamefnd hefir lands-
stjómin nýlega skipað, samkv.
ályktun síðasta þings. Hún á að
gera tillögur um spamað í ríkis-
rekstrinum. I nefndinni sitja L. H.
Bjarnason assessor, Guðm. Hann-
esson prófessor, þorst. þorsteins-
son hagstofustjóri, Guðm. Svein-
björnsson skrifstofustjóri og Ólaf-
ur Briem sambandsforseti.
Verslunai’samningur milli Is-
lands og Lettlands var undirritað-
ur í Riga 3. þ. m. og byggist á
bestu ívilnunarkjörum frá beggja
hálfu, segir í tilkynningu um
jetta.
Slys. þrír menn fórust nýlega í
endingu í Ólafsvík: Guðm. Guð-
mundsson úr Eyrarsveit, Guð-
mundur Runólfsson úr Ólafsvík og
Sigurður Bjarnason úr Fróðár-
íreppi.
Smygl. Við rjettarrannsóknir
íefir orðið uppvíst, að formaður
strandvarnabáts Suðurnesja, Ingi-
mundur Nóvember Jónsson, hefir
flutt vín í land úr þýsku smyglara-
skipi, sem verið hefir um hríð hjer
við land og nú er í haldi hjer á
höfninni.
Gengisnefndin hefir nú gefið út
skýrslu um útflutning ísl. afurða i
október, og er hún samin samkv.
skeytum, sem berast frá sýslu-
mönnum. Útflutningurinn nemur
samtals tæpum 11 milljónum kr.
(10.912.879 kr.). Stærsti liðurinn
er verkaður fiskur, um 3 millj.
982 þús. kg. á um 4 millj. og 84
þús. kr., óverkaður fiskur var
fluttur út fyrir 651 þús. kr. (1
millj. og 94 þús. kg.). Næsthæsti
útflutningsliðui’inn var saltket
(4141 tunna fyrir 2 millj. 369 þús.
kr.). þriðji hæsti liðurinn voru
gærur, rúml. 430 þús. kg., fyrir 1
millj. 189 þús. kr. þá er síld,
11700 tunnur fyrir 799 þús. kr. og
síldarolía fyrir 385 þús. kr., lýsi
fyrir 373 þús. kr. Aðrir hæstu lið-
irnir eru: lifandi sauðfje fyrir
177 þús. kr. (3808 talsins), kælt
ket fyrir nærri 44 þús. kr., ull
rúml. 59 þús. kg. fyrir 262 þús.
kr. og ísfiskur fyrir c. 345 þús. kr.
og fiskimjöl fyrir 92 þús. kr. Af
öðrum liðum má nefna skinn fyr-
ir 45 þús. kr., rjúpur (nærri 50
þús. stk.) fyrir rúmar 44 þús. kr.,
garnir fyrir 15 þús. kr., gráðaost-
ur (rúm 2 þús. kg.) fyrir rúmar 6
þús. kr., sundmagi fyrir 14 þús.
kr. o. fl. Samtals nemur því út-
flutningurinn á þessu ári um 65
milljónum og 840 þús. kr. og er
slíkt fádæma veltiár.
Gengið var skráð hjer svo síð-
ast: pundið kr. 28.60, danskar
krónur kr. 109.33, norskar krónur
kr. 91.01, sænskar krónur kr.
167.71, dollar kr. 6.25, franskir
frankar kr. 32.95.
Ný fyrirtæki. Bankarnir kváðu
hafa sent út brjef til að vara ein-
staklinga og stofnanir við því, að
leggja fje í ný fyrirtæki, og geng-
isnefndin kvað hafa skorað á fjár-
málaráðuneytið að áminna sveita-
og bæjarfjelög um það sama.
Dr. Petrus Beyer, yfirmaður
oddfellow-reglunnar í Danmörku,
er nýlega dáinn.
Ingimundur Sveinsson er nú
kominn úr hljómleikaferðalagi.
Hjelt 10 hljómleika um Vestur-
land, Barðastranda- og Isafjarðar-
sýslu, þar að auki spilað töluvert á
4 gufuskipum, sem hann hefir
ferðast með. Hann hefir gengið
yfir fjöll og dali með fiðlu sína og
alstaðar verið fagnað, þar sem
hann hefir komið. Leið vel á ferða-
laginu. X.