Lögrétta

Issue

Lögrétta - 02.12.1924, Page 2

Lögrétta - 02.12.1924, Page 2
2 LÖGRJETTA Heilbrigðismái. Frh. II. Tímatöflumar um kensluna i Englandi eru frá 1910; þetta er þó ekki nema lítill hluti af því, sem kent er í heilbrigðisfræðum þar, því að almenn heilbrigðisfræði hefir líka verið kend þar í öllum | stærri barnaskólum, þar sem því j hefir orðið við komið. En eftir j ófriðinn mikla hefir þessi kensla verið aukin að mun, og ei nú á leið- inni að verða skyldunámsgrein í öllum skólum, sem styrks njóta af ríkinu, og sömuleiðis kensla í „hjálp í viðlögum“. Tímatöflurnar frá þýkalandi eru frá árunum 1910—1911, en á ferð minni til þýskalands 1921 spurðist jeg fyrir um þessa kenslu og sögðu læknar, að með- an heimsstyrjöldin mikla stóð yfir 1914—18, hefðu þeir af fremsta megni reynt að halda öllu í sama horfinu og áður, og eftirstyrjöld- ina hefði kenslan síst verið mink- uð, því að þeir hefðu mist fleiri ungbörn á stríðsárunum og eftir þau, heldur en áður, vegna harð- rjettis, og vilja því heldur auka alla slíka fræðslu um ungbama- meðferð og yfir höfuð alla kenslu í heilbrigðisfræðum í öllum skól- um, sem þeir gætu frekast við komið. En það virðist sem öllum heilsu- frömuðum með þjóðverjum og Englendingum, og Bandaríkja- mönnum líka, komi saman um, að aðalmeinið í öllum heilbrigðismál- um sje hin mikla vanþekking al- mennings í þessum efnum. Sje því eina ráðið að bæta úr þessum þekkingarskorti með sem almenn- astri kenslu í skólum í þessum fræðum. Lýsa þeir allir svo átak- anlega þessari vanþekking al- mennings á öllum heilbrigðismál- um, hver í sínu landi, að óvíst er að okkar bölsýnustu mönnum tæk- ist öllu betur, ef þeir leystu frá skjóðunni og færu að lýsa ástand- inu hjer í landi í þessum efnum. það er sem sje alkunna, að sú kenning sumra bölsýnismanna er að verða hefðfest hjer á landi, að vjer íslendingar sjeum allra þjóða nftastir í öllu er að heilbrigði lýt- ur. það er búið að prjedika þetta svo lengi, að margir, já, alt of margir, eru famir að trúa og eru jafnvel orðnir vantraðir á að okk- ur sje nokkurrar viðreisnar von í þessum efnum. Hæpið mun þó vera, að halda þessum dómi fram til streitu sem algildum, enda mun Lesbók Lögrjettu VIII. Hannes Hafstein (1861-1922). Erindi flutt á íþróttamóti Hjeraðs- sambands Borgarfjarðar sunnu- daginn 6. júlí 1924. I. Skáldið og stjómmálamaðurinn Jlannes Hafstein ljetst eins og kunnugt er þann 13. dag desember- mánaðar árið 1922, og var jarðað- ur þann 22. sama mánaðar á al- þjóðai kostnað. það hefir verið ýmislegt um hann iltað í blöðunum af gömlum samherjum hans og flokksmönn- um, en ekkert má af því ítarlegt heita, nema ritgerð sú, sem þor- steinn ritstjóri Gíslason hefir skrifað um hann í Andvara, tíma- riti hins íslenska þjóðvinafjelags, árið 1923. Jeg hygg því, að það sje ekki hægt að segja það, að það sje að bera í bakkafullan lækinn, þó hjer verði í dag farið nokkmm orðum um starfsemi þessa mikla manns, sem eflaust á öllum tímum mun skipa einn virðulegasta sessinn í sógu þjóðar vorrar. Jeg veit að vísu, að hjer geta verið margir, sem þekkja sögu hans eins vel eða betur en jeg af blöðunum frá þeim tímum, að ZKTVIE'ÐJ'-A.- 4 Cá- vi (9 xxx undur 3igurðsso xxy lcavipi(jelagsstjóri á Hvammstanga. f. Í3B. marts 1876, d. 14. jarx_ 1ÖS3. Við þektumst snemma um æfi-árdagsskeið, og áttum saman þrár um blómaleið, því gullstrengjaða gígju vonin snart, og gjörvalt lífið var þá sólarbjart. En leiðir skildu og leiti á milli bar, því landið kaus jeg, sem að fjarri var; þá vissi jeg, að voru heit þín strengd, að vinna íósturjörðu’ í bráð og lengd. þú festir konu og settir saman bú, í sigursterkri iðjumannsins trú, og fjekst hið besta er fellur manni í skaut, þá fylgd, sem reyndist jöfn í gleði og þraut. þú aldrei fyrir andbyr neinum vjekst, en eins og hetja að hverjum starfa gekst með sameinuðu þreki í hug og hönd, þú hefir brotið veg um grýtta strönd. Og af því vanstu óskift granna traust, en ekkert rósabeð er þyrnalaust, og þegar gæfusólin sveif þjer hæst, var sortaský að færast himni næst. Er flóttinn brast í forna vinasveit, þá fóru mál að verða sundurleit, og griðin rufust eins og oft til ber, en allir sannir vinir fylgdu þjer. þú áttir gnægð af eldi kærleikans, og einnig viljakraft hins sterka manns, svo mörgum snauðum vinur varstu í raun, en vanþakklæti er oftast heimsins laun. „Alt kemur senn að svinnum“, Grettir kvað, og sannarlega varstu að reyna það, en þó sá enginn þjer væri um of, að þola banvæn sár og trygðarof. Jeg þakka fyrir öll þín efndu heit, og unnið starf í vorri kæru sveit, og marga góða og gleðiríka stund, og göfugmensku og sanna karlmannslund. Nú ertu genginn inn á æðri stig, svo enginn rangur dómur hryggir þig, og víst er gott að geta fundið frið, ef fer að sækja að þetta skuggalið. Jeg sje í anda ljóma fögur lönd, sem liggja beint á móti jarðlífs strönd, hvar dagur æ frá dýrðarhimni skín, í drottins friði hvílir sálin þín. Jón S. Bergmann. oft beitt ýmsum ögrunarorðum, stundum öfgakendum, af heilagri vandlætingu einni saman og ein- lægri löngun til þess að hvetja fólkið til framtaks og framfara í þeim efnum, sem einna helst þyk- I ir aflaga fara. Er þetta síst last- andi, ef ekki er of langt farið, svo að úr verði víl og vonleysi, eða vantrú, að nokkru verði umþokað til umbóta. Sannleikurinn mun vera sá, þegar öllu er á botninn j hvolft, að í öllum löndum er pott- ur brotinn, eins í þessum efnum 1 sem öðrum. Væri freistandi að færa til nokkur dæmi um ástandið með öðrum þjóðum í sumum atrið- um, sem þetta mál snerta, en það j skal þó ekki gert að þessu sinni. j Er ekki ólíklegt, að það eigi hjer við um þá menn, sem alt lasta hjer og níða, þetta gamla: „þjer finst alt frægst sem fjarst er“, og þetta djúpviturlega spakmæli Jó- hanns skálds Sigurjónssonar: „Fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla“. En hvað sem j bessum dómi annars líður, skal I það fúslega játað, að mörgu, já, j því miður of mörgu, er stórum j ábótavant hjer hjá oss í heilbrigð- ismálum. En úr því að bestu menn með helstu menningarþjóðunum halda því fram (læknar, uppeldis- fræðingar og aðrir framfara- frömuðið), að mikla nauðsyn beri til að bæta úr þekkingarskorti al- mennings um alt er að heilbrigði lýtur, og telja það jafnvel einustu leiðina til verulegra umbóta í þessum efnum, þá er mjer spurn: Vill þá nokkur af okkar læknum, uppeldisfræðingum og öðrum mæt- um mönnum, er ætla mætti að ant ljetu sjer um að íslendingar tæki sjer fram sem allra mest í heil- brigðismálum, halda því fram í al- vöru, að hjer á landi sje hreinn óþarfi að gera nokkrar umbætur á ástandinu, sem nú er hjer í þess- um efnum? Ilver sá, sem athugar framan- skráðar kensluáætlanir, hlýtur að sjá, að þar (bæði hjá Bretum og; þjóðverjum) er gert ráð fyrir, að tilsögn þurfi, jafnvel í einföldustu atriðum í heilsufræði og hjúkrun ungbarna. Mundi þessa þá þurfa hjer síður? Nú er athugandi, að þessar kenslu-áætlanir, er að ofan getur, eru samdar fyrir hjer um bil 13—14 árum. En síðan hefir margt breytst. Styrjöldin mikla 1914—1918 hafði víðtæk áhrif. Eftir þann grimma hildarleik opnuðust augu manna, meðal ann- ars fyrir því, að ekki var alt með feldu um ástandið heima fyrir í heilbrigðismálunum. — Jafnvel Bandaríkjamenn, sem lengi vel hafa talið sig forvígismenn allra framfara, sögðu sem svo: „Fátt er svo með öllu ilt“ o. s. frv. „Við höfðum þó það upp úr þessum óíriði, sem annars varð okkur býsna dýr, að við urðum þess vís- ari, hve afarmikið oss er ábóta- j vant í heilbrigðislegu tilliti. Við urðum nú varir við ýmsar veilur, sem við vissum ekki af áður, í j heilbrigðisástandinu hjá okkar j hraustu þjóð, sem við töldum cera. Og þessi uppgötvun ætti að verða oss mikilsverð áminning um að stórkostlegra umbóta er oss vant í þeim efnum“. — Og þeir vinna nú ósleitilega að því, að breyta hjá sjer og bæta um margt í uppeldismálum, meðal annars j með því, að auka að miklum mun j kenslu í heilsufræði í öllum skól- j um, umfram það sem áður var, og efla alla líkamsrækt, sem þó var talin talsverð fyrir ófriðinn mikla, og það svo, að sumir töldu um of. Frh. Gamall læknir. ---o----- hann lifði og starfaði á meðal vor, en jeg veit einnig, að þeir geta verið margir á meðal hinna yngri manna, sem ef til vill ekki hafa gert sjer þess ljósa grein, hvað hann gerði fyrir land vort og þjóð, ög til þeirra sný jeg þá fyrst og fremst orðum mínum. Jón þorláksson fjármálaráð- herra getur þess í grein sinni um Hannes Hafstein í Óðni árið 1923, að eftir að heimastjórnin var fengin árið 1904, þá hafi íslenskir mentamenn og íslendingar yfir höfuð skiftst í tvo flokka eftir ólíkum hugsjónum. Annarsvegar voru þeir, sem vildu vinna að verk- legum og efnalegum framkvæmd- um í landinu, en hinsvegar hinir, sem höfðu „rj ettarstöðu landsins og virðulegan sess þess við hlið Danmerkur“ sem takmark sitt, en öllum fanst þeim það eiga langt í land, að hugsjónir þeirra rættust, og voru flestir vondaufir í þeim efnum — því þá vantaði foringj- ann. En hann fundu þeir einmitt í honum, sem við byrjun tuttugustu aldarinnar kvað þannig: „Aldar á morgni vöknum til að vinna, vöknum og týgjumst, nóg er til að sinna. Hátt ber að stefna, von við traust að tvinna, takmark og heit og efndir saman þrinna“. Nú vita allir það, að hin íslenska þjóð er gömul menningarþjóð í bókmentalegu tilliti, en hitt hugsa menn ef til vill ekki eins oft um, hve ungir við erum sem menning- aiþjóð á sviði samgöngufæranna. Flestar þjóðir álfunnar fengu járnbrautir og síma um og eftir miðbik nítjándu aldar, en það er íyrst árið 1904, að hin íslenska pjóð stígur fyrsta alvarlega spor- ið í áttina til þess að eignast þess- konar samgöngufæri. Og eins og allir vita, þá var það Hannes heitinn Hafstein, sem steig það spor með ritsímasamn- ingi þeim, sem hann gerði við Hið mikla norræna ritsímafjelag i Kaupmannahöfn í septembermán- uði árið 1904, samning, sem skuld- batt fjelag þetta til þess að leggja sæsíma frá Hjaltlandi um Færeyj- ar til íslands, en okkur á hinn bóg- inn til þess, að leggja landsíma- línu frá landtökustað sæsímans, Seyðisfirði, til Reykjavíkur. Upphæðin, sem landssjóður ís- lands skyldi greiða mikla norræna ritsímafjelaginu fyrir verk þess, var 35 þús. kr. á ári í tuttugu ár, en svo skyldi fjelagið greiða okk- ur 300 þús. kr. fyrir það, að mega leggja sæsímann á land á Seyðis- firði í staðinn fyrir í Reykjavík, og skyldi þeirri upphæð svo varið til landsímalínunnar á milli þess- ara staða. þegar Hannes Hafstein lagði þennan sinn minnisstæða ritsíma- samning fyrir Alþingi sumarið 1905, þá voru þeir sumir stjórn- málamennirnir í Reykjavík, sem hjeldu, að með þessu tiltæki sínu myndi hann og flokkur hans fara með landið efnalega sjeð á haus- inn, og til þess að fyrirbyggja slík- an voða, hjeldu þeir hinn alkunna bændafund sumarið 1905, þar sem voru saman komin hátt á þriðja hundrað bændur úr þeim fimm sýslum landsins, sem næstar eru Reykjavík, og samþyktu þar svo- hljóðandi áskorun og ljetu birta ráðherra hana: „Bændafundurinn í Rvik skorar á alþingi mjög al- varlega að hafna algerlega rit- símasamningi þeim, er ráðherra íslands gerði síðastliðið haust við stóra norræna ritsímafjelagið. Jafnframt skorar fundurinn á þing og stjórn, að sinna tilboðum loftskeytafj elaga um loftskeyta- samband milli íslands og útlanda og innanlands, eða fresta málinu að öðrum kosti því að skaðlausu og láta rjúfa þing og efna til nýrra kosninga". Áskorun þessari svaraði Hannes Hafstein mjög rólega og sagði, „að það væri sannfæring sín, að sam- band það, sem hann hefði útvegað hjá hinu mikla norræna ritsíma- Ritfregnír. L Mjer hafa á síðustu vikum ver- ið sendar 2 nýjar bækur sunnan yfir sæ og þrjár hjer prentaðar. Ai síðast neindum þrem bókum hei'ir tveggja verið getið allræki- lega (eða órækilega) í blöðum og tímaritum, en hinna ýmist alls ekki, eöa þá ekki svo, að þess gæti aö nokkuru. Jeg vildi því gjai’na skýra al- meimingi í'rá, hvað þær haía að geyma, því að jeg hygg, að þær sjeu ailar mjög merkiiegar, hver upp á sina vísu. Tek jeg þær svo í þeirri röð, er mjer bárust þær. I. Islandische lleidemomane. Uebertragen von Faul Herrmann. Verlagt bei Eugen Diedrichs in Jena 1923 (íslenskai' hetju-skáld- sögur, þýddar af P. H. Á forlag E. D. í Jena). Bók þessi er 3+307+6 bls. í 8 blaða broti. Hún er þýdd úr Forn- aidarsögum Norðurlanda og byrj- ar á ágætum í'ormála eftir þýðand- ann, prófessor Paul Herrmann. Neí'nir hann þar hina alkunnu frásögu í Sturlungu um bruliaupið á Reykhólum og getur þess, að sú öriagaríka kvöldstund, 4. d. ágúst- mán. 1119, var fæðingarkvöld hetj u-skáidsagnanna („lygasagn- anna“) með vísum inni í frásögn- inni. pá koma þýðingarnar, er þar fyrst Völsungasaga (þeirra Nifl- ungaljóð), þá Uagnars saga Loð- brókar, þá Norna-Gests þáttur og loks Hrólfs saga Kraka. þýðing þessi er hin nákvæmasta og ágæt- asta, bæði á bundnu og óbundnu máli, og er skemtilegt að sjá, hve vei fer á með þeim frændkonun- um, þýskunni og íslenskunni, í þýðingu, þegar vit, þekking og hagleikur í orðfæri leiðir þær sam- an og þýskan kemur fram í sinni frumlegu mynd, leyst úr margra aida fjötrum latneskrar tungu (iöngum og flóknum setningum). pýðarinn, prófessor Paul Her- mann; er okkur Islendiugum að góðu kunnur frá feröum sínum hjer heima og vinnu sinni í þdrfir íslenskra bókmenta, og bókum sínum og ritgerðum um ísland og starfi sínu í íslandsvinafjelaginu þýska um mörg ár. Bók þessi er 21. bindi þess mikla ritverks, er nefnist Thule, en svo kallar Saxo Grammaticus, danskur sagnaritari á miðöldun- um, ísland. Hinn kunni forlagsmaður og bók sali Eugen Diedrichs í Jena rjeðist fjelagi, væri það besta og ódýr- asta, sem unt væri að fá“, og þar sem meirihluti alþingis var sömu skoðunar, þá samþykti hann rit- símasamninginn sumarið 1905. Árið eftir, þann 29. september 1906, var sæsíminn kominn til Is- lands og línan lögð á milli Seyðis- fjarðar og Reykjavíkur, og Island þar með komið í símasamband við umheiminn. En nú er eftir að vita, hvort spár andstæðinganna um það„ að landsíminn, sem síminn nú alment er nefndur, myndi fara með landið efnalega sjeð á hausinn, rættust eða ekki. því verður best svarað með þessu: Árið 1907 voru tekjur landssím- ans alls 46,000 kr., útgjöldin 42,000 og tekjuafgangurinn 3800, en árið 1915 eru tölur þessar orðn- ar þannig: Tekjurnar alls 291,000, gjöldin 107,00 og tekjuafgangur- inn 183,000 kr. Og nákunnugur maður hefir sagt mjer, að síðast- liðið ár hafi tekjurnar verið yfir 1 miljón króna, en tekjuafgangur- inn ekki eins mikill og búast mætti við af svo stórri upphæð, þó eitt- hvað á annað hundrað þúsund, sökum þess, að línum og starfs- fólki hefir verið fjölgað. En þótt tölur þessar sjeu hjer nefndar, þá vita allir, að það eru ekki þær, sem hafa átt að borga

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.